Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1993, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1993
Spumingin
Tekurðu lýsi?
Erlingur Karlscooper: Nei, mér
finnst þaö vont.
Ingibjörg Þorgilsdóttir: Já, já, aðal-
lega af því aö ég held að þaö sé hollt.
Jóhann Kjartansson: Nei, ekki aö
staðaldri.
Erna Olsen: Já, lýsistöflur.
Baldur Kristjánsson: Já, það er svo
hollt og mamma segir mér aö taka
þaö.
Rúnar Pálmason: Já, þaö er styrkj-
andi og hollt. Maður verður að vera
frískur.
Lesendur
Á að drepa
iðnaðinn?
Siggi Karls skrifar:
Eg hef lengi veriö aö velta fyrir
mér hvert stefni í iðnaðarmálum
okkar íslendinga. Svo virðist sem
það eigi að drepa iðnaðinn alveg án
þess að nokkur hreyfi hönd né fót.
Ekkert er gert til að vekja máls á
þeirri endaleysu að betra sé að borga
atvinnuleysisbætur og kaupa vinnu
utanlands frekar en að nota íslenskt
vinnuafl við að smíða skip, bíla og
húsgögn.
Ég ætla aö fjalla hér aðeins um mál
viökomandi bílasmíðinni eða smíði
svokallaðs póstbfls. Póstur og sími
er að láta endurbyggja bfl í líkingu
við fyrsta póstbfl landsins. Það verð-
ur að teljast furðulegt því þegar þeir
hjá Pósti og síma ákváðu að láta
byggja yfir fyrsta póstbflinn var
gengið fram hjá öllu sem heitir fag-
mennska og fariö í mesta ruslahaug
bæjarins til að láta vinna verkið.
Óll yfirbyggingin er slíkt æðisgeng-
iö fúsk að slíkt hefur ekki sést dæmi
um áður. í þetta er hent milljónum
án þess að nokkur segi orð. Þeir sem
standa fyrir þessu eru að reisa sér
minnisvarða sem verður þeim til
ævarandi háðungar. Ég gef póst-
meistara það ráð að láta bflinn
hverfa hávaðalaust.
Svo langar mig að minnast á iðnað-
inn yfirleitt. Það er grátlegt tfl þess
að vita að fullunnar iðnaðarvörur
séu fluttar inn á sama tíma og iðnaö-
armenn ganga atvinnulausir. Þetta á
við um húsgögn, föt og prentverk.
Það er sama hvert litið er, sú hugs-
un virðist ráðandi að innflutt sé betra
en íslenskt. Ég vil spyija borgar-
stjóra aö því hvort ekld sé kominn
tími til að byggja frekar yfir strætis-
vagna fyrir borgina hér heima held-
ur en að kaupa allt frá útlöndum og
vera svo grátandi yfir atvinnuleys-
inu. íslenskur iðnaður virðist bann-
orð. Ég er viss um að það er hægt
að byggja yfir bíla hér á landi eins
og annars staðar. Viö erum miklir
fagmenn og duglegir í því, ekki síður
en þeir í útlöndum.
Iðnaðurinn er lífsspursmál fyrir
þjóðina. Við eigum aö stórefla hann
á öllum sviðum og vera sjálfum okk-
ur nógir eftir því sem framast er
kostur. Að vera sjálfstæöur maöur í
sjálfstæðu landi er að kunna vel til
vígs og vera landsins hnoss því betra
er hjá sjálfum sér að taka en sinn
bróður að biðja.
„Ekkert er gert til að vekja máls á þeirri endaleysu að betra sé að borga atvinnuleysisbætur og kaupa vinnu
utanlands frekar en að nota íslenskt vinnuafl við að smíða skip, bíla og húsgögn," segir bréfiritari.
Engar hvalveiðar
Már Kjartansson skrifar:
íslendingar hafa haldið fram nauö-
syn þess að veiða nokkur hundruð
stórhveh í þágu vísinda. Þetta er
helbert kjaftæði. Eini tilgangurinn
er og hefur veriö sá að drepa hvali
til að éta þá. Fyrir mér eru þeir hags-
munir ekki í húfi aö það réttlæti dráp
á einum einasta hval. Fylgja ber þeim
ályktunum meirihluta þjóða heims
að hætta hvalveiðum.
Sé vísindalegur áhugi íslendinga á
líffærum hvala svo óslökkvandi má
auðvitað koma því á framfæri við
þjóðir heims að þau hvalahræ sem
af einhverium orsökum rekur að
ströndum þeirra verði bútuð niður
og sett í viðeigandi umbúðir og
sendar íslendingum. Ég er handviss
um að það myndi skapa ótal atvinnu-
tækifæri hérlendis.
Bögglapóststofur þyrftu að öllum
líkindum að bæta við mannafla sinn.
Svo er tflbreyting að þeirri marg-
breytflegu lykt sem fylgt gæti hveri-
um pakka. En hvað gerir það tfl? ís-
lendingum þykir mun vænna um
dauðan hval heldur en lifandi.
Áskorun til ráðherra
„Nýlega var sagt frá því í fréttum að viss botnmálning báta og skipa vagri
svo eitruð að tiltölulega litið magn þyrfti til að afskræma, drepa og gera
lifverur vanhæfar til æxlunar," segir í bréfi ritara.
öldum ómenguðum sjó“?
Haukur Sveinbjarnarson skrifar:
Ég er hér með áskonm til Össurar
Skarphéðinssonar umhverfisráð-
herra. Hér með er skorað á yður að
gera allt sem í yðar valdi stendur til
aö vemda, friða og byggja upp sjáv-
arbotninn á íslandsmiðum og að láta
rannsaka mengun sjávar á miðum
og viö strendur landsins.
Undirritaður telur, og er ekki einn
um þá skoðun, að ekki hafi verið um
ofveiði aö ræða á þorski heldur
marga samverkandi þætti. Þar má
nefna veiðiaðferðir sem raska lífrík-
inu og verustað þorsksins, mengun
og enn aðra óvitaða þætti. Víða í
heiminum eru fiskstofnar og mið
vemduð með veiðiaðferðum sem
stuðla að því að lífskeðjunni sé ekki
raskað.
Nýlega var sagt frá því í fréttum
að viss botnmálning báta og skipa
væri svo eitruð að tiltölulega lítið
magn þyrfti til að afskræma, drepa
og gera lífverur vanhæfar til æxlun-
ar. Hvaða áhrif hefur þessi mengun
á örvemr, svif og seyði? Allflestir
bátar og skip era máluð með þessari
botnmálningu. Þessir bátar og skip
erú á miðum og við bryggjur alla
daga árin um kring símengandi.
Höfum þaö hugfast að kaldur sjór
geymir mjög vel ekki aðeins það góða
og besta heldur eihnig það allra
versta. Það er meiri hætta á að kald-
ur sjór, norður- og suðurskaut, verði
að raslakistu heldur en heitu höfin.
Hvað verður þá um íslensku auglýs-
inguna „Úr hreinum, tærum og ísk-
Einnig ertu hvattur til að slá ekki
slöku við áhugamál þitt aö endur-
vekja urriðastofninn í Þingvalla-
vatni.
DV
Lítiðaðmarka
verð
Sigrún hringdi:
Undanfarna daga hafa dagblöð-
in verið uppfull af „frábærum“
verðtilboðum ferðaskrifstofanna
i sólarlandaferðir. Auglýsingarn-
ar era þes eðlis að fáein sæti séu
laus eða hafi Iosnaö og séu á sér-
stöku tilboðsveröi ef menn flýti
sér að staöfesta. Verðið litur mjög
vel út viö fyrstu sýn, en ekki er
allt sem sýnist.
Fyi'ir aftan verðið er yfirleitt
stjama sem á að benda manni á
aö lesa smáa letrið. Þá kemur i
ljós að verðið gildir kannski ekki
nema fyrir hjón með 5 börn í íbúð.
í alflestum tilvikum er það verð,
sem gefið er upp í auglýsingunni,
ekki nálægt því endanlega verði
sem ferðalangur borgar þegar
upp er staðið. Fólk ætti því að
vara sig á því að taka mark á
þeim upphæðum sem gefnar era
upp i auglýsingunum.
Unglingarívand-
ræðum
Friðrik hringdi:
Ég las í DV síðastliðinn föstu-
dag þar sem reitt foreldri lýsti
yfir óánægju yfir lélegri þjónustu
Hagvagna vegna rokktónleika i
Kaplakrika. Áhorfendur voru vel
á fjórða þúsundið en fyrirtækið
Hagvagnar haföi lofað því að
keyra unglhigana heim.
Alls voru sendir 3 vagnar sem
var náttúrlega eins og dropi í
hafið og nægði engan veginn. Ég
vil því taka undir með bréfritar-
anum síðasta föstudag, því mín
börn lentu einmitt í þessum
vandræðum. Ég veit um fleiri for-
eldra sem eru ævareiðir út af
þessu.
Hleypurfráþrota-
búi
Stefán hringdi:
Það hefur komið í Ijós að
skuldastaða Hafnarijarðarbæjar
er nú hrikalega slæm og heildar-
skuldir hafi verið að aukast um
sem svarar einni milljón á dag
allt síðasta ár.
lætta eru svo sem ekkert nýjar
fréttir í öllu krepputahnu hér á
landi, en hitt vekur meiri athygli
að fyrram bæjarstjóri Hafhar-
fiarðar, sem nýhættur er störf-
um, er Alþýðuflokksmaðurinn
Guðmundur Árni Stefánsson.
Hann er að hlaupa frá þrotabúi
og beint í ráöherrastöðu. Á
hveiju á maður nú von þegar
hann fær vald yfir jafhvel enn
meiri peningum?
Góðhljómsveitað
hætta
Halldóra hringdi:
Ég var að frétta þaö að Sigtrygg-
ur Baldursson, aöalsprautan í
hinni frábæru danshljómsveit
Bogomfl Font, ætli sér aö hætta
í sumarlok. Það er engin spurn-
ing að þessi hljómsveit skarar
fram úr meðal íslenskra dans-
hljómsveita. Því skora ég á Sig-
trygg að endurskoða ákvörðun
sína og gefa hljómsveitinni líf
eitthvað lengur.
Skrítiðíslandsmót
Gunnar skrifar:
Þeir era margir íslendingamir
sem hafa gaman af aö fylgjast
með islandsmótinu í knatt-
spyrnu. Það vekur þó fhröu
manna hve úrslitin í leikjum eru
sérkennileg. Um helgina vannst
stærsti sigur í 20 ár, 10-1 í einum
leikjanna og mörkin hafa verið
ótrúlega mörg í leikjum hingað
tíl. Er þetta dæmi um þaö að
knattspyman sé á uppleið eða er
getumunurinn á milh góöu og
léleguliðanna einfaldlega aö auk-
ast? Ég hallast að hinu síðar-
nefhda og tel þaö vera óheillaþró-
un.