Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1993, Qupperneq 11
LAUGARDAGÍJR 4. SEPTÉMBER 1993
11'
Sigurjón Sighvatsson er ekki að
flytja til íslands þó að hann hafi fjár-
fest í Stöð 2 og Dominos pizza. Hann
var valinn maður ársins af The
American Scandinavian Foundation
í Los Angeles á síðasta ári og var
myndin tekin við það tækifæri. Með
honum á myndinni er Sigriður, eig-
inkona hans, og James Koenig,
formaður stofnunarinnar.
langri flugferð frá Bretlandi þegar
ég lagðist í rúmið og taldi mig vera
með flensu. Ég var rúmfastur í tíu
daga og það haíði aldrei hent mig
áður. Síðan fór ég á fætur en lagðist
aftur í rúmið eftir viku. Þegar það
endurtók sig í þriðja skipti sagði
heimilislæknirinn að þetta væri eitt-
hvað meira en flensa og ég yrði að
fara í rannsókn. Það vildi mér til
happs að læknirinn minn hafði ný-
lega lesið grein um síþreytu sem er
í rauninni óskilgreindur sjúkdómur.
Þegar ég hafði verið rúmfastur í
fimm mánuði ákvað ég að leita mér
lækninga hjá nýaldarmönnum þar
sem vestræn læknisfræði vissi ekki
hvernig átti að bregðast við sjúk-
dómnum. Ég fór því að stunda jóga
og hugleiðslu og fleira sem á að hafa
góð áhrif á líkama og sál. Ég þurfti
að breyta algjörlega mataræðinu og
borðaði eingöngu grænmeti. Mér bar
einnig að forðast sykur, mjólkurvör-
ur og fítu. Ég þurfti því að ganga í
gegnum ákveðnar lífsvenjubreyting-
ar og lifa heilbrigðara lífi en ég hafði
gert enda verið í mikilli stressvinnu
og undir miklu álagj. Auk þess fór
ég í nálarstungur. Ég hef því náð
mér miklu hraðar og betur en gerist
með síþreytusjúkiinga. Ég get líka
þakkað það hversu fljótt sjúkdómur-
inn greindist en fólk gengur stundum
með hann í mörg ár án þess að hann
sé greindur. Hér í Bandaríkjunum
eru læknavísindin mjög framarlega
og alls kyns lækningar í boði. Ég get
því ekki kvartað."
Stressfólk
í áhættuhópi
Sigurjón telur að fólk geti fengið
sjúkdóminn vegna of mikils vinnuá-
lags en þó veit það enginn með vissu.
„Onæmiskerfi likamans bregst á ein-
hvem hátt og brotnar niður. Talið
er að samband sé þar á milli líkama
og sálar. Fólk sem fær þennan sjúk-
dóm er yfirleitt svokallað „stress-
fólk“ þannig að trúlega er eitthvert
samband milli álags og sjúkdómsins.
Hann lýsir sér þó fyrst og fremst sem
líkamleg vanlíðan en ekki endilega
andleg.
í mínu tilfelli er þetta jafnvel rakið
til hastarlegrar matareitrunar sem
ég fékk í Mexíkó fyrir nokkrum
árum þegar ég var að vinna við kvik-
mynd þar. Eg þurfti að liggja á
sjúkrahúsi í þrjár vikur og var í heilt
ár að jafna mig. Læknar telja að
ónæmiskerfið í mér hafi aldrei náð
sér eftir þau veikindi og jafnvel hafi
einhverjar bakteríur verið áfram í
líkamanum þó ónæmiskerfið hafi
getað haldið þeim niðri. Ef um óeðli-
legt álag á líkamann er að ræða eins
og langt flug, mikinn tímamun eða
stress er hætt við að ónæmiskerfið
þreytist. Stress er versti óvinur
ónæmiskerfisins. Þó mér sé illa við
að viðurkenna það þá hef ég líklegast
verið mjög stressaður undanfarin
ár,“ segir Siguijón Sighvatsson.
-ELA
ENSKA ER OKKAR MAL
ALLIR. KENNARAR SKÓLAMS ERU SÉRMENNTAÐIR f EMSKUKENNSLU
INNRITUN
STENDUR YFIR
Enskuskólinn
VINS/ELUSTU ENSKUNÁMSKEIÐ Á LANDINU • SÍMI 2S900
in Star City, Arkansas.
uflinow.
^ r,
I.R.S. RELEASiNG Presents A CAfSL Fl
WBOBTHORNTON HIBEACH EH8IIUI
RANKUN FILM ONEfALSEMOVE BIU.ÍM0N MfláiliWI
jsxmim mSswh cpni
TONIPHILUPS STEVEN REICH KElíll
8ILLV BOB THORNION w I8M Bf
1H “tHfllEM nKJAMESLCARTER
KEl REfflV fiK MILESA. COttlAND Ili-PAULCOUCHMAI-HAROIO IE8
iEffflffl ^JEMUEM ^CARLFRANKUN
msm mm mm smm
&
FEILSPOR
VIDEOHOLUN
Áptnu bandi'
LÁGMÚLA 7, SÍMI685333 • MJÓDDINNI, SÍMI670066