Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1993, Síða 2
.1
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1993
Fréttir
Sighvatur Björgvinsson iönaðarráðherra og Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra hafa að undanförnu deilt hart um ýmsa þætti í landbúnaðarmálum. Ráðherrarnir hafa þó endrum og sinnum
haft uppi gamanyrði, þótt málið sé auðvitað grafalvarlegt. Athygli vakti til dæmis þegar Halldór sagði á þá leið, að hann hefði ekki flugþol á við kratana í landbúnaðarmálum. Sighvatur svaraði
þvi þannig að sér sýndist nú samt sem landbúnaðarráðherra hefði sett á afturbrennarann og væri kominn upp að hliðinni á sér. Af þessum ummælum má ráða að flugþol ráðherranna fari
sivaxandi, sem þýðir að maðurinn í miðjunni hljóti aö vera með býsna öflugan afturbrennara. .jgs
Nefhd um nýsköpun í atvinnulífmu:
Vill aukið áhættufé og
samstarf milli ráðuneyta
- samræming milli atvinnuvegaráðuneytanna áríðandi, segir viðskiptaráðherra
„Eg tel sérlega áríðandi að ná
samræmingu milli atvinnuvega-
ráðuneytanna um verkefni sem
þeim eru sameiginleg. Ég tel einnig
mjög áríðandi að sameina eða
reyna að ná samstarfi með þeim
aðilum sem stunda kynningu á ís-
landi erlendis og öflun markaðar
fyrir íslenskar útflutningsvörur.
Þetta tvennt held ég að sé einna
þýðingarmest í framhaldi af þess-
ari skýrslu,“ sagði Sighvatur
Björgvinsson viðskiptaráöherra í
gær þegar hann kynnti skýrslu
nefndar um stuðningsaðgerðir ný-
sköpunar.
í skýrslunni kemst nefndin að
þeirri niðurstööu að íslendingar
þurfi aö takast á við nýsköpun í
efnahagslífinu til að brjótast út úr
efnahagslegri stöðnun og vaxandi
atvinnuleysi. Meðal annars þurfi
að efla nýsköpunarstarf fyrirtækja
og stofnana og breyta áherslum í
opinberum stuðningi. Nefndin
leggur fram fjölmargar tillögur mn
breytingar í stjómsýslu og sam-
ræmingu verksviða, auk sérstakra
aðgerða til eflingar nýsköpun í at-
vinnulífinu.
Nefndin leggur til að „Milliráðu-
neytanefnd um nýsköpun" verði
skipuð til fjögurra ára til að fram-
fylgja stefnu ríkisstjómarinnar í
þessum málum. Milliráðuneyta-
nefndinni verði gert að samræma
opinberar aðgerðir um nýsköpun í
atvinnulífinu, fylgjast með áhrifum
þeirra á atvinnulífið og gera reglu-
lega grein fyrir starfi sinu.
Þá leggur nefndin til að framboð
á áhættufé verði aukið, sérstakir
styrkir verði teknir upp til til-
raunaframleiðslu og markaðssetn-
ingar hjá Iðnlánasjóði, Framleiðni-
sjóði landbúnaðarins og Fiskveiða-
sjóði, lög um tekju- og eignaskatt
verði endurskoðuð þannig að þau
hvetji til nýsköpunar í atvinnulíf-
inu og auðveldi öflun áhættufjár,
verkefnaútflutningur verði efldur
með fjárhagslegri aðstoð, erlendir
fjárfestar verði laðaðir til landsins
og þannig mætti lengi telja.
Fjallað var um tillögumar á rík-
isstjómarfundi í gærmorgun en
ríkisstjómin hefur skýrsluna nú til
skoðunar áöur en framhaldið
ræðst.
-GHS
Rannsakað verður hvort hringjamyndanirnar í túninu austan við Nesstofu á Seltjarnarnesi séu mannvirki eða
náttúrulegar myndanir. DV-mynd GVA
Seltjamames:
Rannsókn á hringjun-
um að hefjast
Stuttar fréttir
Meðferðarheimiilfyrir
vegalausbömopnað
Meðferðarheimili fyrir vega-
laus böm, sem rúma mun 6 böm,
verður opnað S dag aö Geldinga-
læk á Rangárvöllum. Heimiliö er
ávöxtur landssöfnunar Bama-
heilla í mars 1992. Mun félags-
málaráöuneytiö sjá um rekstur
þess.
SódómatilBerlínar
Sódóma Reykjavík, eftir Óskar
Jónsson, ogTré og list, eftir Bald-
ur Hrafnkel Jónsson, munu
keppa um Felbdnn, verðlaun evr-
ópsku kvikmyndaakademfunn-
ar, sem besta byijendaverk og
besta heimildarmynd. Verðlaun-
in verða veitt í Beriín í desember.
Bókun vegna Hraf ns á
útvarpsráðsfundi
Minnihiutafufltrúar í útvarps-
ráði sendu frá sér hai-öorða bók-
un í gær vegna skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um Hrafn Gunn-
laugsson, framkvæmdastjóra
Sjónvarpsins. Segja rainnihluta-
fulltrúamir íleiri hliðar en laga-
legar á saraskiptum Hrafns víð
Sjónvarpiö og sé siðferðisvitund
fyrrum dagskrárstjóra Sjón-
varpsins dregin í efa í skýrslunni.
Aj-t-i--m ■». itm
uaynmeonerjom
Fetjan Herjólfúr er á lelð í slipp
í Noregi og verður ytra í þijár
víkur. Býöst fóiki ferö fram og tíl
baka með skipinu fyrir litlar 15
þúsund krónur, miöað við upp-
búið rúm og morgunmat. Aðeins
5 þúsund krónur kostar fyrir bfl-
inn. Fijótt var upppantað I ferö-
ina. ÞettakomframáBylgjunni.
I lok september hefst rannsókn á
vegum Þjóðminjasafnsins og Sel-
tjamamesbæjar sem ætlað er að
skera úr um hvort hringjamyndan-
imar í túninu austan viö Nesstofu á
Seltjamamesi séu mannvirki eða
náttúrulegar myndanir. Kristinn
Magnússon, forstöðumaöur Nes-
stofusafns, mun sfjóma rannsókn-
inni og segir hann að meginniður-
stöður ættu aö liggja fyrir um leið
og rannsókninni er lokið.
„Grafmn verður prufuskuröur
gegnum einn hringinn til að kanna
hvort upphækkanimar í landinu séu
hlaðnar upp og hvort mannvistarlög
finnist í þeim. Ef hringimir em
hlaðnir ætti að flnnast torf eða gijót,“
segir Kristinn.
Búist er við að rannsóknin við
Nesstofu taki nokkra daga og tveir
til þrír menn vinni að henni. Ekki
er búið að ákveða hvenær rannsókn-
in hefst en búist er við að þaö verði
einhvem tímann eftir miöjan sept-
ember. Rannsóknin er gerð á vegum
Þjóðminjasafns að beiðni bæjar-
sijómar Seltjamamess og mun Sel-
fjamamesbær standa straum af
henni. -GHS
Yfirmaður í skólakerfinu:
Lyfjapréfreynd-
istjákvætt
- málið sent ríkissaksóknara
Mál yfirmanns í skólakerfinu,
sem grunaöur er um aö hafa ekið
bíl undir áhrifiim iyfja á Kefla-
víkurflugvelli fyrr í mánuðinum,
verður sent til ríkissaksóknara.
Þvagsýni, sem tekiö var úr
manninum og sent til rannsókn-
ar„leiddi í Ijós að hann var undir
áhrifum róandi lyfla við handtök-
una.
í fóram mannsins og annars
manns, sem var í fór með honum,
fundust ýmiss konar lyf. Einnig
fundust stunguför á likama
beggja mannanna sem lögreglan
telur vera eftir sprautunálar.
Fræðslustjóri í því umdæmi
sem umræddur maöur er starf-
andi i kvaðst í samtali viö DV iíta
á þetta mál sem cinkamál við-
komandi manns þangað til hann
fengi formlega tilkynningu frá
lögregluyfirvöldum um niður-
stöðu iyflaprófanna og rannsókn
málsins. .pp
Fjárlagafrumvarpið:
Erfið helgi
framundan
„Þaö er tyrirsjáanleg erfiö helgi
því að viö emm aö falla á tima
Víö þurfum að kiára útgjaldahlið-
ina og helst tekjuhUðina líka um
þessa helgi svo hægt sé aö setja
tjárlagafrumvarpið í prentun,"
segir Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra.
„Mjög fá ágreiningsatriði eru
eftir útgjaldamegin en þaö eru
nokkur eftir tekjumegin. Ég held
aö þetta hijóti nú að klárast um
helgina,“segirhann. -GHS