Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 Var atvinnulaus í eitt og hálft ár eftir kosningar 1991: Ólíklegt að ég hefði farið í kosn- ingaslaginn aftur - segir Jóhann Einvarðsson sem tekur nú sæti Steingríms Hermannssonar á þingi „Mér var hafnað vegna pólitískra afskipta," segir Jóhann sem sótti árangurslaust um hvert starfið á eftir öðru í eitt ög hálft ár. DV-myndir Brynjar Gauti „Ég hefði heldur kosið að koma inn á þing með því að halda mínu sæti i kosningum en að koma inn með þess- um hætti. Þetta krefst náttúrlega uppstokkunar á sjálfum sér og sínu. Ég mun nota sumarið til að meta þá stöðu hvernig þetta muni samrýmast starfi mínu á skrifstofu sjúkrahúss- ins,“ segir Jóhann Einvarðsson, varaþingmaður Reyknesinga fyrir Framsóknarflokkinn og fram- kvæmdastjóri Sjúkrahússins í Kefla- vík, í viðtah við DV. Jóhann féll út af þingi í síðustu alþingiskosningum eftir að flokkurinn hafði fengið sína næstverstu útreið í kosningum frá árinu 1959 í kjördæminu. Hann var annar maður á lista flokksins á eftir Steingrími Hermannssyni. Árið 1987 gaf Jóhann eftir sæti sitt á listanum til formanns flokksins. Eftir kosning- arnar 1991, sem urðu Jóhanni mikið persónulegt áfall, var hann atvinnu- laus í eitt og hálft ár og sú höfnun sem hann varð fyrir á þeim tíma setti að sjálfsögðu mark sitt á hann. Nú tekur hann við þingsæti Steingríms Hermannssonar 1. maí nk. - En hafðir þú hugsað þér að fara í kosningaslag í næstu alþingiskosn- ingum? „Ég hafði ekki gert það upp við mig áður en þessi staða kom upp en býst þó við að ég heföi svarað því til að það væri mjög ólíklegt. Ég hafði þó ekki gefíð út neina yfirlýsingu um það. Hvort eitthvað breytist núna er ég að velta fyrir mér og mun gera í sumar. Það er náttúrlega komin upp allt önnur staða. Ég mun gefa það upp með haustinu hvort ég hyggst halda áfram. Það er að segja ef ekki verða sumar- eða haustkosningar sem menn virðast vera að velta fyrir sér. Ef svo fer sem horfir mun ég taka þingsæti sama dag og þingið fer í sumarfrí þannig að þau störf munu ekki hrjá mig fyrr en á haustmánuð- um.“ Ánægður í starfi - Gætir þú sinnt þingstörfum með starfi þínu á sjúkrahúsinu? „Það byggist á ýmsum forsendum sem ég þarf að ræða við mína stjórn- armenn hér. Ég hugsa að það mæli ekkert gegn því með samkomulagi stjórnarmanna að ég sinni mínum störfum hér næsta vetur með þing- störfum. Ég sé ekki fram á neitt sem gæti komið í veg fyrir það enda er allt annað að taka sæti stjórnarand- stöðuþingmanns en þess sem er í stjórn. Það eru færri ábyrgðarmiklar nefndir sem fylgja starfinu og varla verður rætt fyrr en í haust um breyt- ingar á nefndum. Steingrímur var t.d. einungis í utanríkisnefnd. Ég er mjög ánægður í starfi mínu á sjúkra- húsinu og sótti um það á sínum tíma með það fyrir augum að sinna því áfram. Ég hef verið hér síðan í sept- ember 1992.“ - Kom þér nokkuð á óvart að þú þyrftir að taka sæti Steingríms? Þessi stöðuveiting hefur lengi legið í loft- inu. „Það hefur verið umræða um Steingrím og Seðlabankann frá síð- ustu kosningum. Sú umræða hefur alltaf öðru hverju komið upp. Ég var búinn að gera mér grein fyrir frá því í janúar að einhver alvara væri í málinu eftir að Steingrimur viður- kenndi sjálfur að hann væri að hug- leiða þann möguleika að sækja um. Þá fór maður vissulega að velta þess- um málum fyrir sér.“ Ekkertheyrt í Steingrími - Hefur Steingrímur rætt þessi mál við þig? „Nei, hann hefur ekkert rætt þetta við mig.“ - Finnst þér það eðlilegt? „Nei, mér fmnst það óeðlilegt þar sem þessi ákvörðun hans hefur ekki bara áhrif á hann heldur einnig mig og hugsanlega Nfels Árna Lund sem verður varaþingmaður minn. Ég hef tvisvar fariö inn á þing fyrir Stein- grím í vetur, í fyrra skiptið þegar Norðurlandaráðsþing stóð yfir og hið seinna þegar hann fór á sjúkrahús. Þetta hefur auðvitað áhrif. Maður þarf að gera ýmsar ráðstafanir. Fyrir hðlega ári tók ég t.d. að mér að vera forsvarsmaður frá maí nk. fyrir Lionshreyfínguna á íslandi. Ég hefði aldrei gefið undir fótinn með slík tímafrek störf ef ég hefði vitað að hveiju stefndi. Ég á að vísu mitt sum- arfrí og á frí inni síðan í fyrra þann- ig að ég get leyst það en því verður ekki neitað að þetta kemur óvænt. í upphafi kjörtímabils spurði ég Stein- grím hvort hann hygðist hætta á kjörtímabilinu en hann sagði það ekki í myndinni. Það var ekki fyrr en í byrjun þessa árs sem ég gerði mér fulla grein fyrir alvöru þessa máls. Hins vegar vissi ég ekkert um- tímasetningar og hvenær ég myndi þurfa að taka þingsætið. Ég gat alveg búist við að hann byijaði í bankanum daginn eftir ráðninguna. Það var því ekki fyrr en sagt var frá hinni form- legu ráðningu í fjölmiðlum og hve- nær Steingrímur hæfi störf sem ég fékk einhvem tímapunkt til að hugsa út frá. Hann kemur mér reyndar ekkert illa þvi það hefði verið afleitt að hefja störf strax. Það er verið að ganga frá ársreikningi sjúkrahússins og rpjög mikið að gera í sambandi við það.“ - Hvemig tekur fjölskylda þín þess- um „skyndilegu" breytingum? „Hún er eins og ég. Búin að velta þessu fyrir sér á undanfomum vik- um og mánuðum." Missti líka þingsæti 1983 Jóhann Einvarðsson hafði gegnt starfi bæjarstjóra í Keflavík um tíu ára skeið þegar óskað var eftir hon- umi á framboðslista Framsóknar- flokksins fyrir alþingiskosningarnar 1979. „Þetta voru haustkosningar sem ákveðnar voru með mjög stutt- um fyrirvara vegna þingrofs og lítill tími til umhugsunar. Árið 1978 hafði Jón Skaptason misst þingsæti sitt eftir langt og farsælt starf á þingi og ég tók hans sæti í kosningunum 1979. Við fengum góða kosningu þá. Áriö 1983 vorum við að enda erfítt kjör- tímabil undir stjórn Gunnars Thor- oddsen, verðbólgan var á fleygiferð og óáran í efnahagsmálum þjóðar- innar. Ég missti þingsæti mitt þá. Árið 1987, þegar byrjað var að und- irbúa kosningar, var Steingrímur hvattur til að færa sig frá Vestfjörð- um og hingað í Reykjanes og fagnaði ég því á þeim tíma. Reykjavík og Reykjanes hafa verið flokknum viss akkilesarhæll enda fáir bændur á þessu svæði. Ég gaf kost á mér í ann- að sætið og við fengum ágæta kosn- ingu saman. í kosningum árið 1991 varð flokkurinn fyrir miklu áfalli í þessu kjördæmi. Á öllum öðrum stöðum á landinu hélt hann fylgi sínu. Hverju um var að kenna er erfitt að segja. Það má alltaf leggja saman og deila ef menn vilja.“ Mikið áfall - Þetta hefur verið mikið áfall? „ Já, vissulega var það áfall. Að vísu eru stjórnmálamenn alltaf að taka þátt í vissum áhættuleik í kosning- um. Við eigum engin vís atkvæði." - Áttu einhverja skýringu á því hvers vegna þetta gerðist? „Nei, ég á hana ekki. Það er engin spuming að sú eining sem þurfti náðist ekki upp í flokknum í kjör- dæminu. Ég hygg að við höfum orðið fyrir mesta áfallinu í Kópavogi þar sem kratar voru með mjög skipu- lagða áróðursherferð síðustu daga fyrir kosningar. Hér á Suðumesjum stóð flokkurinn sig vel. Hins vegar er þetta stórt kjördæmi með mörgum og ólíkum sveitarfélögum og því erf- itt að nefna einhverja eina ástæðu þessa taps.“ - Tókstu þetta persónulega? „Nei, ég gerði það nú reyndar ekki. Áfallið kom vissulega á mig og ég hafna ekkert mínum þætti. í öllum liðum vinna menn saman og treysta því að enginn hlekkur gleymist. Ég tek því mína ábyrgð á mig. Þar með er ég ekki að kenna neinum öðmm um en mér sjálfum. Við hljótum þó allir að íhuga hvort eitthvað hafi brugðist í baráttunni. Ég fann það síðustu vikur fyrir kosningarnar að það var á brattann að sækja og mik- ið þurfti að gerast til að við fengjum góða kosningu. Þetta var í annað skiptið sem ég datt út af þingi þannig að maður er viðbúinn þessu. Hægt er að sjá kosnihgaúrsht mjög fljót- LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 33 „Steingrímur Hermannsson hefur ekkert rætt við mig um þær breytingar sem nú eiga sér stað þrátt fyrir að þær muni hafa áhrif á mig og einnig Níels Árna Lund,“ segir Jóhann Einvarðsson, varaþingmaður Reyknesinga, sem nú tekur þingsæti á nýjan leik eftir erfitt tímabil frá siðustu kosningum. lega núna eftir tölvuvæðingu sjón- varpsstöðvanna því fyrstu tölur segja heilmikið um niöurstöðuna. Það eru engu að síður gífurleg von- brigði að detta út og missa atvinnu sína.“ - Er ekki miklu verra að vera at- vinnulaus stjórnmálamaður í stjórn- arandstöðu? „Ef við værum í stjóm myndu fleiri möguleikar skapast til að útvega manni starf. En eins og fjölmiðlaum- ræðan hefur verið undanfarið þá er- um viö stjómmálamenn sem sýnum áhuga á starfi orðnir óhæfir um leið. Þrátt fyrir að menn hafi reynslu og menntun virðist sem einhverjir aðrir hafi meiri rétt á stöðunni. Sú um- ræða sem hefur verið um stöðuveit- ingu bankastjóra Seðlabankans hef- ur gengið út yfir allt velsæmi að mínu mati. Ég man ekki eftir slíkri umræðu áður, t.d. þegar Tómas Árnason eða Birgir ísleifur voru ráðnir. Við veljum fólk á Alþingi með lýðræðislegum hætti og hljótum að sætta okkur við það fólk sem þangað velst. Það fólk tekur aö sér mjög ábyrgðarmikið starf í þjóðfélaginu, hvort sem það heppnast eins og menn ætlast til eöa ekki. Þeir mega hins vegar ekki vera orðnir að „per- sona non grata“ eftir að þingstörfum lýkur, kannski á besta aldri og með víðtæka reynslu.“ - Fannst þú fyrir slíkri höfnun á vinnumarkaðnum eftir síðustu kosn- ingar? „Já, vissulega fann ég fyrir því. Mér var hafnað vegna póhtískra af- skipta. Ég fékk að gjalda þess að hafa einhvem tíma þurft að taka afstöðu í málefnum sem féll ákveðnum aðil- um iha á þeim tíma. Sumir atvinnu- rekendur sögðust ekki vilja ráða mig í vinnu vegna ótta við að ég myndi stoppa stutt við. Ég þarf þó ekkert að kvarta yfir póUtískum andstæð- ingum því tímabundin verkefni, sem ég fékk, voru frá ráðherrum krata, Sighvati og Eiði. Þessi verkefni voru eins og vertíð fyrir mig því þau brú- uðu bUið að nokkru.“ - Fór það ekki illa með sjálfstraustið og þig sem persónu að vera svo lengi atvinnulaus? „Manni fannst maður vera ósköp tilgangslaus í tUverunni og fannst varla taka því að vakna á morgnana. Ég hugsaði mikið um þetta því ég hafði aUa tíð verið í störfum sem aldrei var lognmolla í. Ég var bæjar- stjóri í fjórtán ár, fyrst á ísafirði og síðan hér í Keflavík, og svo á þingi í sjö ár. Þetta voru krefjandi og mikil störf þar sem maður var upptekinn frá morgni og fram á nótt. Það voru því vissulega viðbrigði að hanga allt í einu heima alla daga og öll kvöld. Þetta tók mjög á mann.“ Jóhann byrjaði að vinna á flokks- skrifstofu Framsóknarflokksins í Reykjavík sem ungur strákur. Hann var í stjórn FUF í nokkur ár. Jóhann starfaði hjá fiármálaráðuneytinu áð- ur en hann fór til ísafiarðar og tók þar við bæjarstjórastólnum. „Þá hætti ég öllum afskiptum af póUtík þótt allir vissu hvar í flokki ég stæði. En þarna var ég bæjarstjóri þriggja- flokka meirihluta. Mér þótti þetta spennandi starf sem gæfi mikla möguleika. Ég hafði aldrei búið úti á landi, var fæddur og uppahnn í Reykjavík. Reyndar var ég nýkvænt- ur á þessum tíma og okkur hjónun- um leið mjög vel fyrir vestan. Síðan fékk ég tilboð frá Keflavík sem mér leist vel á, enda stærra bæjarfélag og við nær ættingjum okkar. Ég hafði sjálfur engin afskipti af sfiórnmálum fyrr en óskað var eftir mér í forval fyrir kosningarnar 1979. Það gerðist aUt mjög hratt.“ - Ertu sáttur við störf Framsóknar- flokksins sem stjórnarandstöðu- flokks á þessu kjörtímabili? ' „Að ýmsu leyti líka mér störf hans vel en ég neita því ekki að menn hefðu máti taka meiri þátt í umræð- um og stundum á málefnalegri grundvelU en gert hefur verið. Einn- ig tel ég að þeir hefðu mátt vera meira tílbúnir með sínar tillögur." - Margir tala um litlaust þing í vet- ur, eins og vanti kraft í það. Ert þú sammála þvi? „Það hefur ekkert mjög mikið kom- ið fram af málum annað en stjómar- mál. Sfiórnarliðar hafa lent í miklu karpi innbyrðis vegna þyrlumála, sjávarútvegsmála og fleiri mála. Einnig hefur verið mUdð af af- greiðslumálum vegna Evrópumál- anna. Bunki af lögum sem hálfpart- inn rúUar í gegn. Þetta hefur næstum verið leiðinlegt þing en erfitt vegna aUs sem menn hafa þurft að lesa. En það er ekki mikið af málum umfram þessi mál og þess vegna virkar þing- ið ekki mjög spennandi út á við.“ - Hlakkar þú tU að fara á þingið aft- ur? „Já, að ýmsu leyti geri ég það. Mér finnast þingstörf mjög spennandi og skemmtileg. Annars tel ég að það megi búast við haustkosningum og byggi það á þeirri óeiningu sem ríkir milU stjórnarUða í málum eins og t.d. sjávarútvegsmálum. Einnig byggi ég það á þeirri ákvörðun Jóns Baldvins að flýta flokksþinginu með þessum hætti. Fjárlagagerðin næsta vetur verður mjög erfið og ekki er ósenni- legt að menn vUji að nýtt þing takist á við hana.“ - Hvernig líst þér á nýja formann- inn? „Mjög vel og styð hann. HaUdór hefur mjög marga kosti til að bera. Menn úr öUum flokkum munu bera traust til HaUdórs og sjá að hann stendur við það sem hann segir. Hann brosir kannski ekki endalaust en hann er traustur." - Verður það flokknum lyftistöng að skipta um formann? „Það er öUum flokkum lyftistöng að skipta um foringja. Hversu góður sem foringinn er þá er alltaf hætta á að hann endurtaki sig ef hann er lengi. Það er því spennandi að skipta á réttum tíma. Ef kosningar verða næsta vor er þessi tímasetning mjög góð fyrir HaUdór. Hann fær þá að stjóma öUum undirbúningi kosning- anna.“ - Áttu von á að flokkurinn breytist við formannsskiptin? „Ég á ekki von á miklum breyting- um en óhjákvæmUega verða ein- hveijar áherslubreytingar." - Þarf ekki róttækar breytingar í Reykjanesi ef flokkurinn á að ná fyrra fylgi í næstu kosningum? „Fylgið hefur verið sveiflukennt í kjördæminu þrátt fyrir að formanni flokksins hafi verið stiUt upp hér. Flokkurinn hafði líka veriö lengi í stjórn og það hefur sitt að segja.“ - Myndir þú leggja í opið prófkjör? „Ef ég ákveð að halda áfram þá mun ég leggja í það. Annað hvort fer ég aUa leið eða ekkert." - Sérðu arftaka þinn hér ef þú tekur þá ákvörðun að hætta? „Reykjanes er fimmtán sveitarfé- lög, mörg mjög stór. Okkar kappsmál á Suðurnesjum er að eiga annað efstu sætanna. Það eru margir sem koma tU greina og Steingrímur hefur þegar nefnt nokkra í fiölmiðlum sem mér fannst reyndar miður heppUegt. Ég sé ekki ástæðu tíl að feta í fótspor Steingríms með að nefna einhver ákveðin nöfn,“ segir Jóhann Ein- varðsson, veröandi þingmaður Reyk- nesinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.