Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1993, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1993
17
J
„Noregur beygði sig fyrir Svíþjóð," sögðu Danir í hæðnistón þegar Hákon, krónprins Noregs, náði í varalit
fyrir Viktoríu krónprinsessu.
Áhimim konunglega hjónabandsmarkaði í Ósló:
Sviðsljós
Noregur beygði
sig fyrir Svíþjóð
Það var fjölskrúðugt ballið sem
haldið var í Ósló um síðustu helgi
þegar norsku konungshjónin héldu
hátíðlegt siifurbrúðkaup sitt. Það
var eins og vonast væri til að nýtt
konunglegt hjónaband yrði til um
þessa helgi að minnsta kosti var
öllu ungu fólki með blátt blóð boðið
til veislunnar. Skandinavískir
fjölmiðlar töluðu um hjónabands-
markað og sú er fékk mestu um-
fjöllun var krónprinsessa Svíþjóð-
ar, Viktoría, sem er 16 ára.
Margt ungliða virðist vera á hin-
um konunglega hjónabandsmark-
aði og mættu þó ekki alhr til veisl-
unnar. Meðal þeirra voru spænsku
prinsessumar Elena og Christina,
hollensku prinsamir Willem Alex-
ander, Constantijn og Johan Friso.
Fyrrum Grikklandskonungshjón
eiga Alexiu og Nicolaos og vom þau
mætt og frá Lúxemborg kom Guil-
laume prins og Edward, sonur El-
ísabetar Englandsdrottningar, er
enn á lausu. Þá má ekki gleyma
dönsku prinsunum, Friðrik og Jó-
akim, norsku prinsessunni Mörtu
Lovísu og bróður hennar, krón-
prinsinum Hákoni.
Það var einmitt krónprins Nor-
egs, Hákon, sem var borðherra
Viktoríu krónprinsessu Svíþjóðar
við kvöldverðarborðið. Þegar Vikt-
oría missti varalitinn sinn á gólfið
brást krónprinsinn við eins og slík-
Börn konungshjóna um alla Evr-
ópu kynntust í Ósló á dögunum.
Hér er það Viktoría, sem taka mun
völdin í Svíþjóö.
Norsku systkinin Marta Lovisa
prinsessa og krónprinsinn Hákon.
um herramanni sæmir og náði í
hann. Þetta vakti mikla athygli
ljósmyndara sem mynduðu í bak
og fyrir og Daxúr sögðu í hæðnistón
að Noregur hefði þurft að þeygja
sig fyrir Svíþjóð. Það þykir frænd-
um voram Norðmönnum vart
Spænska prinsessan Alexia.
Friðrik, krónprins Danmerkur, þyk-
ir mjög eftirsóknarverður.
fyndið. Á hitt ber að hta að Viktor-
ía og Hákon geta tæplega gengið í
hjónaband þar sem þau skulu erfa
sitt ríkiö hvort en það er óneitan-
lega skemmtilegt að velta því fyrir
sér hvort Noregur og Svíþjóð eigi
eför að ganga í eina sæng.
DANS - frábær skemmtun fyrir alla!
BÖRN - UNGLINGAR - FULLORÐNIR
SYSTKIN AAFSLATTUR
FJÖLSKYLDUAFSLÁTTUR
HÓPAFSLÁTTUR
Innritun í síma 71200 milli kl. 13-19