Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Síða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
Fréttir
Mikil fundahöld 1 gær með sjávarútvegsnefnd á Alþingi:
Stéttarfélög vilja breytingar
„Við óttumst að nokkur atriði í
frumvarpinu, sem augljóslega kalla
á óhagræðingu hjá útgerðinni, verði
til þess að minnka enn vinnu land-
verkafólks. Við óttumst að þessi atr-
iði verði til þess að enn meira af fiski
verði flutt út í gámum og að sjófryst-
ing aukist frá því sem nú er,“ sagði
Jón Karlsson, varaformaður Verka-
típannasambandsins, í samtali við DV
í gær.
Þeir Jón og Björn Grétar Sveins-
son, formaður VMSÍ, áttu í gærmorg-
un fund með sjávarútvegsnefnd Al-
þingis og síðdegis hittu þeir Matthías
Bjamason, formann sjávarútvegs-
nefndar. Þeir félagar sögðust ekki
vonlausir um að fá fram einhverjar
breytingar á frumvarpinu.
Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða, sagði að
það væru nokkur atriði sem verka-
lýðshreyfingin gæti ekki sætt sig við.
„Það gengur ekki að mega ekki
færa af skipi nema 50 prósent af afla-
heimildum þess jafnvel þótt hag-
kvæmast sé fyrir alla aðila að flytja
allan kvótann yfir á annað skip.
Einnig að ef útgerðarmaður færir 100
tonn, svo að einhver tala sé nefnd,
af einu skipi yfir á annað og ef það
skip sem flutt er á bilar þá má ekki
flytja kvótann til baka. Hann er fast-
ur hjá bilaða skipinu. Þannig munu
þeir sem eiga frystitogara ekki láta
dagróðrabáta veiða neitt af kvóta sín-
um, enda þótt það geti verið hag-
kvæmara, af ótta við að kvótinn
brenni inni hjá þeim báti,“ sagði Pét-
ur.
Hann sagði að menn væru einnig
sammála um að tonn á móti tonni
viðskiptin gengju ekki eins og þau
eru útfærð. Þau kæmu alltaf niður á
sjómönnunum.
Það er því nokkuð ljóst að verka-
lýðshreyfingin og ýmsir útgerðar-
menn telja sig eiga samleið með að
ná fram breytingum á sjávarútvegs-
frumvarpinu. -S.dór
Aöalfundur íslandsbanka:
Fjögur prósent arður
Aðalfundur íslandsbanka í Borg-
arleikhúsinu samþykkti með öllum
atkvæðum viðstaddra hluthafa nema
tveggja þá tillögu bankaráðs að
greiða hluthöfum 4% arð. Þá var
ársreikningur bankans samþykktur
samhljóða en hann sýnir tap upp á
654 milljónir króna á síðasta ári.
Pétur Blöndal kvaddi sér hljóðs í
umræðu um ársreikninginn og fór
ófögrum orðum um stjórnun íslands-
banka og sagði að reka ætti karlinn
í brúnni ef hann fiskaði ekki. Pétur
lagði áherslu á að aðeins einn banka-
stjóri ætti að vera við völd hverju
sinni sem tæki alla ábyrgð.
-bjb
‘Smáauglýsingar
£ Spákonur
Spái í spil og bolla, ræö drauma, alla
daga vikunnar, fortíð, nútíó og framtíó.
Gef góð ráó. Tímapantanir í síma
91-13732. Stella.
® Dulspeki - heilun
Nýir tímar. Lumar þú á efni sem á
ttkeima í vönduóu tímariti um andleg
málefni t.d. reynslusögum. Nýir tímar,
tímarit um andleg málefni. S. 813595.
Tilboö.
Tegund: 100, litur: svart leður,
stæró: 36-41. Veró kr. 2.995.
Skóverslun Þórðar, Kirkjustræti 8,
sími 91-14181,
Ecco, Laugavegi 41, sími 91-13570.
Hitaveitur, vatnsveitur. Þýskir rennslis-
mælar fyrir heitt og kalt vatn.
Boltís s/f, símar 91-671130, 91-667418
og 985-36270.
S Bilartilsölu
i, turbo,
intercooler, ca 6 sek. í 100 km, raf-drif-
in öryggisbelti. Mjög góðar græjur með
CD-spilara o.fl. o.fl. Gangveró ca 1.700
þús., fæst á 1.400 þús. ef samið er
strax. ath. skipti. Uppl. í síma
91-76923 eóa símboóa 984-53333.
gerð 1990, ekinn 70.000 km. Góóur bfll
í góðu lagi. Upplýsingar í síma
91-641403 eða 91-686815 eftir kl. 19.
Lancer 4x4, árg. ‘90.
MMC Lancer, árg. 1990, 4x4, ekinn 56
þús. km, sumar- og vetrardekk. Verö
1.050 þúsund eða 950 þúsund stað-
greitt. Uppl. í heimasíma 91-45639 og
vinnusíma 91-674426.
Til sölu Suzuki GS 1100-E ‘83, hjól í
toppstandi. Engin skipti. Upplýsingar í
símum 91-611190 og 91-687203.
topplúga, rafdrifnar rúður, álfelgur,
sumar/vetrardekk. Gott eintak á góðu
verði. Verð 360 þús., skipti á ódýrari.
Uppl. í síma 91-672847 eftir kl. 18.
K^~ Ýmislegt
JEPPAKLÚBBUR jj§|
REYKJAVÍKURtfM&f
Noröurlandakeppni í torfæru ‘94 verður
haldin í Svíþjóó dagana 21. og 28. maí.
Flogið verður út 18. og 19. maí og heim
aftur 30. maí. Skráning fyrir keppend-
ur og aðra áhugamenn fer fram 1 síma
91-674811 25. og 26. apríl, kl. 12-17.
Allar nánari upplýsingar fást í sama
síma. Stjórnin.
Greifatorfæran ‘94. Bílaklúbbur Akur-
§yrar og veitingahúsið Greifinn halda
Islandsmeistaramót í torfæru laugar-
daginn 6. maí kl. 13.00. Keppnin fer
fram í landi Glerár fyrir ofan Akureyri.
Þátttökuskráning er i sima 96-24007 á
daginn og 96-12599 á kvöldin. Skrán-
ingu lýkur 30. apríl kl. 22. Bílaklúbbur
Akureyrar.
Björgunarmenn siga með slasaðan mann á æfingunni.
DV-mynd Sigursteinn.
Suðurlandsæfmgin:
Upplýsinga-
f læðið þarf
aðbæta
- segir Guðjón Pedersen
„Ég held að æfingin, miðað við
stærð hennar og umfang, hafi komið
mjög vel út. Okkur tókst að ná fram
öllu því sem við vildum sjá miðað
við skipulagsmál og framkvæmd.
Æfingin leiddi í ljós atriði sem þarf
að bæta í skipulaginu og þjálfun
manna og það er helst á sviði upplýs-
ingaflæðis," sagði Guðjón Pedersen,
framkvæmdastjóri Almannavarna
ríkisins, í samtali við DV.
Ein stærsta og umfangsmesta
björgunaræfing almannavarna fór
fram um helgina en um tvö þúsund
manns tóku þátt í henni. Æfð voru
viðbrögð við Suðurlandsskjálftan-
um.
Guðjón er mjög ánægður með æf-
inguna í heild fyrir utan upplýsinga-
flæðið sem var ekki nægilega skil-
virkt. „Það var of seint hægt að grípa
inn í og leiðrétta mál vegna þess
hversu streymið var tregt. Þetta er
skipulagsatriði sem við munum
ganga í að lagfæra því tæknilega er
það hægt. Þjálfun manna skiptir
mestu máli í þessu. Upplýsingaflæði
innan stöðvarinnar var heldur ekki
nægilegt þannig að á heildina litið
erum við með vel þjálfað björgunar-
lið, lögreglulið, slökkvilið og aðra þá
sem starfa úti í mörkinni en lélegt
upplýsingastreymi," sagði Guðjón.
„Þetta kom verst niður á vettvangs-
stjórninni á Laugalandi í Holtum þar
sem upptök skjálftans voru. Æfingin
var til að þjálfa og leita að hlutum
sem betur mega fara og að því leyti
tókst hún afskaplega vel. Við fengum
mikla þjálfun og það kom í ljós sem
beturmáfara." -ELA
Afmæli
Valdís María Valdimarsdóttir
Valdís María Valdimarsdóttir, yfir-
þema hjá Eimskipafélagi íslands, til
heimihs að Álftamýri 20, Reykjavík,
ersjötugídag.
Starfsferill
Valdís fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp, í austurbænum. Hún
stundaði nám við Austurbæjarskól-
ann, Ingimarsskólann, Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur og Veitinga- og
þjónaskólann.
Valdís starfaði við Félagsprent-
smiðjuna 1940-47, við Gutenberg
1947-59 og var matráðskona og
stundaði ræstingar við Álftamýrar-
skóla 1963-72. Hún hefur starfað hjá
Eimskipafélagi íslands frá 1964, var
þerna á Selfossi 1964-66, var þjónn
á Gullfossi 1966-73 er skipið var selt
úr landi, þema á Skógafossi 1973-80,
þema á Eyrarfossi 1981-90 og þema
á Laxfossi 1990-94.
Fjölskylda
Valdís giftist 16.6.1956 Birgi Guð-
mundssyni bryta, f. 19.5.1922 en
hann fórst með Stuðlaberginu 17.2.
1962. Birgir var sonur Guðmundar
Þorsteinssonar, bakarameistara í
Reykjavík, og Jónínu Magnúsdóttur
Blöndal húsmóður.
Börn Valdísar era Díana íris, f.
29.6.1944, verslunarstjóri og hús-
móðir, gift Gunnari Guðjónssyni
rakarameistara og er dóttir hennar
íris, gift Guðmundi Emi en eiga þau
tvö börn, Díönu írisi og Jóhann
Berg; Jónína Birna Blöndal, f. 9.1.
1953, fulltrúi í íslandsbanka, gift
Bjama Traustasyni vélstjóra en
sonur hennar er Birgir Guðmunds-
son; Ragnar Blöndal, f. 16.7.1954,
matsveinn, kvæntur Helgu Þór-
haUsdóttur húsmóður, böm hennar
og fósturbörn Þórhallur Viðar,
Valdís María, Sigurður Ágúst,
Kristín og Oddný Blöndal; Krist-
björg María Blöndal, f. 26.6.1959,
bankastarfsmaður í Búnaðarbanka
íslands, gift Sverri Gíslasyni raf-
eindavirkja og eru börn þeirra Gísli
ogRagnar; Sigurður Guðlaugur
Blöndal, f. 12.11.1960, kaupmaður,
kvæntur Hjördísi Sigurðardóttur
gjaldkera en börn hans og fóstur-
barn eru Kristján Þór, Hilmar
Blöndal og Sigurður Blöndal; Birgir
Valdís Maria Valdimarsdóttir.
Blöndal, f. 19.10.1962, viðskipta-
fræðinemi, kvæntur Sigrúnu R.
Bergsteinsdóttur framkvæmda-
stjóra.
Systkini Valdísar em Karl Krist-
inn Valdimarsson, f. 1.10.1918; Eng-
ilbert Valdimarsson, f. 14.10.1919;
Halldór Valdimarsson, f. 4.11.1920,
d. 7.4.1987; Gyða Valdimarsdóttir,
f. 31.10.1922; Sólveig Valdimarsdótt-
ir, f. 28.6.1925.
Foreldrar Valdísar vom Valdimar
Þorvaldsson, f. 22.6.1898, d. 8.6.1983,
sótari í Reykjavík, og Elísabet Jóns-
dóttir, f. 30.10.1898, d. 17.2.1977,
húsmóðir.