Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Blaðsíða 32
■
T
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 12. JULI 1994.
LOKI
Það er varla að maður þori
að leggjast til svefns í tjaldi
eftirþetta!
Veðriðámorgun:
Rigning á
Suður- og
Vesturlandi
Austan kaldi eða stinningskaldi
og fer að rigna sunnanlands og
vestan þegar kemur fram á daginn.
Um landið norðanvert verður
lengst af þurrt og nokkuð bjart
veður. Hiti verður á bilinu 12 tÍL 20
stig, hlýjast í innsveitum norðan-
lands.
Veðrið í dag er á bls. 28
Löggildingarstofan:
Máliðhjá RLR
Viðskiptaráðuneytið hefur farið
fram á að Rannsóknarlögregla ríkis-
ins rannsaki misræmi sem fram hef-
ur komiö á innheimtu gjalda hjá
Löggildingarstofunni. Eins og fram
hefur komið í DV var forstjóra Lög-
gildingarstofunnar skipað í frí eftir
að Ríkisendurskoðun gerði athuga-
semdir við bókhald stofunnar sem
sér um eftirlit með löggiltum mælum
og vogum.
Ekki hafa fengist upplýsingar hjá
RLR varðandi umfang á þvi misræmi
sem Ríkisendurskoðun gerði athuga-
semdir við. Að sögn Harðar Jóhann-
essonar, yfirlögregluþjóns hjá RLR,
var enginn hjá Löggildingarstofunni
kærður vegna málsins.
Viðkvæmurfyrir
náttúruspjöilum
- segir Jón Hákon
„Ég skoða þetta þegar ég kem heim
í kvöld því ég er mjög viðkvæmur
fyrir öllum náttúruspjöllum. Sigur-
geir hringdi í mig kvöldið áður en
ég fór utan og sagði mér að það væri
verið að leggja þarna vinnuveg. Við
erum bara búin að halda einn fund
í bæjarstjóminni og þetta var ekki
rætt á honum en við munum ræða
þetta á næsta fundi,“ sagöi Jón Há-
kon Magnússon bæjarfulltrúi um
framkvæmdir vegna heitavatnsbor-
unar við Ráðagerði á Seltjarnarnesi
þegar DV hafði samband við hann í
Lundúnum í morgun.
Katrín Pálsdóttir, bæjarfulltrúi
Neslistans, fullyrðir að alvarleg um-
hverflsspjöll hafi veriö unnin.
-sjábls. 7
Jón L í toppsæti
Tveir íslendingar, Jón L. Árnason
og Margeir Pétursson, eru meðal
þátttakenda á Canadien open skák-
mótinu í Winnipeg. Eftir fjórar um-
ferðir var staða efstu manna þannig:
í 1.-6. sæti eru Jón L., Hodgson,
Englandi, Tukmakov, Úkraínu, Fine-
gold, USA, Spraggett og Nikoloff,
báðir frá Kanada, með 4 vinninga.
Margeir er með 3 'h v. -JLÁ/hsím
Á160 km hraða
Lögreglumenn í Reykjavík veittu
ökumanni bifhjóls eftirför á niunda
tímanum í morgun en hann hafði
ekið á 15CL160 kílómetra hraða á
Kjalarnesi. Ökuþórinn ók hjólinu um
Kollafjörð og var lögreglan búin aö
setja vegatálma í Mosfellsbæ. Mað-
urinn var síðan stöðvaður við af-
leggjarann að Fitjum. Þegar DV fór
í prentun var verið að færa manninn
til yfirheyrslu á lögreglustöð.
Vagni dráttarvélar
„Eg vaknaði við það að vagnin-
um var ekið yfir fætuma á mér.
Ég rak náttúrulega upp ógurlegt
öskur og félagar minir líka. Það
munaði bara nokkrum sentímetr-
um að vagninn færi yfir höfuð fé-
laga míns sem svaffyrir utan tjald-
Þórmundur' Haukur Siguijóns-
son menntaskólanemi átti sér
einskis ills von þar sem Itann svaf
værum blundi sunnudagsmorgun-
inn 3. júlí ásamt tveimur feröafé-
lögum sinum í tjaldi við Hróars-
keldu í Danmörku. Þangað höföu
þeir farið ásamt tugum annarra
Islendinga á rokkhátíð.
„Við vomm á tjaldstæði. Dráttar-
vél með aftanivagn, sem vatns-
tankur var á, ók um svæðið. Þetta
var við krossgötur og haim hefur
tekið beygjuna of snemma. Aftaní-
vagninn hefur fariö inn á tjald-
svaföið og það var eitt hjóla hans
sem fór yfir lappirnar á mér. Öku-
maðurinn stoppaði samstundis við
öskrin en hann var i svo miklu
uppnámi að það þurfti að biðja
hann fjórum simrum að fara og
hringja á sjúkrabíl. Okkur fannst
það taka óralangan tima.“
Að sögn Þórmundar fór hjól
vagnsins fyrst utan í upphandlegg
hans og mjöðm áður en það fór
yfir fótleggi hans. Hjóhð fór einnig
yfir rist og tær á öðrum fæti félaga:
hans. Báðir sluppu jæir þó við bein-
brot. Þeir eru hins vegar marðir
og mikið bólgnir.
Hrafnseyrameöid endurbyggir bæ Jóns Sigurössonar:
Framkvæmdir
haf nar þrátt fyr-
ir bann fom-
leifanefndar
Þórmundur Haukur vaknaði við það að dráttarvélarvagni var ekið yfir fætur
hans. Þórmundur slapp við beinbrot en er mikið bólginn og marinn og
þarf að nota hækjur til að komast ferða sinna. DV-mynd ÞÖK
Hrafnseyarnefnd hefur látið hefja
endurbyggingu torfbæjarins á
Hrafnseyri við Arnarfjörð sem Jón
Sigurðsson fæddist í árið 1811. Þessar
framkvæmdir eru í blóra við vilja
fornleifanefndar sem ein getur veitt
leyfi til þeirra. Nefndin lagðist ein-
dregið gegn framkvæmdunum í bréfi
sem hún sendi Hrafnseyrarnefnd í
vor.
Ástæðan fyrir andstöðu nefndar-
innar við framkvæmdimar er sú að
hún telur þær spilla fornminjunum
á staðnum. Ráðlagði fornleifanefnd
að bærinn yrði endurbyggður á
svæði í nágrenninu þar sem ekki eru
fornleifar en því mun Hrafnseyrar-
nefnd hafa hafnað. Bæjarstæði það
sem byggt er á er tahð vera frá Sturl-
ungaöld en þá bjó Hrafn Sveinbjarn-
arson læknir á staðnum og er eyrin
kennd við hann.
Bæjarstæðið nýtur friðunar aldurs
síns vegna, en samkvæmt lögum má
ekki raska fornleifum sem eru 100
ára og eldri nema leyfi fornleifa-
nefndar komi til.
Fomleifanefnd lét af störfum 1. júlí
sl. og hefur menntamálaráðherra
enn ekki skipað nýja nefnd.
Ekki náðist í þjóðminjavörð í morg-
un vegna þessa máls.
Lfflé
alltaf á
Miövikudögum
Ertu búinn að panta?
dagar
tii þjóðhátíðar
FLUGLEIDIR
Innanlandssími 690200