Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Blaðsíða 29
28 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993 Fjölskylda hans var rekin úr landi árið 1938: eftir að ætti aldrei siá hann" - sagði gyðingurinn Hans Mann Jakobsson þegar frændi hans, Felix Rottberger, birtist á húströppunum Æðsti draumur Felix Rottberger var að sjá landið sem hann fæddist í þrátt fyrir að íslensk stjórnvöld ráku hann, foreldra hans og systur úr landi, vit- andi að þeirra biði ekkert nema dauðinn í höndum Hitlers. Hér er Felix á heimili móðurbróður síns með eiginkonu sinni, Hannah. Fæðingarvottorð Felix Rottberger sem fæddist á íslandi árið 1936. Hann telur sig vera fyrsta gyðinginn sem fæðist á íslandi. „Ég og systir mín skrifuðumst allt- af á en ég hef ekki taiið mig geta far- ið frá landinu til að heimsækja hana. Auk þess hef ég unnið verkamanna- vinnu sem rétt hefur dugað fyrir daglegu brauði. Ég varð alveg undr- andi þegar sonur hennar birtist hér. Á því átti ég ekki von enda var hon- um vísað úr landinu á sínum tíma,“ segir Hans Mann Jakobsson, sem verður áttræður eftir tvo mánuði, en hann fékk óvænta heimsókn um síð- ustu helgi. Systursonur hans, Felix Rottberger, beið við hliðið að húsi hans er Hans kom úr gönguferð. Þeir frændur hafa ekki sést í 55 ár og Felix man lítið eftir því - hann var aðeins tveggja ára. Felix fæddist á íslandi 16. september 1936 en þurfti að yfirgefa landið árið 1938 sam- kvæmt skipunum íslenskra yfir- valda ásamt foreldrum sínum og systur. Mál fjölskyldunnar hefur verið sagnfræðingum hugleikið og um það hefur verið skrifað í bókum, t.d. bók Þórs Whitehead, Stríð fyrir strönd- um, og í bókum Einars Heimissonar. Sá síðarnefndi tók einnig viðtöl við systkinin árið 1988 sem birtust í Þjóð- lífi. Árið 1985 birti helgarblað DV kafla úr bók Þórs þar sem fjallað var um sögu Rottbergerfjölskyldunnar. Flúði nasista og hélttil íslands Hans Rottberger, faðir Fehx, kom hingað th lands árið 1935. Hann flúði undan ágangi nasista en Hans rak útvarpsverslun í Berlín sem Hitlers- menn yfirtóku. Hans reyndi að þrá- ast við í fyrstunni þegar nasistar bönnuðu honum að selja ýmis þekkt og góð merki og seldi á svörtu. Það varð til þess að hann var tekinn í yfirheyrslu hjá lögreglu og var mis- þyrmt hrottalega. Hans ákvað þá að flýja land og tók stefnuna á ísland sem hann hafði heyrt um og honum þótti nógu langt í burtu frá nasistum. Kona hans, Olga, sem þá átti von á fyrsta barni þeirra, beið þar til barn- ið fæddist en hélt þá á eftir manni sínum til íslands. Móðir Olgu og bróðir, Hans Mann, flúðu einnig til íslands. Hans Mann hafði áður flækst um Evrópu í leit að griðastað. Rottbergerhjónin eignuðust annað bam sitt á íslandi árið 1936; það var Felix. Hans starfaði við leðuriðju en sagt er að íslenskur verslunareig- andi, Ath Ólafsson, hafi kært hann þar eð honum þótti verslun sinni standa ógn af samkeppninni. Það varð til þess að Hans og Olga, kona hans, voru köhuð til yflrheyrslu og þeim síðan vísað úr landi. í viðtah við Einar Heimisson í Þjóðlífi sagðist Olga muna enn þá setningu sem lög- reglan sagði við hana á íslensku: „Ef þér farið ekki með góðu þá farið þér með lögregluvaldi." Danirbjörguðu lífi þeirra Skipið sem flytja átti Olgu, Hans og htlu bömin þeirra tvö til Þýska- lands lagði af staö 10. maí 1938 og fjöl- skyldan var flutt að skipshhð í lög- reglufylgd. Það vUdi fjölskyldunni tU happs að skipið, Brúarfoss, hafði við- dvöl í Kaupmannahöfn. Þar fékk hún landvistarleyfi og má því segja að Danir hafi bjargað lífi hennar. Olga sagöi í Þjóðlífsviðtalinu: „Ég myndi líkja því við réttarmorð sem íslensk stjórnvöld frömdu á okkur. Þau sendu okkur í rauninni beint í dauð- ann.“ Olga og Hans Rottberger eru bæði látin. Þau bjuggu í Danmörku til árs- ins 1942 er þau urðu að flýja þegar nasistar gerðu skipulega leit að gyð- ingum í landinu. Þau skUdu fjögur börn sín eftir á kaþólsku barnaheim- ih en flúðu sjálf til Svíþjóðar. Fimmta barn hjónanna fæddist í Svíþjóð. Það var ekki fyrr en að stríðinu loknu sem fjölskyldan sameinaðist á ný. Þau tóku sér búsetu í Danmörku til ársins 1955 en þá flutti fjölskyldan aftur til Þýskalands. Felix, sem nú er kominn til að líta augum landið þar sem hann fæddist, ber mikinn hlýhug til íslands og ís- lendinga þrátt fyrir það sem gerðist. í sjö ár hefur hann lagt tU hliðar sparifé tU að komast hingað. Hann hefur lesið ahar þær bókmenntir um ísland sem hann hefur komist yfir og hann skírði yngsta son sinn Tor- sten, eins og íslenska nafnið Þor- steinn. Það var því mikU eftirvænt- ing hjá honum og fjölskyldu hans er Norræna lagðist aö bryggju á Seyðis- firði. Hann hlakkaði mikið til að hitta frænda sinn í Reykjavík sem vissi raunar ekki af komu þeirra. Birtist algjörlega óvænt „Ég vissi hvar frændi átti heima og við fundum húsið fljótlega. Þegar ég kom að útidyrunum sá ég að skrif- að var Hans fyrir ofan bjöhuna og þar var líka gyðingastjarnan. Þá var ég viss um að við værum á réttum stað. Hins vegar svaraði enginn þeg- ar ég hringdi. Mér fannst ótrúlegt að svo gamall maður hefði farið langt þar sem hann er ekki heUsuhraustur svo við ákváðum að bíða í bUnum HíUíj.*. IJ }*. 1S. Ju-v. 1537 Tit ttoVvo - •lUivJ»j~'*~oCí*\<><L*~**{1*''*v» Ij lii -jjw. ( Wl Aa’JA^VO. , aj Ív.loAtijfA J M v<AW A</ <J lUi Avvifc-'J éj fU . alvWVWW -n'Jo.'fcw., -Ij H UL f-jwo . H •**•’*•**•** itMUtU <J A</ ~rr> cfwolvAil fv.V~.OV A JOv~vow~.'~~J,' . V~.~W , —<1 , vVj’va éj <j U( fout-v-j »* AjV •ú*. ftj.u.v L~w^v_ • 8*— «■ ~~ *"’~<j> jo~vfctt *J ILMi. XoHiv 4~4~ ~VV<fv Jf~»í . V*. U~v~ ~v , ioji w. iv.'*.lujw <j u~~ . V( u , JUcM.' , fu <j » /U~.tc~|<v.f »' ~~~w A'( »v*- t~. Æfílívfv. I . /~ ■ V3* U,'. i). Bréf sem Hans Rottberger sendi til íslenskra yfirvalda þar sem hann óskaði eftir áframhaldandi dvalar- leyfi. Þvi var synjaö. Olga og Hans Rottberger, foreldrar Felix, með dóttur sína, Annie, í Sví- þjóð árið 1944. Þangað flúðu þau undan nasistum frá Danmörku og urðu að skilja fjögur börn eftir á kaþólsku barnaheimili. íslendingar vísuðu þeim úr landi ásamt tveimur ungum börnum. fyrir utan húsið þangað tfl hann kæmi. Það voru ekld Uðnar nema um tíu mínútur þegar gamall maður kom gangandi í átt að húsinu. Ég vissi um leiö að þetta var frændi og konan min sagði að þetta hlyti að vera hann, svo líkur væri hann mér,“ segir Fehx. „Við hlupum til hans og kynntum okkur og það voru sannarlega skemmtUegir endurfund- ir þó gamla manninum hafl auðvitaö brugðið þar sem hann átti alls ekki von á okkur," heldur Felix áfram. Frændi hans, Hans Mann, útskýrir að hann hafi ekki búist við að mað- ur, sem búið væri að senda úr landi á kostnað rikisins, gæti komið aftur tU þess lands. „Það var undirskrifað að þessi fjölskylda kæmi aldrei aft- ur,“ segir gamU maðurinn. Hans Mann og móður hans var einnig vís- að úr landi, fyrst árið 1938. Móðirin var ekki heilsuhraust og þess vegna fengu þau mæðginin frest. Það vUdi þeim til happs að Bretar hertóku ís- land, reyndar aðeins mánuði eftir að ítrekað hafði verið að þau færu úr landinu. Það var hins vegar ekki fyrr en þrjátíu árum síðar sem Hans Mann fékk ríkisborgararétt á íslandi. Þá fyrst gat hann kvænst sambýUskonu sinni, Olgu Ásgeirsdóttur. Olga átti eina dóttur sem Hans Mann ól upp. Þau hjónin eignuðust ekki barn sam- an. Feginn að fá að halda lífi Hans Mann telur að mágur hans, Hans Rottberger, hafi verið of stífur og gert mistök með því að „hann framleiddi leðurvörur sem hann mátti ekki. Sama var í Þýskalandi, þá streittist hann líka á móti nasist- um. Það varð honum ekki til fram- dráttar." Hans Mann er ennþá bitur vegna þess sem gerðist á stríðsárunum. „Ég gat aldrei fyrirgefið að íjölskylda mín skyldi vera rekin burt. En mér hefur engu að síður Uðið ágætlega á íslandi og er þakklátur fyrir að hafa haldið lífi,“ segir hann. Hans Mann er feg- inn því að allt hafl loks gengið vel hjá systur hans, mági og börnum. Felix stjórnar stóru gyðingafélagi í Þýskalandi og er yfirmaður kirkju- garða. Börnin hans hafa öll komið sér vel fyrir í Þýskalandi. Hans Mann hefur sýnt Felix hvar hann fæddist og bjó í Reykjavík á sínum tíma. Og hvar amma hans bjó á Hringbrautinni. Foreldrar Felix bjuggu hjá Hjálpræðishernum fyrst eftir að þau komu til landsins. Síðan bjuggu þau á Hofsvallagötu og það hús stendur enn. Fyrsti gyðingur sem fæddur eráíslandi Felix telur sig vera fyrsta gyðing- inn sem fæddur er á Islandi. Hann segist hafa sent forsætisráðuneytinu bréf og beðið um styrk til að heim- sækja landið. Því bréfi var aldrei svarað. „Það er mjög dýrt að koma hingað með fjölskylduna," segir hann. Felix segist þó vera afar glaður að hafa komið. Þeim fannst reyndar talsvert kalt meðan þau óku um landið og tvisvar lentu þau í snjó- komu. „Fólkið hér er elskulegt og það kemur vel fram við ferðamenn." Felix segir að nú hafi gamall draumur hans ræst. „Ég ætlaöi að vera búinn að koma hingað fyrir löngu. Það var bara svo erfitt þar sem ég var að ala upp fimm böm.“ Felix segist ekki muna hvort hann og móðir hans töluðu einhvern tíma um ísland og hann orðaði það ekki við hana að hann langaði þangað: „í hennar huga var það ekki hægt. Ef einhver er rekinn úr landi þá fer hann ekki þangað aftur. Ég kem hingað sem ferðamaður og trúi því ekki að íslendingar setji sig upp á móti því. Það er mjög mikilvægt fyr- ir mig að koma hingað. Við höfum ætlað þetta lengi og konan mín hefur unnið úti undanfarið til að við gæt- um safnað meiri peningum." Viljahelstgleyma nasistatímabilinu Felix keypti sérstakan húsbíl til 37 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993 Felix Rottberger var alsæll að finna móðurbróður sinn, Hans Mann Jakobsson, en hann hefur i mörg ár safnað fyrir íslandsferð. fararinnar og í honum hafa þau íjög- ur sofið á leiöinni kringum landiö. „Nú er ég mjög hamingjusamur að hafa komið hingað og vel getur verið að ég komi aftur seinna. Mér líkar vel við landið þó aö það sé kalt. Þar sem við búum í Freiburg er minnsta sólskin mælt í tímum í öllu Þýska- landi en okkur fmnst ægilega kalt hér,“ segir Felix. Hans Mann grípur það á lofti og segir: „Ég vil heldur lifa í kulda og friði en með nasistum í Þýskalaíídi. Ég var alltaf hissa á þeim að snúa aftur til Þýskalands eftir það sem þau höfðu upplifaö." Felix segist ekki vilja velta sér upp úr þessu hörmulega tímabili og seg- ist ekki heldur vilja sjá bíómyndir um það. „Þetta voru stríðstímar," segir hann. Felix hefur ekki haft samband viö Einar Heimisson, sem býr í Þýska- landi, en hann hafði mikið samband við móður hans meðan hún lifði og einnig við yngstu systur hans. „Bók hans, Götuvísa gyðingsins, hefur verið gefin út í Þýskalandi og hana hefur Felix lesið. Vel tekió á íslandi Stjúpdóttir Hans Mann bauð þessum óvæntu gestum í veislu heim til sín í vikunni og sagði Felix að þeim hefði verið mjög vel tekið hjá þessari einu íjölskyldu frænda hans hér á landi. Hans Mann hefur hins vegar ekki í hyggju að heimsækja ættjörð sína. „Ég er búinn að kaupa gröfina mína. Ég vil búa hér í friði og deyja í friði," segir hann. „Mér líkar ekkert sérstaklega við þegar þið fjölmiðlafólk eruð að rifja upp þessar ljótu endurmimúngar. Ég vil helst gleyma þessu tímabili. Því miður eru að koma upp aftur nasistar í Þýska- landi en þar sem ekki eru nógu marg- ir gyðingar til að ofsækja þá finna þeir sér Tyrkja eða einhverja aðra,“ segir hann. Sagan setur svip á kynslóðina Felix segist ekki hafa þennan bit- urleika eins og frændi hans. Hins vegar sé því ekki að neita aö sagan Felix keypti húsbíl til að ferðast á um ísland. Tvö yngstu börnin, Torsten og Anja, komu með foreldrum sínum. Þau hafa skoðað borgina, t.d. hvar Felix fæddist. Hér eru þau með frændanum Hans Mann sem hafði ekki hug- mynd um að þau væru að koma til islands. DV-myndir Brynjar Gauti setur svip á hans kynslóö. Þegar gyö- ingar á hans aldri heilsast og spyrja hver annan hvaðan þeir séu kemur oftast runa af löndum þar sem þeir eru fæddir, uppaldir og svo framveg- is. „Ég spurði einn vin minn nýlega hvaðan hann væri og hann svaraði: Ég er fæddur í Búlgaríu en ólst upp í Rúmeníu. Síöan bjó ég nokkur ár 1 París, gifti mig í Englandi og nú bý ég í Þýskalandi." Felix á marga vini í öllum stéttum í Þýskalandi og hann segist þekkja marga sem hafa komið til íslands. „Ég hef spurt mikið því ég viídi vita allt um landið," segir hann. Saga þessarar flölskyldu er vissu- lega ömurleg en segja má að það sé gleðilegt að Felix fékk að sjá aldraðan móðurbróöur sinn. Gyðingaofsóknir á íslandi Einar Heimisson segir í grein er hann birti í Þjóðlífi að hin ótrúlega harka íslenskra stjórnvalda gagn- vart ofsóttu og hijáðu fólki á fjórða áratugnum muni verða eilíft rann- sóknarefni sagnfræðinga. Til dæmis voru íslendingar mun harðari og ósveigjanlegri en Danir. Þá segir Ein- ar: „Ekki má gleyma þeirri staðreynd að fjórði áratugurinn var tími mik- illa þrenginga í íslensku þjóðfélagi og atvinnuleysi oft mikið. Tortryggni gagnvart innflytjendum var af þeirri ástæðu veruleg. En annars staðar í Evrópu, t.d. Danmörku, var efna- hagsástandið tæpast miklu skárra þótt þar virðist meiri miskunn hafa verið sýnd gyðingum og öðrum flóttamönnum en á íslandi. í raun má hlinda íslenskra stjórnvalda á seinni hluta fjóröa áratugarins telj- ast með ólíkindum; fregnir af skefja- lausum ofsóknum og grimmd þýskra yfirvalda virðast hafa skipt þau Utlu máh og engu breytt um afstöðu þeirra gagnvart hinu ofsótta fólki." Reyndi margsinnis að fá dvalarleyfi Hans Rottberger reyndi marg- sinnis að fá leyfi til að vera áfram í landinu á sínum tíma en allt kom fyrir ekki. Hann sendi dóms- og ldrkjumálaráðuneytinu bréf 18. júní 1937 þar sem hann bað ráðherra að framlengja dvalarleyfi sitt. ‘Það hljóðaði svo: „í raun og veru hef ég ekki mikið nýtt að skýra frá. Hvað atvinnu minni viðvíkur, bý ég til leðurvörur, buddur, veski og töskur úr íslensku skinni í heimavinnu, eins og í fyrra. Ég hef nákvæmt bókhald og hef gefið upp efnahagsreikning til skattstof- unnar í janúarmánuði. Viðvíkjandi einkalífi mínu, leyfi ég mér að skýra frá að ég hef eignast son og fæðing hans og nafn er skrásett hjá séra Bjarna Jónssyni. Hann er nú níu mánaða gamall og eldri dóttir tutt- ugu mánaða gömul. Vér erum skuld- laus, bæði með húsaleigu og annað. Ef það er mögulegt, herra ráð- herra, fer ég fram á framlengingu á dvalarleyfi mínu til tveggja ára. Virðingarfyllst, Hans Rottberger." Ekki var þessi beiðni tekin til greina frekar en aðrar frá þessari fjölskyldu. Fékkhvíld í íslenskri moldu í bókinni Stríð fyrir ströndum segir: „Dómsmálaráðuneytið hafði ætlað að vísa móður og bróður Olgu Rottbergers úr landi um svipað leyti og þeim hjónum. Þetta dróst á lang- inn enda tók af samgöngur við Þriðja ríkið er stríðið hófst. Allt fram á vor- ið 1940 voru embættismenn þó að ráðgera að hrinda þessu umkomu- lausa og sárþjáða fólki úr landi. Breski herinn steig hér á land og eft- ir það var ekki unnt að koma mæðg- inunum aftur í hendur Hitlers eða setja þau á Guö og gaddinn annars staðar á meginlandi Evrópu. Eftir áralangt hugarvíl hlaut gamla kon- an, Helena Mann, hvíld í íslenskri moldu. Þá var stríðinu nýlokið og hún vissi að fjölskylda dóttur sinnar haíði með naumindum lifað af helför gyðinga. Sonur hennar, Hans Mann, sem aldrei brást móður sinni í þess- um þungu raunum, gerðist nýtur þegn íslenska ríkisins þrátt fyrir allt sem á undan var gengið.“ -ELA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.