Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
5
Fréttir
Keflavíkurflugvöllur:
Jón Baldvin
veitir krötum
nýstörf
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráöherra hefur hagrætt og flutt
til starfsmenn í tollinum á Keflavík-
urflugvelh til aö geta komið tveimur
alþýðuflokksmönnum í stöður yfir-
tollvarða á þessum síðustu sparnað-
ar- og niðurskurðartímum. Þanrdg
hefur utanríkisráðherra búið til
stöðu aðaldeildarstjóra og fjölgað
deildarstjórum úr tveimur í þrjá, allt
vegna þess að utanríkisráðherra hef-
ur ekki getað gert upp á milli alþýðu-
flokksmannanna tveggja.
Samkvæmt nýjustu tilfærslum ut-
anríkisráðherra í tollinum á Kefla-
víkurflugvelh fer Gottskálk Ólafsson
úr stöðu deildarstjóra í stöðu aðal-
deildarstjóra og Einar Birgir Ey-
mundsson fer úr stöðu yfirtollvarðar
í deildarstjórastarf. Þegar Sigfús
Kristjánsson yflrtollvörður fór á eft-
irlaun í \for voru tvær stöður yfirtoll-
varða lausar. Þannig tókst Jóni Bald-
vini að finna stöður fyrir hðsmenn
sína.
Nokkurrar óánægju hefur gætt
meðal starfsmanna í tolhnum á
Kefiavíkurflugvelli þar sem augljóst
þykir að ofangreindar breytingar
hafi ákveðinn kostnað í fór með sér
á þessum niðurskurðar- og sparnað-
artímum. Starfsmenn óttast að gripið
verði th uppsagna til að ná endum
saman.
Þorgeir Þorsteinsson, sýslumaður
á Keflavíkurfiugvelh, segir að
mannabreytingarnar í tohinum hafi
ekki verið gerðar samkvæmt sinni
tillögu. Hann segist fá minni fjárveit-
ingu samkvæmt fjárlagafrumvarp-
inu en samkvæmt fjárlögum í fyrra
og við því verði að bregðast, til dæm-
is með fækkun starfsmanna eða öðr-
um niðurskurði.
-GHS/Ægir Már
Viðurkenm
Um helgina veittu íslenskir ungtemplarar lögreglpmönnum í Breiðholtsstöð
viðurkenningarskjöld fyrir baráttu þeirra gegn vímuefnaneyslu ungs fólks.
Ungtemplarar gátu þess við afhendinguna að einnig bæri að lita á viður-
kenninguna sem þakklæti fyrir það starf sem aðrir lögreglumenn hefðu
unnið á þessum vettvangi. Á myndinni má sjá lögreglumennina í Breið-
holti, Einar Ásbjörnsson og Arnþór Heimi Bjarnason. Fyrir aftan þá standa
Ómar Smári Ármannsson, yfirmaður forvarnadeildar lögreglunnar, og
Böðvar Bragason lögreglustjóri. Auk þeirra eru á myndinni ungtemplarar
sem færðu lögreglumönnunum viðurkenningarskjöldinn. DV-mynd Sveinn
Ríkisstjórnin samþykkir
stef nu í vísindastörf um
Ríkisstjómin hefur samþykkt að
stofnað verði eitt ráð, Vísinda- og
tækniráð, sem taki við breyttu hlut-
verki núverandi Vísindaráðs og
Rannsóknaráðs ríkisins. Frumvarp
um nýja ráðið verður lagt fyrir Al-
þingi í haust. Stofnun nýja ráðsins
er höur í vísinda- og tæknistefnu rík-
isstjórnarinnar sem hrint verður í
framkvæmd á næstu misserum.
í skýrslu sérfræðinganefndar
OECD, Efnahagssamvinnu- og þró-
unarstofnunarinnar, sem gerð var
að beiðni Ólafs G. Einarssonar
menntamálaráðherra, kom fram
gagnrýni á fyrirkomulag yfirstjómar
rannsókna- og þróunarmála hér á
landi. Þar segir að í raun sé engin
samræmd stefna sem stýri því
hvernig mannafli og íjármagn nýtist
í rannsókna- og þróunarstarfsemi
hér á landi.
Að sögn Ólafs G. Einarssonar
menntamálaráðherra verða ijár-
framlög til vísinda- og tæknistarf-
semi aukin jafnframt því sem gerðar
verða auknar kröfur um gæði og ár-
angur í starfi. Gert er ráð fyrir að
hluti af tekjum af sölu ríkisfyrir-
tækja verði nýttur í þágu rannsókna
og vísinda. Samstarfshópi ráðuneyta
verður fahð að fjalla um vísinda- og
tæknimál í tengslum við gerð íjár-
laga.
Ríkisstjórnin leggur meðal annars
áherslu á að stofnaðar verði tíma-
bundnar stöður rannsóknaprófess-
ora án kennsluskyldu, að rann-
sóknatengt framhaldsnám verði eflt
og að skilyrði atvinnulífsins til að
þátttöku í markvissri vísinda- og
tæknistarfsemiverðiaukin. -IBS
Borgarráð átelur heilbrigðisráðherra
Borgarráð samþykkti í fyrradag
bókun þar sem Guðmundur Árni
Stefánsson heilbrigðisráðherra er
átalinn fyrir vinnubrögð gagnvart
Reykjavíkurborg varðandi tihögu
um að sveitarfélög yfirtaki rekstur
leikskóla Ríkisspítalanna, eUa verði
leikskólum lokað. Bent er á að rekst-
ur leikskóla sjúkrahúsanna hafi
aldrei tengst umræðunni um verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga.
-GHS
OM-BUÐIN
Grensásvegi 14 -sími 68-11-90
Opið laugardag kl. 10-14
Hjá okkur eru gömlu tœkin mikils virði, t.d. þegar keypt
er nýtt Sony stereo sjónvarp tökum við gamla tœkið sem
r u Jb—i.L... u u u J i—nkróna
innborgun, og þá skiptir engu máli hvort tœkið sé í lagi,
það eina sem skiptir máli er eitt sjónvarp upp í sjónvarp.
■Hi—Black Trinitron hágœða skjár. Nicam
stereo. fslenskt textavarp. ásamt fjölmörgum
tengimöguleikum s.s. 2 scart-tengi. tengi
fyrir myndbandsvél aö framan. Super VtHS
tengi. einnig aðgengileg og fullkomin
fjarstýring.
tceki sem atvinnumenn mcela með
SONY KVX-2963
Afborg.verð.
utborgun
gamla tækið
samtals kr.
MUN,
Dœmi um afborgunarverð
30 mán. MUNALÁN ca. ki
BRAUTARHOLTI & K-RINGLU