Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1993, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993
41
Trimm
Edda Bergmann, formaður trimmklúbbsins Eddu:
Allir fatlaðir geta
stundað íþróttir
- það þarf aðeins rétt hugarfar
Auövitaö geta allir fatlaðir stundað
íþróttir. Aðstaöan fyrir fatlaða til að
stunda íþróttir hefur batnað mikið
en þó vantar mikið upp á. Það eru
t.a.m. ýmis „praktísk" atriði sem
vilja gleymast, eins og með nýju
sundlaugina í Kópavogi, sem er alveg
ágæt fyrir fatlaða, en þar vantar
hjólastóla. Seltjarnarneslaugin er
mjög góð fyrir fatlaða og hönnuð fyr-
ir þá. Sundhöll Reykjavíkur er alls
ekki hönnuð fyrir fatlaða og þeir
geta alls ekki stundað sund þar. Það
vantar tilfínnanlega innilaug hér á
landi, 50 m innilaug fyrir keppnisfólk
sem hönnuð væri þannig að fatlaðir
gætu jafnframt stundað þar sund.
Útilaugarnar eru ekki hentugar fyrir
fatlaða á veturna vegna veðráttunn-
Guðný Guðmunds-
dóttir, trimxn-
klúbbnum Eddu:
Ég er búin að vera í trimm-
klúbbnum Eddu meira og minna
í 5 ár. Ég hef mest verið í göngu-
og útivistarhópnum og þetta er
alveg stórkosflegt. í fyrsta lagi
drffur maður sig út og fær friskt
loft í lungun og í öðru lagi er þetta
mjög góður félagsskapur.
Sigurbjörg Sigurðar-
dóttir, trimm-
klúbbnum Eddu:
Ég er búin að vera í trimm-
klúhbnum Eddu í 4-5 ár og hef
mest stundað vatnsleikfimina.
Þetta framtak Eddu Bergmann
er mjög virðingarvert og ég er
viss um að það eru margir sem
ekki hreyfðu sig mikið nema
vegna tilvistar þessa klúhbs.
Trimmklúbburinn Edda var stofnað-
ur 7. september 1986. Það eru í kring-
um 70 manns sem eru virkir í
klúbbnum. í trimmklúbbnum er
hægt að stunda vatnsleikfimi, göngu,
jóga og slökun. Trimmhrautin við
Ægisíðu er mikið notuð og þegar vel
viðrar reynir trimmklúbburinn
Edda að fara þangað eins oft og
mögulegt er. Ég er mjög ánægð með
þessa braut þar sem hallinn á henni
er ekki mikill og hún er þægileg yfir-
feröar. Sjávarloftið er jafnframt
miklu heilnæmara en mengunin inni
í borginni. Þegar veðrið er ekki eins
gott höfum við hins vegar farið frá
miðasöluskúrunum í Laugardal. Eft-
ir að Edda Bergmann hætti sjálf aö
keppa í sundi, en hún vann til
tvennra gullverðlauna á heimsleik-
um fatlaðra 1983, hefur hún helgað
sig almenningsíþróttum og markmiö
hennar er að fá sem flesta fatlaða til
að drífa sig út og hreyfa sig. Edda
Bergmann er mikill hugsjóna- og
jafnréttissinni og hefur þar af leið-
andi jafnframt barist fyrir því að fatl-
aðir, sem skara fram úr í sínum
íþróttagreinum, fái að stunda sína
grein í íþróttafélagi þar sem þeir fái
keppni og þjálfun við sitt hæfi. Það
er mikill drifkraftur í Eddu og með
atorku sinni hefur hún hrifið margan
með sér út til að trimma. Edda er
viðmælandi trimmsíðunnar að þessu
sinni.
Hvatning mikilvæg
AUt of margir fatlaðir eru lokaðir
inni og það næst ekki til þeirra. Ég
hef gert ýmsar tilraunir tn að ná til
þessa fólks og hvetja þaö til að hreyfa
sig en það virðist vera afskaplega
erfitt að ná til sumra. Þegar norræna
trimmlandskeppnin var haldin hér
síöast fór ég niður í Sjálfsbjörg og
hvatti fólk til að fara út. Ég segi allt-
af að aðstaðan til að trimma sé fyrir
utan húsið og ekki þurfi að leita langt
yfir skammt. Það þarf að koma inn
réttum hugsunarhætti með hvatn-
ingu og láta fólk finna hvað útivera
og það að reyna á sig getur gefið
manneskjunni mikið. Ég fór t.a.m.
einu sinni inn í Sjálfsbjörg með að-
stoð lögreglu og klæddi fólkið í
trimmgalla og fór með það inn í
Laugardal og lét það trimma þar. Það
kostaði gífurlega vinnu að klæða all-
an mannskapinn en gaf bæði mér og
fólkinu heilmikið. Ég er þó afskap-
lega mikið á móti þeim hugsunar-
Trimmklúbburinn Edda í vatnsleikfimi i Grensáslaug.
hætti sem fatlaðir virðast læra að
tileinka sér á stórum stofnunum að
aðrir eigi að hugsa fyrir þá. Fólk á
við margvíslega fótlun að stríða og
þetta er afskaplega sundurleitur hóp-
ur og margir veigra sér við að leita
sér aðstoðar einmitt vegna þess
hversu hraðinn er orðinn mildll í
þjóðfélaginu og tímaskortur gífurleg-
ur. Það eru allir að flýta sér og þess
vegna er alltaf sú hætta fyrir hendi
að sá eða sú sem ekki er þeim mun
kröfuharðari á aðstoð við hreyfingu
og tómstundir hreinlega gleymist.
Það eru margir hissa á því að ég
nenni að standa í þessu en þetta gef-
ur mér svo mikið.
Sundið besta
endurhæfingin
Allar íþróttir eiga rétt á sér og fatl-
aöir eiga að sjálfsögðu að velja sér
þá íþróttagrein sem höfðar mest til
þeirra. Ég segi alltaf að allt sé hægt
en það kostar bara þjálfun. Með allri
virðingu fyrir öðrum íþróttagreinum
tel ég að fatlaðir fái bestu alhliða
endurhæfinguna út úr sundinu.
Sumir fatlaðir segja: „Ég get ekki
lagt stund á íþróttir, ég er fatlaður."
Þetta er alrangur hugsunarháttur.
Edda Bergmann, formaður trimm-
klúbbsins Eddu.
Trimmarar, munið
endurskinsmerkin
- vítavert aó nota þau ekki í skammdeginu
Nuna þegar rökkva tekur er leysi. Við viljum eindregið beina
nauðsynlegt fyrir trimmara aö þeim tilmælum til trimmara að fá
nota endurskinsmerki. Ekkert er sér cndurskinsmerki sem fyrst og
eins hvimleitt fyrir bflstjóra og teflalíiisínuoglimumekkiíóþarfa
stjórnenda annarra ökutækja og hættu.Endurskinsbeltiogvestieru
aö mæta trimmurum eins og ákjósanleg ásamt böndum um fæt-
skokkurum, hjólreiðamönnum eða ur og hendur. Þessi útbúnaður fæst
göngumönnum án endurskins- víða, t.a.m. í sportvöruverslunum
merkja í skaramdeginu. Allt of ogapótekum.
margir eru á ferli án endiurskins- ^ ^ - -J.B.H.
merkja og er það vítavert kæru-
ar. Blóðrásarkerfið er svo hægfara í
flestum fótluðum að kuldinn kemur
í veg fyrir að við getum notið ánægju
af sundinu þegar veðráttan er slæm.
Trimmið rýfurfélags-
lega einangrun
Allt þetta starf sem unnið er í
kringum trimmklúbbinn Eddu er
unnið í sjálfboðavinnu. Ég er með tvo
þjálfara, Erlu Tryggvadóttur og Ás-
björgu Gunnarsdóttur, sem vinna sín
störf algjörlega í sjálfhoðavinnu og
þær vinna mjög fómfúst og göfugt
starf. Við höfum stundum verið
nefndar „síðustu móhíkanarnir", og
ugglaust er nokkuð til í því, en við
fáum sjálfhoðastarfið margfalt borg-
að til baka í öðru en prjáli heimsins.
Þetta er klúbbur sem hefur það ekki
að markmiði að græða og ef einhver
ágóöi er rennur hann til góðgerðar-
starfsemi. Trimmklúbburinn Edda
er með fasta stjórn sem fundar þegar
þörf þykir og lætur stjórnarmeðlimi
fylgjast vel með. Ég funda einnig
reglulega með mínum þjálfurum og
ef eitthvað kemur upp á er alltaf tek-
ið á málum strax. A mánudögum og
fimmtudögum eru fastar æfingar kl.
17.30 og er það göngu- og útihópur-
inn. Jóga og slökun er á þriðjudög-
um, kl. 17.30, að Hátúni 12, og vatns-
leikfimin er á miðvikudögum, kl. 17,
í Grensáslauginni. Ég tel að það sé
ekki síöur mikilvægt fyrir hinn fatl-
aða að rjúfa hina félagslegu einangr-
un, en vissulega er hætta er fólgin í
með því að fara aldrei út fyrir húss
síns dyr. Mín hvatningarorð eru því:
Njótum þess að vera með öörum og
sýnum að við höfum sömu þarfir og
ófatlaðir. Þið sem lítið hreyfið ykkur,
hvernig væri að hafa samband við
mig eða prófa t.a.m. einu sinni að
trimma á brautinni við Ægisíðu?
Ólafur Þór Jónsson,
trimmklúbbnum
Eddu:
Ég var einn af stofnendum
trimmklúhbsins Eddu og ég veit
það að Edda Bergmann er sóma-
kona og á mikinn heiður skihnn.
Ég stunda sundleikfimina af
krafti og hún gefur mér mikið,
ásamt því að ég hitti skemmtilegt
fólk. Ég veit hvað trimmið gefur
fólki mikið og ég kynnist því
meðal annars í gegnum starf mitt,
en ég rek nudd- og gufubaðstof-
una að Hamrahlíð 17.