Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
Stuttar fréttir
Hættirþátttöku
Sósíalístaflokkurinn í Japan
hefur hætt þátttöku i samsteypu-
stjórninni.
Lttilvon
Lítil von er talin vera á að
vopnahlé komist á i Rúanda.
RæðirviðKozyrev
Warren
Christopher,
utanríkisráö
herra Banda-
ríkjanna, ætlar
aö hitta utan-
ríkisráöherra
Rússlands, An-
drei Kozyrev,
til að
ræða málefni Bosníu.
Chemobyl minnst
Úkraníumenn minntust þess að
átta ár eru liðin frá Chernobyl
slysinu.
Fóstureyðingar
Fjallað verður um val kvenna
og fóstureyðingar á ráðstefnu SÞ
í Kaíró þrátt fyrir andstöðu
Vatikansins.
Ræðir við andstæðinga
Nýkjörinn forseti E1 Salvador
ætlar aö ræða við andstæðinga
sína, vinstrisinna.
Eiginkonanákærð
Eiginkona
lúns ákærða
fjöldamorð-
ingja Frederick
West, Rose-
mary, kom fyr-
ir rétt í gær en
hún hefur ver-
iö ákærð fyrir
að aðild að morði með eiginmanni
sínum.
Ekkja forsetans
Mannréttindasamtök hafa beð-
ið ekkju fyrrum forseta Rúanda
um að nota áhrif sín til að koma
á friði í Rúanda.
Sprengjumaðurinn
israelar segjast hafa náð Ham-
as-manninum sem stóð aö
sprengjunni í Hadera sem drap
fimm Israela.
Ósættí innan PLO
Ósætti innan PLO hefur sett
skorður í íriðarviðræöum PLO
og ísrael í Kaíró.
Höfuðpaurinn
Lögreglan í Egyptaiandi segist
hafa drepið höfuöpaur islamskra
samtaka sem berjast gegn stjórn
landsins.
Palestínumaður skotínn
ísraelskur hermaður skaut Pa-
lestínumann sem reyndi að
stinga hann með hníf.
Chamorroífjögurár
Violeta Cha-
morro, forseti
Nikarag\ra, hélt
f gær upp á
íjögurra ára af-
mæli sitt í for-
setastóinum og
á afmælisdag-
inn féllst yfir-
maður hersins og andstæðingur
hennar, Umberto Ortega, á að
hætta.
Skærulíðardrepnir
Tyrkneskar hersveitir drápu
sjö skæruhða Kúrda.
Jarðskjálftiá Java
Jarðskjálfti, sem mældist 5,9
stig á Richter, varð á Austur-Java
i Indónesíu í morgun.
Tekinn af Irfi
Fangelsisyflrvöld í Texas tóku
mann af lífl í nótt fyrir morð á
bareiganda.
Reuter
Utlönd
Einræði hvítra í Suður-Afríku er lokið:
Sprengjutilræðin
skyggja á gleðina
- mikil spenna og eftirvænting í loftinu, segir Bjöm Bjarnason alþingismaður
Stríðsmenn af ættflokki zúlúmanna í Suður-Afriku voru klæddir I hefðbundna búninga þegar þeir fögnuðu því að
fráfarandi þing landsins hafði haldið síðasta fund sinn fyrir kosningarnar sem hófust i morgun og standa næstu
þrjá daga. Simamynd Reuter
„Þaö er mikil eftirvænting og
spenna í loftinu og fólk telur þetta
sögulegasta atburð í Suður-Afríku
frá þvi landið var stofnað," segir Bjöm
Bjarnason alþingismaður sem nú er
staddur í Jóhannesarborg í Suður-
Afríku. Hann er einn alþjóðlegra eftir-
litsmanna sem eiga að fylgjast með
fyrstu kosningum með þátttöku allra
kynþátta sem hófust í morgun.
Sprakk nærri hótelinu
Það skyggir þó á gleði milljóna
blökkumanna sem fá nú að kjósa í
fyrsta sinn að 21 maður hefur farist
í sprengjutilræðum undanfama tvo
daga og 162 hafa særst. Níu manns
létust í sprengingu í miðborg Jó-
hannesarborgar á sunnudag,
skammt frá hótehnu þar sem Björn
Bjarnason dvelur. Hann sagði í sam-
tah við DV aö hann hefði verið farinn
út þegar sprengjan sprakk. Þá fómst
tíu í sprengjutilræði í gærmorgun í
úthverfi Jóhannesarborgar og í gær-
kvöldi létust tveir þegar sprengju var
varpað á veitingahús í Pretoríu.
Sjónarvottur sagöi að hvítur maður
hefði varpað þeirri sprengju úr bíl á
fleygiferð.
„Manni skilst að sú tegund af pólit-
isku ofbeldi sem felst í þessum
sprengjuárásunm sé nýmæli hér,“
segir Björn.
Hreinirsmámunir
Lögreglan í Suður-Afríku sagði að
maður sem hefði sagst vera á vegum
Frelsishreyfingar Búa, öfgasamtaka
hvítra hægrimanna, hefði lýst
ábyrgð á sprengjunni í gærmorgun á
hendur sér.
„Hann sagði að sprengingin væri
smámunir samanborið við það sem
á eftir mundi fylgja,“ sagði Evan
Johnson yfirlögregluþjónn í samtali
við blaðið Citizen.
Fyrsti kosningadagurinn er sér-
staklega tekinn frá fyrir menn úr
öryggissveitum landsins, sjúklinga,
blinda, fatlaða og Suður-Afríkumenn
sem búa erlendis. Fyrsta manneskj-
an til að greiða atkvæði í kosningun-
um var Nomaza Paintin, bróðurdótt-
ir Nelsons Mandela, leiðtoga Afríska
þjóðarráðsins, en hún býr í Welling-
ton á Nýja-Sjálandi.
í sjöunda himni
„Ég er frá mér numin, himinlif-
andi. Ég er í sjöunda himni,“ sagði
Nomaza Painkin sem var með höfuð-
fat í litum Afríska þjóðarráðsins.
Ein fyrsta manneskjan til að greiöa
atkvæði í Suður-Afríku sjálfri var
áttræð kona, Doris Sesing, elsti vist-
maðurinn á efliheimih í blökku-
mannahverfmu Alexandra í Jóhann-
esarborg.
„Ég hef aldrei kosið áður. Það er
gott að vita að við getum núna sagt
það sem okkur langar til að segja,"
sagði Sesing sem vann sem heimihs-
hjálp frá 21 árs aldri þar tfl fyrir
nokkrum árum þegar hún settist í
helgan stein.
Klukkan eina mínútu fyrir mið-
nætti verður þjóðfáni landsins dreg-
inn niður í síðasta sinn. Á miðnætti
tekur ný bráðabirgðastjómarskrá
gildi sem veitir blökkumönnum jafn-
an rétt til stjómmálaþátttöku og nýi
fáninn verður dreginn að hún mín-
útu síðar.
Rúmlega tuttugu milljónir manna
eru á kjörskrá og munu flestir þeirra
ganga að kjörborðinu á morgun.
Reuter
Serbar brenna hús og skemma
tæki og vélar í verksmiðjum
Borgarstjóri Gorazde, Ismet Briga,
segir að Bosníu-Serbar reyni að
valda sem mestri eyðileggingu áður
en þeir fara.frá Gorazde með því að
brenna og skemma hús og ýmsar
aðrar byggingar á leið sinni úr bæn-
um.
„Vandamálið er að hermenn Serba
eru enn innan við þriggja km radíus
frá bænum. Þeir brenna allt sem
minnir á að bærinn hafi verið byggð-
ur og skemma m.a. tæki og vélar í
verksmiðjum," sagði Briga í símavið-
tah í gær.
Einn af yfirmönnum SÞ í fyrrum
Júgóslaviu, Sergio Vieiera de Mollo,
hefur skýrt frá þvi að Serbar hafi
brotið vopnahléð aðaflega með því
að nota minni vopn en hann treysti
sér ekki til að segja hverjir hefðu
byrjað að skjóta.
Fresturinn sem NATO gaf Serbum
til að koma sér í 20 km radius frá
- áðurenþeirhaldaábrottfráGorazde
Þessi litla stúlka, sem er níu ára gömul, var ein a< þeim fyrstu sem voru
flutt burt frá bænum Gorazde. Simamynd Reuter
Gorazde rennur út á morgun, mið-
vikudag.
Flutningur á særðum og slösuðum
frá Gorazde stendur enn yfir og
breskar og franskar þyrlur á vegum
Sameinuðu þjóðanna flugu með 79
alvarlega særða íbúa frá bænum í
gær. Tala þeirra sem hafa verið flutt-
ir á brott er þá komin í 165 en farið
verður með flesta sjúkhngana til ítal-
íu, Danmerkur og Finnlands þar sem
þeir munu komast undir læknis-
hendur.
Fyrstu matarlestirnar komu til
Gorazde á sunnudag og enn er verið
að flytja mat til fólksins. Hjálpar-
maður frá SÞ skýrði frá því að matar-
lest, sem var á leið til Gorazde, hefði
verið stöðvuð af Bosníu-Serbum á
landamærum Serbíu í gær. Matar-
lestin, sem var með hundrað tonn
af matvælum, þurfti aö snúa aftur
tfl Belgrad. Reuter