Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994
3
Fréttir
Fr amkvæmdastj órar stj ómmálaílokkanna að vígbúast:
Allir í viðbragðsstöðu
vegna haustkosninga
- minnst sex vikur frá þingrofi til kosninga - Sumir telja sig þurfa lengri tíma
Verði haustkosningar er liklegt að Alþingi komi ekki saman fyrr en búið er
að kjósa.
Framkvæmdastjórar stjómmála-
flokkanna eru allir komnir í viö-
bragðsstöðu vegna mögulegra haust-
kosninga til Alþingis og allir sögðust
vera tilbúnir ef til þess kæmi. Undir-
búningur væri jafnvel farinn af stað.
Flestir sem DV ræddi við töldu
verulegar líkur á haustkosningum.
Mörg teikn væru á lofti sem bentu
til þess. Jóhanna Sigurðardóttir
hefði gefið í skyn að hún færi í sér-
framboð og væri á leiðinni í hðs-
könnun um landið á næstunni. Ef
Jóhanna færi fram sér myndi Al-
þýðuflokkurinn vilja kosningar sem
fyrst til þess að gefa henni ekki of
mikinn tíma til undirbúnings. Mikl-
ar og erfiðar ákvarðanir yrði að taka
í ríkisfjármálunum á næstunni og
kjarasamningar yrðu lausir. Jákvæð
teikn væru nú í efnahagslífinu, eins
og Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefði rækilega bent á undanfarið,
sem ekki væri hægt að treysta á að
yrði næsta vor þegar búið væri að
ganga frá fjárlögum og samningum.
Einnig yrði þinghaldið næsta vetur
stjómarflokkunum erfitt, sérstak-
lega vegna átakanna í Alþýðuflokkn-
um. Ýmsir viðmælendur DV telja
mjög líklegt að ákvörðun verði tekin
um að ijúfa þing um miðjan ágúst,
þegar beinagrindin af fjárlögunum
er tilbúin, og boða til kosninga.
Erum í startholunum
„Við gerum alveg eins ráð fyrir
haustkosningum og því erum við í
startholunum. Við högum okkar
undirbúningi þannig að kosningar
gætu skoUið á hvenær sem er,“ segir
Einar Karl Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins.
Einar segist gera ráð fyrir að sá sex
vikna fyrirvari fyrir kosningar sem
kosningalöggjöfin segi til um dugi.
Hann segist eiga von á að prófkjör
veröi sem víðast í Alþýðubandalag-
inu.
„Æskilegast væri að fá að minnsta
kosti tvo mánuði svo hægt sé að und-
irbúa sig sem best í hverju kjördæmi
fyrir sig. Hins vegar heyrir maður á
mönnum um allt land að það eru all-
ir tilbúnir í slaginn. Við erum í við-
bragðsstöðu," segir Anna Kristins-
dóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins. Flokksþing
Framsóknarflokksins er á dagskrá í
nóvember, þar á meðal að velja vara-
formann. Stefnt er að þvi að flýta því
ef svo færi að kosningar yrðu í haust.
Anna segist reikna með prófkjörum
sem viðast enda sé það eðlilegasti
framgangurinn. Ákvarðanir um
prófkjör séu teknar á kjördæmaþing-
um í hverju kjördæmi fyrir sig sem
haldin eru í september eða október.
Anna sagði aö menn væru viðbúnir
því að flýta kjördæmaþingunum.
Tilbúnar hvenær sem er
„Viö erum tifbúnar í kosningar
hvenær sem er. Við viöhöfum ekki
prófkjör heldur notumst við skoð-
anakannanir þannig að hugsanfegir
frambjóðendur okkar þurfa minni
undirbúningstíma en gengur og ger-
ist hjá öðrurn," segir Drífa Hrönn
Kristjánsdóttir, starfskona Kvenna-
hstans. Samkvæmt heimildum DV
eru Kvennalistakonur ekki of áfjáðar
í haustkosningar, meðal annars
vegna þess að landsfundur á að vera
í nóvember. Honum þyrfti því að
flýta.
Sigurður Tómas Björgvinsson,
framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins,
sagði í samtali við DV að ef til haust-
kosninga tif Alþingis kæmi teldi
flokkurinn sig ekki þurfa meira en
þær lögboðnu sex vikur sem þyrfti
til að boða kosningar. Hann sagðist
ekki búast við að af haustkosningum
yrði en ef svo færi yrði mætti rekja
það til erfiðleika í fjárlagagerðinni á
næstunni.
„Við erum tilbúnir hvenær sem
er,“ segir Ágúst Ragnarsson á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins. Hann sér
ekki fyrir sér neinn ákveðinn lág-
markstíma varðandi kosningaundir-
búninginn. Þó þurfi augljóslega
nokkrar vikur í undirbúning próf-
kjörs.
NOTAÐIR BILAR
Urval notaðra bíla
Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án utborgunar.
Daihatsu Appiause LTD 1600 '91,
ss., 4 d„ grænn, ek. 30.000. Verð
970.000.
Nissan Sunny SLX '92, 5 g„ 3 d„
rauður, ek. 32.000. Verð 930.000.
MMC Lancer GLXi 1500 ’91, 5 g„
5 d„ brúnn, ek. 42.000. Verð
980.000.
Dodge Aries STW '88, ss„ 5 d„
blár, ek. 140.000. Verð 420.000.
Hyundai Excel ’88, ss„ 4 d„ rauð-
ur, ek. 85.000. Verð 390.000.
Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga 10-14.
NOTADIR
BIIAR
814060/681200
smxJuiANusnKAin' 12.
LADA
Subaru station 1800 '88, 5 g„ 5
d„ hvítur, ek. 85.000. Verð
680.000.
Mazda 323 1500 ’87, 5 g„ 4 d„
grænn, ek. 122.000. Verð 320.000.
Lada station 1500 '92, 4 g„ 5 d„
blár, ek. 4000. Verð 450.000.
Mazda 626 GLX 2000 ’88, ss„ 4
d„ grár, ek. 127.000. Verð 590.000.
Sóllúga,' álfelgur, vökvast.
Ford F-150 5000 EFi ’89, 5 g„ 2
d„ svartur, ek. 105.000. Verð
980.000.
Lada Sport 1600 ’94, 5 g„ 3 d„
hvitur, ek. 7000. Verð 800.000.
Suzuki Swift GL '91, 5 g„ 3 d„
rauður, ek. 37.000. Verð 590.000.
Hyundai Sonata 2000 ’93, ss„ 4
d„ brúnn, ek. 53.000. Verð
1.350.000. Vökvast. rafdr. rúður,
samlæsingar.
Nissan Sunny 1400 '92, 5 g„ 4 d„
grænn, ek. 58.000. Verð 790.000.
Honda Accord 2000 '91, ss„ 4 d„
rauður, ek. 53.000. Verð
1.380.000.