Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 Spumingin Ferðastu mikið innan- lands? Karl Jóakim Rósdahl: Nei, það er bara leiðinlegt. Friðrik Ragnarsson: Já, ég er búinn að fara um Norðurland, Strandir og er að fara austur á firði. Óskar Ágústsson: Alltaf. Ég hef aldr- ei farið til útlanda. Helgi Bjarnason: Já, bara hringinn. Unnur Hjartardóttir: Já, svolítið. Erla Jónsdóttir: Nei, ekki mikið. Lesendur Öll farþegaskipin í gömlu höfnina Magnús H. Skarphéðinsson skrifar: Fráfarandi hafnarstjóm, skipu- lagsnefnd og önnur borgaryfirvöld eiga þakkir skildar fyrir frábæra endurlífgun gömlu hafnarinnar í Reykjavik. Það kostar áræði og út- sjónarsemi að þora að leggja út í aðra eins byltingu og orðið hefur á úthti og nýtingarmöguleikum hafnarinn- ar í miðbæjarkvosinni. Þessi vel heppnaða umbylting á hafnarsvæðinu á trúlega eftir að verða ein besta fjárfestingin í feröa- mannaþjónustu hér á landi í mörg ár, að ógleymdum dugnaði og áræði þeirra nývirkja sem eru að byggja upp náttúruferðir á borð viö hvala- skoðunarferðalög um hafíð viða í kringum landið. Það eina sorglega sem eftir stendur varöandi gömlu höfnina er að því miður komast alls ekki öll stóm far- þegaskipin þangað þrátt fyrir nýju bragarbótina. En þá er ekkert annað að gera en bæta bara úr því sem fyrst. Og fljótlega þarf að gera ráð fyrir enn fleiri farþegaskipum eins og dæmin alls staðar úr veröldinni sanna og sýna úr þessum bransa að er staðreynd þar sem falleg og aðlað- andi aðkoma og þægilegar gönguleið- ir úr höfnunum í miðbæina eru fyrir hendi í viðkomuborgunum. - En gamli miðbærinn okkar er ekki nema steinsnar frá höfninni fallegu. Stækkun gömlu hafnarinnar innan fárra ára, til að ná því marki að koma öllum farþegaskipunum sem til landsins koma þar fyrir, væri ekki Endurnýjað hafnarsvæði við miðborgina. - „Það kostar áræði og útsjónar- semi að þora að leggja út i aðra eins byltingu..segir m.a. i bréfinu. síðri fjárfesting en sú sem nú er ver- ið að ljúka við. Þaö er nefnilega ferðamannaþjónusta og aftur ferða- mannaþjónusta sem á eftir að veita okkur flest ný störf á komandi árum. Því skyldu fjármagnsforgangsráða- menn ekki gleyma. Aðeins einu sinni hafa borgaryfir- völd gleymt við breytingarnar góðu. Það er að hafa miklu meira af gróðri á hafnarsvæðinu. Röð trjáa myndi gleðja augu ríku og meðalríku gest- anna sem þar stíga á land. Og miklu meiri, fleiri og stærri graseyjar með blómabeðum af öllum litum vantar líka. Það kæmi okkur mun hærra upp í einkunnaskalann hjá erlendum ferðaskrifstofum sem skipuleggja skipaferðir ferðamenna og ráða mestu í reynd um hvert ferðamenn- irnir góðu ferðast. Stutt pils og plastdúkkur Einar Ingvi Magnússon skrifar: Útlensk kona, sem búið hefur á ís- landi í mörg ár meö manni sínum sem einnig er útlendingur, sagði mér að íslenskir vinnufélagar sínir, sem eru konur, væru hissa og undrandi á því að hún væri búin að vera gift sama manninum í sex ár. Þær væru allar fráskildar og byggju einar. Þær færu þó út um helgar á einhvem skemmtistaöinn í stuttu pilsunum sínum og pöraðu sig með nýjum og nýjum karlmönnum 15 mínútum áð- ur en skemmtistaðnum er lokað. Þetta fannst útlendingnum bæði siðlaust og stórfurðulegt. Enda hafa margir karlmenn gefist upp á ís- lensku kvenfólki og forðast aö mynda nokkur tilfinningatengsl við það. Ef þeir kjósa að lifa kynlifi verða þeir annaðhvort að nota þær eins og hverja aðra vændiskonu eða hrein- lega hafa samband við kynlífsversl- unina Rómeó og Júlíu og kaupa þar uppblásanlega plastdúkku. Seinni kosturinn er að mörgu leyti ágætur. - Skilnaöárhugleiðingar era úr sögunni, afbrýöi og eijur. Margir karlmenn lifa orðiö ágætu lífi og hamingjusömu með plastpíimni sinni sem þeir selja inn í skáp að lokinni notkun og geta gengið að henni vísri hvenær sem þá lystir. En þessi nýi lífsmáti margra ís- lenskra karla fer orðið í taugarnar á íslensku kvenfólki. Orðið er erfiðara aö gefa þeim langt nef. - Þeim reyn- ist líka erfiðara að snúa karlmönn- um um fingur sér og lær. Um daginn vatt ein pirruð sér að íslenskum manni þar sem hann sat sæll, alls óþurfandi, og spurði hann hvort hann væri orðinn hinsegin, hommi eða eitthvað. Maðurinn brosti bara og annað get ég heldur ekki gert. Ég lái honum ekki að láta sér nægja plastpjötluna sína sem hann elskar orðið oíboðlítið eftir að íslenskt kvenfólk lagðist í hórdóm. Skyldi hann vera rasisti, blessaður maðurinn? Hver veit? - En svona er ísland í dag. Vegabætur á Snæf ellsnesi Símon Sigurmonsson, skrifar: Um afarlangt árabil var álitið - og líklega með réttu - að vegurinn um Mýrar og sunnanvert Snæfellsnes væri ein versta leiðin í vegakerfi landsins. Þessir vegir voru sannar- lega torsóttir að sumarlagi og snjó- þungir á veturna. Nú heyrir þetta sögunni til sem betur fer. Þessa dagana leggja menn Borgar- verks hf. bundið slitlag á síðasta kafla vegarins, rúmlega 8 kílómetra, frá Lágafelli að Staðará. Nú er kom- inn góður vegur frá Borgarnesi og alla leið að Kerlingarskarði og svo aftur út Staðarsveit aö Urriðaá, þ.e. langleiðina að Fróðárheiði. Vegabætur hér síðustu fjögur árin hafa verið til mikilla hagsbóta fyrir Hringið í síma millikl. 14 og 16 -eða skrifið Nafn og símanr. veróur aö fyigja bréfum héraðið í heild, ekki síst fyrir ýmsan atvinnurekstur, t.d. ferðaþjónustu. Vegarkaflar lagðir á þessum árum virðast einnig vera betur gerðir en oft áður fyrr, breiðir og sléttir. Snæ- fellsnesið undir Jökli, handan flóans, hefur alltaf verið uppáhald ferða- fólks og það er nú aðgengilegra en nokkru sinni fyrr þegar þessi góði vegur er kominn. Snæfelisnesið hefur alltaf verið uppáhald feröafólks, segir m.a. í bréfinu. - Frá Staðarsveit. Davíðheffurlög aðmæla Ágúst Guðmundsson hringdi: Davíð Oddsson hefur fyllilega lög að mæla í gagnrýni sinni á stjórnarandstæðinga sem full- yrða nú að yfirlýsing forsætisráð- herra um að kreppan sé að líða þjá sé kosningabrella. Stjórnar- andstaðan viröist einfaldlega vera á móti því sem fram kemur hjá ríkisstjóminni, bara tfl að vera á móti. Þegar Davíð lýsti ástandinu í upphafi ferils ríkis- stjórnar sinnar, kreppu og dökk- um horfum fram undan, sagði stjórnarandstaöan að ráðameim ættu að tala kjark í fólk í stað þess að útmálahinar dökku horf- ui'. Síðan þegar loks sjást merki um bjartara útlit, og það staðfest af forsætisráöherra, krefst stjómarandstaðan þess að ráð- herra spái áframhaldandi harð- indum og kreppu. - Sjá menn nú ekki vitleysuna í slíkum mál- flutningi? Lögreglurannsókn áfornleiffum Jóhannes Guðmundsson skrifar: Mér finnst mikils oflátungs- háttar gæta í máli þeirra sem ekkert vilja vita af meintum föls- unum á silfurfundinum að Mið- húsum. Þaö er óþarfi að vera með upphlaup vegna þessa máls. Rannsóknin á'að geta verið ein- fóld lögreglurannsókn líkt og þegar grunur er um falsanir í öðram tilvikum. Vísindamenn eru ekkert undanþegnir gran um mistök fremur en annað fólk og þar sem fyrrum forseti og þjóð- minjavörður eiga hlut að máli er þaö einmitt mikilvægt aö þeirra mannorð a.m.k. sé hafið yfir allan vafa um vanþekkingu eða grun um frekari aðild málsins aöra en þá að láta blekkjast. Eruámótitveggfa flokkakerfi Karl Guðmundsson skrifar: Nokkuð hefur borið á því að menn vilji haustkosningar frem- ur en að beðið verði til vorsins. Einnig hafa einhveijir heillast af sigri R-listans í Reykjavík og telja fullvist aö sama myndi gilda um kosningar til Alþingis. En þar taka menn feil. Enghm flokkur myndi vilja bjóða fram sameigin- lega til þingkosninga með öðram flokki, Og alls ekki þingmenn sjáifir. Þeir eru alfarið á móti tveggja flokka kerfi. Flestir, en þó ekki allir. Enginn vill tapa sæti sínu. Og þar liggur hundur- inn grafinn. Veðurstofa - vand» ræðastoffnun Bjami Sigurðsson hringdi: Mig langar til aö taka undir bréf Snorra í DV sl. fimmtudag þar sem hann talar um ónýtar veöurfréttir og fleira í þeim mála- flokki. Það er rétt hjá Snorra að með því að leggja niður Veður- stofuna raeð einhverjum hætti myndum við spara okkur stórfé. Vandamáliö er það að enginn myndi kaupa Veðurstofuna. Það eitt sýnir okkur kannski hve gjör- samlega vonlaus hún er að eng- inn myndi sjá sér hag í að versla við hana ótilneyddur. Veðurstof- an er raikil vandræðastofnun þar sem skera ætti niður starfsemi ótæpilega. Sérleyffiffyrirborð- uml G.K.P. skrifar: Er nú ekki heldur langt gengið i flöskuhálsi kerfisins þegar veit- ingámenn mega ekki setja borð út á götu í sólskininu og þjóna þar til borðs? Sagt er aö sérstakt leyfi þurfi fyrir þessum óskaplegu frarakvæmdum! - Við erum sann- arlega engri þjóð lík, íslendingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.