Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1993, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1993, Page 36
44 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 B: : i ...aö leikkonan toretta Swtt hefur í hyggju að setja á markað sínar eigin snyrfívörur og ilnjvatn sem bera eiga nafnið Hot Lips. ...að í Bretlandi værl verið að setja upp gamansöngteikinn Eurovision. Eins og nafnið gefur til kynna verður spauginu beint að Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva en meðal laga i verkinu er Bim-Bam-Bom sem er að sjálfsögðu „týpiskt júróvi- sjónlag“. ...að fyrir stuttu hefðu Francesca Hiiton og hóteleigandinn Joseph Piche gift sig. Francesca er mjög vel þekkt sem Ijósmyndari í Bandaríkjunum en frægust er hún fyrir að vera einkadóltir Zsa Zsa Gabor. ...að Alison Wardley Dady, sem var yngsta barnfóstra i þjónustu bresku konungsfjöiskyldunnar, hati hætt starfl sínu fyrtt Fergie þegar hún giftist lífverði Elísa- belar drottningar. Barnfóstru- starfið ku ekki vera heppilegt fyr- ir gifta konu. Sviðsljós Ólyginn mmm Veikindatímabil að baki hjá Oliviu Newton-John: Hefur breytt um lífsstíl Olivia Newton-John er farin að ljóma á ný eftir mikið veikindatíma- bil. Hún fékk brjóstakrabbamein og hefur gengist undir erfiða upp- skurði. Hægt var að komast fyrir meinið og þarf Olivia einungis að fara í skoðun á sex mánaða fresti. Hins vegar kenndi þessi lífsreynsla henni ýmislegt og ekki síst það hversu dýrmætt lífið er. Olivia dvaldi í heimalandi sínu Ástralíu um flmm mánaða skeið til að byggja sig upp andlega og líkam- lega. Eiginmaður hennar, Matt, fékk hlutverk í ástralskri sápuóperu og hafði því nóg að gera þann tíma sem þau dvöldu þar. Olivia var hins vegar í húsmóðurhlutverkinu og segist hafa notið þess. Nú er hún komin aftur til Banda- ríkjanna og flutt í glænýtt hús í Malibu. Húsið er merkilegt að því leyfi að þau hjónin óskuðu eftir að það yrði vistvænt og h'eilsusamlegt. „Ég er búin að eiga þessa lóð í tólf ár. Við höfum rætt um það í tíu ár að fara að byggja en þaö hefur tekið sinn tíma að koma því í kring. Eftir allt sem á undan var gengið fannst okkur nú tímabært að breyta til. Nýja húsið er mjög heilsusamlegt og bjart,“ segir Olivia. Húsið stendur við ströndina og er í spænskum stíl, að mestum hluta úr steini og viði. Hugsajákvætt Olivia segist vera ánægð með lífið þessa dagana. „Mér líður yndislega," segir hún. „Ég bjó í sveitinni í Ástral- íu og borðaði heimaræktað grænmeti og ávexti. Ég og dóttir mín, Chloe, áttum frábæra daga saman og lifðum eðlilegu lífl.“ Olivia segir að sjúkdómurinn hafi breytt sér mikið. „Þegar maður geng- ur í gegnum svona lífsreynslu sér maður betur hvað er nauðsynlegt í lífinu og hvað ekki. Hins vegar er mjög mikilvægt að hugsa alltaf já- kvætt.“ Olivia hefur í hyggju að skrifa bók um þessa reynslu sína. Hún hefur þó ekki enn haft tíma til að byrja á henni. Hún hefur hins vegar verið að gera söngtexta og ætlar að gefa út nýja plötu í Ástralíu áður en langt um líður." Olivia telur að hún hafi getað hjálp- að mörgum konum með því að ræða um sjúkdóminn opinskátt. Hún hef- ur m.a. komið fram í sjónvarpi og rætt þessa reynslu. „Mig langar að halda áfram á þessari braut og hef hugsað mér að gefa út myndband til að hjálpa þeim.“ Olivia leggur mikla áherslu á hreint loft og afslappað umhverfi. Hún segir að það sé mjög óheppilegt Olivia Newton-John og eiginmaður hennar, leikarinn Matt Lattanzi. fyrir krabbameinssjúkling að vera stressaður og áhyggjufullur. Hún segir að það séu tengsl milli mengun- ar og stress og krabbameins. Það eru þó ekki allir jafn heppnir og hún að geta byggt sér heilsusamlegt hús í náttúrulegu umhverfi. „Ég er heppin að búa hér,“ segir hún. „Allir eiga rétt á hreinu umhverfu og hreinu lofti en við verðum að berjast fyrir því og allir verða að leggjast á eitt, líka stjórnvöld," segir Olivia. Hlutirnir hafa breyst hjá söngkon- unni og hún hugsar betur um líkama sinn en áður, meðal annars með því að neyta heilsufæðis. Hún stundar jóga og hugleiðir tvisvar á dag. Lífið hefur sannarlega breyst hjá Oliviu Newton-John. Olivia með dottur sinm hloe bæði vistvænt og heimilislegt. ,.»<aw icmciiiitit wöhict way-i-wvi5» væri I ströngum megrunarkúr eftir að hafa leikið I myndinni Age of Innocence þar sem born- ar voru fram endalausar krásir sem erfitt var að standast. ... að Robert De Niro, sem ný- lega hélt upp á fimmtugsafmæli sttt, hefði yfirleitt leikið gangstera en væri nú að fara að leika ófreskjuna i nýrri kvikmynd um hinn sígilda Frankenstein. Kozlowski væri á leið til Sviþjóó- ar til að leika i nýrri kvikmynd um listamanninn Anders Zoms. Linda er þekktust fyrir leik sinn í áströlsku bíómyndinni Krókó- díla-Dundee. Hún er gift Paul Hogan, sjálfum krókódílamann- inum, en þau kynntust við gerð þeirrar myndar. <sr~*N. ... að söngkonan Madonna hefði orðíð 35 ára í sumar og önnur eins afmælisveisla vart verið haldin. Nágrönnum hennar ofbauð svo að þeir hringdu á lögregluna. ... að börn Margrélar prinsessu vektu nú mikla hrifningu i Bret- landi eftir að sonur hennar, Lin- ley greifi, hefði gengið í hjóna- band. Dóttirin, Sarah Armstrong Jones, þykir ekki sföur glæsileg og nú er beðið eftlr að hún gangí að eiga unnusta sinn, Daniel. ...að leikkonan Jane Wymen kærðl sig ekki um að framleiddlr yrðu fleíri þættlr um Falcon Crest og segði að nóg værl komiö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.