Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Page 32
44
LAÚGAHDÁGUR 16. OKTÓBRR 1993
Sviðsljós
Olyginn
.. .að leikarinn Robert Downey
hefði leikið í tuttugu myndum en
vilji helst láta minnast sín sem
Charlie Chaplin en hann segist
hafa lifað sig inn í það hfutverk.
Síðan hann varð heimsfrægur
hefur hann kvænst Deboruh
nokkurri Falconer og eignast son
með henni. Og hann hefur heldur
ekki sagt sitt siðasta orð í kvik-
mvndum.
.. .að leikarinn John Malkovich,
sem er fertugur, hefði hug á að
flytja til Evrópu með eiginkonu
sinní, Nicolette, og tveimur böm-
um. Honum list ekki á framtíð
barna sinna í hinni stóru Amer-
iku. „Mig langar helst að flytja
til Frakklands þar sem maður
getur gengið óhræddur um göt-
ur,“ segir hann.
.. .að leikarinn Jason Priestley
úr þáttunum Beverly Hills 90210
hefði nýlega loklð vlð að leika í
kvikmynd sem gerist á sjöunda
áratugnum. í myndinni fer hann
í ferðalag til Hollywood ásamt
tveimur vinum og hittir m.a.
kynbombuna Marilyn Monroe.
Jason kynnti myndina fyrir stuttu
á Planet Hollywood og fékk góð-
an koss frá gervl-Marllyn í stað-
inn.
.. .aö það virtist nokkuð vera i
tísku hjá kvikmyndaleikkonum
um þessar mundír að ættleiða
börn. Nú hefur leikkonan Jodie
Foster ákveðið að ættleiða barn
og fylgir hún þá kannski í fótspor
Michelle Pfeiffer og giftir sig sfð-
...að Yoko Ono hefði skrifað
söngleik. Nú biður hún eftlr að
verkið komist á fjalirnar og er
ekkl ólíklegt að svo verði. Söng-
leikurinn heltir einfaldlega New
York Rock.
Rithöfundurinn Ann-Cath. Vestly, amma og börnin átta, i nýju leikriti sem byggt er á hinni vinsælu sögu skáldkon-
unnar.
Átta böm og amma þeirra í skóginum:
Sett upp í leik-
húsi í Ósló
- skáldkonan Ann-Cath. Vestly leikur ömmuna
Flestir Islendingar, sem eitthvað
eru komnir til vits og ára, þekkja vel
norsku skáldkonuna Ann-Cath.
Vestly en það var einmitt hún sem
bjó m.a. til sögurnar um Óla Alex-
ander flli bomm bomm bomm og átta
börn og ömmu þeirra í skóginum auk
margra annarra skemmtilegra bóka.
Um þessar mundir er verið að frum-
sýna í Nýja leikhúsinu í Ósló leikrit
um ömmuna og bömin átta og þaö
er skáldkonan sjálf sem leikur ömm-
una.
„Böm eru mismunandi. Sum eru
óþekk en önnur stillt,“ segir skáld-
konan. „Öll börn em þannig sérstök
á sinn hátt.“ Það er orðið langt síðan
Ann-Cath. lagði frá sér pennann og
hún hefur ekki komið nálægt leik-
húsi í ein 43 ár.
Anne-Catharina Vestly er fædd á
Rena í Ðsterdalen árið 1920. Hún
hefur glatt börn á öllum aldri í næst-
um fjörutíu ár með öllum bókunum
sínum. Svo virðist sem börn dagsins
í dag hafi jafn gaman af sögunum
hennar og börn ársins 1953.
Anthony Quinn og hjákona hans, Kathy, sem skýlir barninu undir kápunni Leikarinn knúsar litlu dótturina.
sinni.
Anthony Quinn:
Leynileg heimsókn til dótturinnar
Mikið hefur verið íjallað um fram-
hjáhald leikarans góðkunna, Ant-
honys Quinn, og ekki síst að hann
hafi eignast bam með hjákonu sinni.
Eiginkona leikarans hefur ekki vilj-
að viðurkenna að hann eigi sér við-
hald og saman hafa þau komið í
fjölmiðlum brosandi og hamingju-
söm.
Þrátt fyrir allt þetta heimsækir
Anthony Quinn einkaritara sinn og
ástkonu, Kathy Bevin, og lítur á litlu
dótturina Patriciu sem fæddist 23.
júlí. Þess má geta að Kathy er aðeins
22ja ára en leikarinn 78 ára. Þetta er
ellefta barn Anthony Quinns.
Leikarinn segist ekki vilja skilja
við eiginkonuna en hann vill hafa
Kathy, er haft eftir vinum hans. Það
var hún sem vildi eiga bam en hann
ekki. Hann sagði að ef hún kæmi
með bam yröi hún að verða einstæö
móðir því hann myndi ekki yfirgefa
eiginkonuna. Enda væri hann kom-
inn hátt á áttræðisaldur og ekki í
standi til að gæta ungbama.
Anthony Quinn lætur þó ekki eins
og litla dóttirin sé ekki til því á mynd-
unum sést hvar hann knúsar hana
ne kvssir.
.. .ad Hillary Clinton gengi alltaf
i of litlum fötum og hefðu skradd-
arar hvíta hússins nóg að gera
við að bæta flikur hennar og
gera við. Auk þess kysi hún að
láta sauma undirfötin inn i flík-
urnar þannig að ekki bæri á
þeim, hvað sem það nú þýðir.
.. .að litla dóttir Woody Allen,
Dylan, 7 ára, hefði fengið að fara
með pabba og kærustunni So-
on-Yi til Parisar þar sem var
verið að frumsýna nýjustu mynd
hans, Manhattan Murder Myst-
ery.
.. .að ein þekktasta fyrirsæta
heimsins, Laura Hutton, yrði
fimmtug í nóvember en væri
samt ennþá að. Hún hefur sýnt
föf fyrir H&M og augiýst föt fyrir
Calvin Klein. Þá verður hún aftur
andlit Revlon snyrtivara eftir tutt-
ugu ára fjarveru. Laura segist
drekka mikið vatn og lifa heil-
brigðu fifi til að viðhalda unglegu
útliti. Hún hefur einnig nýlega
leikið í kvikmynd ásamt þeim
Gerard Oepardieu og Emmu
Thompson.
.. .að ástin blómstraði sem aldr-
ei fyrr milli Lindu Evans og Yann-
is Chrysomalis þó þau væru
búin að vera saman í fjögur ár
en slíkt þykir auðvitað tiðindum
sæta í Hollywood. Nýlega bauð
Yannis henni til Grikklands, sem
er heimaland hans, og þykir
mörgum sem það sé sönnun
þess að hjónaband sé á næsta
lettl.
...að rokkstjarnan Gary Glitter
ætlaði nú að græða á nýjum
vettvangi með því að selja sam-
lokur og annað góðgæti. Gary
hefur nefnilega sett upp nýjan
velöngastað í London ekkl langt
frá hinum þekkta Planet Holly-
wood.