Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1994, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1994 Fréttir Frægir dýrgripir 1 Þjóðminjasafni í nýju ljósi Hluti silf ursjóðsins frá Miðhúsum talinn falsaður - formaður þjóðminjaráðs biður um opinbera rannsókn Fom silfursjóður frá bænum Mið- húsum við Egilsstaði, sem fram að þessu hefur verið talinn meðal helstu gersema Þjóðminjasafnsins, er að hluta til falsaður. Þetta er niðurstaða helsta sérfræðings heims á sviði fomgripa frá miðöldum, en hann dvaldi hér á landi á vegum Þjóð- minjasafnsins fyrir skömmu til að rannsaka sjóðinn. Siifursjóðurinn sem rnn ræðir fannst fyrir tilviljun við jarðrask í lok ágúst árið 1980 og vakti fundur- inn þá mjög mikla athygli. Þór Magn- ússon þjóðminjavörður og Kristján Eldjám, fyrrverandi þjóðminjavörð- ur, fóm á vettvang og lýstu fundin- um sem einstæðum gripum frá 10. öld. Um var að ræða 44 siifurhluti, stóra og smáa, silfurteina og skart- gripi; hinir fyrmefndu ætlaðir til að höggva niður til greiðslu eða sem smíðaefni. Silfur af þessu tagi var notað sem gjaldmiðill á miðöldum. Þrisvar áður höfðu fundist fomir siifursjóðir hér á landi, en þessi var stærstur þeirra og glæsilegastur, rúm 650 grömm að þyngd. Hefur honum verið hampað mjög af Þjóð- minjasafninu og í tæpan hálfan ann- Silfursjóðurinn frá Miðhúsum. an áratug hefur honum verið skipað í öndvegi meðal helstu þjóðarger- sema íslendinga í sýningarsölum safiisins. Myndir af siifursjóðnum frá Miðhúsum em í kennslubókum í íslandssögu fyrir grunnskóla og í ýmsum fræðiritum og kynningar- bókum um íslenska menningu. Um nokkurt skeið hafa verið uppi grunsemdir um að ekki væri allt með felldu hvað varðaði sjóðinn og fund- aratvik. Á síðasta ári vom gerðar efnafræðilegar rannsóknir á sjóðn- um og benti hreinleiki silfursins í hluta gripanna til þess að útilokað væri að þeir væra frá miðöldum. í framhaldi af þeim niðurstöðum var leitað til Fomleifastofnunar Lund- únaháskóla um frekari rannsókn. Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörð- ur, sem er formaður þjóðminjaráðs, staðfesti í samtali við DV í gær að hann hefði ritað menntamálaráðu- neytinu bréf og farið fr am á opinbera rannsókn málsins. Þess má geta að sýningarsölum Þj óðminj asafnsins var lokað í gær vegna mikilla viðgerða sem fram fara á safnhúsinu næstu mánuðina. Gefst því almenningi vart tækifæri til að líta silfursjóðinn augum á næstunni, en hann var á sínum stað í miðjum fomaldarsal safnsins þegar lokað var. Formaöur þjóöminjaráðs: Rannsaka þarf þetta á safninu og á f und- arstað Ólafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörð- ur og formaður þjóðminjaráös, stað- festi í samtali við DV í gær að hann hefði ritað menntamálaráðuneytinu bréf fyrir um viku og krafist opin- berrar rannsóknar á silfursjóðnum sem fannst við Miðhús árið 1980. Þetta gerði Ólafur í kjölfar skýrslu bresks sérfræðings þar sem kemur frain að nánast fullvíst er að hluti sjóðsins sé seinni tíma smíði og því falsaður. „Það er afar leitt að þetta skyldi vera. Það kom fram fyrir allnokkm orðrómur að um að þetta kynni að vera svona. Við töldum rétt að láta rannsaka það þannig að það væri hægt að hrekja þann orðróm ef svo væri. Hins vegar er niðurstaða skýrslu, sem kom frá prófessor Gra- ham-Campbell í Lundúnum, á þann veg að hann telur fullvíst að hluti af þessum silfursjóði sé falsaður og fóls- unin hafi verið gerð í því augnamiði að blekkja menn,“ segir Ólafur Ás- geirsson, þjóðskjalavörður og form- aður þjóðminjaráðs. Ólafur segir engar kenningar uppi um hver sé sökudólgurinn í málinu, hins vegar sé Ijóst að rannsaka þurfi þetta bæði á safninu og á fimdarstað. „Ég tel að þetta sé býsna ótvírætt þótt auðvitað séu menn varkárir sem gera svona athuganir, það er eðli- legt... Við erum sem sagt að óska eftir því að þetta verði kannað betur, hvort þetta sé áreiðanlegt sem Camp- bell gerir og líka hvemig á þessu geti staðið. Ég held að menn hafi verið í mjög góðri trú þegar þeir fundu þetta á sínum tíma og ekki borið brigður á að þetta væri merki- legur fundur," segir Ólafur. Hann segir fullyrðingar Hlyns Halldórs- sonar, finnanda silfursjóðsins, að hlutimir hafi verið falsaðir efdr að þeir komust í vörslu Þjóðminjasafns- ins nýjar fréttir fyrir sér. Það sé ann- ars eins og annað sem verði að kanna. Ólafur segist ekki halda að þetta veki efasemdir um uppruna annarra svipaðra muna i vörslu Þjóðminja- safnsins. „Þetta silfur leit svolítið öðravisi út en hitt. Ég hef nú ekki heyrt neinn orðróm um það en það má svo sem j hafa alla fyrirvara á því/‘_ Stuttar fréttir Get alveg eins ásakað þa - segirHlynurHalldórsson,fiimandisilfursjóðsms „Þetta var fullkomlega eðlilegt og ófalsað þegar ég gróf það upp. Sé það hins vegar falsað er það innanhúss- vandamál Þjóðminjasafnsins. Það er útilokað að það hafi verið grafið hér eða falsað. Eg sé engan tilgang með því og það hefur enginn ávinning af því, hvorki fjárhagslegan né annan. Ef einhver hefur fjárhagslegan ávinning af því þá era það mennim- ir sem þekkja þaö og vita hvað þeir era að gera. Það er hægt að láta gripi týnast eða hverfa yfir jól og láta smíða þá upp og selja svo ekta grip- inn. Ég get alveg eins ásakað þá eins og þeir mig,“ segir Hlynur Halldórs- son á Miðhúsum, sem fann silfrið, um þá fúllyrðingu í skýrslu bresks sérfr æðings að það sé falsað að hluta tiL í fréttum frá þeim tíma sem silfrið fannst er sagt að Hlynur sé mikill hagleikssmiður og fáist í hjáverkum við að smíða minjagripi og skera út í tré og jafnframt að smíða kopar- og silfurmuni. - Líturðu svo á að verið sé að ásaka þig? „Það liggur í augum uppi að menn telja að ég hafi falsað þetta. Það hefur aldrei veriö sagt beint en ég tek það þannig. Mér finnast þeir ekki rökstyðja sitt mál. Þeir geta ekki bara sagt að þetta sé falsað og þetta sé gömul folsun. Þetta gæti verið ný folsun. Það er þekkt í fomleifagrefti að hlutir séu falsaðir eftir að þeir koma upp. Þetta var pottþétt og upp- ranalegt þegar þetta fór til þeirra. Ég get svarið það,“ segir Hlynur Hlynur segist hafa vitað frá ára- mótum að rannsókn hafi staðið yfir á uppruna munanna. Hann segir jafnramt að þetta sé þungur dómur yfir þeim fræðingum sem fullyrtu að sjóðurixm væri ekta og nú komi i ljós að hann sé falsaður. „Þetta er einhver fomleifafræðing- ur með þráhyggju um það að það sé ýmislegt sem passi ekki. Þá er stysta og auðveldasta málið að segja að þetta sé falsað án þess að leita skýr- inga. Ég hefði talið það áhugavert efni innan forleifafræðinnar að finna orsökina frekar en að skella því fram að þetta sé falsað. Þetta er uppgjöf í fræðigreininni. Hvemig skýra menn það til dæmis að silfrið sem var gam- alt og silfrið sem var nýtt var jafii spegilfagurt þegar það kom upp. Það er einnig skiýtið að það skuli hafa verið falsaðir akkúrat munimir sem einhver fengur er í en hinir era gaml- ir,“ segir Hlynur. Hlynur Halldórsson á verkstæði sínu á Miöhúsum. DV-mynd Sigrún Björgvinsdóttir. Sfldarævinlýrinu iokíð Síldarævintýrinu virðist lokið í bili. Ekkert hefur veiðst undan- fama daga. Skv. RÚV er aðeins eitt skip eftir úti á miðunum. SendiherraáSpáni Svenir Haukur Gunnlaugsson hefur afhent Juan Carlos, kon- ungi Spánar, tránaðarbréf sitt sem sendiherra Islands á Spáni. Beinin mæld og vegin Borgarspitalinn hefur tekið í notkun beinþéttnimæli sera mæl- ir þéttleika og kalkmagn beina. Skv. Mbl. er tækið mikilvægt til forvama og rannsóknarstarfa. Solsikken til ísiands Skóladagheimilið Solsikken frá Kagákollegiet í Herlev er á leiö í heimsókn til íslands. Hundruð íslenskra bama hafa undanfarin ár verið á heimilinu. Ætlunin er að endumýja gömul kynni á fostudagskvöldið i Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Kísiliðjan í Mývatnssveit tapaöi 32 milljónum króna á rekstrinum í fyrra þrátt fyrir að útfiutningur hafi aukist um 5% miðað við árið á undan. Þá varð 5 milijóna króna hagnaður af rekstrinum. Hippahátid víð Kúagerði Ást, friður og hamingja kallast tónleikar sem verða um næstu helgi á Höskuldarvöllum við Kúagerði á Vatnsleysuströnd í tilefiii 25 ára afinælis Wood- stock-tónleikanna í Bandaríkjun- um. Rjartsýnis* verðlaunafhent Helga Ingólfsdóttur fékk í gær afhent bjartsýnisverðlaun Bröst- es. Að venju fór athöfhin fram í Kaupmannahöfti. Dr. James Gramham-Campbell, prófessor við Lundúnaháskóla: Þjóðminjasaf nið blekkt af ásetningi „Þessi rannsókn á sjóðnum frá Miðhúsum leiðir í ljós að ástæða er til efast um að hann sé allur ósvik- inn, jaftivel þótt meirihluti gripanna væri frá víkingaöld, og gefur þannig vísbendingu um að Þjóðminjasafnið hafi verið blekkt af ásetningi," segir í niðurlagsorðum skýrslu, sem dr. James Graham-Campbell, prófessor við Fomleifastoftiun Lundúnahá- skóla, sendi Þjóðmiujasafninu fyrir nokkrum dögum. Dr. Gramham-Campbell er al- mennt talinn fremsti sérfræðingur heims á sviði fomgripa frá víkinga- öld. Hann dvaldi hér á landi í nokkra daga í lok maí og byijun júní í boði þjóðminjavarðar til að rannsaka silf- ursjóðinn frá Miðhúsum. Fram kemur í skýrslunni að dr. Gramham-Campbell á mjög erfitt með að trúa því að silfursjóðurinn hafi komið gljáandi upp úr jörðunni „eins og hann hefði aldrei verið graf- inn“. Hann kveðst ekki þekkja neitt dæmi um slíkt þegar um silfursjóði frá víkingaöld sé að ræða. Og hann bætir því við að rannsókn sín á sjóðnum bendi til þess að vandleg hreinsun, önnur en skolun með vatni, hafi átt sér stað á þeim gripum sem era ekta. Það er gagnstætt því sem fram til þessa hefur verið stað- hæft af finnendunum og Þjóðminja-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.