Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
Dagur í lífi Ladda:
Með larfana af Eiríki
Fjalar
í hreinsun
„Þriðjudaginn hóf ég með því að
bregða mér í sund. Það er hress-
andi að hafa það sem fyrsta verk á
morgnana að stinga sér í sundlaug-
ina. Maður vaknar þá almennilega
og er tilbúinn að takast á við verk-
efni dagsins, hver sem þau kunna
að vera.
Að góðum sundspretti loknum
hélt ég aftur heim og fékk mér
morgunverð. Að þessu sinni sam-
anstóð hann af tei og ristuðu
brauði. Ég fletti Mogganum meðan
ég boröaði, aðallega í þeim tilgangi'
að athuga hvort ég fyndi eitthvað
skondið fyrir Imbakassann, þátt-
inn okkar íjórmenninganna, sem
er að hefja vetrargöngu sína á Stöð
2 í kvöld.
Um ellefuleytið kom pósturinn.
Ég dreif í að fara yfir bréfin sem
mér höfðu borist, sem að þessu
sinni reyndust rukkanir og fleira.
Sennilega svipaður póstur og berst
inn á flest heimili í landinu rétt
fyrir mánaðamót. Að því búnu var
kominn tími til að svara ýmsum
skilaboðum sem verið höfðu inni á
símsvaranum frá kvöldinu áöur.
Þar var einkum um að ræða skila-
boð vegna atvinnutilboða, svo sem
skemmtana og annars í þeim dúr.
Klukkan tólf átti ég svo hádegis-
fund með Halla bróður .vegna aug-
lýsingar fyrir sýninguna á Hótel
Sögu sem einnig hefst í kvöld. Þetta
er sýningin „Er það satt sem þeir
segja um landann?" sem er söngur
og grín í kabarettstíl.Við bræðurn-
ir erum með fleira á pijónunum
því að við erum að ræða hugmynd-
ir að nýrri sýningu sem hleypt yrði
Þórhallur Sigurðsson.
af stokkunum eftir áramótin, einn-
ig á Sögu.
Klukkan tvö átti ég smátíma af-
lögu. Hann notaði ég til að stússast
svolítið fyrir sjálfan mig, fara með
larfana af Eiríki Fjalar í hreinsun
og fleira, sem setið hafði á hakan-
um.
DV-mynd Brynjar Gauti
Tíminn frá fjögur til sjö var tileink-
aður Imbakassanum. Þá komum
við fjórmenningarir saman til að
semja fyrir þáttinn. Við höfðum
skráð hjá okkur ýmsar hugmyndir
um efni sem við lögðum í púkk.
Máhð er að finna eitthvert grín,
sem áhorfendur hafa gaman af.
Þetta eru líflegir fundir, menn leika
ahs konar atriði, sem þeim dettur
í hug. Þannig er mælt á félögunum
hvað eru mörg fynd í hverju gríni.
Hugmyndirnar eru teknar jafnóð-
um á diktafón og síðan skráðar
niður. Það leggst rosalega vel í okk-
ur að vera að byrja með Imbakass-
ann aftur. Það er svo gaman að
þessu. Við erum þarna fjórir að fífl-
ast. Siggi Sigurjóns kemur inn nýr
og það er ekki annað að sjá en hon-
um hki vel. Hann fer að minnsta
kosti ljómandi heim eftir hvern
fund.
Þegar Imbakassasamkomunni
lauk var komið að kvöldmat. Eftir
hann tók við skylduhorfun á 19:19,
auðvitað vegna Imbakassans.
Klukkan níu var svo æflng á „land-
anum“ á Hótel Sögu. Þar hef ég
skemmt sl. tíu ár með litlum hléum
og ætla mér að vera þar að minnsta
kosti eitt ár í viðbót. Svo veit ég
ekkert hvað tekur við. Maður er
alltaf að spekúlera í hvenær maður
fari að hægja á sér, en maður gerir
það aldrei. Án alls þessa er maður
ómögulegur maður. Þetta er svo
gaman.
En allt um það. Söguæfingunni
lauk ekki fyrr en um miðnætti. Þá
settist ég aðeins fyrir framan imba-
kassann og horfði á hann þar til
ég lognaðist út af.
-JSS
Finnur þú fimm breytingar? 225
Í-N '
Það er allt í lagi með blóðþrýstinginn í yður en þér verðið að borða
meira til að þyngjast!
Nafn:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Aiwa vasadiskó
að verðmæti 4.480 krónur frá
Radíóbæ, Ármúla 38.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækumar, sem eru í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Sonur Ott-
ós, Kolstakkur, Leikmaðurinn og
Víghöfði. Bækurnar eru gefnar út
af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú flmm breytingar? 225
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð tuttugustu og þriðju get-
raun reyndust vera:
1. Brandur Fróði Einarsson,
Vesturgötu 148,300 Akranesi.
2. Jónas Freyr Guðbrandsson,
Hrísalundi 6a, 600 Akureyri.
Vinningarnir verða sendir
heim.
Heimilisfang: