Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Side 46
58
LAUGARDAGUR 20. MARS 1993
NÝTT EINBÝLISHUS TIL SÖLU
Glæsilegt, 160 m2 einbýlishús m/bílskúr til sölu í
Grafarvogi á hagstæðu verði.
Nánari uppl. í síma 624333.
ÁRSALIR - FASTEIGNASALA - 624333
--------------------------------\
Útboð
Markarfljót, varnargarðar
við Tjarnir
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboóum í gerð varn-
argarða við Tjarnir fyrir hönd Landgræðslu ríkis-
ins. Helstu magntölur: Ýting í varnargarða
91.800 m3 og rofvarnir 8.700 m3.
Verki skal lokið 1. júli 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Selfossi og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðal-
gjaldkera), frá og með 22. þ.m. Skila skal tilboð-
um á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 5. april
1993.
Vegamálastjóri
_____________________/
---------------------\
Útboð
Suðurlandsvegur -
Vesturlandsvegur. Áfangi I
■*,
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í jarðvinnu
við Suðurlands- og Vesturlandsveg milli Rauða-
vatns og Höfðabakka, gerð vegamóta þessara
vega og gerð hljóðmana og rofvarna í Reykjavík.
Helstu magntölur: Fyllingar og burðarlög
138.000 m3, skeringar i laus jarðlög 145.000
m3, skeringar í berg 154.000 m3, malbik 5.300
m2, regnvatnslagnir 3.000 m, hljóðmanir 35.000
m3 og rofvarnir 65.000 m3.
Fyrsta áfanga verksins skal lokið 11. júní 1993,
en verkinu skal að fullu lokið 29. apríl 1994.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins,
Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera), frá og
með 23. þ.m.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00
þann 5. apríl 1993.
Vegamálastjóri
____________________________/
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINSSJ?
©
Samningur milli íslands og
Lúxemborgar um félagsiegt öryggi
Að gefnu tilefni tilkynnist að gagnkvæmur samning-
ur um félagslegt öryggi milli (slands og Lúxemborg-
ar öðlaðist gildi 1. janúar 1992 í báóum löndunum.
Hann gildir þartil samningurinn um EES tekur gildi.
Þær bætur Tryggingastofnunar ríkisins, sem samn-
ingurinn gildir um, eru:
- sjúkratryggingar,
- bætur í fæðingarorlofi,
- slysatryggingar,
- elli- og örorkulífeyrir, ásamt makabótum og barna-
lífeyri,
- barnalífeyrir, ekkju/ekkilsbætur og ekkjulífeyrir
(bætur til eftirlifenda),
- atvinnuleysisbætur.
Þær bætur í Lúxemborg, sem samningurinn gildir
um, eru:
- sjúkra- og fæðingartryggingar,
- vinnuslysa- og atvinnusjúkdómatryggingar,
- elli- og örorkulífeyrir og lífeyrir eftirlifandi maka,
- atvinnuleysisbætur.
Samningurinn tekur til þeirra sem heyra eða hafa
heyrt undir löggjöf íslands og Lúxemborgar og þeirra
sem rekja rétt sinn til þeirra aðila.
Tryggingstofnun ríkisins
Afmæli
Þorvaldur Sigurður
Þorvaldsson
Þorvaldur Sigurður Þorvaldsson,
arkitekt og forstöðumaður Borgar-
skipulags Reykjavíkur, Hábæ 39,
Reykjavík, verður sextugur á morg-
un, sunnudag.
Starfsferill
Þorvaldur fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Hafnarfirði. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR1954 og varð
arkitekt frá Konunglegu Listaaka-
demíunni í Kaupmannahöfn 1961.
Þorvaldur starfaði hjá arkitektum
Hans Erling Lagkilde og Ib Martin
Jensen í Kaupmannahöfn frá
1960-61, Sagsarkitekt hjá Erik Moll-
er í Kaupmannahöfn 1961-63, arki-
tekt hjá húsameistara ríkisins
1963-67 og rak arkitektastofu í félagi
við Manfreð Vilhjálmsson 1967-84.
Þorvaldur hefur verið forstöðumað-
ur Borgarskipulags frá árinu 1984.
Þorvaldur var Inspector scholae í
MR1954, stundakennari í húsagerð
við verkfræði- og raunvísindadeild
HÍ1969-75, í stjóm Arkitektafélags
íslands 1965-72, þar af formaður
1969-71, i stjóm sjálfstætt starfandi
arkitekta 1978-81, í stjóm Norræna
sumarháskólans 1966-71, í stjórn
Skógræktarfélags Reykjavíkur frá
1979, þar af formaður frá 1987, í
stjóm Skógræktarfélags íslands og
Landgræðslusjóðs frá 1983 og for-
maður Landgræðslusjóðs frá 1990.
Þorvaldur hefur hannað margar
þekktar opinberar byggingar, skóla
og kirkjur. Má þar m.a. nefna Kjar-
valshús, Þjóðarbókhlöðuna, Lýðhá-
skólann í Skálholti, Árbæjarkirkju,
menningarmiðstöð Þingeyinga,
íbúðir fyrir aldraðra og heilsu-
gæslustöð á Egilsstöðum.
Hann hefur ennfremur sent frá sér
greinar í tímarit um arkitektúr og
skipulagsmál og haldið fyrirlestra.
Árið 1970 hlaut hann fegurðarverð-
laun fyrir húsið Fáfnisnes 3 og
MenningarverðlaunDV 1980fyrir
húsagerðarlist og viðurkenningar í
ýmsum samkeppnum.
Fjölskylda
Þorvaldur kvæntist 25.9.1955
Steinunni Jónsdóttur, f. 6.11.1933,
húsmóður. Hún er dóttir Jóns Jóns-
sonar, fyrrum framkvstj. Hrað-
frystihússins í Innri-Njarðvík, og
Björneyjar Hallgrímsdóttur hús-
móður. Þau búa í Kópavogi.
Þorvaldur og Steinunn eiga þrjú
börn. Þau eru: Jón Þór, f. 2.12.1956,
arkitekt, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Guðrúnu Ingólfsdóttur
Ömólfssonar og eiga þau Steinunni,
f. 20.6.1980; Herdís Sif, f. 22.2.1962,
landfræðingur og flugfreyja, gift
Finni Thorlacius Sigurðssyni, ís-
akssonar, og eiga þau Sindra Snæ,
f. 24.6.1990; Þorvaldur Bjami, f. 3.3.
1966, tónlistarmaður.
Systkini Þorvalds eru: Dóra, f.
14.8.1922, húsmóðir í Kópavogi, var
gift Þóri Hall, f. 19.3.1922, þau
skildu, og eiga þau Þóri Jón Hall og
Hrafnkel Hall; Herdís, f. 15.10.1923,
leikkona, búsett í Reykjavík, var
gift Gunnlaugi Þórðarsyni, f. 14.4.
1919, þau skildu, og eiga þau Hrafn,
Þorvald, Snædísi og Tinnu Þórdísi;
Þóra, f. 18.2.1925, húsmóðir í
Reykjavík, gift Nikulási Má Niku-
lássyni, f. 8.8.1923, og eiga þau Má
Viðar, Maríu Erlu, Þorvald Tómas,
Nikulás Úlfar, Höllu Þóm, Hafstein
og Sigríði; María, f. 16.6 1928, hús-
móðir og saumakona í Bandaríkjun-
um, var gift Joseph Edward Brad-
well, f. 24.6.1921, þau skildu og eiga
þau Joseph Edward. Fyrir átti Mar-
Þorvaldur Sigurður Þorvaldsson.
ía Bjarna Örn með Þóri Jónssyni,
f. 4.2.1912, d. 3.2.1982; Sigríður, f.
1.8.1926, d. 1.5.1931.
Foreldrar Þorvalds voru Þorvald-
ur T. Bjamason, f. 6.11.1895, d. 29.9.
1932, kaupmaður í Hafnarfírði, og
María Víðis Jónsdóttir, f. 14.12.1895,
d. 4.5.1982, húsmóðir og bóksali í
Hafnarfirði.
Ætt
Foreldrar Þorvalds T. voru Bjami,
útvegsb. á Klöpp í Höfnum, Tómas-
son, Guðmundssonar, útvegsb. á
Flankastöðum, og Herdís Nikulás-
dóttir Bjömssonar, útvegsb. í Ný-
lendu í Leirhöfn, Jónssonar, í Vör-
umíGerði.
Foreldrar Maríu vom Jón Jóns-
son Þveræingur Jóakimssonar, b.
og hreppstj. á Þverá í Laxárdal, S.-
Þing., og HaUdóra Sigurðardóttir,
Guttormssonar, í Kallstaðagerði á
Völlum, Vigfússonar, stúdents og
alþm. á Amheiðarstöðum á Héraði.
Þorvaldur og Steinunn hafa boðið
til morgungleði í Perlunni á afmæl-
isdaginn.
Til hamingju með daginn 20. mars
Margrét Helgadóttir,
Búlandi 3, Reykjavík.
Guðjón Guðmundsson,
Rauðalæk 5, Reykjavík.
60ára_________________________
Friðrik Áskell Clausen,
Grundargötu 62, Grundarfirði.
Rafn Þorsteinsson,
Ránargötu 24, Akureyri.
Ásthiidur Einarsdóttir,
Jörundarholti 125, Akranesi.
Agatha Erlendsdóttir,
Álftamýri 48, Reykjavík.
MaggiSígurðsson,
Hitaveituvegi 8, Reykjavík.
Maggi verður að heiman á afmælis-
dagiim.
70 ára
Sigurður Eiðsson,
Hreiðarsstaðakoti, Svarfaðardals-
hreppí.
50 ára
Hihnar Guðmundsson,
Aðalgötu32, Súðavik.
Júiíus Sæberg ÓÍafsson,
Sæviðarsundi 82, Reykjavík.
Hjálmtýr Guðmundsson,
Kriunesi 8, Garðabæ.
Óskar Már Ólafsson,
Hrauntúni 20, Vestmannaeyjum.
LeifurEiríksson,
Vallargötu 14, Þingeyri.
Eiríkur Ingvar Þorgeirsson,
Fjaröarási 8, Reykjavík.
Aðalbjörg Helgadóttir,
Furúgrund 54, Kópavogi.
Jónas Helgi Sveinsson,
Bólstaðarhlið 60, Reykjavfk.
Ingibjörg Sigfúsdóttir,
Háuhlíð3, Sauðárkróki.
Sigríður Kristín Gunnarsdóttir,
Álfheimum 9, Reykjavík.
Sviðsljós
Gísli Maack
fertugur
Gísli Maack rekstrarráð-
gjafi náði þeim merka
áfanga um daginn að verða
fertugur. Af því tilefni bauð
hann til veislu á Café Ro-
mance þar sem margt góðra
gesta leit inn. í þeim hópi
var m.a. Egill Ólafsson en
hann bæði tók lagiö og gerði
góðlátlegt grín að afmæfis-
baminu. Á myndinni er
Gísh ásamt eiginkonu og
bömum, Kristbjörgu Ás-
'laugsdóttur og Áma Pétri
ogSigríðiÁsu.
DV-mynd ÞÖK