Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Blaðsíða 4
Fréttir LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993 Bankastjórar Seölabankans feröast um heiminn fyrir tugi milljóna: Kostnaður greiddur og dagpeningar að auki - beiðni DV um sundurliðun ferðakostnaðar hafnað labankastjóra < - ffá áfsbyrju'n 1991 tilokt. 1993 - ' r ..—. J ' 3 ferðir DV skýrslum bankans sé heOdarkostn- vegna áranna 1991 og 1992. kostnað við gistingu með morgun- aðurinn vegna ferðalaga starfs- Samkvæmt reglum Seðlabankans mat á ferðalögum erlendis. Að auki manna bankans um 45 milljónir fá bankastjórarnir greidd fargjöld og fá þeir um 80 prósent af dagpening- 28 ára Reykvíkingur dæmdur í Héraðsdómi 1 gær: Árs f angelsi fyrir að nauðga sambýliskonu „Það er engin ástæða til að opna bankann upp á gátt. Við höfum okkar gagnrýnu endurskoðendur. Starfs okkar vegna verðum við hins vegar að hafa mikil samskipti við erlenda banka og því hijótum við að ferðast nokkuð,“ segir Tómas Árnason, bankastjóri Seðlabankans. AIls hafa bankastjórar Seðlabank- ans farið í 64 utanlandsferðir á veg- um bankans frá því í ársbyrjun 1991. Flestar ferðimar hefur Jóhannes Nordal farið, eða alls 25. Birgir ísleif- ur Gunnarsson hefur farið 15 ferðir, Tómas Ámason 18 og Jón Sigurðsson 3, en hann tók við störfum fyrir rúm- um þremur mánuðum. Ekki reyndist unnt að fá upplýs- ingar um það í bankanum hvert bankastjóramir hafa farið, hversu lengi þeir hafa dvahð erlendis, hver kostnaðurinn vegna ferðalaga hvers og eins er, né hversu oft bankinn hefur kostað utanlandsferðir eigin- kvenna bankastjóranna. Til þess er hins vegar vísað að samkvæmt árs- Arnar Þór Reynisson var kominn með eina rjúpu eftirfimm klukkutíma göngutúr um Bláfjallasvæðið. DV-mynd G.Bender Rjúpnaveiöin hafin: Veiðimenn fyrráferð „Ég er búinn að fá eina rjúpu og hef gengið í fimm klukkutíma, ég sá 26-30 ijúpur á svæðinu. Skotveiði- maður, sem ég hitti í morgun, fékk 8 ijúpur enda þekkir hann svæðið vel,“ sagði Arnar Þór Reynisson er við hittum hann á BláfjaUasvæðinu rétt eftir hádegi í gær. „Ég fékk átta ijúpur og sá 12-15 héma í fjöllunum í nágrenni Hafnar í Homafirði. Það var 8 stiga frost og hvasst,“ sagði Sverrir Sch. Thor- steinsson í gærdag. Kaupmenn í sportveiðibúðum vora sammála um að sjaldan hefðu fleiri skot selst í byijun veiðitíma. Rjúpna- veiðimenn fara miklu fyrr til ijúpna en veriö hefur vegna þessa nýja veiðitíma sem nú er í gildi. Nokkuð var um ijúpnaveiðimenn 1 ÞingvaUasveit í gær en þeir vom þó mun fleiri í fyrra þegar opnað var. Nokkrir veiðimenn fengu góða veiði á LyngdalSheiðinni og vom menn með á bifinu 5-10 rjúpur. Fáir veiðimenn vom í SvartagUi, ÁrmannsfeUi og þar í nágrenni og fengu menn ekkert. Þeir veiðimenn, sem DV hafði tal af, sáu ekki fugl og vora sumir búnir að ganga í sex til átta klukkustundir. -G.Bender/SK Héraðsdómur Reykjavikur dæmdi í gær 28 ára karlmann í eins árs fang- elsi fyrir að hafa nauðgað sambýhs- konu sinni á þáverandi heimih þeirra í Reykjavík í lok desember síðasthöins. Maðurinn er jafnframt dæmdur til að greiða konunni 250 þúsund krónur í miskabætur. Guð- jón St. Marteinsson kvað upp dóm- inn. Sambúð mannsins og konunnar hafði verið mjög stormasöm þegar framangreindir atburðir áttu sér stað. Kvöld eitt óku þau að heimili sínu og kastáöist í kekki á mUh þeirra og upphófst rifrildi. Þegar heim var komið gekk konan tíl hvhu á undan manninum sem fór inn í svefhherbergi á eftir. Hjá lögreglu viðurkenndi maðurinn að hafa ætlað að nálgast konuna kynferðislega en sagði hins vegar að sér hefði virst að „ekki yrði að því eðhlegur aðdrag- andi“. Hann hefði þá kippt konunni úr nærfótum tíl að sýna aö hann hefði eitthvert vald. Fólkinu bar saman um það hjá lögreglu að átök hefðu orðið og konan streist á móti áður en maðurinn kom fram vUja sínum. Eftir þetta kvaðst konan ætla að kæra manninn. Hann hvarf á brott úr íbúöinni en áður khppti hann í sundur símasnúm. Nokkm síðar var hann handtekinn. Geðlæknir sem sambýhsmaðurinn leitaði tU bar fyrir dóminum að hann hefði greint sér frá því að sig langaði tíl að nauðga einhverri konu. Fram kom að borið hefði á mikilli og vax- andi reiði hans út í konur, ekki bara út í sambýhskonu sína, heldur konur almennt - hann hefði orðið Ula úti í viöskiptum sínum viö þær í gegnum tíðina. Mat læknisins var að maðurinn sé haldinn persónuleikatruflunum en ekki væri hægt að fullyrða að um byrjandi geðsjúkdóm væri að ræða þó ekki væri hægt að útiloka slíkt. Héraðsdómur taldi ekkert í gögnum málsins, annað en framburð manns- ins, styðja að konan hefði beitt hann andlegu og líkamlegu ofríki í sam- búðinni. Maðurinn var dæmdur tU að greiða 100 þúsund krónur í sak- sóknaralaun og veijanda sínum 175 þúsund krónur í málsvarnarlaun. -Ótt um bankastarfsmanna, eða um 20 þúsund krónur á dag. Þá er banka- stjómnum heimUt tvisvar á ári að fá greitt fargjald og gistingu fyrir eigin- konur sínar. Konumar fá hálfa dag- peninga eða ríflega 10 þúsund krónur á dag. Að sögn Tómasar eru ferðir banka- stjóranna famar í hinum ýmsu emb- ættiserindum, bæði fyrir bankann og ríkissjóð. I því sambandi nefnir hann ferðir á sljómarfundi erlendra fjármálastofnana, svo og ýmsar aðr- ar ferðir á ráðstefnur og fundi í Evr- ópu og Bandaríkjunum, meðal ann- ars vegna samninga um erlendar lántökur. Flestar era ferðimar tU Sviss á stjórnarfundi Alþjóða fjárfestinga- bankans sem haldnir eru nánast mánaðarlega. Þá fara bankastjórarn- ir oft á ári á fundi OECD í París, Alþjóða gjaldeyrissjóösins í Wash- ington, Alþjóða fjárfestingabankans í Sviss og Norræna fjárfestingabank- ansíFinniandi. -kaa Dagur hvíta stafsins var i gær. Þá var vakin athygli á stöðu blindra í þjóðfélaginu, ekki síst möguleikum þeirra til að fara um stræti og torg án þess að eiga á hættu að slasast. í tilefni dagsins setti Hermann Gunnarsson á sig sérstök gleraugu og gekk „blindur" niður Laugaveg- inn með hvítan staf sem einn aðal- tengilið sinn við umhverfið. DV-mynd Brynjar Gauti Austurland: Sjópróf vegna aðgerða Solo Sjópróf”fara fram í Héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum á mánu- dag vegna aðgerða Grænfriðunga á Solo í Smugunni gegn veiðum togar- ans Snæfugls SU 20 frá Reyðarfirði. Grænfriöungar trufluðu veiðar Snæfugls m.a. með því að hengja gúmmíslöngur og tunnur á trollhlera togarans. í sjóprófunum verður at- ferh Grænfriðunga tekið fyrir og hvort þeir hafa brotið í bága viö al- þjóða siglingareglur og ógnað öryggi skipveija. Samkvæmt heimildum DV munu ljósmyndir og myndband verða lagt fram í sjóprófunum frá skipverjum Snæfugls. Togarinn kemur til lands- ins um helgina eftir langa dvöl í Smugunni og sá fyrsti eftir aðgerðir Grænfriðunga þama norður frá. -bjb Landgræöslan: Guðmundur Oddsson, skóla- stjóri Þingholtsskóla í Kópavogi, varð að aflýsa haustferð tæplega 300 baraa og kennara nú í október vegna þess aö Landgræöslan hafði eidki verkefni fyrir allan hópinn. í skólanum hefúr verið venjan að fara upp að Fossá í Árnessýs til að tína fræ en þar sem engin fi voru þar að þessu sinni var ákve iö aö bjóða Landgræðslunni vinna fyrir hana eina morgu stund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.