Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Qupperneq 33
LAUGARD AGUR 20. MARS1993
45..
Jón Karlsson, doktor í bæklunarlækningum í Gautaborg:
Læknir eins besta knatt-
spymuliðs í Evrópu
Dr. Jón Karlsson hefur unnið mikiö við að laga áverka á hné með því að nota svokallaðan liðspegil. Þessi mynd birtist i sænska blaðinu I dag þar
sem fjallað var um góðan árangur Jóns við að lækna íþróttameiðsl.
„Asteðan fyrir því að ég fór að
fást við íþróttalækningar er ein-
lægur áhugi á íþróttum. í fram-
haldi af því hafa tilviljanirnar svo
ráðið ferðinni. Maður byijar að
vinna með eitt Uð og svo leiðir þetta
hvað af öðru. En það er ekkert
markmið í sjálfu sér að vinna með
einhveiju ákveðnu Uði,“ sagði Jón
Karlsson, doktor í bæklunarlækn-
ingum og yfiriæknir á Östra-
sjúkrahúsinu í Gautaborg.
Jón hafði, að sjálfsögðu, verið að
fylgjast með heimsmeistarakeppn-
inni í handbolta í Svíþjóð, þegar
blaðamaður náði taU af honum í
vikunni, en þá voru íslendingar
nýbúnir að reka smiðshöggið á sig-
ur sinn yfir Dönum. Rússarnir
höfðu hins vegar rúUað Svíum upp.
Það var þó ekki vegna handbolt-
ans sem haft var samband við Jón.
Auk viðamUúls starfs síns í Gauta-
borg er hann nefnilega læknir hins
ótrúlega knattspymuliðs, IFK í
Gautaborg. Liðið hefur komið
verulega á óvart að undanfórnu og
er með þeim sterkustu í Evrópu.
Það tekur nú þátt í Evrópumótinu
og kemur næst á eftir hinu ósigr-
andi AC Milan, með 8 stig, í B-
riðUnum.
Og með þessu geysisterka liði í
ferðum er íslenskri doktorinn Jón
Karlsson, sem sér um líkamlega
heUsu Uðsmannanna og sinnir
þeim ef þeir verða fyrir meiðslum.
Það þótti upplagt að slá á þráðinn
til hans og forvitnast um störf hans
úti í Gautaborg, þar sem hann hef-
ur dvahö síðastUðin 12 ár.
í nám til Svíþjóðar
Það var árið 1981 sem Jón fór út
til þess að fara í sérnám í bæklun-
arskurðlækningum. Sérfræðinni
lauk hann 1985 og varði doktorsrit-
gerðina 1989. Nú starfar hann á
Östra-sjúkrahúsinu í Gautaborg,
þar sem hann er raunar yfirlækn-
ir, eins og áður sagði. Jón býr í
Floda, sem er Utið þorp í um 25
kílómetra fjarlægð frá Gautaborg.
„TilvUjanir réðu því að ég fór að
starfa hér í Gautaborg að námi
loknu. Mér bauðst góð vinna og
hefur liðið ágætlega. Ég hef aUtaf
verið með það á bak við eyrað að
fara heim en hef ekki möguleika á
sambærUegri vinnu heima miðað
við þá sem ég hef hér. Ég er þvi
ekki að hugleiða heimferð í augna-
blikinu.
Hér fæst ég við aUt mögulegt ef
svo má segja. Ég fæst við almennar
bæklunarskurðlækningar, skipti
um mjaðmir og hné í fólki og svo
framvegis. Svo hef ég sérstaklega
fengist við störf í sambandi við
íþróttamennina. Ég hef unniö fyrir
knattspyrnusambandið héma síð-
an 1985 og hef meðal annars verið
læknir ólympíulandsliðsins, sem
var í Barcelona, svo og landsUðsins
undir 21 árs. Aður var ég læknir
aðaUandsUðsins en hef ekki verið
það hin síðari ár.“
Það em talsverð ferðalög sem
fylgja því að vera læknir knatt-
spymuliðs sem vegnar vel. í um
30 daga á ári er Jón á ferðalögum
í tengslum við fótboltann.
„Því er ekki að neita að það er
mjög gaman að þessu líka. Maður
sér heiminn í gegnum íþróttimar,
ef svo má segja. Ekki spiUir
íþróttaáhuginn fyrir. Ég hef haft
mikinn áhuga á íþróttum gegnum
tíðina, bæði á fótbolta, handbolta,
körfubolta, svo eitthvað sé nefnt.
Ég hef að sjálfsögðu fylgst með ís-
lenska landsUðinu í heimsmeist-
arakeppninni hér. Það spfilti ekki
fyrir að íslenski læknirinn, Stefán
Karlsson, er kunningi minn. Hann
kynnti sér starfið á sjúkrahúsinu
hjá mér í nokkra daga áður en að
mótið hófst.“
Ekki alvarleg meiðsl
Jón sagði að flestir þeir áverkar,
sem knattspyrnumenn fengju,
væru minni háttar. Sjaldnar væri
um alvarlega áverka að ræða, en
slíkt kæmi þó fyrir. Emkum væri
um að ræða hnjámeiðsl, axlameiðsl
og einnig ökklameiðsl.
Jón skrifaði raunar doktorsrit-
gerðina sína um áverka á ökkla
sem eru mjög algengir hjá íþrótta-
mönnum. Árið eftir að hann varöi
hana varð hann dósent við háskól-
ann í fræðum um axlaráverka. Nú
gerir hann mikið að því að flytja
fyrirlestra vítt og breitt um Svíþjóð.
„Hluti af starfi mínu er að sinna
vísindastörfum og fyrirlestrum í
samvinnu við samstarfsmenn
héma á spítalanum. Þá er einnig í
gangi víðtækt samstarf innan Sví-
þjóðar meðal þeirra sem vinna með
íþróttameiðsl. Það felst í fyrir-
lestrahaldi, námskeiöum og einnig
heimsækjum við hver annan til
þess að kynna okkur helstu fram-
farir. Þá er þaö hluti af starfinu að
kynna sér helstu nýjungar erlend-
is, svo sem í Bandaríkjunum.
Nú orðið er til dæmis hægt að
laga flesta áverka á hné með svo-
kölluðum liðspegli (astroskop).
Einnig er hægt að gera við miklu
erfiðari áverka, svo sem kross-
bandaáverka, án þess að opna hð-
inn. Við þessar nýjuhgar og fleira
í þeim dúr hef ég fengist."
Betri starfsskilyrði
Jón sagðist telja að starfsskilyrði
í bæklunarlækningum hefðu verið
betri í Svíþjóð heldur en hér heima.
Það hefði fyrst og fremst komið til
af því að Svíar hefðu varið miklum
íjármunum í heilbrigðisþjón-
ustuna. Nú væru þeir famir að
draga saman seghn í þeim efnum,
bæði í hehbrigðiskerfinu og félags-
lega geiranum. Væri samdráttur-
inn farinn að koma greinilega
fram.
Miklar breytingar hefðu orðið á
sænska þjóðfélaginu að undan-
fómu, atvinnuleysið hefði aukist
stórlega og vaxandi erfiðleika
gætti. Atvinnuleysið væri nú um 7
prósent og hefði ekki verið svo
mikið síðustu áratugi. Væri búist
við að það færi yfir 10 prósent í
smnar þegar skólafólkið kæmi út á
vinnumarkaöinn.
JSS