Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
11
íslandsvinurinn Grigol Matsjavariani ber saman vandamál íslendinga og Georgíumanna:
Ja, þessir íslendingar
„Ja, þessir Islendingar!" varö Grigol
Matsjavariani að orði þegar honum
var sagt að á íslandi hefði legið við
stjómarslitum vegna kalkúnalappa.
Og undrunin var enn í röddinni þeg-
ar hann hætti við: „Síðustu nótt beið
ég í sex klukkutíma í biðröð eftir
brauði og svo þykjast íslendingar
vera óánægðir með allt. Það var þeim
líkt.“
Hann heldur áfram, dapur í rödd-
inni: „Veistu að ég hef reynt að út-
skýra fyrir vinum mínum hér í Ge-
orgíu, ættingjum og fjölskyldu
hvemig fólk hefur það á íslandi. Það
þýðir ekkert. Fólk skilur þetta ekki
og enn síður þegar ég segi að íslend-
ingar séu alltaf óánægðir. Það skil
ég ekki heldur.
Vandamál ykkar eru bamaleikur
samanborið við það sem við þekkj-
um. Þið skiljið ekki heldur af hverju
við viljum beijast og ég efast um að
íslendingar gripu til vopna þótt þeir
misstu Vestmannaeyjar."
Verklaus
Grigol segist vera vansvefta og
eirðarlaus þessa dagana. Ekki bara
vegna vöku í biðröð heldur er hann
að fara í stríðið fyrir fóðurland sitt,
Georgíu, gegn aðskilnaðarsinnum í
Abkasíu.
„Ég kem engu í verk,“ segir hann
og hefur þó á skrifhorði sínu bók um
Jón biskup Arason. Frá því Grigol
fór frá íslandi fyrr á árinu hefur
hann unnið að bókinni en verkinu
miðar ekkert vegna taugaspennings.
Stríðið kallar en ástkær Jón Arason
getur beðið.
Islendingum kom Grigol ekki fyrir
sjónir sem hermaður. Hann hefur
allt yfirbragð grúskarans. Bókastafl-
ar birtast ósjálfrátt í bakgrunni
myndarinnar af Grigol en ekki byss-
ur og skotgrafir.
Hann hlær að samlíkingunni, neit-
ar að vera hræddur um líf sitt og
segir: „Ég er enginn hermaður en
þegar fósturjörðin kallar verður að
grípa byssuna."
Grigol er fyst og fremst reiður.
Hann er reiður Abkasíumönnum
fyrir Jögleysuna sem þeir hafa í
frammi. Hann er þó reiðari Evr-
ópubúum og Sameinuðu þjóðunum;
segir að þar tali menn fagurt um frið
en geri ekkert.
Daufdumbir
„Vestur-Evrópa er öll eins og
daufdumbur maöur,“ segir Grigol.
„Hún heyrir ekkert,.sér ekkert og
skilur ekkert. Það er skiljanlegt að
Evrópubúar vilji ekki blanda sér í
Grigol Matsjavariani og Irma Oboladze, konan hans, á íslandi skömmu
fyrir jól. Nú ætlar fræðimaðurinn að fara í stríðið.
átök í öðrum löndum en þá eiga ráða-
menn bara að segja það hreint út og
sleppa því að tala um aðgerðir."
Sameinuðu þjóðimar og fram-
kvæmdastjórinn Boutros Boutros-
Ghali fá ekki hærri einkunn hjá Gri-
gol. „Þetta er máttlaus stofnun. Þar
svaldra menn bara. Ástandiö hefur
versnað eftir að Boutros-Boutros-
Ghali tók við stjóminni. Hann er
kannski góður og velmeinandi mað-
ur en hann hefur valdið miklum von-
brigðum,*1 segir Grigol.
Eduard Shevardnadse Georgíufor-
seti er hans maður þessa dagana
þrátt fyrir ósigra á vígvellinum.
„Hann er þarfur maður,“ segir Gri-
gol með virðingu í röddinni.
„Shevardnadse leynir því ekki að
hann er gamall kommi. Hann viður-
kennir villu sína og kallar hana fimb-
ulfamb (er það ekki rétta orðið á ís-
lensku?). Það er auðvitað ekki útilok-
að að hann sé úlfur í sauðargæru en
við treystum honum; getum ekki
annað. -GK
Upplýsingalína Flugleiða
Upplýsingar um brottfarar- og komutíma Flugleiðavéla í
millilanda- og innanlandsflugi. Alltaf nýjustu upplýsingar.
Sjálfvirk símsvörun allan
sólarhringinn alla daga.
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskurferðafélagi Á
Nýr VW Golf á aðeins 1.058.
MIKIL GÆÐI
FYRIR
LÍTIÐ VERÐ
Það er ekki oft sem eðalvagn á
borð við VW Golf býðst á jafn
lágu verði og raun ber vitni:
1994 árgerðin af þessum
þýska gæðabíl kostar nú
aðeins 1.058.000 kr.
Volkswagen
E1 1
HEKLA
Laugavegi 170 - 174 • Sími 69 55 00
VERND
UMHVIRFIS-
VIOURKtNNINC
IQNIANASIOOS