Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1993, Síða 35
43
LAUGARDAGUR 30. OKTÖBER 1993
Með glasafrjóvgun hefur tekisf að frjóvga f jölmargar konur sem annars hefðu orðið að sætta sig við barnleysið.
Þegar sæð-
ið ldikkar
Eftir tveggja ára sambúð ákváðu
þau Ragnar og Ólína að eignast
barn. Þau hentu nokkrum pillubréf-
um við hátíðlega athöfn og fóru síð-
an í rúmið. En allt kom fyrir ekki
þrátt fyrir líflegt kynlíf. Vikur urðu
að mánuöum, mánuðir að árum en
aldrei varð Ólína þunguð. Eftir 4 ár
ákváðu þau að fara á fund læknis
sem sendi þau í ýmsar rannsóknir
vegna þessa. Einn morgun fróaði
Ragnar sér í lítið glas sem hann
keyrði með í handarkrika sér niður
á Landspítala. Þegar sæðið var
skoðað í smúsjá kom í ljós að sáð-
frumumar voru bæði lélegar og fáar
og töldu læknar að barnieysið staf-
aði af því. Ragnar varð bæði reiður
og sorgmæddur þegar hann frétti
þetta. Honum fannst eins og heim-
urinn hefði hrunið ofan á sig.
„Kannski stóð og féll sjálfsmynd
mín með sáðfrumunum," sagði
hann síðar.
Flókin framleiðsla
Strákar fara að framleiða sáð-
frumurviðkynþroskann. Sérstakar
frumur í eistunum annast þessa
framleiðslu fyrir tilverknað kyn-
hormóna og stýrihormóna frá
heiladingli. Heilbrigður kárlmaður
framleiðir margar biUjónir sáð-
frumna á lífsleiðinni. Eitt sáðlát
hefur að geyma um 500 milijónir lif-
andi sáðfrumur sem allar vilja finná
sér htiö egg til að frjóvga og bera
áfram erfðavísa framleiðanda síns.
Hver sáðfruma er ákaflega merki-
legt fyrirbæri. Hún er htil um sig
eða 0,06 mm að lengd, byggð upp af
höfði, miöhluta og hala. I höfðinu
eru 23 htningar sem renna saman
við htningana í eggfrumu móður-
innar ef fijóvgun verður og mynda
nýja frumu með 46 htningum. Þessi
fruma stækkar síðan, vex og dafnar
og verður að nýjum einstaklingi
sem erfir bæöi kosti og galla for-
eldra sinna. í miðhluta sáðfrum-
unnar er orkukerfi sem framleiðir
orku svo að hún geti synt fram og
til baka með því að sveifla halanum.
Þessi hreyfigeta sáðfrumunnar er
nauðsynleg vegna ferðalagsins sem
er fyrir höndum upp legið og út í
eggjaleiðarana þar sem frjóvgunin
ferfram.
Mikið feróalag
Við sáðlát fara um hundruð mihj-
óna lifandi sæðisfrumna af stað eins
og óvígur fjölmennur engisprettu-
her í leit að bráð sinni. Ef þær sleppa
lausar inn í leggöng konu synda þær
saman í einum hnappi upp legháls-
inn og legið og út í eggjaleiðarana
þar sem eggið leynist dagana eftir
egglos. Ferðalag sáðfrumnanna er
Á læknavaktiimi
Óttar
Guðmundsson
læknir
ákaflega merkilegt. Vegalengdin frá
leggöngum að eggi er meira en 15
sm. Það svarar til átta km göngu
fyrir fullorðinn mann miðað við
stærð. Leiðin er auk þess bæði krók-
ótt og torfær vegna kirtilganga og
shmhúðarfelhnga sem skipta þús-
undum. Sums staðar eru eitraðar
og banvænar sýrur sem vesahngs
sáðfrumurnar brenna í. Sáöfrum-
umar synda viðstööulaust í þessu
umhverfi með því að sveifla til hal-
anum. Þær era nokkrar klukku-
stundir að komast út í eggjaleiðar-
ana en þar eru áfram ótal hindran-
ir. Eggið er lítiö og vel fahð og ein-
ungis ein sáðfruma frjóvgar þaö.
Hinar ná aldrei takmarki sínu held-
ur lognast út af á þessu ferðalagi,
gefast upp og deyja með hörmuleg-
um hætti. í sæðisvökvanum er vatn,
sykur (til að halda lífi í sáðfrumun-
um), efni til að minnka sýrustigið í
leggöngunum og hormónið prostag-
landin sem veldur samdráttum í leg-
inu og aðstoðar sáðfrumurnar að
komast út í eggjaleiðarana. Allt
leggst því á eina ár til að gera einni
sáðfrumu kleift að frjóvga eggið.
Barnlaus sambönd
og sæðið
Bamlausum samböndum virðist
fara fjölgandi. Eftir eins árs samhf
án getnaðarvama verður getnaöur
ekkií lú-15% sambanda. Astæðurn-
ar eru margar bæði hjá körlum (lé-
leg sæðismyndun) og konum (lokað-
ir eggjaleiðarar, sýkingar í kynfær-
um, hormónasjúkdómar). Stundum
mynda karlar mótefni gegn eigin
sæði sem valda því að sáðframurnar
khstrast saman og geta ekki hreyft
sig eðlilega. Sum lyf og mikil
drykkja geta haft slæm áhrif á sáð-
frumuframleiðsluna. Margir hafa
af því áhyggjur af að sæði nútíma-
manna virðist kraftminna en for-
feðranna. Fyrir um 50 árum hafði
meðalsæði að geyma 250 mihjónir
sáðfrumna/ml, en sæði nútíma-
mannsins inniheldur aöeins 40-120
mihjónir sáðfrumna/ml. Menn vilja
kenna þetta aukinni mengun og
breyttum lifnaðarháttum. Vinna í
miklum hitum, þröng nærfót og
langar setur í heitum pottum
skemma sæðiö. Sýkingar í eistum
eða blöðruhálskirth spilla fram-
leiðslunni. En þrátt fyrir lélegt sæði
geta barnlaus hjón átt ágæta mögu-
leika. Með glasafrjóvgun hefur tek-
ist að frjóvga fjölmargar konur sem
annars heíðu orðið að sætta sig við
bamleysið. Stundum er fengið sæði
úr öðrum manni th að fijóvga egg
konunnar. Það er þvi engin ástæða
fyrir Ragnar og Óhnu að gefast upp
heldur leita áfram aðstoðar lækna
sem hafa bamleysi og ófrjósemi að
sérgrein sinni.
Auglýsing
um styrki til náms
fyrir atvinnulausar konur
Félagsmálaráðuneytið auglýsir hér með styrki
til náms í allt að 30 vikur fyrir atvinnulausar
konur. Námið er að fullu styrkt af sérstöku
framlagi úr ríkissjóði til atvinnumála kvenna.
Eftirtaldir skólar munu veita námið.
1. MFA skólinn, sími 814233:
„Menntun er möguleiki“.
Samþætt nám til 12 atvinnulausra kvenna. Námið felst
í íslensku, hagnýtri stærðfræði, ensku, tölvunotkun og
samfélagsfræði ásamt sjálfstyrkingu, samskiptum,
virkni og sjálfstæðum vinnubrögðum og er ætlað kon-
um sem hafa stutta skólagöngu að baki.
2. Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands, sími
694924:
Grunnnám í viðskiptagreinum.
30 vikna nám, ætlað atvinnulausum konum með góða
almenna undirstöðumenntun og reynslu af verslunar-
og skrifstofustörfum. Námið felst í rekstrar- og fjár-
málafræðum, bókhaldi, tölvunotkun í rekstri fyrir-
tækja, stjórnunar- og markaðsfræðum, skrifstofu-
rekstri, heimilishagfræði og stefnumótun í rekstri fyrir-
tækja.
3. Stjórnunarfélag íslands, sími 621066:
„Frá viðskiptahugmynd til framkvæmdar“.
Ætlað 16 atvinnulausum konum sem hafa reynslu á
verslunar- og viðskiptasviði og hafa hug á stofnun eig-
in atvinnurekstrar.
Styrkþegar verða valdir af fulltrúum viðkomandi skóla
og fulltrúa félagsmálaráðuneytis/
Nánari upplýsingar veita ofangreindir skólar.
Umsóknir skulu berast fyrir 15. nóvember á umsókna-
reyðublöðum sem fást í viðkomandi skólum.
Félagsmálaráðuneytið 29. október 1993
NÓVEMBERTILBOÐ Á
HREINLÆTISTÆKJUM 0.FL.
25-50% AFSLÁTTUR
VATNSVIRKINN HF.
Ármúla 21, símar 68 64 55 - 68 59 66