Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 Fréttir_______________________________________________________________________________dv Framlög til lögreglu á KeflavíkurflugveHi enn skorin við nögl: Byssur og sprengjur komust inn í f lugstöðina - þrátt fyrir vopnaleit. - „Kaldur raunveruleiki flárlaganna,“ segir vamarmálaskrifstofan í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1994 er gert ráð fyrir aö skerða enn fram- lög til lögreglunnar á Keflavíkurflug- velli. Ætlunin er að færa vörslu í flugstöð Leifs Eiríkssonar yfir á starfsmenn flugstöðvarinnar. Með þessu næst um 13,3 milljóna króna sparnaður. Hins vegar er ljóst að þetta hefur í fór með sér útgjalda- auka fyrir þá stofnun sem tekur við starfinu. Samkvæmt heimildum DV var lát- ið reyna á öryggiseftirlitið á Kefla- víkurflugvelli í sumar. Fengnir voru menn frá Landhelgisgæslunni til að reyna að komast með byssu og sprengjur í gegnum vopnaleit sem gerð er í flugstöðinni af starfsmönn- um Tollgæslunnar. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar komu á anna- tíma og fóru í gegnum vopnaleit án athugasemda. Síðan settu þeir byss- urnar saman á salernunum. Inn á „transitsvæði“ Eftir að mennirnir voru koinnir inn á „transitsvæðið" voru þeim all- ar leiðir færar um alþjóðlega flug- velli víða um heim án þess að þeir þyrftu aö hafa áhyggjur af vopnaleit. Óskar Þórmundsson, yfirlögreglu- þjónn á Keflavíkurflugvelli, vildi ekki ræða um niðurstöður æfmgar- innar við DV en sagði að ljóst væri að þessi mál væru ekki í nægilega góðum farvegi. Nauðsynlegt væri að senda mannskapinn á námskeið öðru hverju til að þjálfa hann í að fást við hluti sem þessa. Peningar væru hins vegar af skomum skammti og þeir hefðu yfir takmörk- uðum mannskap að ráða. Hingað til hefði ýmislegt komið upp á sem rétt- lætti veru lögreglu í stöðinni. Hann segir að skýrsla um æfinguna hafi verið send utanríkisráðuneytinu og það sé starfsmanna þess að svara fyrir hana. Auk þess að kanna vopnaleit í ör- yggiskerfi flugstöðvarinnar voru könnuð viðbrögð manna við bruna. Samkvæmt heimiidum DV voru nið- urstöður þeirrar æfingar slæmar. Lögreglumenn þekktu ekki nægilega inn á þau eldvarnarkerfi sem eru í byggingunni. Engin löggæsla „Viö prófum þetta kerfi reglulega og árangurinn er misgóður en alltaf er eitthvað sem þarf að færa til betri vegar og sérstaklega á þetta við þegar um afleysingarmenn er að ræða eins og á sumrin. Menn hafa verið teknir á námskeið til að læra á þessi tæki. Þannig að sú fullyrðing að ekki séu til nægir peningar til þjálfunar er ekki rétt,“ segir Amór Sigurjónsson, starfsmaöur varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Ljóst er að engin löggæsla verður í flugstöðinni eftir niðurskurðinn. Arnór segir að einn lögreglumaður hafi verið á vakt í stjórnstöð frá því að vopnuð varsla var aflögð í fyrra. „Menn telja það gerlegt öryggisins vegna því lögreglan er ekki langt undan. Reglur Alþjóðlegu flugmála- stofnunarinnar kveða á um að örygg- is- og löggæsla skuli vera fullnægj- andi en það er látið þjóðunum eftir að meta með hvaða hætti þær fram- kvæma þetta. Þetta er hinn harði, kaldi raunveruleiki fjárlaga. Það eru ekki til peningar til að hafa fasta fyr- irbyggjandi vopnalöggæslu eins og hún var en hitt er bara hagræðingar- atriöi," segir Arnór. Ekki kynntar niðurstöður Hann segir að nýverið hafi verið gerð úttekt á öryggi flugstöðvarinnar af hálfu bandarísku flugmálastofn- unarinnar og hún hlotið ágætisein- kunn. Þeim hafi að vísu ekki verið kynntar í smáatriðum niðurstöður í þeim prófunum sem fram fóru af hálfu íslenskra yfirvalda i sumar enda um innra öryggismál íslend- ingaaðræða,segir Amór. -pp Utandagskrárumræður um lokun Gunnarsholts: Stjórnarþingmenn mættu gegn ákvörðun Guðmundar - Pálmi Jónsson segir spamaðartölur ráðherra ekki réttar Tveir stjórnarþingmenn, þeir Pálmi Jónsson og Eggert Haukdal, Sjálfstæðisflokki, mæltu mjög gegn þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra að leggja niður vistheimihð að Gunn- arsholti við utandagskrámmræðu á Alþingi í gær. Pálmi vefengdi reynd- ar mjög þann 40 milljóna króna spamað sem ráðherra hefur haldið fram að lokun heimilisins mundi þýða fyrir ríkissjóð. Pálmi kvaðst hafa fengið það uppgefið hjá Ríkis- endurskoðun að kostnaður á hvern vistmann á dag næmi 3.800 krónum en ekki 4.800 eins og ráðherra upp- lýsti. Auk þess upplýsti Pálmi að rekstarkostnaður á ári næmi um 50 milljónum króna, að frádregnum 15 miUjóna króna tekjum heimilisins, og nettókostnaður næmi 31 milljón króna. Geir H. Haarde, þingflokksformað- ur Sjálfstæðisflokksins, mælti fyrir breytingum á lögum um þingsköp sem miðast að takmörkunum á ræðutíma þingmanna. AlUr þing- flokksformenn flokkanna komust að samkomulagi um að leggja frum- varpið fram en þegar það var rætt var einnig samþykkt að þingmenn stjórnarandstöðunnar mundu fá for- mennsku í 3 af 12 fastanefndum Al- þingis. Samkvæmt því munu þeir gegna formennsku í efnahags- og við- skiptanefnd, iðnaðarnefnd og um- hverflsnefnd en gegna varafor- mennsku í utanríkismálanefnd, sjáv- arútvegsnefnd, félagsmálanefnd og heUbrigðis- og trygginganefnd. Þegar Geir gerði grein fyrir frum- varpinu sagði hann að hér væri um að ræða samkomulagsatriði sem gert hefði verið í því skyni að bæta starfs- andannáþinginu. -Ótt Skoðanakönnun Gallups: Meirihluti landsmanna er hlynntur sameiningu MikiU meirihluti landsmanna, eða um 76 prósent, er hlynntur sameiningu sveitarfélaga en tæp- lega 68 prósent eru hlynnt samein- ingartiUögum í sinni heimabyggð ef marka má niðurstöður síma- könnunar sem gerö var á vegum ÍM GaUup um síðustu mánaðamót. Aðeins 16 prósent svarenda voru andvíg sameiningu almennt en ríf- lega 26 prósent andvíg sameiningu í sinni heimabyggð. Samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar er yfirgnæfandi meiri- hluti íbúa á Vesturlandi hlynntur sameiningu almennt, eða 94 pró- sent, meðan aðeins 52 prósent Vest- firðinga eru hlynnt henni. Þá virð- ist sameining hafa tUtölulega Utið fylgi á Suðurlandi. Þegar spurt var um sameiningu í heimabyggð svarenda kom fram mjög lítUl stuðningur við samein- ingartUlögurnar á Seltjarnarnesi, Vestfjörðum og á Suðurlandi, eða á bilinu 47 til 52 prósent. Þá virtust sameiningartillögur á Norðurlandi eystra, Austurlandi og í Mos- feUsbæ einnig hafa tiltölulega lítið fyigi. Bragi Guðbrandsson, aðstoðar- maður félagsmálaráðherra, telur niðurstöður könnunarinnar sýna að meirihluti þjóðarinnar sé hlynntur sameiningu sveitarfélaga og að stór meirihluti óski þess að sameiningarátakið beri góðan ár- angur. -GHS Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra stóð í ströngu við að verja ákvarðanir sínar varðandi lokun vistheimilisins i Gunnarsholti og vegna mála sem snúa að dagvistun barna á sjúkrahúsum. Ráðherra sagði það skrýtið aö fjórir þingmenn Suðurlandskjördæmis hefðu svo miklar áhyggjur af lokun Gunnarsholts - i raun ættu það aö vera þingmenn Reykjavíkur sem létu sig málið varöa því vistmenn væru flestir úr höfuðborginni. DV-mynd GVA Stuttar fréttir Minni þorskur fyrirvestan Samkvæmt könnun Aflamiðl- unar á afla tveggja togara mæld- ist þorskur sem veiddur var í Smugunni stærrT'en þorskur af Vestíjarðamiðum. RUV greíndi frá þessu. Fernarkosningar Tæknilegur möguleiki er á femum kosningum í sumum sveitarfélögum vegna sameining- arinnar ef sveitarstjómarkosn- ingar á næsta ári eru taldar með. Lyfjagiaðir læknar Tíminn greinir frá því að ís- lenskir læknar ávísa nærri þrisv- ar sinnum meira af magasárslyfj- um en norrænir starfsbræður þeirra. Allt aö 4 þúsund fslendingar 65 ára og eldri þjást af minnistapi og hjá helmingi hópsins er um alvarlegt vandamál að ræða. Þetta kemur fram í Tímanum. Úttektálæknum Heilbrigðisráðherra hefur beð- ið Ríkisendurskoðun aö gera út- tekt á störfum lækna sem þiggja greiðslur úr ríkissjóði, bæði vegna fastra starfa á sjúkrahús- um og framvísaðra reikninga til Tryggingastofnunar. Morgun- blaöiö greinir frá þessu. 20tonnafskóm Um 20 tonn af skóm hafa safn- ast til þróunarlandanna hjá Skó- verslmt Steinars Waage á einum mánuði. Landsvirkjun græðir Með þvi að lækka forgangsraf- magn og veita heimingsafslátt af ótryggðu rafmagni hefur mark- aðsátak Landsvirkjunar skilað henni 30 milljónum króna auka- lega í tekjur á ársgrundvelli. Lax, lax, lax Útflutningur á reyktum laxi til Bandaríkjanna hefur aukist verulega á þessu ári miðað viö "síðasta ár. -bjfa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.