Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1993, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ1993
3
JOV
Héraðsdómur Reykjavlkur:
Fréttir
Síbrotatvíburar enn
sektaðir fyrir brugg
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
nýlega dæmt tæplega 20 ára gamla
tvíbura til greiðslu sektar fyrir
bruggsölu í bílskúr í Reykjavík sl.
nóvember. Tvíburaramir, sem
margsinnis hafa verið dæmdir fyrir
ýmis brot, voru dæmdir til að greiða
150 þúsund krónur hvor í sekt og
upptöku á brugginu, ella sæta hvor
um sig 45 daga varðhaldi. Þá þarf
annar tvíburinn að sæta upptöku á
smávægilegu magni af tóbaksblönd-
uðu hassi. Þeir þurfa að greiða allan
sakarkostnað. Tvíburamir vom
handteknir af lögreglunni í Breið-
holti í nóvember sl. vegna gruns um
brugg og sölu á landa í bílskúr við
Laugaveg 51. Þrír aðrir voru hand-
teknir en þeim sleppt. Tvíburamir
höfðu þrisvar áður, á síðasta ári,
verið teknir fyrir bruggstarfsemi.
Ríkissaksóknari gaf út ákæm á
tvíburana fyrir að hafa bruggað og
eimað í söluskyni um 100 btra af
sterku áfengi og selt af því um 20 btra
til fjölda manna á 1200 krónur hvem
btra. Þá var annar tvíburinn ákærð-
ur fyrir að hafa haft í sinni vörslu
Ertii nógu góö(er)
við hrygginn þinn ?
Ótrúlega margir ís-
lendingar halda að
það sé sjálfsagt mál
að sætta sig við bak-
verki og þreytu í liðum
Komdu og fáðu þér
nýja dýnu og segðu
okkur svo hvort lífið
sér ekki skemmtilegra.
Við höfumvitá
dýnum.
HÚSGAGIVA I
HÖLLIN
BILDSHOFDA 20 - S: 91-681199
0,2 grömm af tóbaksblönduðu hassi.
Þeir játuðu ákæruatriðum skýlaust
fyrir dómi.
Áður hafa þessir tvíburar hlotið
samtals 11 refsidóma og sektir fyrir
brugg, þjófnaði, ávísanafals, innbrot
og fíkniefnamisferb. Annar tvíbur-
inn var dæmdur í vor til greiðslu 240
þúsund króna sektar fyrir bmggmál
frá því í október sl. en hinn tvíburinn
var sektaður. Þrír aðrir voru sektað-
ir fyrir það mál en tvíburinn var
höfuðpaurinn.
Tvennir tvíburar á svipuðum aldri
hafa oft komið við sögu lögreglunnar
í Reykjavík og rétt er að nefna að hér
er um yngri tvíburana að ræða.
-bjb