Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
íþróttir
Má nota naf nið
Rúmenska knattspymumann-
inum Gheorghe Ceausila hefur
verið heimilað að nota naflt sitt á
nýjan leik. Þaö hljómar eins og
uppnefni á Nicolae Ceausescu,
fyrrum leiðtoga Rúmeníu, og því
var Ceausila skipað aö skrifa sig
„C. Gheorghe". Hann er nú
markahæstur í rúmensku 1.
deildinni með liöi sínu, Sportul.
Steauaátoppnum
Steaua er sem fyrr á toppi rúm-
ensku 1. deildarinnar og hefur
ekki fengið á sig mark í fyrstu 8
leikjunum.
Ekkiákráraar
Leikmenn enska knattspyrnu-
liðsins Southend mega ekki leng-
ur sækja krár og næturklúbba
eftir að einn þeirra, Andy Ansah,
meiddist illa í andliti þegar glasi
var kastað í hann á næturklúbbi
um síðustu helgi.
Menzomá fara
Staniey Menzo, fyrrum iands-
liðsmarkverði Hollands í knatt-
spyrnu, hefur verið geíin frjáls
sala frá félagi sínu, Ajax.
Pumpido hættur
Annar þekktur markvörður,
Nery Pumpido, sem varð heims-
meistari með Argentínu 1986, hef-
ur lagt hanskana á hilluna, 36 ára
gamall.
Tvísýnthjáeitskum
Tvisýnt er hvort Paul Parker,
Stuart Pearce, Les Ferdinand og
Ian Wright geti leikið með enska
landsliðinu í HM-leiknum mikil-
væga gegn Hoilendingum í næstu
viku vegna veikinda og meiðsla.
Powlerrólegur
Táningurinn Rofabie Fowler,
sem skoraði 5 mörk fyrir Liver-
pool gegn Fulham í fyrrakvöld,
vill sem minnst tala við fjölmiðla
og segir ekki rétt fyrir félagiö að
sér sé gefm of mikil athygli.
Gróði hjá Uníted
Ensku meistararnir Manchest-
er United högnuöust um 800
miiijónir króna á síðasta tímabili,
þrátt fyrir kostnaðarsamar fram-
kvæmdir á ieikvangi sínum, Old
Trafford. .■
HullogBrightontæp
Ensku knattspymufélögin Hull
og Brighton sluppu í gær viö
gjaldþrot á síðustu stundu.
Spartak tapadi
Rotor Volgograd vann Spartak
Moskva, 1-0, í toppleik rússnesku
1. deildarinnar í knattspyrnu í
fyrradag. Spartak er þó með 7
stiga forskot og á leik til góöa
þegar fimm umferðum er ólokið.
Gazza lengurfrá
Enski knattspyrnumaðurinn
Paul Gascoigne, sem leikur meö
Lazio á Ítalíu, er meiddur á hné
og verður frá í minnst þtjár vik-
ur.
Belgar mörðu sigur á Gabon,
2-1, í vináttulandsleik í knatt-
spymu í Brussel í gærkvöldi.
Marc Wilmots gerði sigurmarkið
þrernur minútum fyrir leikslok.
Stórveldintöpudu
Gömlu risarnir í skosku knatt-
spyrnunni töpuðu báðir í úrvals-
deMnni í gærkvöldi. Rangers
tapaöi 2-1 fyrir Motherwell og
Celtic 2-1 fyrir St. Johnstone.
-VS
„Nú gefst meiri tími
fyrir fjölskylduna“
- sagði Michael Jordan, einn mesti íþróttamaður sögunnar
Þaö er ekki of djúpt í árinni tekið
aö segja að ein mesta sprengjan í
íþróttaheiminum í langan tíma hafi
veriö yfirlýsing körfuknattleikssnill-
ingsins Michaels Jordan hjá Chicago
Bulls þess efnis að hann væri hættur
aö leika körfuknattleik. Þaö er á eng-
an hallað aö segja aö Michael Jordan
er einn mesti íþróttamaður sem kom-
ið hefur fram í heiminum og því kom
ákvörðun hans að leggja skóna á hill-
una eins og vatnsgusa framan í
marga, en þó ekki alla samt.
Ervin Magic Johnson, sem hætti
körfuboltaiðkun fyrir tveimur árum
þegar í ljós kom að hann var haldinn
HIV veirunni, sagði við fréttamenn
í gær að ákvörðun Jordans kæmi sér
ekki svo mikið á óvart. „Það er meira
en að segja það að vera stöðugt und-
ir álagi, bæði í leiknum sjálfum og
einnig í fjölmiðlum. Jordan þarf á
hvíldinni að halda en ég yrði samt
ekki hissa á því þó að hann sneri til
baka og sýndi þá heiminum að hann
væri ennþá kóngurinn í íþróttinni,“
sagði Magic Johnson viö fréttamenn
í Genf í Sviss í gær. Fréttaskýrendur
gerðu því skóna að rekja mætti
ákvöröun Jordans til fráfalls föður
hans en hann var myrtur í ágúst í
sumar. Jordan sagðist í gær sakna
föður síns mikið enda hefði alltaf
verið náið samband þeirra í milli.
Ákvörðun hans að hætta væri þó
ekki eingöngu tengd dauða föður
síns.
„Ég er einfaldlega búinn að fá nóg
í bih. Það fer gríðarlegur tími í körfu-
boltann og hann kostar mikla fjar-
veru frá fjölskyldunni. Ég hef marg-
sinnis saknaö fjölskyldunnar á
keppnisferðum en núna ætla ég að
huga meira að framtíðinni og vera
meira með fjölskyldunni,“ sagði Mic-
hael Jordan á fréttamannafundi í
gær.
Fréttaskýrendur sögðu eftir fund-
inn að þeir teldu það ekki ólíklegt
að Michael Jordan myndi taka skóna
fram að nýju þó síðar yrði.
í mínum huga aö sjá Michael Jord-
an hætta í körfubolta er fyrir mér
slíkt áfall að ég trú því ekki að hann
komi til með að standa viö það. Hann
hefur náð þeirri fótfestu hér að hann
er eins konar guð íþróttanna að mínu
mati. Þegar ég kom heim eftir erfiðan
vinnudag í gær fór ég að velta fyrir
mér hvaða leiðir maður gæti notað
til að fá hann til að halda áfrarn,"
sagði Kolbeinn Pálsson, formaður
Körfuknattleikssambands íslands,
þegar hann var inntur eftir ákvörðun
Michaels Jordan.
„Ég fór aö hugsa með hvaða hætti
við gætum sent Jordan kveðjur frá
íslandi. Það sem mér dettur helst í
hug er hreint og beint að fá uppá-
skrift frá börnum sem kunna ekki
einu sinni aö skrifa en þau kimna
aö segja Chigaco Bulls og Jordan.
Við þurfum ekki annað en að keyra
í gegnum Reykjavík og jafnvel í sum-
ar þegar ég fór um sveitir landsins
sá ég körfur fyrir utan annað hvert
hús. Þaö er ekki síst fyrir hans fram-
göngu sem þessi sýn blasir við. Þetta
er ekki bara spurning um að Jordan
sé að hætta og það lækki stöðu NBA
í körfuboltanum heldur er þetta sá
maður sem vakið hefur hvað mesta
athygli á íþróttum yfir heildina. Ég
vona bara að Jordan gefi okkur fleiri
ár og hreinlega vil ég ekki trúa öðru,“
sagði Kolbeinn Pálsson.
-JKS
Michael Jordan tilkynnir ákvörðun sína ásamt konu sinni á blaðamannafundi í gær.
Símamynd Reuter
Kvennaknattspyma
Ragnheiður og
Halldóra hættar
Ragnheiður Jónasdóttir, leikmað-
ur með ÍA, sem hætti við að hætta
að leika knattspymu í vor, hefur
endurnýjað ákvörðun sína um að
leggja skóna á hilluna. „Þó maður
bæti einu ári við þá bætir maður
ekki við öðru. Þetta var svo sérstakt
tilfelli í fyrra það kom svo stórt gat
í hópinn en þetta gerist ekki aftur.
Þetta er allt svo stórefnilegt héma.
En maður verður að fá skammtinn
sinn svo maður fylgist hara með af
bekknum," sagði Ragnheiður.
Halldóra Gylfadóttir, sem ákvað í
lok síðasta keppnistímabils að leggja
skóna á hiiluna, sökum hjartagaha,
en ákvaö í upphafi sumars að leika
með eitt tímabil enn, er einnig hætt.
„Þetta var mjög erfitt í sumar. Ég
byijaði seinna en hinar aö æfa og
fann að ég var lengur að jafna mig
eftir leiki. Núna er ég alveg ákveðin,
ég er hætt aö keppa,“ sagöi Halldóra
ísamtahviöDV. -ih
Dijon <55)118
Haukar(33)65
6-0, 12-2, 16-12, 29-15, 33-18,
50-26, (55-33). 55-37, 73-45, 82-47,
974)7, 106-59, 118-65
Stig Uauka: John Rhodes 19, Jón
Amar Ingvarsson 13, Bragi Magn-
ússon 9, Tryggvi Jónsson 8, Jón
Örn Guðmundsson 7, Pétur Ingv-
arsson 5, Sigfús Gízurarson 2 og
Guðmundur Björnsson 2.
Stíg Dijon: Hemiann Henry III
31, Jean-Luc Deganis 20, Mark
Hughes 18, Anthony Loopez 16,
Damien Pastres 14, Christophe
Peilegrini 6, Stépliane Bergeron 4,
Oliver Hanatre 4, Eric Lecerf 3 og
Willem Laure 2,
Fráköst: Dijon 27, Haukar 17
3ja stiga körfur: Dijon 14, Haukar
Bolta tapað: Dijon 11, Haukar 33.
Dómarar: Jean Ilerweyer, IJol-
landi, og Imc Meisch, Lúxenitórg,
leyfðu allt of mikla hörku.
Áhorfendur: 3000.
„Betra liðið vinnur alltaf“
Bjöm Leósson, DV, Dijon:
„Þeir þekktu ekkert til okkar fyrir
fyrri leikinn en núna vissu þeir afit
um okkur. Munurinn á áhugamönn-
um og atvinnumönnum kom berlega
í ljós. Betra liðið vinnur aUtaf í körfu-
bolta og í þessum leik var Dijon betra
Uðið. Hittni þeirra var ótrúleg, ég
held ég hafi aldrei séð annað eins.
Þeir vom gjörsamlega óþekkjanlegir
frá fyrri leiknum. Þeir spUuöu fasta
og grófa vörn sem við réðum ekki
við og það hræddi okkur mjög. Þetta
er mikU og góð reynsla fyrir Uðið og
ég vU bara muna eftir fyrri leiknum
þegar frá hður,“ sagði Ingvar Jóns-
son, þjálfari Hauka.
Jeanc Monschau þjálfari
„Við mundum eftir því þegar við
vorum 15 stigum undir í Hafnarfirði
og vomm ákveðnir 1 því að láta það
ekki gerast aftur, það hefði vel getað
gerst. Við ákváðum að gefa Haukum
aldrei tækifæri til þess að öðlast
sjálfstraust og spUuöum betri vöm
heldur en í fyrri leiknum. Leikmaður
nr. 10 (Jón Arnar) geröi 19 stig í fyrri
hálfleiknum í Hafnarfirði og við tók-
um hann því stíft í kvöld. Við vUdum
sýna áhorfendum góðan og skemmti-
legan leik aUan tímann svo þeir komi
og styðji okkur í næstu umferð gegn
ítalska Uðinu Regio di Calabria,"
sagði þjálfari Dijon.
John Rhodes hefur fundið leiðina i körfun,
í leiknum og skoraði 19 stig. Frakkar fóru li
Evrópukeí
Vörnc
Dijon
-Haukarlutu
Bjöm Leóssan, DV, Dijon:
Haukar era úr leik í Evrópukeppni
félagshða í körfuknattleik eftir 118-65
tap fyrir franska Uðinu Dijon í Frakk-
landi í gær. í leikhléi hafði Dijon yfir,
55-33.
Leikmenn Dijon vom ekki á því aö
láta íslensku áhugamennina koma sér í
bohba eins og í fyrri leik hðanna í Hafn-
arfirði þegar Haukar leiddu lengst af en
töpuðu að lokum með 7 stiga mun. Strax
frá fyrstu mínútu léku þeir mjög stífa
maður á mann vörn og Haukamir áttu
í miklu basli meö að stilla upp leikkerf-
um sínum í sókninni. Þegar Haukamir
svo misstu boltann vom Dijon-menn
eldsnöggir í hraðaupphlaupin. Dijon
gerði 6 fyrstu stigin áður en Haukar