Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Síða 11
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
11
PV_____________________________________________________________
Katherine Ann Power dæmd fyrir aðild að morði á lögregluþjóni fyrir 23 árum:
Utlönd
HaraldurNor-
Flóttakonan ánægð
með 12 ára f angelsi
- var búin að vera á flótta undan bandarísku lögreglunni frá því haustið 1970
„Fólk lítur á hana sem hetju hérna.
Það er eins og að strá salti í sárin,“
sagði Poul Schroeder, sonur lög-
reglumannsins sem Katherine Ann
Power myrti ásamt félögum sínum
fyrir 23 árum. Hún hefur nú verið
dæmd í allt að 12 ára fangelsi fyrir
morðið.
Katherine Ann fagnaði fangelsis-
dómnum yfir sjálfri sér í gær. Hún
virtist alsæl í réttarsalnum enda ját-
aði hún sekt sína í málinu og sagðist
reiðubúin að taka út réttláta refs-
ingu.
Undirfölsku flaggi
Saga Katherine Ann hefur vakið
mikla athygli í Bandaríkjunum sem
og víðar. Hún var eftirlýst af lögregl-
unni fyrir morðið á Walter Schröed-
er 23. september árið 1970. Henni
tókst þá að komast undan réttvísinni
og í 23 ár var hún á flótta undan lög-
reglunni, sem flokkaði hana með
hættulegustu glæpamönnum Banda-
ríkjanna.
í haust ákvað Katherine Ann að
gefa sig fram og taka út refsingu fyr-
ir glæp sinn. Hún sagðist hafa liðið
fyrir gerðir sínar alla ævi og yrði
ekki frjáls fyrr en dómur væri fall-
inn, jafnvel þótt það kostaði hana
fangavist.
Katherine Ann var á sínum tíma
virkur andstæðingur Víetnamstríðs-
ins. Lögregluþjónninn féll þegar and-
ófshópur, sem hún starfaði með í
Boston, rændi banka.
Katherine Ann var í felum í Boston
í fimm ár eftir morðið en flúði þá til
vesturstrandar Bandaríkjanna,
skipti um nafn, giftist og eignaðist
son. Hún naut virðingar þar sem
matreiðslukennari og mann hennar
grunaði ekki fremur en aðra að þessi
virðulega húsmóðir væri eftirlýstur
glæpamaður.
Þungurdómur
Dómurinn nú var þyngri en menn
áttu von á. Það virtist þó ekki draga
úr hamingju Katherine Ann í réttar-
salnum. Svo kann að fara að hún
verði náðuð eftir fáa mánuði bak við
lás og slá á þeirri forsendu að hún
sé ekki lengur hættuleg kona. Þá er
enn ódæmt í kærumálum vegna
bankarána og rána úr vopnabúri
þjóðvarðliðsins. Fyrir þau verk kann
Katherine Ann einnig að fá nokkurra
árafangavist. Reuter
ÍV: ■;' ;
Katherine Ann Power virtist alsæl þegar búið var að dæma hana til allt að 12 ára fangavistar í gær. Hún var í 23 ára
á flótta undan lögreglunni vegna aðildar að morði á lögregluþjóni og fjölda rána en ákvað i haust að hætta leikn-
um og gefa sig fram. Á innfelldu myndinni eru eiginmaðurinn Ronald Duncan og sonurinn Jaime. Simamynd Reuter
Herbúðum Kremlverja lýst sem geðveikrahæli í uppreisninni:
Forsetinn fór á taugum og
vinirnir tóku við stjórninni
Khasbúlatovfær
sama lögfræð-
ingogJanajev
„Þetta er brot
á viðurkennd-
um lögum hjá
öllum siðuðum
þjóðum,“ segir
lögfræðingur
Rúslans
Khasbúlatov
þingforseta,
sem ekki hefur fengið að tala við
skjólstæöing sinn frá því hann
var hnepptur í varðhald á mánu-
daginn. Lögfræðingur þessi ver
einnig Gennadíj Janajev, einn
forsprakka valdaránsins í ágúst
1991.
Lögfræðingurinn segir að ekk-
ert sé vitað um hðan Khasbúla-
tovs og annarra uppreisnar-
manna sem nú eru í haldi í fang-
elsi KGB. Hann segir að lög séu
brotináKhasbúlatov. Reuter
„Það voru vinir forsetans sem
björguðu máiunum. Þeir tóku við
hlutverki Jeltsíns og gáfu allar skip-
anir,“ sagði rússneski blaðamaður-
innn Sergei Parkhomenko í viðtali
við ítalska útvarpið í gær. Hann var
í Kreml þegar mest gekk á vegna
uppreisnar kommúnista í þinghús-
inu og sagði að ástandið hefði verið
eins og á geðveikrahæli.
Blaðamaðurinn, sem starfar við
frjálslynt blað í Moskvu, sagði að
Borís Jeltsín hefði farið á taugum og
öskrað á alla sem á vegi hans urðu.
Hann hefði verið ófær um að stjórna
og það hefði komið í hlut nánustu
vina hans og samstarfsmanna að
vinna verkin og gefa skipanir um
aðgerðir.
Einkum er þar nefndur til sögunn-
ar ráðgjafinn Gennadíj Burbuhs,
sem verið hefur náninn vinur Jelts-
íns undanfarin ár. Blaðamaðurinn
segir að hann hafi í raun stjómað
fyrir Jeltsín þá tvo daga sem upp-
reisnin stóð yfir.
„Fréttin um uppreisnina barst bara
inn af götunni. Eftir það fór allt í
háaloft. Um tíma var engin stjórn á
hlutvmum," segir blaðamaðurinn.
Hámarki hefði bijálæðið náð þegar
hðsmenn kommúnista fylktu liði og
tóku sjónvarpsstöðina á sunnudag-
inn.
Jeltsín var í sumarhúsi sínu þegar
uppreisnin hófst. Aht var á suðu-
punkti þegar hann kom til Kremlar
en ástandið skánaði síst við nærvem
forsetans. Þá var einn aðstoðar-
mannanna farinn til samningavið-
ræðna í Danilov-klaustrinu en var
kahaður heim aftur.
„Við getum ekki samið. Þeir ætla
að taka Krernl," öskraði einhver og
ekkert varð úr samningum.
Blaðamaðurinn segist hafa skrifað
lýsingu á ástandinu í Kreml en grein-
in hafi ekki birst vegna ritskoðunar-
innar sem enn er að nokkm í gildi í
landinu.
Reuter
seturþingSama
Haraldur
Noregskon-
ungur setti
þing Sama I
Karasjok í gær
og lagöi viö það
tækifæri
áherslu á eigin
ábyrgð Sama á
þvi að þróa menningu sína. Við
setningarathöfnina voru samísk
málefhi sett i norrænt og alþjóð-
legt sarohengi.
Konungur sló því fóstu að þing
Sama hefði fundið sér stað i hinu
pólitiska landslagi. í ræðu sinni
íjallaði hann m.a. um störf réttar-
nefndar Sama sem lúta að réttin-
um til Iands og vatns i byggðum
Sama.
„Tilgangurinn er að komast að
samkomulagi um réttlátar lausn-
ir sem mæta hefðbundnum
tengslum Sama við landið," sagði
konungur.
Húseigendur
hafaekkiráðá
tryggingum
Húseígendur í Færeyjum eru
margir hverjir svo aðþrengdir
fjáriiagslega að þeir telja sig
knúna til að tryggja fasteignir
sínar undir raunvirði þeirra til
þess að hafa yfirleitt efni á að búa
í þeirn.
Fjölmargh- snúa sér á degi
hverjum til fasteignatrygginga-
fyrirtækisins Brunatryggingar
og fara fram á að tryggingin veröi
míðuð við söluverðmæti hússins
en ekki raunverulegt verðmæti.
Tryggingamenn telja þetta afar
slæmt þar sem vetur gengur nú
í garð og þá má oft vænta mikilla
óveðra sem geta og hafa valdið
miklu tjóni.
Norskiherinn
sendurtillanda-
mæravörslu
Norski herinn á að leggja lög-
reglu landsins hð við að gæta
landamæra ríkisins og aðstoða
þegar stórir hópar flóttamanna
koma til landsins, hvort sera það
er á Fornebuflugvelli, í Finn-
mörku eða við aðrar landamæra-
stöðvar.
Norska blaðið Klassekampen
skýrir frá þessu og segir að her-
menn eigi ekki að taka yfir venju-
leg störf lögreglunnar, heldur eigi
þeir að koma í veg fyrir ringul-
reið og hindra að flóttamenn
komist iim fyrir landamærin.
Endanleg ákvörðun í málinu
verður ekki tekin fyrr en land-
vamaráöuneytið hefur fjallað um
það.
málvegnaTor-
tímandans
Ástralski rithöfundurinn Bill
Green ætlar að fara í mál við
framleiðendur kvikmyndmuta
um Tortímand-
ann, með
vöðvabúntið
Arnold
Scliwarœnegg-
er í aðalhlut-
verki, fyrir
hugmynda-
stuld. Green
telur að myndin Tortímandhm II
- Dómsdagur hafi verið byggð á
handriti hans, Mínótárinn, sem
var skráö hjá bandariska rithöf-
undasambandinu í apríl 1989.
„liigfræðingurinn minn segir
að við séum með pottþétt mál,“
sagði Green. NTB.Riteau, Reuter