Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1993, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1993
13
dv _______Menning
Sigurður Flosason. Góður djass í Hafnarborg.
Iistahátíð 1 Hafnarfirði:
Sigurður Flosason
og Norræni jass-
kvintettinn
Norræni jasskvintettimi er skipaður þeim Pétri Östlund trommuleik-
ara, Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, Svíanum Ulf Adáker sem leikur
á trompet, danska bassaleikaranum Lennart Ginman og formanninum,
Sigurði Flosasyni saxófónleikara. Á Listahátíð Hafnarfjarðar í Hafnar-
borg 19. júní lék kvintettinn gömul og ný verk eftir Sigurð sem áætlað er
að komi út á geislaplötu von bráðar. Tónleikamir heppnuðust mjög vel,
enda kvintettinn með úrvals-hljóðfæraleikara innanborðs. Grinman er
enn einn undraveröur bassaleikari frá Danmörku og var hrein unun að
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
hlýða á hann. Samspil hans og Péturs var ákaflega smekklegt og tilþrif
þeirra með Eyþóri, sem aldrei feilar í hrynjandi, með miklum ágætum.
Adáker var fremur hógvær framan af en gekk á lagið í „Gengiö á lagið“
og blés þá af gamalkunnum krafti og hafði þann háttinn á sem eftir var.
Sigurður sýndi sínar bestu hhðar í völsum sínum og einnig og ekki síst
í „In memoriam". Það lag var leikið ofur hægt, sem getur reynst dálítið
skeinuhætt eða brothætt, en tókst hér frábærlega vel og átti trommuleik-
ur framinn af meistarans höndum sinn þátt í því.
„Með harðri hendi“ er verk sem hefst á mjög ágengu stuttu stefi sem
hreinlega neyðir áheyrandann með harðri hendi til að taka eftir sér.
Millikaílinn leysir mann undan vissri áþján þar til aftur sækir í sama
horf. Þetta verk ásamt „Flugi 622“, þar sem Eyþór fór á kostum í píanó-
sólói, eru þessi hörðu nýbopp-lög sem kennd eru við New York, Freddie
Hubbard og fleiri og eru einnig nokkuð einkennandi fyrir Sigurð Flosason.
- En á þessum tónleikum sýndi hann líka á sér mýkri hhðar í tónsmíð-
um og má nefna „Vatn undir brúna“ sem dæmi um eina shka. Það er
ekki verið að hanga í húkklínunum hér. - Verk Sigurðar eru óftast htt
fyrirsjáanleg og taka gjaman aðra stefnu en maður býst við miðað við
þaö sem á undan hefur farið. Hljómagangar eru heldur ekki af hefðbundn-
asta tagi og óvænt (hljóma)sambönd skjóta upp kolhnum. Laghnur líða
ekki lognmohulega áfram, þær virðast fremur leita út úr forminu eða út
úr dúr (sic), en hugvitssamleg hljómsetning skhar þeim vel og vandlega
til áheyrandans. Umgjörðin er fyrir hendi, en reynt á þanþol hennar.
Það er ekki hægt annað en óska Flosasyni til hamingju með tónsmíöarn-
ar, þessa frábæru meðleikara og geislaplötuna tilvonandi.
________________Neytendnr
Sértilboð og afsláttur:
Melónur og körfu-
boltaspjöld
Það kennir ýmissa grasa í tilboð-
um stórmarkaðanna að þessu sinni
og má gera þar góð kaup jafnt í mat-
vöru sem leirtaui og körfubolta-
spjöldum.
Grillmatur er þó ofarlega á hsta og
einnig virðist þetta vera tími ávaxta
og drykkjarvara.
Körfuboltaspjöld í Bónusi
Thboðin í Bónusi ghda frá fimmtu-
degi th laugardags. Að þessu sinni
býður Bónus upp á stór „alvöru"
körfuboltaspjöld á 4.959 krónur, en
tekið skal fram að þar er um tak-
markað magn að ræða.
Einnig er hægt að fá Prins polo
„new“ á 299 krónur 15 stykki í kassa,
þrjár Rosti skálar á 287 krónur og
fjögur stór glös á 159 krónur. Frón
smehur kosta 75 krónur pakkinn,
blár og rauður, khóið af nektarrínum
kostar 147 krónur og ef keyptur er
pakki af hrískökum fæst annar frír
í kaupbæti.
Ódýrar melónur í
Fjarðarkaupum
Thboðin í Fiarðarkaupum ghda frá
miðvikudegi th föstudags, að báðum
dögum meðtöldum. Þar fást bæði
gular melónur og vatnsmelónur á 59
krónur khóið, Campehs súpur,
sveppa og kjúklinga, á 67 krónur en
aspassúpa á 87 krónur og Kulana
epla- og appelsínudjús á 78 krónur
htrinn.
Hálfur htri af Pripps bjór kostar
56 krónur, léttreyktur lambahryggur
744 krónur kílóið og nautagrhlsneið-
ar 998 krónur khóið. Einnig er hægt
að fá svínalærissneiðar á 555 krónur
khóið.
Khóið af perum kostar 79 krónur,
niðursneitt heilhveitiformbrauð
kostar 89 krónur og niðursneitt
bóndabrauð þaö sama.
Grillmatur hjá Kjöti og fiski
Tilboðin hjá Kjöti og fiski gilda frá
fimmtudegi th sunnudags. Þar fæst
nautabeinsteik á grilhð fyrir 590
krónur khóið, niðursagaöur lamba-
frampartur á 378 krónur kílóið og 250
g af Merci súkkulaði á 199 krónur
pakkinn.
Einnig er hjá Kjöti og fiski hægt
að kaupa Hytop eplasafa á 119 krónur
946 ml flösku, Better value ananas-
safa á 159 krónur 1,36 1 dós, Idem
tómatsósu á 96 krónur 540 g brúsa
og Idem sinnep á 78 krónur 510 g
brúsa.
Lambakjöt hjá Garðakaupum
Thboðin hjá Garðakaupum ghda
frá miðvikudegi th miðvikudags. Þar
er t.d. hægt að fá margs konar lamba-
kjöt á thboðsverði.
Lambaiæri kostar 575 krónur khó-
ið, lambahryggur 560 krónur khóið,
lambakótelettur 595 krónur khóið og
lambaskrokkar, heilir og hálfir,
kosta 435 krónur khóið.
Einnig fæst London lamb á 898
krónur khóið, saitkjötshakk á 498
krónur khóið og Valley franskar
kartöflurál88krónurkhóið. -ingo
Frambod á tómötum í hámarki:
Tæplega 60 króna lækkun
Framboð á íslenskum tómötum er
nú í hámarki í kjölfar hlýindanna
undanfarið og hefur hehdsöluverðið
því verið lækkað úr 198 krónum khó-
ið í 139 krónur.
Að sögn Kolbeins Ágústssonar,
sölustjóra hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna, hefur verðið á tómötum
lækkað úr 395 krónum í 139 krónur
khóið á stuttum tíma en gæti hins
vegar farið hækkandi í næstu viku.
Hehdsöluverðiö á Utaðri papriku
hefur einnig lækkað úr 650 krónum
khóið í 550 krónur en græn paprika
lækkaði í síðustu viku úr 490 krónum
khóið í 429 krónur og helst verð
hennar því óbreytt nú.
Kolbeinn sagði að mest væri selt
af grænni papriku en rauða paprikan
væri þó í mikilli sókn. Paprikan verð-
ur fyrst græn en Utast svo við sólar-
hita. Hann sagði ennfremur að ís-
lenskt kínakál kæmi á markaðinn
um miðjan næsta mánuð og aðra
viku í júlí mætti búast við íslensku
blómkáU og hvítkáU á markaðinn.
-ingo
Opið laugardag 10—13
Spindilkúlur
og stýrisendar
QSvarahlutir
HAMARSHðFBA 1 • 67 67 44
EL
HEILDSÖLU-
MARKAÐUR
Stórkostlegur fatamarkaður.
Mikið úrval af fatnaði
á alla.
Yfirstærðir.
Nýkomið: leður-göngu-
skór og bakpokar,
margar gerðir.
Heildsöluverð.
Opið frá 9-18.
Laugardaga 10-16.
Póstkröfuþjónusta
EL HEILDSÖLUMARKAÐUR
Smiðsbúð 1 - Garðabæ
Sími 656010
GHIBLI
RYK- 0G
VATNSSUGUR
Eigum gott úrval af
iðnaðarryk/vatnssugum
Verðfrákr. 19.080,-
Imlm
Skeifan 11 d, sími 91 -686466