Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 36
44
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
Sviðsljós
Ólyginn
... að eftir að mynd Clints
Eastwood, „Unforgiven", sló svo
rækilega í gegn sem frægt er
orðið hefðu allir viljað gera góð-
an vestra. Er nú verið að fram-
leiða 20 slíkar myndir í Holly-
wood, hvorki meira né minna.
Segir sagan að nú sé skortur á
gömlum vopnum og hrossum í
sjálfri kvikmyndaborginni.
... að tennisstjarnan Steffi Graf
hugsaði litíð til keppnínautar
sfns, Monicu Seeles. Sem kunn-
ugt er komst Steffi á toppinn
þegar Monica var stungin með
hníf í keppni. En Graf hefur ekki
látiö svo lítið að senda þessum
helsta andstæðingi sinum póst-
kort
... aö Emma Thompson, leik-
konan fræga, hefði stórhneyksi-
að breska sjónvarpsáhorfendur
á dögunum. Þá sagði hún óhikað
að hún hefði veríð svo heppin
að verða fuilorðin áður en eyðni
kom til sögunnar. Hún hefði því
getaó lifað og leikið sér að vild
með sterkara kyninu þar til hún
gifti sig. .
... að Michelle Pfelffer sé komin
i giftingarhugleiðingar þrátt fyrir
hún hafi fyrir fáelnum mánuðum
afneitað öllu sliku. Nú mun henni
hafa snúist hugur enda segir hún
að vel fari á með kærastanum,
David Kelley, og hinni ættleiddu
dðtfur sinni, Claudíu Rose. Það
var fyrr á þessu ári sem Mic-
helle ættleiddi þá stuttu, þá sem
einstæð móöir. Nú segist hún
viss um að þau þrjú, hún, Clau-
día og Davi, verði fullkomin fjöl-
skylda.
. að engu heföi mátt muna að
illa færi þegar sonur Pauls
McCartney lenti i háska á brim-
bretti. Sonurinn, James, var að
halda upp á 16 ára afmælið með
félögum sinum þegar hann hvarf
skyndilega úr augsýn á brettlnu.
Björgunarmenn voru þegar kall-
aðir út á þyrlum og hraðbátum
og náðu þelr James i tæka tíð.
„Heitasta" parið í Ameríku fær hvergi frið:
Beðið eftir
Kennedy-brúðkaupi
„Heitasta“ parið í Ameríku um þess-
ar mundir er tvímælalaust John F.
Kennedy yngri og Daryl Hannah, hin
ljóshærða, glæsilega unnusta hans.
Það er alveg sama hvar þau fara,
alls staðar glampa blossar myndavél-
anna. Þau fá ekki stundlegan frið
fyrir blaðamönnum og ljósmyndur-
um sem sitja um þau nætur sem
daga.
Til fjarlægra landa
Því var þaö að parið hugðist snúa
á umheiminn og ferðast til íjarlægra
landa þar sem það gæti eytt sum-
arfríinu sínu í friöi fyrir ágengum
fréttasnápum. Þau Kennedy og Daryl
ákváðu að fara í leiðangur til Suð-
austur-Asíu og heimsækja þar ýmsa
fallega staði. Rómantískara gat það
varla verið. En þau voru rétt lent
þegar herskarar ljósmyndara tóku á
móti þeim og fylgdu þeim hvert fót-
mál.
Hiö sama átti sér stað þegar þau
sneru th baka til Los Angeles. Þá
beindist athyglin að glæsibýli Jaqul-
Sumarfríið fór öðruvisi en ætlað
var, eins og sjá má á svip Hannah.
ine á New England en þar heldur hún
árlega strandpartí sem miklar sögur
fara af. Þykir upphefð að vera meðal
boösgesta í slíkri veislu. Að þessu
sinni beindist athyglin enn frekar að
þessum viðburði þar sem búist var
við að Kennedy og Daryl myndu til-
kynna trúlofun sína. Af því varð þó
ekki, mörgum til sárra vonbrigða.
Það er annars af sumarfríinu að
segja að „gullparið", eins og Daryl
og Kennedy eru stundum kölluð,
heimsótti m.a. Hong Kong og Fillips-
eyjar. Þaö vakti sérstaka athygh að
þau virtust langt frá því að vera ham-
ingjusöm og afslöppuð þegar þau
sneru aftur heim eftir að hafa eytt
fáeinum vikum í sólskininu. Þau
voru aftur á móti þreytuleg og stress-
uð og vildu ekki gefa neinar yflrlýs-
ingar um hvort brúðkaup væri á
döfinni.
Fljót aðjafna sig
Svo virðist þó sem þau hafi verið
fljót að jafna sig eftir ferðastressið
því skömmu síðar sáust þau njóta
lífsins í Central Park í New York.
Marga vegfarendur rak í rogastans
þegar þeir áttuðu sig á því að þarna
var sjálfur John yngri Kennedy
mættur ásamt Daryl Hannah. Þau
komu hjólandi og nutu útiverunnar
í haustsólinni.
Talsverðar breytingar hcifa orðið á
högum þeirra beggja að undanförnu.
Daryl hefur lagt allar framavonir á
hihuna í bili til þess að geta eytt
meiri tíma með John. Hann hefur
sagt upp stöðu sinni á lögfræðiskrif-
stofu þeirri í New York sem hann
vann hjá. Hann mun ætla að feta í
fótspor feðra sinna og hasla sér vöh
í póhtík.
Það er þó spurningin um væntan-
legt brúðkaup sem brennur á flestra
vörum. Jaquhne, móðir Kennedys,
mun þegar hafa lýst sig sátta við
Daryl sem tengdadóttur. Sama máh
ætti að gegna um aðra af Kennedy-
ættinni því að unnustan kemur úr
auðugri fjölskyldu í Miö-vesturríkj-
unum.
„Gullparið" virtist vera búið að jafna sig fáeinum dögum síðar þegar það
birtist með frisby-disk i Central Park.
Þaö var enginn gleðisvipur á andliti Johns Kennedy þegar hann sneri heim
úr sumarfríinu sem aðgangsharðir Ijósmyndarar höfðu gjöreyðilagt.
Sama máli gegndi um unnustu hans, Daryl Hannah. Hún hélt sig afsíðis
en komst þó ekki hjá því aö viðstaddir veittu henni athygli.