Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Blaðsíða 2
/
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
2 ^
Fréttir
DV
Múlatindur hf. á Ólafsfirði:
Smíða ódýrari slökkvi-
bifreiðar en Norðmenn
- Flugmálastjóm vissi ekki af fyrirtækinu og pantaði 5-6 slökkvibíla frá Noregi
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyii
„Ég held einfaldlega að þær afsak-
anir að menn hafi ekki vitað af okkur
þegar þeir voru að panta slökkvibíla
frá Noregi standist ekki, ég ætla að
leyfa mér að halda því fram. AUt tal
manna um „íslenskt já takk“ víkur
þegar kemur að umboðslaunakerf-
inu. Því miður er þetta fremur um-
boðslaunamál," segja Magnús Sigur-
steinsson sem á og rekur bifreiða-
verkstæðið Múlatind á Ólafsfirði
ásamt syni sínum Siguijóni Magnús-
syni. Það sem þeir eru að tjá sig um
er sú ákvörðun Flugmálastjórnar að
kaupa 5-6 litlar slökkvibifreiðar frá
Noregi til nota á flugvöllum víös veg-
ar um landið en Múlatindur hefur
einmitt fengist við smíði slíkra bif-
reiða með góðum árangri.
Magnús segir að menn geti ekki
einu sinni sett fyrir sig það að þeirra
bílar séu dýrari en þeir norsku. „Ef
við miðum við algjörlega sams konar
búnaö getum við boðið bílana á
a.m.k. hálfri milljón króna lægra
verði og þetta er lágmark. Norsku
bílarnir kosta um 9 milljónir króna
hver en minni bíllinn okkar, sem er
sambærilegur við þann bíl, kostar
um 6,2 milljónir. Þá er eftir aö setja
Magnús og Sigurjón við fyrsta
slökkvibílinn sem Múlatindur smið-
aði en það er biil af minni gerðinni
sem er i eigu slökkviliðsins á Ólafs-
firði. DV-mynd gk
í hann útbúnað fyrir um eina milljón
króna en að öllu öðru leyti er um
sams konar bfi að ræða,“ segir Magn-
ús. Stærri bíllinn okkar kostar um
7,2 miUjónir og hann er mun stærri
og burðarmeiri en minni bfllinn,"
segir Magnús.
Múlatindur byrjaði framleiðslu á
slökkvibUum árið 1991 en þeir Magn-
ús og Sigurjón eru báðir í slökkvUiö-
inu á Ólafsfirði og þekkja því vel til
þess hvernig slökkvibUl fyrir minni
sveitarfélög og flugveUi þarf að vera
útbúinn. Þeir hafa selt slökkvibUa tU
Blönduóss og Dai víkur og Ólafsfjarð-
arbær hefur að sjálfsögðu keypt einn
bU. Bílamir hafa reynst afar vel og
hlotið mikið lof fagmanna. Það skýt-
ur því skökku við að flugmálayfir-
völd skuli frekar kaupa bfla frá Nor-
egi sem eru ekki betri en talsvert
dýrari.
HaUdór Blöndal samgönguráð-
herra upplýsti á Alþingi fyrir nokkr-
um dögum í fyrirspurnatíma að á
þeim tíma þegar slökkvibílarnir voru
pantaðir frá Noregi hafi Flugmála-
stjóm ekki verið kunnugt um að
neinn aðUi hér á landi væri í shkri
framleiðslu. Þar kom einnig fram að
ekki er hægt að riftal samningnum
við Norðmenn. >
Þeir eru margir stórvinningarnir sem komið hafa á miða sem keyptir voru úr þessum lottókassa sem er í sjopp-
unni Skalla í Hraunbæ. Enginn er þó stærri en fyrsti vinningurinn i Vikingalottóinu á miðvikudag. Þá gaf 200 króna
sjálfvalsmiði 39.450.000 krónur. 15 sinnum hefur fyrsti vinningur í lottóinu komið á miða úr kassanum og 25 sinn-
um bónusvinningur. Guðlaug Steingrimsdóttir, eigandi Skalla, stendur hér kampakát við þennan galdrakassa og
glæsilegan blómvönd sem fulltrúar íslenskrar getspár færðu henni í gær. DV-mynd Brynjar Gauti
Söfnunartrygglng frá 1936 var ekki góð flárfestlng:
Verðbólgan át þær upp til agna
Tryggingastofmm:
Ég er óróleg-
urmaðurog
vænti niður-
stöðu
- segirKarlSteinarGuðnason
„Húsnæðismál Tryggingastofnun-
ar eru til skammar. Aldraöir, fatlaðir
og öryrkjar þurfa að príla upp fjórar
hæðir til að fá úrlausn sinna mála
og í námunda við stofnunina eru
engin bílastæði. Við róum aö því öll-
um árum að fá hentugt húsnæði og
viðræöur þess efnis standa yfir milli
fulltrúa fjármálaráðuneytis og stofn-
unarinnar. Ég er órólegur maöur og
vænti niðurstöðu á næstunni," segir
Karl Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins.
Aö sögn Karls Steinars á stofnunin
á þriðja hundrað milljónir í bygging-
arsjóöi og aö auki það húsnæði sem
stofnunin er í við Laugaveg. Heimild
er í fjárlögum fyrir kaupum á hús-
næði fyrir stofnunina. Karl segir
enga ákvöröun hafa veriö tekna um
hvaða húsnæöi verði keypt fáist sam-
þykki fjármáiaráðherra.
SÍS-húsiö á Kirkjusandi er þaö hús-
næði sem Tryggingastofnun horfir
helst til. Viöræður hafa átt sér stað
milli stofnunarinnar og Lífeyrissjóðs
samvinnumanna varðandi kaup á
þremur fyrstu hæðunum. Sam-
kvæmt heimildum DV gæti kaup-
veröið verið 300 til 400 milljónir. Að
sögn Karl Steinars er SÍS-húsið að-
eins einn kostur af fleirum en hann
vill ekki tjá sig um hveijir þeir eru.
„Stofnunin starfar í dag á fjórum
stöðum. Óhagræðiö er mikið og hús-
næðið kemur í veg fyrir að hægt sé
að ráðast í nauðsynlegar skipulags-
breytingar." -kaa
Sexútköllvegna
sinubruna
Slökkviliðið í Reykjavík fór í sex
útköll vegna sinubruna í gær, þar á
meöal í Ártúnsholtið, aö Árbæjar-
kirkju, í Fossvogsdal og að Reynis-
vatni. Síðasttaldi sinubruninn var
mestur. Þar hafði frístundabóndi
kveikt í sinu en misst tök á eldinum.
Slökkviliösmenn réðu þó niðurlög-
um eldsins með hjálp borgarstarfs-
manna.
Alla hina sinubrunana mátti rekja
til fikts bama og unglinga með eld.
Biður slökkvfiiðið foreldra aö fylgj-
ast með hvort börnin eru að fikta
með eld en stórhætta getur skapast
vegna sinubruna. -hlh
„Hún fékk senda ávísun upp á þús-
und krónur frá VÍS fyrir fimm þús-
und króna líftryggingu frá árinu
1936. Mér finnst þetta dálítið spaugi-
legt og lýsandi um þá verðbólgutíma
sem hún og fleiri hafa þurft að lifa.
Hún fékk því greiddar þúsund krón-
ur, 50 króna endurgreiðslugjald og
950 króna bónus, fyrir tryggingu sem
kostaði 50 nýkrónur fyrir 58 árum,“
sagði tengdasonur konu sem fékk líf-
tryggingu gefins frá fóður sínum, þá
aðeins 12 ára gömul.
„Þetta eru þessar gömlu söfnunar-
tryggingar. Fyrir stríö, nú man ég
ekki alveg tímann, var mikiö um að
menn tóku söfnunartryggingar, yfir-
leitt frá dönskum tryggingarfélög-
um. Það var einn annmarki á þessum
tryggingum; að þær voru ekki verð-
tryggðar þannig að veröbólgan át
þær upp til agna. Menn voru að
greiða í þetta söfnun en þaö var þessi
ljóður á. Þetta gekk ekki upp og flest-
ir hættu þessu,“ segir Baldur Erl-
ingsson, deildarstjóri hjá Líftrygg-
ingarfélagi íslands, sem greiddi út
trygginguna.
Faðir konunnar starfaði við útgerð
á þeim tíma sem hann keypti trygg-
inguna og var þetta talin það traust
fjárfesting þá að hann hugðist kaupa
þijár tryggingar. Frá 1936 og fram tii
ársins 1961 voru greiddar 19,60 árs-
fjórðungslega í iðgjöld af trygging-
unni eða 78,40 árlega. Þess má geta
að maöur konunnar fékk fermingar-
jakka árið 1938 og kostaði hann þá
50 krónur. Fram til ársins 1971 voru
árlega greiddár tæplega 80 krónur
en þá fékk maður konunnar nóg af
þvi aö greiöa þessa smáaura og reiddi
975 krónur fram og greiddi trygging-
una upp. Eins og fyrr segir var trygg-
ingin keypt árið 1936 af Vátrygging-
arskrifstofu Sigfúsar Sighvatssonar
en hann var umboðsaðili Nye
Danske sem var söluaðili þessarar
söfnunartryggingar. Sigfús var til
húsa að Lækjargötu 2 og tók Líf-
tryggingarfélagið Andvaka við
tryggingunni þegar skrifstofa Sigfús-
ar hætti störfum. Síðan tók Líftrygg-
ingarfélag íslands við henni þegar
Andvaka hætti störfum.
„Eftir 1979 var farið út í verðtrygg-
ingar og menn hættu þessu almennt
fyrr. En það eru ennþá nokkrar
toryggingar óinnleystar,'1 segir Bald-
ur. -pp
Stuttar fréttir
Þjóðinhafnar
nýjumþjóðsöng
Skoðanakönnun á vegum Hag-
vangs leiðir í ljós að 42,2% þeirra
sem afstööu taka vilja skipta um
þjóðsöng en 57,8% eru andvíg.
Umboð eftir pöntun
Pétur Blöndal hefur fengið um-
boö fjölda hluthafa á aöalfundi
íslandsbanka sem íram fer eftir
helgi. Pétur sækist eftir kjöri í
stjóm og auglýsti eftir umboöum.
RÚV greindi írá þessu.
Rækjunnimokaðupp
Mokveiði hefur verið á rækju
skammt undan Austuriandi.
Samkvæmt frétt Bylgjunnar hafa
menn vart undan við að vinna
þá rækju sem berst á land.
Pennar gegn giæpum
Fyrirtæki á sviði öryggisþjón-
ri ustu hefur hafiö sölu á pennum
með rauðu pipargasi. Pennamir
eru seldir heiðarlegu fólki sem
vill verjast glæpamönnum.
Drottningar á Akureyri
Margrét Danadrottning og
Sonja Noregsdrottning höfðu
stutta viðdvöl á flugvellinum á
Akureyri í vikunni á leið til
Grænlands. Samkvæmt RÚV
tóku þær stöllur flugvél á leigu
hjá Flugfélagi Norðurlands og
koma til baka á þriðjudaginn.
Þorpfyrirekkjur
ABC-hjálparstarf á íslandi mun
á mánudaginn hefja söfnun til að
byggja neyðarþorp fyrir eyðni-
sjúkar ekkjur með ung böm í
Úganda. Forseti íslands hefur
söfhunina með framlagi.
NætursönguríDublin
íslenski Eurovision-hópurinn
heldur til Dublin á morgun þar
sem hann mun flytja lagið Næt-
ur. Keppnin fer fram laugardag-
inn 30. apríl.
tekur fyrir þaö aö hafa átt í bak
tjaldamakki viö Sighvat Björg
vinsson um bankastjórastöðu
Seðlabankanum. Bylgjan hefu
eftir Sighvati aö hann hafi ekket
rætt þessi mál við Ólaf Ragnar.