Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
Fréttir
Pétur Blöndal eftir að hann flaug inn í bankaráð íslandsbanka:
Fyrsta verk að vinna skipu-
rit um markmið bankans
tillaga hans um að þóknun til bankaráðs verði háð aíkomu var felld
Pétur H. Blöndal stærðfræðingur
hlaut glimrandi kosningu í bankaráð
íslandsbanka á löngum og ströngum
aðalfundi bankans fyrir troöfullu
Borgarleikhúsi í gærkvöld. Pétur
hlaut næstflest atkvæði á eftir Kristj-
áni Ragnarssyni, formanni banka-
ráðs. Orri Vigfússon náði ekki kjöri
í bankaráðið, var rétt á eftir Sveini
Valfells sem naumlega hélt sæti sínu.
Orri hlaut flest atkvæði í fyrra.
Atkvæði í bankaráð skiptust eftir
hlutafjáreign hluthafa íslandsbanka,
sem alls er um 3,8 milljarðar. Hlut-
hafar um 88% hlutafjár, eða fyrir um
3,3 milljarða, greiddu atkvæði.
Kristján Ragnarsson hlaut 15,9% at-
kvæða en Kristján hafnaði í 6. sæti
í kjöri til bankaráös í fyrra. Næstur
kom Pétur Blöndal með 13,34% at-
kvæða, þá Magnús Geirsson meö
12,9%, Örn Friðriksson með 12,64%,
Guðmundur H. Garðarsson með
12,03%, Einar Sveinsson með 11,92%
og Sveinn Valfells með 10,68% at-
kvæða. Síðan kom Orri Vigfússon
með 10,58% atkvæða og vantaði at-
kvæði hluthafa fyrir rúmum 3 millj-
ónum króna.
Kom á óvart
Skömmu eftir að úrshtin lágu fyrir
í gærkvöld sagði Pétur Blöndal í sam-
tali við DV að niðurstaðan kæmi sér
sannarlega á óvart.
„Ég hóf ekki baráttu fyrr en 10
dögum fyrir aðalfund. Það var meira
fyrir tilviljun því einn aðili hafði
samband viö mig og spurði hvort ég
vildi ekki hindra að bankaráðið yrði
sjálfkjörið. Síðan birti ég þessa aug-
lýsingu sem vakti mikla athygli. Fólk
kom umvörpum heim til mín, senni-
lega um 150 manns, og margir sendu
umboð sitt á faxi. Fyrir aðalfundinn
var ég kominn með umboð 260 hlut-
hafa. Þegar leið á daginn fór mig að
gruna í hvaö stefndi. Niðurstaðan
táknar að menn vilja breytingar á
stjóm bankans. Það er skiljaniegt í
ljósi þessa mikla taps sem orðið hefur
á rekstrinum. Mitt fyrsta verk verð-
ur að vinna skipurit um markmið
bankans með hagsmuni hluthafa að
leiöarljósi,“ sagði Pétur.
Segja má að Pétur hafi strax tekiö
til hendinni því að hann kom fram
með breytingartillögu á aðalfundin-
um við þá tillögu bankaráðs að
greiða .sjálfu sér 46 þúsund króna
þóknun á mánuði til hvers bankar-
áðsmanns og 92 þúsund á mánuöi til
formanns ráðsins. Tillaga Péturs um
að hafa þóknunina háða afkomu
bankans var felld með atkvæðum
mikils meirihluta fundarmanna.
Harður heimur viðskiptanna
Um þá niðurstöðu sagði Pétur við
DV að menn væru greinilega ekki
komnir á þá skoðun að bankaráð eigi
að standa og falla meö hagnaðinum.
„En ég er viss um að það kemur,“
sagði Pétur.
Orri Vigfússon sagðist viö DV að
loknum aðalfundi ekki vera svekkt-
ur yfir niðurstöðunni.
„Svona á þetta að vera. Þetta er
hinn harði heimur viðskiptanna. Það
kemur maöur í manns stað og ég
veit að Pétur Blöndal á eftir að standa
sig mjög vel í bankaráðinu. Seta mín
í ráðinu var ekki löng. Ég hlaut mjög
glæsilega kosningu seinast og margir
hafa stutt mig núna sem sýnir sig í
jafnri dreifingu atkvæða. Eflaust
hafa einhveijir verið óánægðir með
mín störf í ráðinu en ég get ekki ver-
ið svekktur með niðurstöðuna,"
sagði Orri. -bjb
Sala SR-mjöls:
Málflutn-
■ ■
mgi
lauk í gær
Munnlegum málflutningi
vegna málsins sem Haraldur
Haraldsson í Andara höfðar út
af sölu ríkisins á SR mjöli lauk í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Málið hefur fengiö flýömeðferð i
Héraðsdómi Reykjavíkur og er
búist við að dómur falli eftir 3
vikur.
Sigurður Georgsson, lögmaður
Haralds í Andra, gagnrýndi mjög
harðlega alla þætti sölunnar og
hvemig að henni var staðið.
Hann lagði mikla áherslu á að
sýna fram á eignatengsl þeirra
manna sem keyptu SR mjöl sem
og þá valdasamþjöppun sem þar
komi fram. Hann gagnrýndi lika
harðlega hvemig komið var fram
við skjólstæðing hans, Harald
Haraldsson 1 Andra, og þá sem
meö honum gerðu hærra tilboð í
SR mjöl en þeir sem fengu fyrir-
tækið.
Lögmenn þeirra aðila sem
stefht var í málinu lögðu aftur á
móti áherslu á aö löglega og eöli-
lega hefði verið staðið að sölu
fyrirtækisins.
-S.dór
Þetta verkfæri fékk Björn upp í sig þannig að 13 tennur brotnuðu í munni hans. Einn af þeim sem áttu þátt í árásinni
á Björn og félaga fékk 6 mánaða skilorðsbundinn dóm i desember síðastliðnum. DV-mynd GVA
Árásarmálið um helgina:
Voru á skilorði og eiga
langan sakaferil
- einn þeirra nýlega átt þátt að grófri likamsárás
Rannsóknarlögregla ríkisins vinn-
ur nú að rannsókn árásarmálsins í
miðbænum þar sem þrír piltar brutu
þrettán tennur í ungum manni með
meitli, handleggsbrutu annan og rif-
beinsbrutu þann þriðja.
í viðtali við DV í gær sagði Bjöm
Sveinlaugsson, nemi í Iönskólanum,
sem varð fyrir því að vera sleginn
með meitli í andlitiö, að hann hefði
haft einn piltanna undir þegar ein-
hver hljóp að honum með meitil í
hendinni og sló honum í andlit hans
þannig að 13 tennur brotnuðu. Einn-
ig voru trékylfur og hnúajám notuð
í árásinni.
Eins og greint var frá í DV í gær
hafa tveir þeirra verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald en þeir em á 17. ald-
ursári en sá þriðji, sem einungis er
15 ára, var vistaður á Unglingaheim-
ili ríkisins. Sá piltur átti þátt í árás
á mann í Breiöholti fyrir nokkmm.
Samkvæmt upplýsingum DV hafa
hinir tveir, sem úrskurðaðir vora í
gæsluvaröhald, margoft komið við
sögu lögreglu í afbrotamálum á sein-
ustu árum. Meðal annars var annar
þeirra í hópi unglinga sem lögðu
sumarbústaöi við Meðalfellsvatn í
rúst fyrir tveimur árum og hlaut
hann fyrir það 6 mánaða dóm skil-
orðsbundið til tveggja ára. Eftir það
hefur hann margoft veriö tekinn af
lögreglu fyrir innbrot og þjófnaði.
Má reyndar geta þess að í mars var
þingfest mál fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur á hendur honum vegna
þjóftiaðarákæra. Hinn pilturinn hef-
urhlotiðdómfyrirsvipuðafbrot. -pp
Stuttar fréttir
Oiíuleit fyrir austan
Bandarískt risafyrirtæki ætlar
að leita að oliu víða á færeyska
landgranninu, meðal annars ná-
lægt miðlínu milli íslands og
Færeyja. RÚV greindi frá þessu.
Nornir í Hrisey
Framboöslisti kvenna í Hrísey
i komandi sveitarstjómarkosn-
ingum ber nafnið Nomalistinn.
Samkvæmt RÚV hefur ekkert
mótframboð komið fram.
' Farþegum með sérleyfisbílum
fækkaði um 7% milli áranna 1992
og 1993. Alls 445 þúsund manns
óku meö sérleyflsbílum á síðasta
ári. Tíminn greindi frá þessu.
Nóttum spáð veigengni
Breskir og írskir veðbankar spá
íslenska laginu Nætur 3. til 4.
sæti í Evrópsku sönglagakeppn-
inni sem fram fer í Ðublin á laug-
ardaginn. Norska dagblaðið
Verdens gang spáir laginu l. tíl
3. sæti í keppninni.
MættmeðÞorsteini
Háskólanefnd Háskólans á Ak-
ureyri mælir meö þvi að Þor-
steinn Gunnarsson uppeldis-
fræðingur verði næsti rektor
skólans. Fanney Kristmunds-
dóttir sótti um stöðuna á móti
ÞorsteinL RÚV greindi frá þessu.
Samræmd próf í Dublin
Sjö liðsmenn drengjalandsliðs-
ins í fótbolta tóku samræmd próf
á hóteli í Dublin í gærmorgun.
Liðið tekur nú þátt í 16 Uða úr-
slitakeppni í Evrópumóti
drengjalandsliða. Mbl. skýrði frá
þessu.
Mýraráundanhaidi
Rannsóknir benda til að lítið sé
eftir af óröskuðum raýrum á lág-
lendi. RÚV segir sð spilling vot-
lendis hafi slæm áhrif á fuglalif.
Lokar Bónus versiun?
Líkur era taldar á að Bónus
loki verslun sinni á Akureyri.
Stöð tvö skýrði frá þessu.
Bókhiadan umskirð
Menntamálanefnd Alþingis vill
að söfnin í Þjóðarbókhlöðunni
heiti Landsbókasafn íslands -
Háskólabókasafn. Mbl. skýrði frá
þessu.
-kaa