Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
9
Vöðvabólga í hestum:
Meira vandamál en vitað var
Pimmtudaginn 14. apríl var
spilaður eins kvölds tvimenning-
ur hjá félaginu með þátttöku 20
para og spilaformið var Mitchell.
Rftirtalin pör náðu hæsta skorinu
ÍNS:
1. Snorri Karlsson-Egill Díutí Brynj-
ólfsson 249
2. Rósmundur Guðmundsson Krist-
inn Karlsson 247
3. Páll hór Bcrnsson-Helgi Iler-
mannsson 241
4. Erla Sigvaldadóttir-Guðlaugur
Karlsson 234
- og hæsta skoriö i AV:
X. Ingibjörg Halidórsdóttir-Sigvaldi
Þorsteínsson 261
2. Magnús Oddsson Magnús Hali-
dórsson 233
3. Björn Jónsson-Þórður Jónsson 232
4. Kjartan 'Jóhannsson-Sveinn S.
Þorvaldsson 222
Fimmtudaginn 21. aprfl fellur
spílamennska niður hjá félaginu
vegna undankeppni íslandsmóts
í tvímenning, en flmmtudaginn
28. apríl hefst Kauphallartví-
menningur félagsins. Skráning
er þegar hafm og er skráð i sim-
um 619360 (BSÍ) og 632820 (ísak).
segir Rikke Mark Schultz dýralæknir
Rikke Mark Schultz, danskur dýra-
læknir, sem býr að Vinaminni í
Skagafirði og starfar við dýralækn-
ingar í þessu mikla hestahéraði, telur
að vöðvabólga í dýrum, þar á meðal
hestum, valdi spennu og óróleika
sem auðvelt sé að lækna. Nudd og
nálarstungur telur hún henta vel til
að koma í veg fyrir stórfelld vanda-
mál.
„Vöðvabólga er meira vandamál í
hestum en við gerum okkur grein
fyrir,“ segir Rikke. „Hrekkir eru oft
sársaukakvalir. Öðruvísi getur hest-
urinn ekki látið í ljós líkamlega van-
líðan. Með því að nudda hesta í smá-
stund á degi hverjum, þar sem þeir
eru aumir, verður maður var við við-
brögð og þeir slakna og róast ótrú-
lega mikið. Það þarf ekki að nudda
hest nema fimm mínútur á dag til
að sjá mun, jafnt á andlegu hliðinni
sem þeirri likamlegu.
Það er mjög auðvelt að læra þessa
aðferð og hún hentar vel til að róa
hesta á öllum aldri en þó sérstaklega
við frumtamningu."
Lærði aðferðina
í Bandaríkjunum
Þessa aðferð segist Rikke hafa lært
af Lindu Tellington-Jones, sem er
þekktur knapi í Bandaríkjunum, á
alls konar hestum. Rikke kallar að-
ferðina TTeam en hún byggist meðal
annars á að kenna hestum að hreyfa
sig rétt til að minnka líkumar á
vöðvabólgu en þá ekki síður að
kenna hestinum að umgangast fólk
og slaka á þegar fólk er nálægt.
„Ég sá hana nudda hest fyrir
keppni á heimsmeistaramótinu í
hestaíþróttum í Danmörku árið 1989
og fannst það athyglisvert. Síðan hef
ég verið í Texas í Bandaríkjunum hjá
dýralækni sem lærði hjá Lindu og
einnig í Kanada hjá systur hennar
Robyn Hood að kynna mér þessa
aðferð betur.
Einnig hef ég notað nálarstungur
til að lækna vöðvabólgu. Við dýra-
læknar getum ekkert gert við vöðva-
bólgu í hestum nema ráðleggja fólki
að hvíla þá eða hita vöðvana. Þær
aðferðir lina ekki kvalir nema í
stutta stund.
Nálarstunguaðferðin er rosalega
góð við vöðvabólgu. Nálar eru settar
í hestinn og látnar vera þar góða
stund. Nálamar eru hreyfðar öðru
hvora til að örva punktana eöa jafn-
vel sett á þær rafmagn. Þessi aðferð
er einnig fljótvirk.
Ég tel að eigendur hesta ættu að
kanna vel líkamlegt ástand þeirra
því þeir eru oft að segja okkur að
eitthvað sé aö með óróleika og pirr-
ingi,“ segir Rikke Mark Schultz dýra-
læknir.
-E.J.
/0 (juíínijíanitm)
V^Laugavegi 178
Rikke Mark Schultz dýralæknir sýnir nemendum hvernig nudda eigi hest.
DV-mynd E.J.
Borðapantanir
í síma 679967
^suivi mf/
%
*S//'kó pwjo^
Hollusta
Heilbrigði
Opið frá kl. 13:00-22:00 í dag og á morgun, sunnudag.
• Hjálparsveit skáta sprellar meö börnum og unglingum
• Gestir keppa í skotfimi á laugardag og sunnudag
• Útreiöartúrar á svæði Gusts frá kl. 14:00 báöa dagana
• Siglt út á Skerjafjörðinn meö siglingaklúbbnum Ými
Fjölbreytt dagskrá frá kl. 15:00 báða dagana. Meðal annars:
Heilsurækt
Tómstundir
• Fimleikasýning á vegum Gerplu
• Sigurbjörn Bárðarson hestamaður kemur á svæöiö
• Tónleikar meö þekktum unglingahljómsveitum
• Söngsmiðjan leikur og syngur
• Módelsamtökin sýna nýjustu tískuna
• Stúlkur úr keppninni Ungfrú ísland sýna föt frá
tískuversluninni Joss í Kringlunni kl. 15:00 á sunnudag
• Karioke keppni fyrir börn og unglinga báða dagana kl 18:00.
Reiðhjól frá Hvelli í verðlaun að verðmæti 50.000 kr!
| Happdrættisnúmer
á hverjum
| aðgöngumiða.
Tölva
i frá BOÐEIND
að verðmæti
120.000 kr.
S ívinning
MISSME) EKKIAF EINSTÆÐUM VIÐBURDI!!
LifStíff 94!
.x „aiunmin á syningu
SPARISJOÐURINN
KÓPAVOGI
’-V’
'1;- .Iv...'
úétía