Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994
Fréttir
DV
36 ára karlmaður gekk í skrokk á konu fyrir ofan Rauðavatn um helgina:
Liggur beinbrotin á
sjúkrahúsi eftir nauðgun
- árásarmaðurinn var gestkomandi hjá konunni og vini sem er sambýlismaður hennar
Kona á fertugsaldri liggur á
sjukrahúsi með brákaöa höfuökúpu
og brákaðan fót auk annarra meiösla
eftir aö 36 ára karlmaður gekk í
skrokk á henni og nauðgaði skammt
frá Rauðavatni aðfaranótt sunnu-
dags. Maöurinn, sem er vel þekktur
hjá lögreglunni og hefur m.a. verið
dæmdur fyrir auðgunarbrot, hefur
verið úrskurðaöur í 15 daga gæslu-
varðhald vegna málsins. Þegar síðast
fréttist hafði hann ekki viðurkennt
þaö sem hann er kærður fyrir.
Á laugardagskvöldið kom um-
ræddur maður á heimili vinafólks
síns sem er í sambúð í Reykjavík.
Vín var haft um hönd. Þegar líða tók
á kvöldið lagði húsráðandi sig en
hinn gestkomandi vinur hans fór þá
ásamt sambýliskonunni í bOtúr.
Konunni segist svo frá að maöurinn
hafi ekið með sig að nágrenni Rauða-
vatns. Þar hafi hann ráðist harkalega
að henni, rifið utan af henni fotin og
nauðgað. RLR hefur ekki viljað
greina nánar frá atburðarás enda
hefur ekki náðst aö yfirheyra kon-
una nákvæmlega vegna ástands
hennar.
Eftir verknaöinn tókst konunni að
komast af eigin rammleik að íbúðar-
húsum sem standa efst í Árbæjar-
hverfi og biðja þar um hjálp. Lög-
reglu barst tilkynning um konuna
um klukkan hálftvö um nóttina. Hún
var flutt á neyðarmóttöku Borgar-
spítalans þar sem hún fékk aðhlynn-
ingu og gekkst undir skoðun. Eftir
það var hún lögð inn á sjúkrahús.
Lögreglan fann manninn og handtók
hann síðar um nóttina.
RLR fór fram á að árásarmaðurinn
yrði úrskurðaður í 45 daga gæslu-
varðhald. Héraðsdómari í Reykjavík
taldi hins vegar 15 daga hæfilega
iangan tíma og felldi úrskurð þess
efnis á sunnudagskvöld.
Eins og fyrr segir hggur ekki ná-
kvæmlega fyrir hver atburðarás var
- karlmaðurinn neitar því sem á
hann er borið en konan er illa haldin
eftir atburði næturinnar. Samkvæmt
upplýsingum DV bendir allt til þess
að framburöur konunnar eigi fylli-
lega við rök að styðjast.
Fimm buðu í
Hafralónsá
Fimm tilboð bárust í veiðirétt í
Hafralónsá í Þistilfirði en tilboðin
voru opnuð um síðustu helgi. Tvö
tilboðanna eru erlendis frá en þijú
frá innlendum aðilum.
Hæsta tilboðið er frá Jóhannesi
Guðmundssyni í Reykjavík en hin
innlendu tilboðin eru frá Árna Bald-
urssyni og Veiðifélaginu Flugunni á
Akureyri. Erlendu tilboðin eru frá
Frakklandi og frá svissneskum aðil-
um sem hafa leigt Hölkná undanfar-
in ár.
Að sögn Marinós Jóhannssonar,
bónda í Tunguseli, eru tilboðin tals-
vert mismunandi og fleiri hlutir
koma til skoðunar en einungis upp-
hæö þeirra, s.s. ræktunarmál, bygg-
ing veiðihúss og fleira í þeim dúr.
35 milljóna tap
Tap varð á fiskvinnslu og útgerð
Odda hf. á Patreksfirði upp á 35 millj-
ónir króna á síðasta ári. Þetta kom
fram á aöalfundi fyrirtækisins ný-
lega. Bókfært eigið fé Odda var 116
milljónir í árslok 1993 og heildartekj-
ur á síðasta ári námu 376 milljónum.
Af 35 milljóna tapi nam tap á út-
gerðinni 26 milljónum og tap vegna
eignarhalds nam 14 milljónum.
Að sögn Sigurðar Viggóssonar
framkvæmdastjóra var stjórnarkjöri
í Odda hf. frestaö til framhaldsaðal-
fundar sem haldinn veröur fljótlega
að tillögu stærsta hluthafans, Þróun-
arsjóðs sjávarútvegsins.
Kæruleysi með eld hjá starfsmönnum hjá Golfklúbbi Ness leiddi til þess að eldur barst að skur þar sem bensín-,
dísil- og smuroltubirgðir eru geymdar. Þegar slökkvilið kom á staðinn logaði eldur innandyra. Eldinn tókst að
slökkva með froðu en tunnur innan dyra bráðnuðu. Mildi er talin að ekki fór verr. DV-mynd S
Nær 270 mlUjónir í íþróttahús, sundlaug, heilsugæslustöð og Yistheimili aldraðra á Þingeyri:
Stórframkvæmdir þrátt fyrir
mjög erf iða fjárhagsstöðu
- Óánægja vegna bréfs sjálfstæðismanna um íjármál sveitarfélagsins
„Okkur fannst vægast sagt of langt
gengið þegar við fengum þetta bréf.
Við vissum auðvitað að sveitarfélag-
iö er orðið skuldsett eftir fram-
kvæmdir undanfarinna ára,“ segir
Magnús Sigurðsson hreppsnefndar-
maður á Þingeyri.
Magnús gagnrýnir bréf sem sjálf-
stæðismenn og stuðningsmenn
þeirra sendu öðrum fulltrúum í
hreppsnefnd Þingeyrarhrepps.
í bréfinu, sem er ódagsett og óund-
irritað, er skorað á hreppsnefndar-
menn að setja ekki persónur ofar
málefnum. Tíunduð er erfið staða
sveitarfélagsins þar sem ekki séu til
peningar fyrir launum eða kostnaði
við þær framkvæmdir sem í gangi
eru á vegum Þingeyrarhrepps. Þá er
boðað í bréfinu aö ef ekki náist sam-
staöa með hreppsnefndarmönnum
um útvegun flármagns verði að
senda unglinga heim úr sumarvinnu
og hætta framkvæmdum við íþrótta-
hús og sundlaug og rifta samningum
við verktaka.
„Þetta er bara skýrsla til hrepps-
nefndar. Það tók mánuð að koma
saman hreppsnefnd og þessi mál
þoldu ekki bið. Það var vitað mál að
viö þyrftum að fá lán til aö leysa fjár-
hagsvandann," segir Jónas Ólafsson,
sveitarstjóri á Þingeyri. Samkvæmt
heimildum DV er hann höfundur
bréfsins.
Stórframkvæmdir eru í gangi á
Þingeyri þar sem verið er að byggja
íþróttahús og sundlaug auk þess sem
yfir standa framkvæmdir við heilsu-
gæslustöð og vistheimih aldraðra.
Að sögn Jónasar er verið að fram-
kvæma fyrir 260 til 270 milljónir.
„ Auðvitað eru fjárhagsörðugleik-
ar, það gefur auga leið þegar um er
að ræöa framkvæmdir af þessari
stærðargráðu. Þetta er þó allt á réttri
leið. Þetta lagast fljótlega, viö eigum
von á framlagi úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga," sagði Jónas.
Samkvæmt heimildum DV eru
Þingeyringar að bíða eftir láni frá
Norræna fjárfestingabankanum og
er því ætlað að leysa þann fjárhags-
vanda sem sveitarfélagið er í.
„Peningamir vaxa ekki á tijánum,
menn hljóta aö átta sig á því að þeg-
ar staðið er í framkvæmdum þá kost-
ar slíkt peninga. Heildarskuldir
sveitarfélagsins eru um 100 milljónir
sem er alls ekki óviðráðanlegt," sagði
Jónas Ólafsson, sveitarstjóri á Þing-
eyri
Stuttar fréttir
Engar eða lágar bætur
Nokkur hundruð öryrkjar eða
ellilífeyrisþegar fengu engar eða
lágar bætur frá Tryggingastofn-
un um siðustu mánaðamót vegna
mannlegra og tæknilegra mis-
taka. RUV greindi frá þessu.
Ennhækkarálið
Álverð heldur áfram að hækka
og nálgast þau mörk sem Atlants-
hafshópurinn svokallaði setti fyr-
ir nýju álveri á Keilisnesi, eða um
1700 dollarar tonnið. Samkvæmt
RÚV gæti álið náð þessu verði
innan nokkurra vikna.
Ltigbann í Þýskalandi
Lögbann hefur verið sett í
Þýskalandi á mynd Magnúsar
Guömundssonar og dönsku sjón-
varpsstöðvarinnar TV-2, í skjóli
regnbogans. Þetta kom fram á
RUV.
Ofnartil Kamtsjatka
Miklar framkvæmdir eiga sér
stað í Kamtsjatka á vegum is-
lenskra aðila. Stöð 2 greindi m.a.
frá því að Ofhasnúðja Suðumesja
væri að senda þangaö ofna.
Kristján Jóhannsson óperu-
söngvari telur neikvæða gagn-
rýni Financial Times á söng hans
í Aidu i Covent Garden léttvæga
og segir að blaðið ætti að halda
sig við umfjöllun um viðskipti.
Rikissjónvarpið ræddi viö hann.
Félagsdómur hefur úrskurðað
verkfall Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna, sem boðað var
hjá Leiguflugi ísleifs Ottesen hf.,
ólögmætt. Dómurinn telur verk-
fallsboöunina ekki hafa verið
samkvæmt lögum um stéttarfé-
lög og vinnudeilur.
Maturískemmtiskip
Miklir möguleikar eru fyrir ís-
lenska matvælaframleiðendur aö
selja mat í skemmtiferðaskipin
sem eiga viðdvöl hér á landi.
Samkvæmt Ríkissjónvarpinu
gæti árangur undirbúnings fariö
aö skila sér eför 1 til 2 ár.
Debetkortavandræði
íslenskur feröamaður lenti í
vandræðum með Maestro-debet-
kort sitt í Hollandi þar sem þar-
lendir bankar neituðu að taka við
því. Samkvæmt MbL taldi viö-
skiptabanki mannsins hér heima
kortið gjaldgengt í Hollandi.