Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 15 Áfengi, EES og upp- lýsingaskylda Fyrir nokkru barst íslenskum stjórnvöldum bréf frá Eftirlits- stofnun EFTA þess efnis að einok- un ÁTVR á heildsölustigi sam- ræmdist ekki EES-samningnum. Talsmenn íjármálaráðuneytisins hafa gert lítið úr þessu bréfi en þó haldið því leyndu og svo virðist sem íslensk stjórnvöld ætli enn aö brjóta gegn EES. Kæra Verslunarráðs íslands í lok síðasta árs fór Verslunarráð íslands þess á leit við Eftirhtsstofn- unina að hún léti í ljós álit sitt á lögmæti einokunar ríkisins í áfeng- issölu. í byrjun ársins kom fram í við- ræðum Norðmanna, Finna og Svia um aðild að Evrópusambandinu að einokun ríkisins á áfengissölu á heilsölustigi samrýmdist hvorki EES né löggjöf ESB. Mátti íslensk- um stjórnvöldum þá þegar vera ljóst að hverju stefndi. Heildsölueinokun brýtur gegn EES í bréfi Eftirhtsstofnunar kemur fram að einokun ríkisins á inn- flutningi, útflutningi, vörudreif- ingu og heildsölu stangast á við sjálf meginákvæöi EES-samnings- ins. Um framleiðslu eiga við sömu sjónarmið á meðan einhver tengsl Kjállariiin Jónas Fr. Jónsson lögfræðingur Verslunarráðs íslands eru við ríkiseinkasöluna. í bréfinu kemur fram að þessu heföi átt að vera búið að kippa í lag fyrir 1. jan- úar síðasthðinn. Það er því alrangt sem haldið hefur verið fram að Eftirhtsstofnunin muni láta sér segjast eftir útskýringar embættis- manna fjármálaráðuneytisins. Með ströngum skilyrðum í bréfi Eftirhtsstofnunar segir að hún geri ekki athugasemdir við „Fyrstu viðbrögö íslenskra stjórnvalda virðast benda til þess að enn eigi að berja höfðinu við steininn. Reyna á til hins ýtrasta að komast hjá því að virða alþjóðlega samninga og það þrátt fyrir að óháðir eftirlitsaðilar hafi talað tæpi- tungulaust.“ Stjórnvöld eru krafin svara, m.a. um hvernig íslendingar hyggist upp- fylla skilyrði um úrval tegunda, verðlagningu og áfrýjun ákvarðana ÁTVR, segir m.a. í greininni. einkasölu áfengis á smásölustigi ef ákveðnum skilyrðum er fuhnægt. Helstu skhyrðin eru þau að hlut- lægar reglur gildi um innkaup og sölustarfsemi, reglurnar mismuni ekki ríkisborgurum eða fram- leiðsluvörum EES eftir þjóðerni og reglurnar séu opinberar. Þetta eru lágmarksskilyrðin en til viðbótar er krafist svara við ýmsum spurn- ingum um það hvernig íslendingar hyggjast uppfyha skhyrðin, s.s. val og úrval tegunda, verðlagningu og áfrýjun ákvarðana ÁTVR. Upplýsingaskylda ráðuneyta Það vekur athygh að málefni sem varðar jafn marga aðha og mikla hagsmuni skuli meðhöndlað með slíkri leynd í fjármálaráðuneytinu. Af bréfi Eftirhtsstofnunar verður ekki ráðið að um trúnaðarmál sé að ræða og í Svíþjóð er bréfið opin- bert. Það vekur því upp spurningar um upplýsingaskyldu íslenska stjórnkerfisins þegar fréttamenn Stöðvar 2 eiga greiðari aðgang að upplýsingum frá sænskum stjórn- völdum en íslenskum. Annars staðar á Norðurlöndum er að finna löggjöf um upplýsingaskyldu og þetta mál virðist benda til að hér- lendis sé þörf á slíkri löggjöf. Að berja höfðinu við steininn Fyrstu viðbrögð íslenskra stjórn- valda virðast benda th þess að enn eigi að berja höfðinu við steininn. Reyna á th hins ýtrasta að komast hjá því að virða alþjóðlega samn- inga og það þrátt fýrir að óháðir eftirhtsaðilar hafi talað tæpitungu- laust. í bréfi Eftirlitsstofnunar kemur fram að stofhunin muni grípa til viðeigandi réttarúrræða verði ekkert að gert. Komi th þess verða kröfur okkar um að aðrir (Frakkar) virði EES-samninginn veikari. Jónas Fr. Jónsson Kostnaður og framkvæmd heimahjúkrunar í Reykjavík Á ráðstefnu Landssamtaka hehsugæslustöðva, sem haldin var 22. aprh sl„ um stöðu og horfur í heimahjúkrun, voru lagðar fram upplýsingar um kostnað við fram- kvæmd heimahjúkrunar í Reykja- vík, annars vegar á vegum Hehsu- gæslunnar í Reykjavik og hins veg- ar á vegum sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga sem starfa samkvæmt samningi við Trygg- ingastofnun ríkisins. Upplýsingum mótmælt Samikvæmt rekstrarreikningum Heilsugæslunnar í Reykjavík 1991 -1993, í þessu thviki Heilsuvemd- arstöðvar Reykjavíkur, nam með- altalskostnaður við vitjun um 1000 kr. og er þá aht meðtahð, laun, bif- reiöakostnaður, álagsgreiðslur, hjúkrunarvörur o.s.frv. Sam- kvæmt samningi hjúkrunarfræð- inga við Tryggingastofnun ríkisins, um starfsemi svokahaðra sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga, er hver vitjun verðlögð á kr. 3.400, 3.700 eða 4.100, allt eftir umfangi vitjunar. á ráðstefnunni kom hvergj fram að verið væri að bera saman starf- semi hehsugæslunnar og sjálfstætt starfandi hjúkmnarfræðinga með hhðsjón af umfangi og gæðum þjónustunnar heldur aðeins kostn- að. Eigi að síður sá formaður Fé- KjaUarinn Ingimar Sigurðsson fyrrv. forstj. Heilsugæslunnar í Reykjavik lags íslenskra hjúkmnarfræðinga sig knúinn th þess í fréttum Ríkis- útvarpsins skömmu síðar að mót- mæla upplýsingunum og visaði þeim á bug sem röngum þar sem verið væri að bera saman ólíka þjónustu, annars vegar almenna þjónustu og hins vegar sérfræði- þjónustu. Gat hún þess að heimahjúkrun hehsugæslunnar væri almenn þjónusta og heimahjúkrun þeirra sjálfstætt starfandi sérfræðihjúkr- un og um væri að ræða nýja stétt séríræðinga. Þung hjúkrun Undrar mig þekkingarleysi for- mannsins á starfsemi heimahjúkr- unar heilsugæslunnar ef sú starf- semi kallast almenn en hinna sér- hæfð. Þeir sem th þekkja vita að í mörgum tilvikum er um sambæri- lega þjónustu að ræða og margir hjúkrunarfræðingar á vegum heilsugæslur.nar eru ekki síður menntaðir en sjálfstætt starfandi. í þessu thviki vh ég benda á þá þjónustu sem Hehsuvemdarstöð Reykjavíkur veitir bæði um kvöld og nætur í Reykjavík og á Seltjarn- amesi. Sú hjúkrun er í flestum th- vikum mjög þung og krefst oft sér- fræðiþekkingar. Þar sem formaöurinn vísaði upp- lýsingunum um kostnað við heima- hjúkrun í Reykjavík á bug sem röngum vh ég benda á að auðvelt er að afla sér upplýsinga um hann. Vísast þar um th ársskýrslna Hehsugæslunnar í Reykjavík og fyrirliggjandi rekstrarreikninga og áðurnefnds samnings við Trygg- ingastofnun ríkisins. Ég hvet formanninn th þess að afla sér þessara upplýsinga og kynna sér starfsemi heilsugæsl- unnar en mér virðist að af við- brögðum hans megi ráða að honum sé ekki nægilega kunnugt um þá starfsemi. Ég tel formanninn betur geta sinnt formannsstarfinu þekki hann th hehsugæslunnar og þann- ig betur geta gætt hlutleysis í um- fjöllun um störf hjúknmarfræð- inga. Ingimar Sigurðsson --------------------------------------- „ ... vil ég benda á þá þjónustu sem Heilsuverndarstöð Reykjavíkur veitir bseði um kvöld og nætur í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Sú hjúkrun er 1 flestum tilvikum mjög þung og krefst oft sérfræðiþekkingar.“ Óeölileg skuldaaukning borgarinnar Geigvænleg þróun „Óeölheg skuldaaukn- ing hefur átt sér stað á síð- ustu árum. Það getur ekki gengið lengur að borgin taki lán upp á tvo mhljarða á hveiju ári. Mér flnnst ekki hafa komist næghega vel th skila hve hrika- lega mikhl halli hefur veriö á borgarsjóði á undanfómu k)ör- tímabili en annað og þriðja árið S röð erum við meö helmingi meiri haha á borgarsjóði en er á ríkissjóði og finnst nú flestum nóg um það. Athyglisvert er að á góðæris- og þensluárunum 1987-1990, þeg- ar tekjur vom langt umfram önn- ur sveitarfélög, safhaði borgar- sjóöur skuldum. Vel getur verið að hægt sé aö benda á sveitarfélag með hærri skuldir á íbúa en í Reykjavík en ég fullyrði að skuld- ir hafa ekki vaxið jafnhratt hjá neinu sveitarfélagi og hjá Reykja- vík. Ef áfram veröur haldið á sömu braut er það náttúrulega geig- vænleg þróun. Sú upphæð sem við verðum aö taka að láni á þessu ári er komin upp í 2,2 mhlj- arða þó að áriö sé bara hálfhaö. Svona skifja sjálfstæðismenn við. Við verðum að fá hjól atvinnu- lífsins th að snúast aftur af krafti eða taka lán th að halda uppi framkvæmdum í borginni." Atvinnuleysi svarað „Ef skulda- staða Reykja- víkur og ná- grannasveít- arfélagannna er borin sam- an kemur i Jjós að skuldir hvers ibúa i Reykjavík eru 95 þúsund krónur. Á sama tlma eru þessar skuldir 172 þúsund í Kópavogi, svipaðar í Haftiarfiröi og um 117 þúsund í Garöabæ. Tölumar sýna að staða Reykjavíkur er sterk í saman- burði viö þessi sveitarfélög. Sama má segja um svokallaða peninga- lega stöðu sem er í raun mismun- ur á tekjum og hreinum skuldura. Margsinnis hefur komið fram að peningaleg staða fer versnandi vegna þess að tekjur hafa dregist saman úr 116 þúsundum á íbúa árið 1988 í tæpar 100 þúsund krónur núna og vegna aukinna skulda. Borgarstjóm ákvað að svara erfiðri atvinnustöðu með því að veita aukið fjármagn th frara- kvæmda ftjá Reykjavíkurborg sem nýtist að sjálfsögðu th að halda niðri atvinnuleysi og beint til atvinnumála th að hjálpa fólki út úr atvinnuleysinu. Ég hef gagnrýnt málflutning R-listans um að staöan sé óskap- lega erflð og nánast fuhyrðingar um að Reykjavík sé meðal verst settu sveitarfélaga þrátt fyrir að tölur sýni annað. Þess vegna spyr ég hvort þau æíliað hækkaskatta th að auka tekjur borgarinnar eöa ætla þau að draga saman í rekstri th aö lækka útgjöld. Ég hef engin svör fengið við þessum spurningum." Árni Sigfússon, oddviti Sjálfstæðis- flokks Sigrún Magnúsdótt- ir, oddviti Reykja- vikurlista

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.