Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 12. JULl 1994
13
Landssamband íslenskra akstursíþróttafélaga:
Viljum selja
snjó og brælu
Fréttir
Frá Sandgerdishöfn. Vinnuvélar við grjótgarðinn. DV-mynd Ægir Már
Sandgerði:
- segirBragiBragason
Höf nin gerð öruggari
„Viö viljum leita leiöa til að selja
útlendingum akstursíþróttir, vetrar-
ferðamennsku og jeppamennsku og
allt sem því tengist. Viö miöum viö
aö settar séu 25-30 milljónir á ári í
að selja vetrarferöamennsku og ís-
land sem akstursíþróttaland. Viö
viljum selja Suður-Evrópubúum snjó
og brælu, þeir selja okkur sól og
sælu. Þegar útlendingar koma hing-
að til að fara í þessar ferðir falla þeir
í stafi. Viö viljum aö menn setjist
niður og marki sér einhverja stefnu
fram til ársins 2000 og verji pening-
um í aö markaðssetja ísland yfir
vetrartímann," segir Bragi Bragason
hjá Landssambandi íslenskra akst-
ursíþróttafélaga, LÍA.
Forráöamenn landssambandsins
hafa óskað eför því aö Aílvaki og
Reykjavíkurborg kanni hugmyndir
um að markaðssetja ísland sem land
fyrir vetrarferöamertnsku og koma á
fót alþjóðlega viöurkenndu ralli meö
50-60 bílum en gert er ráð fyrir aö
það taki fimm til tíu ár. Ferðamála-
'nefnd Reykjavíkurborgar hefur er-
indið til umíjöllunar og er búist við
að fljótlega fari óháður aðili í gang
til að skoða máhð.
„Annar partur sem við bendum á
er rall, vélsleðakeppni, íslenska tor-
færan sem er einstæð í heiminum.
Við viljum að menn einbeiti sér að
því að selja alþjóðlega aksturs-
íþróttakeppni hér og fái útlendinga
hingað einu sinni á ári. Eitt stórt
rall með 50 keppendum gæti þýtt um
200-300 mihjónir í gjaldeyristekjur á
ári. Þetta er ekki ein heimsmeistara-
keppni sem kemur aldrei aftur,“ seg-
ir Bragi.
' 'Ægir Már Kárascm, DV, Suðumesjum:
„Sjórinn var farin að grafa undan
bryggjunni. Við urðum að gera eitt-
hvað til að verja hana - hún var í
stórhættu. Þá er hafin gerð varnar-
garðs við norðurbryggju sem verður
breikkuð í leiðinni til að auka at-
hafnasvæðið á hafnarbakkanum.
Hún var orðin aht of þröng,“ sagði
Sigurður Bjarnason, hafnarstjóri í
Sandgerði, í samtah við DV.
Miklar framkvæmdir hafa staöið
yfir í höfninni í Sandgerði undan-
fama mánuði. Þar er kominn mikih
grjótgarður og framkvæmd við þann
áfanga lýkur í sumar. Kostnaöur við
varnargarðinn er tæplega 40 milljón-
ir króna.
„Þetta skapar mikið öryggi því áð-
ur fór sjórinn beint yfir bryggjuna.
Með þessum framkvæmdum veröur
það úr sögunni," sagði Sigurður.
Oddvitinn Bjarni Jón Matthíasson flytur ræðu viö vigsluna. DV-mynd Elín
Kirkjubæjarklaustur:
Hjúkrunarheimili reist þar
sem nunnuklaustur var áður
Elín Valdimaisdóttir, DV, Klaustri:
Nýtt hjúkmnar- og dvalarheimih
fyrir aldraða var vígt við hátíðlega
athöfn á Kirkjubæjarklaustri 25.
júní. Heimilið, sem hlotið hefur nafn-
ið Klausturhólar, hefur verið í smíð-
um undanfarin ár.
Vígslan hófst með því að Bjami Jón
Matthíasson oddviti rakti byggingar-
söguna. Húsið er um 500 m2 og er
smíði þess ekki lokið því nýlega var
hafin bygging áfanga viö húsið sem
i verða 8 einstaklingsíbúðir.
Skaftfehskar konur hafa gefið
rausnarlega til byggingarinnar, m.a.
íbúðir og háar peningaupphæðir og
gjafir hafa borist frá einstakhngum,
fyrirtækjum og félagasamtökum,
m.a. málverk og píanó.
Oddviti minnti á að fyrr hefðu
skaftfellskar konur staðið í farar-
broddi við líknarstofnun á Klaustri
og minnti þar á tilvist nunnuklaust-
ursins á miðöldum. Nýja heimihð
var reist nálægt þeim stað sem
nunnuklaustrið er tahð hafa staðið.
Oddviti afhenti síðan formanni
rekstrarstjórnar heimihsins, Hönnu
Hjartardóttur, lykla þess og margir
fluttu ávörp. í Klausturhólum er nú
rými fyrir 20 vistmenn, þar af 12 fyr-
ir hjúkrunarsjúklinga. Stofnunin
leysir af hólmi starfsemi Heiðarbæj-
ar, dvalarheimih aldraðra, sem rekið
hefur verið á Kirkjubæjarklaustri í
10 ár við þröngan húsakost.
>
cö
c
'3
X
)->
3
*o
:0
cr
3
V)
3
<0
u,
■O
>s
tD
Varmahlíð - Siglufjörður
o Akureyri - Mývatn
COMBhCAMP
TJALDAÐ Á 15 SEKÚNDUM
Combi Camp tjaldvagnar fyrir þá sem njóta
vilja útiveru og ferðalaga. Þá sem vilja
komast í náinn kynni við náttúruna og geta
á skömmum tíma slegið upp náttstað að
eigin vali með alvöru þægindum
th
S*
5
m
Laugardalur - Þingvellir - Laugarvatn - Þjórsárdalur
HÚS & GARÐAR
///////////////////////////////
12 síðna aukablað um hús og garða
fylgir DV á morgun.
Meðal efnis:
★ Sumarbústaðir
★ Klæðning á húsum
★ Hæðarmismunur í görðum
★ Viðhald steinsteyptra húsa
★ Litlir garðar
★ O.fl. o.fl.