Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1993, Blaðsíða 20
20
Kvikmyndir_
Sönn
Ein þeirra mynda sem hafa gengið
vel í kvikmyndahúsum vestanhafs
að undanförnu er Sönn ást eða True
Romance. Hún býður áhorfendum
upp á hið hefðbundna sambland af
ást, ofbeldi, spennu, eiturlj'fjum og
kynlífi sem virðist eiga upp á pall-
borðið hjá svo mörgum kvikmynda-
gerðarmönnum nú til dags. Jafnvel
söguþráðurinn er sóttur, eins og svo
mörg atriði í myndinni, til eldri kvik-
mynda og fjallar um hvað gerist þeg-
ar ferðatöskur skipta um eigendur
vegna mistaka.
Utkoman er hin ágætasta skemmt-
un þótt það vanti meira frumkvæði
í myndina til að láta hana skera sig
betur úr fjöldanum. True Romance
er mynd sem virðist endurspegla
þann nýja stíl sem ungir kvikmynda-
gerðarmenn eru að innleiða í Holly-
wood.
Leikstjórinn er samt sem áður eng-
inn unglingur en myndin virðist
meira endurspegla stíl handritahöf-
undarins Quentin Tarantino en hann
sló í gegn í fyrra með myndinni Res-
ervoir Dogs, sem sýnd var í Regnbog-
anum.
Þegar myndimar eru bornar sam-
an sést handbragð Tarantino greini-
lega í True Romance og virðist hann
hafa haft mikil áhrif á leikstjórann,
Tony Scott.
Ástviðfyrstu sýn
True Romance fjallar um þau Clar-
ence og Alabama sem eru leikin af
þeim Christian Slater og Patricia
Arquette. Hann vinnur í verslun sem
selur teiknimyndablöð meðan hún
vinnur sem vændiskona. Þau hittast,
verða ástfangin af hvort öðru og gift-
ast, allt eftir bókinni.
En síðan kárnar gamanið. Dag einn
gengur Clarence í gildru Drexl Spiv-
ey (Gary Oldman), fyrrverandi
melludólgs Alabama, þegar hann er
að ná í ferðatösku fyrir hana.
Hann lendir í átökum við Drexl
sem enda með því að hann verður
honum að bana. í æsingnum grípur
hann svo vitlausa ferðatösku, sem
reynist troðfull af eiturlyfjum. Clar-
ence veit að þessi fundur boðar illt,
en trúir því að hann geti selt fenginn
og flúið síðan til Hollywood. En það
er ekki eins auðvelt og þau halda
eins og þau komast að þegar lengra
líður á myndina.
Góður leikstjóri
Við fáum að sjá í myndinni nokkra
þekkta leikara í minni hlutverkum.
Þar má nefna Dennis Hopper í hlut-
verki föður Clarence, sem fyrrver-
andi lögregluþjónn. Einnig kemur
Christopher Walken fram og auðvit-
aö þá í hlutverki mafíuforingjans,
enda er hann ekki orðinn óvanur að
leika hlutverk vonda gæjans.
Leikstjórinn Tony Scott, sem er
bróðir Ridley Scott, leikstýrir mynd-
inni af miklu öryggi. Hann hóf feril
sinn sem kvikmyndagerðarmaður,
líkt og svo margir aðrir, með gerð
auglýsingamynda, en haföi starfað
áður sem listmálari. Alhr bjuggust
við því að hann yrði að standa í
skugga bróður síns en raunin varð
önnur. Hann byrjaöi að.vísu ekki vel
því að fyrsta mynd hans The Hunger
(1983), sem fjallaði um blóösugur,
með David Bowie og Catherine Dene-
uve í aðalhlutverkum, hlaut lista-
stimpil og litla aðsókn.
En aht þetta breyttist þegar Scott
leikstýrði Top Gun þremur árum síð-
ar með Tom Cruise í aðalhlutverki.
Hér eru söguhetjurnar í myndinni.
Umsjón
Baldur Hjaltason
Sagan segir að Tony Scott hafi verið
í svaðilfór niður Grand Canyon á bát
ásamt kvikmyndaframleiðandanum
Simpson. Þegar þeir komu að hörð-
um streng í ánni fóru þeir að veðja
hvort Tony gæti synt yfir hann.
Hann tók veðmáhnu, sem var að fá
að leikstýra TOP GUN, stakk sér til
sunds og komst yfir á bakkann hin-
um megin. En þessi saga er ekki seld
dýrar en hún var keypt.
Góð skemmtun
Tony Scott hefur síðan gert myndir
eins og Beverly Hihs Cop II (1987),
Revenge (1990), Days of Thunder
(1990) og svo The Last Boy Scout
(1991). Ahar þessar myndir gengu
þokkalega nema Revenge sem aldrei
náði sér á strik.
Það er athyglisvert að handritið að
myndinni var skrifað fyrir fimm
árum af Quentin Tarantino. Hann
gerði sína fyrstu mynd í fyrra en var
búinn aö skrifa þijú kvikmynda-
handrit áður en hann fékk að spreyta
sig á leikstjórn.
Það er verið að kvikmynda frá hon-
um annað handrit en það er Natural
Bom Kihers sem Oliver Storie'leik-
stýrir. Franskir kvikmyndaframleið-
endur keyptu handritið að True Ro-
mance og gekk iha að fjármagna
framleiðsluna, þannig að Tarantino
neyddist til að skrifa handritið að
Reservoir Dogs meðan hann beið eft-
ir hvaö verða vildi en endaði síðan
með að leikstýra myndinni. En hann
var hins vegar mjög sáttur við Tony
Scott sem leikstjóra. True Romance
virðist höfða til unga fólksins. Mynd-
in er pökkuð inn í fahega umgjörð
með góðri tónhst í bakgrunni, en
hins vegar virðist eitthvað vanta upp
á, ekki síst miðað við væntingar.
Myndin er samanbland af Something
Wild, Thelma & Louise, Bonnie &
Clyde og Wild at Heart ef nokkrar
myndir era nefndar. Ef til hefði út-
koman orðið öðra vísi ef Tarantino
hefði leikstýrt myndinni. En það
fáum við aldrei að vita. En Trae Ro-
mance er samt sem áður vel þess
virði að sjá.
Atriði úr Gettysburg.
Sögulegt
stórvirki
Á kvikmyndahátíðinni í Boston
fyrr á árinu var frumsýnd 4 'A tíma
kvikmynd um borgarastyijöld
Bandaríkjanna sem var háð á milli
norður- og suðurríkjanna 1861-
1865. Myndin, sem ber heitið Get-
tysburg, tjahar um þriggja daga
átök mihi heija suður- og norður-
ríkjanna.
Robert E. Lee (Martin Sheen)
hefur þá trú að hann geti bundið
enda á stríðið meö því að vinna
sambandsherinn í bardaga um Get-
tysburg og halda síðan áfram til
Washington með friðarthboð til
Lincoln forseta. Herforinginn og
menn hans era orönir þreyttir á
bardögum sem áttu aðeins að
standa yfir í mánuð.
Bardaginn sem áhorfendur fá að
fylgjast með leiddi th þess að yfir
53.000 manns lágu í valnum, sem
er hærri tala en mannfall banda-
ríkjamanna í öllu Víetnam stríð-
inu. Myndin er byggð á sögu Mic-
hael Saara sem her heitið The Kih-
er Angels og byggist á rannsóknum
og heimildum frá þessum tíma.
Handritahöfundurinn og leik-
stjórinn lætur áhorfendur upplifa
þessa viðburðaríku daga júhmán-
aöar 1863 frá báðum hliðum.
Fyrsta daginn fylgjumst við með
atburðunum með augum John Bu-
ford (Sam Elhot) hershöfðingja,
sem er góður hermaöur en tekst
ekki að undirbúa sunnanmenn
nógu vel fyrir væntanlegri árás
norðanmanna. Norðanmegin fylgj-
umst við með Joshua Lawrence
Chamberlain sveitarforingja, fyrr-
verandi prófessor frá háskóla í
Maine sem virðist ekki vandanum
vaxinn. Einnig blandast inn í þetta
innansveitardehur mhli þeirra Ro-
bert Lee hershöfðingja og James
Longstreet (Tom Berenger) flokks-
foringja sem finnst of mikið lagt
undir af mannslífum í væntanleg-
um bardaga.
Stórmynd
En sjón er sögu ríkari. Þessi
mynd er mikið afrek og mikill feng-
ur fyrir þá sem hafa gaman af
myndum byggðum á sögulegum
atburðum. Myndin er einnig gerð
fyrir sjónvarp og hafa verið gerðir
3 sjónvarpsþættir sem sýndir verða
1994 auk 5 Zi myndar sem verður
gefm út á myndbandi.
Ted Tumer er meðal þeirra sem
standa að gerð .myndarinnar'og th
gamans má geta þess aö hann kem-
ur fram í myndinni sem hðþjálfi
sem er drepinnh fyrstu mínútum
bardagans.
Gettysburg er stórmynd hvernig
sem á það er htið. Hins vegar er
líklegt að efni hennar höfði ekki til
kvikmyndahúsagesta upp til hópa
en hins vegar ætti hún að ná th
eldra fólksins þegar kemur að sjón-
varpsþáttunum. Th að lýsa hver
margir komu við sögu má geta þess
að það tekur 10 mínútur í lok
myndarinnar að sýna hverjir koma
við sögu.