Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993 WaltDisney-fyrirtækið heldur sínu striki í gerð fjölskyldumynda: Samstarf við fyrirtæki Spielbergs og Stikilsberj a-Finnur endurgerður Á undanfómum ámm hefur Walt Disney-fyrirtækið átt mikilli vel- gengni að fagna og margar aðsókn- arkvikmyndir hafa komið frá því. Yfirleitt hafa þær myndir verið léttar gamanmyndir sem hafa verið frekar ódýrar að allri gerð þegar miðað er við Hollywood-standard- inn og einnig dýrar teiknimyndir. Kvikmyndir þessar hafa yfirleitt verið framleiddar af dótturfyrir- tækjum Disneys, Touchstone eða Hollywood Picture. Velgengni hefur samt ekki komið í veg fyrir að fyrirtækið framleiði barna- og fjölskyldumyndir sem hafa veriö aðalsmerki hjá Disney allt frá því Walt Disney sjálfur var við stjómvölinn. Minna hefur samt farið fyrir þessari framleiðslu á undanfomum árum. Með stuttu millibili hefur Disney nú sent frá sér tvær úrvals fjölskyldumyndir sem fengið hafa góðar viðtökur. Önnur þeirra, A Far off Place, er gerð í samstarfi við Ambhn, fyrir- tæki Steven Spielbergs. Hin er The Adventures of Huck Finn sem gerð er eftir klassískri skáldsögu Mark Twain sem að minnsta kosti hefur verið kvikmynduð þrisvar áður. Hér á íslandi er sagan þekkt undir nafninu Stikilsbeija Finnur. Báðar þessar kvikmyndir höfða til þess góða í mannskepnunni og standa vel undir heitinu fjölskyldumynd- ir. AFaroffPlace A Far off Place fjallar um tvö ung- menni, strák og stelpu, og ævintýri sem þau lenda í er þau neyðast til að flýja út í afríska eyðimörk þegar ráðist er á heimili stúlkunnar og foreldrar hennar drepnir. Þar sem þau eru vitni að ódæðinu er hafin leit að þeim. Eina björg ungling- anna er að finna frægan veiðimann sem getur veitt þeim vöm og hjálp. Þeim til trausts og halds á ferð þeirra um auðnir Afríku er fram- byggi sem nefnist Xhabbo. Tólf ár em síðan farið var að undirbúa gerð A Far off Place en myndin er eftir tveimur skáldsög- um Laurens van Der Post. Fram- leiðandi myndarinnar, Eva Mon- ley, kynntist höfundinum í kring- um 1980 og urðu þau kynni til þess að hún keypti kvikmyndaréttinn á bókum hans. Þegar búið var að ákveða að myndin yrði gerð í sam- vinnu Walt Disneys og Ambhns var fljótlega byrjað aö kvikmynda dýralífs- og landlagsatriði í Afríku og var þeim myndatökum haldiö áfram með hvíldum í nokkur ár. Á þessu tímabih var öðmm framleið- andanum, Kathleen Kennedy, sem unnið hefur með Steven Spielberg við flestar hans kvikmyndir, fahð að finna leikstjóra. Henni fannst tílvaUð að bjóða Mikael Salomon, kvikmyndatökumanni sem hafði stjómaði kvikmyndatökum á kvik- mynd Spielbergs, Always, aö leik- stýra myndinni. Salomon sló tíl og 1991 byijuðu tökur í Zimbabwe. ÖU eyðimerkuratriðin eru tekin í Namib-eyðimörkinni en þar hafa margar heinúldarmyndir verið gerðar. A Far off Place er fyrsta leikna kvikmyndin sem kvikmynd- uð er í þessari ógnvekjandi eyði- mörk þar sem sandöldurnar geta risið upp í þijú hundmð metra hæð. Namib-eyðimörkin er taUn en hann hefur tvívegis verið tU- nefndur til óskarsverðlauna fyrir kvikmyndatöku. Var það fyrir The Abyss og Backdraft. Salomon er danskur og vann í mörg ár við danskar og evrópskar kvikmyndir áður en hann flutti vestur um haf. Þar hefur hann auk fyrmefndra kvikmynda myndað Always, Torch Song TrUogy, Stealing Heaven, Arachnophobia og Far and Away. Stikilsberja Finnur AUir hressir strákar kannast við ævintýrið um heimUslausa pöra- piltinn Stikilsberja Finn, þrælinn Jim og flótta þeirra til frelsis niður eftir Mississippi ánni. Þetta klass- íska ævintýri hefur verið kvik- myndað áður en þessi nýja kvik- mynd þykir slá aðrar út í gæðum, enda var ekkert til sparað hjá Disn- ey svo aö útkoman yrði sem glæsi- legust. EUjah Wood heitir drengurinn sem leikur Finn í þetta skiptið. Hann fékk sitt fyrsta hlutverk í tónUstarmyndbandi með Paula Abdul. Það leiddi tU hlutverka í kvikmyndunum Internal Afairs, Back to the Future II og Avalon (þar sem hann lék fyrsta stóra hlut- verkið), Radio Flyer, Paradise og Forever Young. Á þessari upptaln- ingu má sjá að þrátt fyrir ungan aldur hefur EUjah Wood meiri reynslu í kvikmyndum en margir eldri leikarar. Og feriU hans hefur ekki stöðvast við að leika Finn því hann hefur nýlokið við aö leika á móti Macaulay Culkin í The Good Son og í nýjustu kvikmynd Rob Reiners, North. Aðrir leikarar í The Adventures of Huck Finn eru Courtney B. Vance, sem leikur Jim, Robbie Coltrain, Jason Robards og Ron Perlman. Leikstjóri myndarinnar er Step- hen Sommers og er hann einnig handritshöfundur. Sommers ólst sjálfur upp við ána Mississippi og kannast því vel við söguslóöir. Hann segist hafa verið að arka um bókasafn dag einn og rekist þá á hið klassíska bókmenntaverk og byijað að lesa. Þrátt fyrir að hann vissi að sagan hefði verið kvik- mynduð áður greip hann viss spenningur þegar hann gerði sér grein fyrri því hvað hún bauð upp á góða kvikmynd. Sommers lét ekki sitja við orðin tóm og byijaöi að skrifa handrit sem hann segir fylgja bókinni betur eftir en áður hefur verið gert: „Kvikmynd mín er öðravísi að því leytinu til að í fyrri útgáfum hefur handritinu annaðhvort verið beint að húmorn- um í sögunni eða dramatíkinni. Ég legg aðaláhersluna á ævintýrið sjálft og reyni að ná einhveiju fram af dýpt sögunnar sem hefur gert hana að einhveiju vinsælasta æv- intýri sem skrifað hefur verið.“ Kvikmyndaútgáfa Sommers hef- ur fengið afbragðsviðtökur. Som- mers hefur hingaö til aðallega feng- ist við skriftir, auk þess sem hann hefur leikstýrt stuttmyndum. Eina aðra leikna kvikmynd á hann að baki, Catch Me If You Can. Bæði A Far off Place og The Adventures of Huck Finn verða að öllum líkind- um teknar til sýningar í Sam-bíó- um á næstu mánuðum. -HK Kvikmyndir Hilmar Karlsson vera elsta eyðimörk í heimi, 80 milljón ára gömul. Kvikmyndatak- an fór fram í miðri eyðimörkinni þar sem þögnin er algjör og segir einn aðalleikaranna að þögnin hafi verið ótrúleg og einkennileg upplif- un fyrir borgarbúa, aðeins tal manna og þrusk í tækjum hafi Aðalpersónurnar i The Adven- tures of Huck Finn, ólátabelgurinn Finnur (Elijah Wood) og þrællinn Jim (Courtney B. Vance). Á inn- felldu myndinni er leikstjórinn og handritshöfundurinn Stephen Sommer? að leiðbeina Elijah Wood. truflað hina miklu þögn sem umlukti allt svæðið sem unnið var á. Aðalhlutverkin leika tvö ung- menni, Reese Witherspoon, sem er 16 ára, og Ethan Randall sem er 14 ára. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þau bæði nokkra reynslu af kvik- myndum. Whiterspoone iék meðal annars í The Man in the Moon á móti Sam Waterston, sjónvarps- myndinni Wildflower, sem Diane Keaton leikstýrði, og nýjustu kvik- mynd Danny deVito, Jack the Be- ar. Randall er þekktastur fyrir leik sinn í Dutch. Af öðrum leikuram má nefna úrvalsleikarana Jack Thompson og Maximillian Schell. Þá má nefna frumbyggjann Sarel Bok sem leikur vin ungmennanna sem leiðir þau um eyðimörkina. Leikstjórinn Mikael Salomon heyr frumraun sína sem leikstjóri Leitað skjóls fyrir sólinni undir gömlu tré í A Far off Place. Ethan Randall og Sarel Bok i hlutverkum sínum. Á innfelldu myndinni er danski leikstjórinn Mikael Salo- mon að segja leikurunum til í brennandi hitanum í Namib-eyði- mörkinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.