Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLl 1994
Fréttir
Sophia Hansen hafnaöi þremur tilboðum Halims A1 um umgengni við bömin:
Eg veit að hann refsar
dætrunum með of beldi
- eina vonin er að ríkisstjómin mótmæli við yfirvöld í Istanbúl
„Þaö er ömurlegt aö vera hlekkjað-
ur fangi hérna og geta ekki stjórnað
eigin lífi. Ég vona bara aö íslenska
ríkisstjómin mótmæh þessum um-
gengnisbrotum. Ég vil ekki trúa því
að Halim eigi nú eftir aö komast upp
meö síendurtekin brot eitt sumar í
viöbót. Það eina sem ég tel aö geti
haft áhrif í stööunni er aö íslensk
stjórnvöld mótmæli þessum brotum
og hafi samband viö yfirvöld í Ank-
ara og þaö myndi leiða til þess aö
rætt yrði viö Halim,“ sagði Sophia
Hansen í samtali við DV.
„Vélin tætir niður trjágreinar og
þeim er svo blandaö saman í múga,
múgavélin snýr múgunum öðru
hverju og við fylgjumst með hitastig-
inu. Þetta tekur tíu vikur og endar
með mold eöa moldarbæti, eitthvaö
Sophia er stödd í Istanbúl og segist
reikna með aö þurfa að vera þar í
sumar. Hún hefur nú fengið úrskurð
um að fá að hitta dætur sínar um
hverja helgi frá klukkan íimm á
fostudögum þangað til klukkan fimm
á sunnudögum. Þegar Sophia fór á
heimili Halims Al, barnsfóður síns,
á föstudag var enginn heima. Hún
fékk því ekki að hitta börnin frekar
en áöur þegar hún hefur reynt að fá
úrskurði framfylgt um umgengni við
dæturnar tvær.
„Hahm kom með þrjú tilboð fyrir
svipuðum þvi sem menn fá út úr
safnkössunum sínum, nema bara að
þetta gerist hratt og í stórum stíl,“
segir Magnús Stephensen, starfs-
maður Sorpu.
helgina. Eitt var að ég fengi að hitta
stúlkumar heima hjá honum. Hann
lofaði að hann yrði ekki sjálfur á
staðnum en systkini hans yrðu við-
stödd. Annað var að ég hitti dætum-
ar á skrifstofu hans og hann yrði
sjálfur viðstaddur. Þriðja tilboðið var
á þá leið að ég hitti þær í klukkutíma
á kaffihúsi eða þar sem annaö fólk
væri. Hann hefði þá fylgst með
álengdar. Ég hafnaði öllum þessum
tilboðum því ég veit að Halim hefur
ekkert breyst. Eg veit að ef stúlkurn-
ar opna sig við mig og segja mér frá
sínum högum verður þeim refsað
með ofbeldi á sama hátt og gerðist
áður þegar ég fékk að hitta þær. Ég
tek því engum tilboðum. Ég vil ekki
láta þær þurfa að þjást,“ sagði Sop-
hia.
Sophia sagði að Hasip Kaplan, lög-
maöur hennar, heföi spurt hana
hvort hún vildi ekki taka tilboðunum
til að fá að hitta dætumar. Móðirin
kvaöst hafa svarað honum á þá leið
að hún vildi reyna allar aðrar leiðir
en þær sem leiða til þess að börnum
hennar yrði refsað - tæki hún geð-
þóttatilboðum föðurins væri hún um
leið að viðurkenna brot hans.
Sophia býr í íbúð í Istanbúl og
reiknar eins og áður segir með að
þurfa að dveljast þar í allt sumar.
Hún hefur ekki fjárráð til að ferðast
heim til íslands. Tímanum eyðir hún
við að pijóna, horfa á sjónvarp og
við þrif þar sem ryk er mjög fljótt
að safnast fyrir í mengaðri borginni.
Hitinn er nú um 30 gráður í Istanbúl.
Nýtt félag um Þorgeir & Ellert á Akranesi:
^g Beðið er ef tir gjaldþrotaúrskurði
'WV M Nýtt hlutafélag hefur verið stofnað 10 miUjónir króna. Hörður Pálsson fyrir. af nokkrum einstakhngum og Akra- sagöi í samtali við DV að fyrirhuguð Aðspurður hvers vegna bakara- neskaupstaðumreksturskipasmíða- kaup Akranesbæjar á skipalyftu meistari legði fram krafta sína vegna stöðvar Þorgeirs & Ellerts, Þ&E, á Þ&E hefðu gert útslagiö um stofnun skipasmiöastöövar sagði Hörður Akranesi. AðsögnHarðarPálssonar, félagsins. Auka á hlutafé upp í 30 ástæðuna vera skýra. Hann hefði
Daninn Carsten Balle er staddur hér á landi með trjámulningsvél sína til
að tæta niður 3.000 tonn af trjágreinum fyrir Sorpu og er ætlunin að gera
tilraun með að búa til jarðveg úr trjágreinum og öðrum lífrænum úrgangi
i sumar. Balle starfar við að tæta niður trjágreinar fyrir 62 sveitarfélög i
Danmörku. DV-mynd ÞÖK
stjómarformanns félagsins, tekur
það ekki við rekstrinum fyrr en
gamla fyrirtækið hefur verið úr-
skurðað gjaldþrota. Óskað hefur ver-
ið eftir gjaldþrotaskiptum hjá Hér-
aðsdómi Vesturlands í Borgarnesi.
Að sögn héraðsdómara verður sú
beiðni tekin fyrir í fyrsta lagi síöar í
vikunni. Talað er um að nýtt hlutafé-
lag geti jafnvel ekki tekið við fyrr en
í næsta mánuði.
Stofnfé nýja hlutafélagsins er um
milljónir. Framkvæmdastjóri í nýja
fyrirtækinu verður afabarn og al-
nafni stofnanda Þ&E, Þorgeir Jósefs-
son viðskiptafræðingur.
Atvinna um 90 manna er í húfi á
Akranesi og sagði Hörður það hafa
knúiö menn til aðgerða til bjargar
fyrirtækinu. Verkefnastaðan er
þokkaleg fram á haustið. Einn út-
gerðaraðili' áformar að láta smiða
fyrir sig nýtt 1200 tonna fiskiskip og
nokkur viðhaldsverkefni liggja þegar
búiö á Akranesi í 36 ár og bæjarbúar
lengstum ekki vitaö hvað atvinnu-
leysi væri.
„Þá var ég í bæjarstjórn í mörg ár
og við þurftum aldrei að hafa áhyggj-
ur af atvinnuleysi á staönum. Síðan
dynur þetta ástand yfir og menn gátu
ekki horft á það aðgerðalausir að sjá
fram á eitt fyrirtæki í viðbót með 80
til 90 manns í vinnu fara í gjald-
þrot,“ sagði Hörður Pálsson við DV.
í dag mælir Dagfari
Jóhanna talar við fólkið
Jóhanna Sigurðardóttir gaf út
yfirlýsingu í útvarpinu þess efnis
að hún ætlaði að fara út á land og
tala við fólkið. Þessi yfirlýsing kom
í kjölfar greinar sem Jóhanna
skrifaöi í Alþýðublaðið þar sem
hún tók leiðarahöfunda blaðsins á
beinið. Útvarpinu þótti það tíöind-
um sæta að Jóhanna ætlaði út á
land að tala við fólkiö. Fréttastofa
ríkisins leitaði því áhts Sighvats
Björgvinssonar, heilbrigðis-, trygg-
inga-, félagsmála-, iðnaöar-, við-
skipta- og samstarfsráöherra Norð-
urlanda á íslandi, á landsbyggðar-
reisu Jóhönnu. Ráðherrann marg-
faldi sagðist hlynntur því að stjórn-
málamenn færu um og töluðu við
fólkið enda kæmust þeir þá oft að
raun um að hlutimir væru ekki
eins og þeir héldu. Og Jóhanna
hlyti aö ætla sér aö tala viö fóUdð
sem þingmaður Alþýðuflokksins.
Aðrir halda því fram að Jóhanna
hafi ákveðið að tala við fólkið til
að kanna hvort hún eigi sjens í
sérframboð.
Ekki fær hver sem er að hnýsast
í efni Alþýðublaðsins og virðist
blaðinu dreift eftir einhverju neð-
anjaröarkerfi. Fyrir klíkuskap
tókst Dagfara þó að verða sér úti
um eintak af blaðinu þar sem Jó-
hanna skrifar opið bréf til leiðara-
höfunda blaðsins. Þeir skríbentar
eru ónafngreindir en Jóhanna kall-
ar þá stráka svo enginn haldi að
konur úr hópi krata skrifi leiöara
í Alþýðublaðið. Af grein Jóhönnu
verður ekki annaö ráðið en hún
hafi orðið fyrir skítkasti í leiðurum
málgagnsins. Hún segist vön því
aö kljást við andstæðinga Alþýðu-
flokksins og þar sé hún á heima-
velli. En bætir svo við:
„Verra þykir mér þegar í mig er
sparkað beint eða óbeint undir rós
og ég sökuð um óréttlæti í garð for-
ystu Alþýðuflokksins af málgagni
þess flokks sem ég að minnsta kosti
enn sem komið er tilheyri."
Það er ekki verið að skafa utan
af hlutunum. Og það er ekki furða
þótt Jóhönnu sé heitt í hamsi. Fram
til þessa hefur kratarósin verið
tákn um jafnrétti, bræðralag og
embættaveitingar, eða hvað það nú
er sem kratar setja á oddinn. En
nú gerast leiðarahöfundar mál-
gagnsins svo forhertir að þeir ráð-
ast að Jóhönnu bæði beint og undir
kratarósinni. Allt er þetta auðvitað
gert að undirlagi Jóns Baldvins, en
í greininni segir Jóhanna að hana
minni að Jón hafi farið til Kína.
Þar kom Jóhanna með eitursnjalla
sendingu á formanninn; Hann er
alltaf á þvæhngi vitt og breitt um
heiminn, enginn man eöa veit hvar
hann er hverju sinni. En ég ætla
út á land að tala við fólkið.
Þetta mál væri allt mjög safaríkt
fréttaefni ef það ætti sér stað í ein-
hverjum öðrum flokki. Þá þætti
afsögn Jóhönnu sem ráðherra og
ummæh hennar varðandi aðild að
flokkmnn stórtíðindi. En menn eru
orðnir svo vanir alls konar upp-
hlaupum hjá krötum að þessi síð-
asta snerra Jóhönnu við sjálfa sig
vekur htlu meiri áhuga en fréttir
um lokun landaverksmiðju.
Þegar öhu er á botninn hvolft eru
það því ekki tíðindi að Jóhanna og
Jón Baldvin skuli vera að jagast
eða að Jóhanna skammi flokksmál-
gagnið. Það eru hins vegar tíðindi
að Jóhanna ætlar að fara og tala
við fólkið og heyra hvað það hefur
að segja. Orðrómur um haustkosn-
ingar hlýtur að magnast. Það er
nefnilega ekki vani stjórnmála-
manna að tala við fólkið nema fyr-
ir kosningar. Mihi kosninga tala
þeir bara hver við annan, við
stjórnmálamenn í öðrum löndum
og við embættismenn. En þeir tala
ekki af fyrra bragði við fólkið nema
þeir þurfi á atkvæöum að halda.
Og fyrst Reykjavíkurþingmaður-
inn Jóhanna ætlar út á land að tala
við fólkið og leggjast í vinnustaöa-
heimsóknir hlýtur hún að vera að
undirbúa sérframboð. Eða þá að
hún er komin með Messíasar-
komplexa. Það er alla vega ekki að
ástæðulausu sem fariö er að tala
við fóUúð um hábjargræðistímann
þegar það á sér einskis Uls von.
Dagfari