Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993 Sérstæö sakamál Lausnin á gátunni fékkst eftir rúm 20 ár Klukkan var tvö síödegis á svölum desemberdegi í útborg Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum. Arlene Powell, fjórtán ára, var nýfarin aö heiman til þess að fara í kvik- myndahús. Þangaö kom hún aldr- ei. Þaö haföi gerst áður að Arlene heföi farið heim með vinkonu sinni eftir kvikmyndahúsferð og þess vegna fór móöir hennar, hin þrjátíu og fimm ára gamla ekkja, Coral Powell, fyrst að verða óróleg þegar dóttir hennar var ókomin heim um kvöldmatarleytiö. Frú Powell hringdi til þeirra vin- stúlkna sem Arlene heimsótti oft- ast en hver á eftir annarri lýsti yflr því að þær hefðu ekki hitt hana. Þá gátu tvö skólasystkini hennar skýrt frá því að hún hefði ekki komið í kvikmyndahúsið. Leitað til lögreglunnar Þegar klukkan var orðin hálfníu um kvöldið hafði frú Powell, sem var þá orðin mjög óstyrk, samband við lögregluna. Þegar hún hafði heyrt málavexti var strax hafin umfangsmikil leit. Móðirin, gráti næst, sat heima og bað til Guðs um að dóttir hennar skilaði sér heim eða fyndist heil á húfi. En henni varð ekki að ósk sinni, hvorki þetta kvöld né síðar. Arlene var horfin. Lögreglan ræddi aftur og aftur við vinkonur Arlene og nokkra pilta sem hún hafði umgengist allmikið um nokkurt skeið. Enginn gat hins vegar gefið neinar þær upplýsingar sem orðið gátu til þess að varpa ljósi á hvarfið. Næsta dag komu nokkrir rann- sóknarlögreglumenn heim til frú Powell og spurðu hana í þaula í þeirri von að hún myndi eitthvað sem oröið gæti vísbending. Rætt við nágranna Rannsóknarlögreglumennimir vildu fá að heyra hvort frú Powell teldi að Arlene kynni að hafa strok- ið að heiman. Móðirin sagði að það yrði að teljast óhugsandi. Dóttir hennar væri rólynd og iðin stúlka sem legði hart að sér í skóla í von um að góð menntun og gott próf yrðu til þess að auðvelda henni að fá gott starf. Lögreglan sneri sér nú að ná- grönnunum og spurði hvort þeir hefðu orðiö varir við eitthvaö sem gefið gæti til kynna hvað orðið hefði um Arlene. í næsta húsi bjuggu Furrer-hjónin. Frúin hafði farið til hárgreiðslukonu eftir há- degi umræddan dag en Furrer hafði setið heima og horft á sjón- varp með ungum syni þeirra hjóna. Allar fyrirspumir urðu til einsk- is. Þaö var sem Arlene heföi gufað Gerald Arrington. Coral Powell, móðir Arlene. upp. Lögreglan taldi því líklegast að hún hefði látið ginna sig upp í bíl og hefði ökumaður misboðið henni kynferðislega en síðan ráðið hana af dögum. Þess vegna var máhð nú flokkað sem morðmál. Miðill segir sittálit Frú Powell fékk huggunarorð frá nágrönnunum og systir hennar kom flugleiðis frá Houston í Texas til að vera við hhð hennar á þessum erfiðu dögum. Beðið var fyrir Arlene í kirkju á staðnum en hún hafði verið í kirkjukómum. Lögreglan hélt áfram rannsókn málsins næstu tvö árin en án ár- angurs. Þá var máUð að mestu lagt á hfiluna. Það var um svipað leyti að miðill nokkur, Morris Warriner, kom til Houston og kynntist systur frú PoweU sem sagði honum frá hvarfi Arlene. Þar eð systirin hafði í fóram sínum nokkuð af fatnaði sem Arlene hafði átt fékk hún Warriner hann og eftir að hafa handleikið flíkumar lýsti hann yfir því að Arlene væri dáin. Hún hefði verið kyrkt en moröinginn hefði grafið likið. Meira gat hann þó ekki sagt. Þegar frú Powell fékk að heyra þetta í síma sagði hún: „Þá Ut ég svo á aö dóttir mín sé dáin. Ég mun biðja fyrir henni og því að sannleik- urinn komi í ljós.“ Mörg ár Uðu nú án þess að frú PoweU yrði að ósk sinni. Fjórtán árum eftir hvarf Arlene seldi hún hús sitt í Phoenix og fluttist tU Houston. Arlene Powell. Leitað til annars miðils Sunnudag einn, tuttugu og einu ári eftir hvarf Arlene, fór frú Pow- ell tU kirkju ásamt systur sinni og mági. Presturinn, sem þekkti til hvarfs Arlene, kom að máU við þau að lokinni guðsþjónustunni og spurði þau hvort þau vUdu ekki koma heim til sín og konu sinnar þá um kvöldið og þar voru þau kynnt fyrir konu að nafni Hilda Arrington. „Ég hef heyrt um hvarf dóttur þinnar, frú Powell," sagði hún. „Ég ætla ekki að gefa ykkur neina von en maðurinn minn er skyggn og ég held að hann kunni að geta hjálpað ykkur. Geti hann það ekki held ég aö enginn geti það.“ Frú Powell féllst á að leita tU Geralds Arrington miðils, þótt hún hefði ekki mikla trú á tilrauninni. Hún fór því skömmu síðar til Arr- ington-hjónanna. Gerald var vin- samlegur maður um sextugt og hafði þá nýveriö heyrt um hvarf Arlene tuttugu árum áður. Það sem Gerald skynjaði Gerald bað fra Powell að fá sér sæti andspænis sér. Síðan tók hann um hendur hennar og hélt um þær í um tíu mínútur. Þá fór hann að tala og sagði meðal annars: „Þú misstir dóttur fyrir mörgum áram. Hún var ung, aðeins fjórtán ára. Ég hef það á tilfinningunni að hún hafi verið á leiðinni á ein- hveija sýningu, ef til viU kvik- myndasýningu." Nú sleppti Gerald höndum frú Powell og um leið fór hann að svitna og skjálfa dálítið. Loks fór hann að tala á ný en þá hafði rödd hans breyst. „Hún er nýfarin að heiman. Hús- ið er einnar hæðar og úr rauðum múrsteini. Hún gengur af stað en fer aðeins skamman spöl. Þá kallar til hennar maður. Hann býr í næsta húsi og hún fer með honum inn í húsið.“ Gerald lýsti nú manninum og var lýsingin það góð að eftir að hafa heyrt hana gat frú Powell sagt að hún væri af fyrrverandi nágranna hennar, Furrer. Þetta kom henni afar mikið á óvart því engan hafði granað Furrer sem hafði sagst hafa setið fyrir framan sjónvarp með ungum syni sínum síðdegið sem Arlene hvarf. Frekari lýsing Gerald Arrington hafði ekki sagt aUt því hann hélt áfram að skynja atburði þessa örlagaríka dags. Hann lýsti nú því sem gerst hafði í húsi Furrers eftir að Arlene var komin inn í það og lýsti því þegar Furrer réðst á stúlkuna, misbauð henni kynferðislega en kyrkti hana síðan. Þá sagði miðUhnn að Furrer hefði dregið líkið út um bakdyrnar og út í garðinn að húsabaki. Hann hefði farið með það út í það horn garðsins sem fjærst var frá húsinu en þar hefði hann grafið þaö. Að því búnu hefði hann gróðursett blóm á staðnum til þess að leyna því að þar hafði verið grafið. Frú PoweU, systir hennar og mágur hlustuöu nær skjálfandi á frásögnina en að henni lokinni ákváðu þau að snúa sér til lögregl- unnar í Houston, en Gerald Arring- ton hafði nokkrum sinnum hjálpað henni að upplýsa mál. Fullt mark var tekið á frásögn þeirra og þegar haft samband við lögregluna í Phoenix. Líkið finnst Er hér var komið sögðu höfðu Furrer-hjónin flust frá Pheonix fyr- ir aUmörgum áram. Önnur hjón bjuggu því í húsinu sem þau höfðu átt og þótt þeim brygði við að heyra hvert erindi lögreglunnar var veittu þau fúslega leyfi sitt tU að leitað yrði í garðinum á bak við húsið. Byrjað var á því að grafa í horn- inu sem Gerald Arrington hafði vísað á. Og ekki höfðu verið teknar margar skóflustungur þegar í ljós komu jarðneskar leifar ungrar stúlku sem gat vart hafa verið meira en fjórtan ára. Nokkuö var enn heUlegt af fotunum sem hún hafði verið í og þegar frú Powell fékk að sjá fataleifamar bar hún þegar kennsl á þær. Þá var leitaö tU tannlæknis Ar- lene sem átti enn kort það sem hann hafði fyllt út þegar hann gerði við tennur hennar og gaf saman- burður við þær þá niðurstöðu að enginn vafi léki á því að líkið væri af Arlene PoweU. Handtökutilskipun var þegar gefin út á hendur Ru- dolph Furrer, manninum sem búiö hafði í-húsinu fyrr á árum. í fyrstu vissi enginn hvert hann hafði flust en lögreglan lét ekki sitt eftir liggja og ekki leið á löngu þar til ljóst var að hann hafðu flust til Pasadena í Kaliforníu. Lögregla þar var beðin um að handtaka hann en þegar hún kom á vettvang var henni tjáð aö Furrer hefði látist fiórum árum áður af hjartabUun. Jarðneskar leifar Arlene Powell voru fluttar til Hóuston þar sem þær vora jarðsettar á viðtekinn hátt. Gat frú Powell nú gert það sem hún hafði ekki getað gert í rúm tuttugu ár, farið að gröf dóttur sinnar. Það færði konunni, sem var nú komin á efri ár, meiri sálarfrið en hún hafði notið um langan tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.