Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Side 12
12
Spumingin
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
Ætlarðu að vaka
á kosninganótt?
Davíð Davíðsson: Nei, ég verö er-
lendis.
Bernharður Guðmundsson: Já, ég er
spenntur fyrir stjórnmálum.
Skúli Ingólfsson: Já, já, ég fylgist
meö.
Jón Rúnar Sigurðsson: Já, að sjálf-
sögöu.
Kristin Gísladóttir: Já, það ætla ég
að gera.
Camilla Guðjónsdóttir: Nei, ég verð
erlendis.
Lesendur
Ferðaþjónusta bænda
eða bændagisting?
Svava S. Guðmundsdóttir, Görðum,
Snæfellsnesi, skrifar:
í Ríkisútvarpinu var nýlega slegið
upp þeirri frétt að gisting hjá ferða-
þjónustubændum væri orðin dýrari
en á hóteli! Anton hjá Ferðamiðstöð
Austurlands (FAL) hafði skýrt fjölg-
un á hótelferðum en fækkun á ferð-
um til gistibænda með of litlum verð-
mun þar á milli. En fleira hangir á
spýtunni.
Þannig er mál með vexti að á
hveiju ári fáum við ferðaþjónustu-
bændur „úttektarfólk" frá FB í heim-
sókn til að taka út aðstöðuna hjá
okkur. Sumum flnnast kröfurnar
fullmiklar en reyndar eru þetta bara
landslög; um lágmark rúma, her-
bergjastærð, fjölda snyrtinga o.s.frv.
sem koma gestum okkar til góða.
Nokkrir aðilar úr röðum FB-bænda
vildu ekki una þessum „kröfum“ og
sögðu sig úr félagsskap FB en tóku
upp sama nafn og við höfðum alltaf
notað á ferðaþjónustu bænda, nafnið
„Burstabæjarmerkið er lögverndað
og aðeins þeir sem eru í FB mega
nota það,“ segir m.a. í bréfinu.
„bændagisting" - þannig að fólk á
erfitt með að átta sig á hvað er hvaö.
Ég hef oftar en einu sinni fengiö
fokreiða gesti yfir því sem þeim hefur
verið boðiö á bóndabæjum. Þegar ég
sýni þeim FB-bæklinginn og viðkom-
andi bær er ekki þar bendi ég á
burstabæjarmerkið, sem er lög-
vemdað og aöeins þeir sem eru í FB
mega nota það, jú, þá vita þeir það.
En hve margir vita það ekki?
Anton hjá FAL hefur sjálfsagt
markaðssett ísland vel og þar með
ferðaþjónustubændur en hvað hefur
líka eyðilagst? Hann er með 63 ferðir
’89 þar sem eingöngu er gist hjá
bændum en 20-30 ’93. Anton hefur
bæði viðskipti við FB-bændur og þá
sem ekki eru það lengur. Mér finnst
líklegra að það sé óánægja með aö-
búnað en verð sem fælir gestina hans
frá bændum. Það þarf ekki nema 1-2
sem valda óánægju til að illt umtal
breiðist út og óánægður gestur bend-
ir vini sínum á að taka frekar hótel-
ferð þótt hún sé dýrari þar sem sums
staðar sé ekki nógu góð aðstaða hjá
þeim bændum sem gist er hjá.
Alhæfingin í áðurnefndri frétt
kemur sér auðvitað illa í byijun
„vertíðar". Sannleikurinn er sá að
verð á gistingu hjá FB hefur ekki
hækkað neitt síðan '91. Á þessu ári
kemur svo 14% vsk. á gistingu en
hækkunin er 5%.
Þarf leysi Seðlabanka opinberað
- þökk sé framsýni forsætisráðherra
Kjartan Jónsson skrifar:
í nýlegu sjónvarpsviðtali á Stöð 2,
þar sem Hallur Hallsson ræddi við
Steingrím Hermannsson, nýráðinn
bankastjóra Seðlabanka íslands, um
óskylt mál, nefnilega ábyrgðir nokk-
urra framsóknarmanna vegna dag-
blaðsins Tímans, kom ýmislegt
óvænt í ljós.
Þar kom það m.a. fram að þegar
stjórnmálamaður hættir afskiptum
af pólitík veitist honum auðvelt að
tjá sig og lætur þá ýmislegt flakka
sem hann hefði aldrei gert meðan
hann gegndi pólitísku starfi. Þessa
hlið höfðu áheyrendur ekki séð fyrr
á formanni Framsóknarflokksins og
núverandi seðlabankastjóra, Stein-
grími Hermannssyni, sem fór allt að
því hamförum í vamarræðu sinni
gagnvart fréttamanninum.
Annað sem opinberaðist í þessum
viðtalsþætti var sú staðreynd að
Seðlabankinn er stofnun sem ekki
er bara þarflaus heldur lýtur stjóm-
endum sem eru utan og ofan við all-
an veruleika í daglegu lífi þessarar
þjóðar. Það sannaði nýráðinn banka-
stjþri Seðlabankans í þessum þætti.
Ýmsir era þeir sem álasað hafa for-
sætisráðherra fyrir að vera ábyrgur
fyrir ráðningu formanns Framsókn-
arflokksins í stöðu seðlabankastjóra
með því að verða fyrstur til að mæla
með hæfileikum Steingríms Her-
mannssonar og reynslu til starfans.
- Mér þykir nú vera sönnuð fram-
sýni Davíös Oddssonar forsætisráð-
herra með forgöngu hans um ráön-
ingu Steingríms er sá sannleikur
birtist fólki að Seðlabanki íslands er
fullkomnlega óþarfur og lýtur þar
að auki engri ábyrgri stjóm.
Vonandi er ekki langt í sérmerkt og sérframleidd dekk fyrir íslensku verslunarkeðjurnar, segir m.a
héðins.
Til lækkunar á rekstrarkostnaði bifreiða:
Nýmæli I sölu dekkja og bensíns
Skarphéðinn Einarsson skrifar:
Nú era flestir bílaeigendur vænt-
anlega búnir að setja sumardekk
undir bíla sína. Margir kaupa sóluð
dekk og gera það ár eftir ár. Mín
reynsla af þeim er ekki góð. Þetta era
yfirleitt útslitin og gömul dekk, trú-
Hringió í síma
63 27 00
milli kl. 14 og 16
-eóa skrifíð
Nafn og símanr. veröur að fylgja hréfum
lega flutt inn frá Þýskalandi þar sem
ekið er á 200 km hraða á hraðbraut-
um. - Síðan era dekkin klædd í nýjan
ham hér. Þessi dekk slitna miklu fyrr
en ný dekk og eru einnig alltof dýr.
Hér era líka seld ný dekk frá Kóreu
og á svipuöu verði. Ég sá sl. haust í
Bretlandi dekk frá Taívan og kostuðu
þau 18 pund (u.þ.b. 1800 kr.). í Banda-
ríkjunum er algengt að verslanakeðj-
ur láti framleiða dekk fyrir sig í Asíu,
og þá undir sínu merki (t.d. fyrir J.C.
Penny, Ward og fleiri verslanakeðj-
ur). Þessi dekk era 50-60% ódýrari
en dekk frá hinum þekktu dekkjaris-
um og ætluð fólki sem hefur minni
tekjur.
Hér myndu svona dekk verða seld
á svo sem 16-1800 kr. (miðað t.d. við
stærðina 165.80x13).
Vonandi verður ekki langt þar til
hér sjást dekk, merkt t.d. Hagkaupi
eða Bónusi. Betri kjarabót gætu bíla-
eigendur vart fengið, nema ef þessi
fyrirtæki seldu líka bensín sem fólk
gæti afgreitt sig með sjálft. Þetta
myndi lækka bensínverð veralega
eins og raunin er bæði í Bretlandi og
1 Bandaríkjunum. - Stefna ætti að
lækkun rekstrarkostnaðar bifreiða
með nýjum viðskiptaháttum og nýju
fyrirkomulagi.
Akureyriíversl-
unarhlekkjum
Gyða hringdi:
í morgunútvarpi Rásar 2 25.
maí glugguðu fréttamaður RÚV
Á Akureyri og umsjónarmaður
morgunútvarps í aöalfrétt dag-
blaðsins Dags. Þar var rætt um
lokun Bónusverslunarinnar á
Akureyri og hlógu báðir er þeir
vitnuðu til ummæla Jóhannesar
í Bónusi um að Akureyringar
væra í hlekkjum hugarfarsins
þar sem þeir vildu frekar halda
sig við KEA og NETTO-verslan-
irnar og hrekja þannig Bónus á
braut. En það er óþarfi að hlæja
að orðum Jóhannesar í Bónusi:
Akureyringar eru í enn í verslun-
arhlekkjum, því miður.
Smugan:
Engin framtíd án
samninga
Einar Árnason hringdi:
Mér finnst eins og sumum öðr-
um ekki veijandi að Islendingar
stundi veiðar í Smugimni án þess
að hafa gert samninga í einhverju
formi við Norðmenn og jafnvel
Rússa líka. Þetta er nú þrátt fyrir
allt fiskur sem kemur úr rúss-
neskri og norskri landhelgi og við
getum litiö i eigin barm væri svo
ástatt hér við land, rétt utan okk-
ar landhelgi. - íslensk stjómvöld
veröa að knýja á um samninga
um þessar veiðar hið allra fyrsta
og fá niðurstöðu í júní.
Löggæsluskortur
IReykjavík
Krístinn Sigurðsson skrifar:
„Er engjn lögregla í Reykja-
vík?“ spurði erlendur ferðamað-
ur mig nýlega. Ég sagði það vera.
Þá sagði hann: „Hvemig má það
vera, ég er nú búinn að rölta hér
um miöborgina í 4 klukkutima
og hef ekki séð einn einasta lög-
regluþjón!” - Ég ætla ekki að
svara þessu en ef til vil getur lög-
reglustjórinn svaraö þessum
ferðamanni og borgarbúum sem
daglega sjá t.d. óreglufólk hanga
við Landsbankann og sníkja af
vegfarendum. Hvar verður nú
lögreglan þegar skemmtiferða-
skipin koma með þúsundir ferða-
manna? Veröur hún til staðar til
að halda uppi lögum og reglu og
aðstoða ferðamennina? Þaö væri
hörmulegt ef stór hlutí myndefn-
is feröalanganna væri af úti-
gangsmönnum Reykjavikur.
Óttastflutning
Bónuss
Akureyringur skrifar:
Ég fagnaði mjög komu Bónus-
verslunar hingað til Akureyrar.
Það var orðiö svo alvarlegt
ástandið í verslunarmálum hér
að við vorum nánast ofurseld
samkeppnisleysinu - ekkert frek-
ar frá KÉA en öðrum verslunum
hér. Það var einfaldlega engin
samkeppni í verslun. Og nú
stendur til að Bónus hætti. Þetta
er að kenna samtakaleysi neyt-
enda hér í bænum. Þeir kvarta
undan háu verðlagi á neysluvöra
en sýna svo engin viðbrögð við
lægra vöruverði Ég óttast flutn-
ing Bónuss héðan.
Bergsveinn hríngdi:
í frétt í DV í gær (25. maí) er
skýrt frá fólskulegri árás manna
á nýstúdent einn við heimili sitt.
I fréttinni segir að þrátt fyrir eft-
irgrennsian föður drengsins sem
á var ráðist hafi lögreglan ekki
viljaö gefa honum nein svör - og
meira að segja ekki kallaö á árás-
armennina tfi yfirheyrslu þrátt
fyrir vitneskju um nafh. Manni
verður á að spyrja: Er lögreglan
virkilega að veija Ulvirkja!