Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 5 Fréttir Einar K. Guðfinnsson alþingismaður: Vestfjarðaaðstoð lykill að fjármagni „Þaö er að færast líf í þetta hjá okkur og hefur varið tals- vert að gera síðustu dagana," segir Smári Thorarensen sem starfar á Hríseyjarferjunni Sævari en ferðamenn eru nú famir að flykkjast út í eyjuna. Hríseyjarferðir eiga mjög vaxandi vinsældum að fagna meðai ferðamanna. Á Árskógs- sand, sem er höfn feijunnar í landi, er um 25 akstur frá Akur- eyri og siglingin út í eyju tekur um 15 minútur. Á síðasta ári flutti feijan um 52 þúsund far- þega og þar af voru um 25 þús- und sem fóru með ferjunni yfir aðalferðamannatímann. „Ég er ekki í vafa um að erfiðleik- amir em skelfiiegir. Það er ekki orð- um aukið sem fram kom í DV um helgina varðandi ástandið á Vest- fjörðum. Þessi úttekt undirstrikar alvöm þessa máls, Þeir sem hafa gert lítið úr vanda Vestfjarða ættu nú að sjá það að við sem reyndum að vekja áhuga á þessum gífurlega vanda vorum því miður ekki að mála þetta of dökkum litum,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörðum. Einar segir að Vestfjarðaaðstoöin veröi eins og dropi í hafið ef ekkert annað komi til. Hann segir að það hafi verið von þeirra sem stóðu að lögum um aðstoð við Vestfirði að þau mundu liðka til fyrir frekari aðgerð- um. „Ég lít þannig á að Vestfjarðaað- stoðin geti verið lykill að nýju fjár- magni og lækkun skulda. Á undan- fömum vikum og mánuðum hafa fyrirtækin verið að reyna að skapa sér eigin rekstrargrundvöll með því að hagræða hjá sér og finna sér nýja tekjustofna. Þá er víða verið að leita sameininga á fyrirtækjum og víða á samvinna sér þegar stað,“ segir Ein- ar. Hann segir aðalatriöiö vera það að niðurskurður á þorski og öðrum teg- undum hafi hrikalegar afleiðingar fyrir Vestfirði í heild. „Það er bara einfaldlega þannig að það er ekki mannlegur máttur sem getur komið í veg fyrir að það verði skellur þegar svona hremmingar ríða yfir,“ segir Einar K. Guðfinns- son. Astarhreiður „Þetta á að vera ástarhreiður með bekkjum og beðum, eða svo er sagt,“ segja félagarnir Ragnar Brynjúlfsson, Kjartan Þórðarson og Birgir Pétursson en þeir eru í vinnu hjá Seltjarnarnesbæ við að gera útivistarsvæði á lóðinni á horni Lindarbrautar og Suðurstrandar á Seltjarnarnesi. Þeir félagar hafa að undanförnu unnið við að leggja nýjar hellur á þessum stað því að hellurnar sem þeir voru búnir að leggja voru gallaðar og þurfti að skipta um. Kostnaður við torggerðina er áætlaður ríflega 700 þúsund krónur og á verkinu að vera lokið siðar i sumar. DV-mynd BG Nýjung í ferðaþjónustu: Togari verður skemmtiferðaskip Hópur skipstjóra, útgerðarmanna og sjómanna hefur keypt 14 ára gamian togara frá Englandi sem rek- inn verður sem landkönnunar- og skemmtiferðaskip hér við land og við Grænland en síðustu tíu árin hefur skipið verið björgunar- og skemmti- ferðaskip við olíupallana í Norð- ursjó. Skipið kostaði 30 milljónir króna og verður innan tíðar stofnað hluta- félag um rekstur þess. Ætlunin er að gera skipið út undir nafninu Leif- ur Eiríksson í hvalaskoðunarferðir á Faxaflóa, Eldeyjarbanka og Reykja- neshrygg, gistíferðir með farþega og náttúruskoðun og veiðiferðir við Graenland. „Ástæðan fyrir þvi að við förum út í þessa útgerð er sú að það er orðið mjög þröngt um vik hér á landi í sambandi við fiskveiðar og jafnvel atvinnuleysi í stéttínni vegna kvóta- skeröinga undanfarin ár. Skipið mun liggja í Reykjavíkurhöfn og fara það- an í gistiferðir og hvalaskoðunar- ferðir á ákveðnum tímum. í vetur vonumst við til að geta nýtt það í dráttarverkefni og björgunarstörf í stað Goðans sem fórst í fyrra," segir Sigurður R. Þórðarson, einn af að- standendum útgerðarinnar. Skemmtiferðaskipið Leifur Eiríks- son er nýkomið til hafnar í Reykja- vík en í júní lá skipið við Tower Bridge í Lundúnum. í tengslum við lýðveldishátíðina var rekin útvarps- stöð um borð í skipinu og staðið fyr- ir ýmsum uppákomum, málverka- sýningum og tónleikum, svo aö dæmi séu tekin. ASÍ með viðvönm: Atvinnuleysis- bætur eru skattskyldar ASÍ hefur sent frá sér fréttatil- kynningu þar sem minnt er á að at- vinnuleysisbætur séu skattskyldar þrátt fyrir að vera undir skattleysis- mörkum. „Þess vegna er varasamt fyrir atvinnulausa að láta maka njóta skattkorts hans/hennar því það getur þýtt skatta eftír á sem oft koma fólki í opna skjöldu,“ segir í frétt ASÍ. Að matí ASÍ er nokkuð algengt að maki hins atvinnulausa nýti sér skattkort hans eða hennar á meðan atvinnuleysið varir. Það geti orðið til þess að viðkomandi lendi í skatti eft- ir á. „Þessar síðbúnu skattgreiðslur koma fólki oft í opna skjöldu og hafa valdið fjölskyldum miklum fjárhags- erfiðleikum því þær hafa ekki gert ráð fyrir þeim í útgjöldum sínum." Við kysurn máttn 65 ár við dýnuframleiðslu hafa kennt SERTA heilmikið um það hvemig dýna verður gerð fullkomlega góð. Þar sem þeir hafa lagt sérstaka áherslu á að leysa þau atriði sem fólk kvartar yfírleitt undan þarf kaupandi SERTA dýnu ekki að hafa áhyggjur af þeim. Algengt umkvörtunarefni á dýnum ýmissa framleiðanda, jafnvel dýrra gerða frá þeim, er að þær séu óþægilegar að liggja á. Hin séntaka lausn SBRTA til fullkomnunar þœginda er að nota í réttri samsetningu byigjusvamp, trefjafyllingu og viðnámsbólstun, tœkni sem mun gefa eigenda SERTA dýnu hollan nœtursvefn um ókomin ár. Þegar þú ákveður að kaupa þér amerískt rúm, þá skaltu koma til okkar og prófa hvort þér líkar hörð, mjúk eða millistíf dýna. Starfsfólk okkar tekur vel á móti þér og við eigum Serta dýnumar alltaf til á lager og þeim fylgir margra ára ábyrgð. Um\ amtrisfo #win á fetendi nÍI.I).SHÖFOA 20-112 RKVK.IAVÍK - S<MI 91-BSH89 Opið virka daga til HA6KAUP Skeifunni • Hólagarði • Grafarvogi • Seltjarnarnesi • Akureyri Líka á kvöldin !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.