Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLl 1994
7
Fréttir
Skiptar skoðanir um afleiðingar heitavatnsborunar við Ráðagerði á Seltjamamesi:
Búið er að eyðileggja
fjöruna og fjörukambinn
- segir Katrín Pálsdóttir bæjarfulltrúi - Ekkert slys og allt sett í sama horf aftur, segir bæjarstjóri
„Búiö er að bora fyrir heitu vatni
og eyðileggja fjörukambinn og mjög
fallega fjöru við Bygggarða norðan
megin á leiðinni út í Gróttu. Þetta
er ósmekklegt og illa unnið ferlíki á
svæöi sem er á náttúruminjaskrá og
eitt umhverfisslysið í viðbót hér á
Seltjamarnesi. Við gagnrýnum að
þetta skyldi hvorki hafa verið rætt í
bæjarstjóm né umhverfisnefnd.
Bæjarstjóri tók bara upp á þessu hjá
sjáífum sér og byijaði á þessu án
þess að tala við kóng eða prest," seg-
ir Katrín Pálsdóttir, bæjarfulltrúi á
Seltjamarnesi.
Verið er að bora eftir heitu vatni á
sjávarkambinum á leiðinni út í
Gróttu rétt vestan við Bygggarða á
Seltjarnamesi og stendur hitaveitu-
stjóm að framkvæmdunum. Búið er
að leggja veg að svæðinu og búa til
stóran borpall úr möl. Verið er að
forbora niður á 100 metra fyrir bor-
inn Jötun sem verður settur upp í lok
vikunnar. Borað verður eftir heitu
vatni niður á 2.700 metra og á verkið
að taka tíu til tólf vikur.
„Þetta er mjög vel gert og veröur
sett í sama horf aftur þegar borunum
verður lokið eftir tólf til fjórtán vik-
ur. Það hefur ekkert slys skeð þama.
Hitaveitustjórn er sjálfstæð og hefur
völd til að ganga frá þessu. Þetta var
að sjálfsögðu lagt fyrir hana. Svæðið
er ekki á náttúruminjaskrá, viö emm
mjög passasamir með slíkt. Þessi bor
er búinn að vera í geymslu hjá Jarð-
borunum og það hentaði vel að geta
notað hann þama. Það er vonandi
að þetta skili því sem að er stefnt,"
Veriö er að forbora eftir heitu vatni á fjörukambinum á leiöinni út i Gróttu og er búið að gera veg og borpall á
stóru svæði viö Ráðagerði. Á innfelldu myndinni er borinn sem notaður er við framkvæmdirnar. DV-myndir BG
Hér bora Jarðboranir H/F
2700 metra djúpa holu lyrir
Hitaveitu Seltjarnarness
Verkið er áætlað 10-12 vikur
Hitaveita Seltjarnarness
Borað eftir heitu vatni
Borpallur
O
Borhola
90 metrar
Bákkatji
Nesstofa,
orn
Gamli Múlaveg-
urinn ruddur
segir Sigurgeir Sigurösson bæjar-
stjóri.
Gert er ráð fyrir aö kostnaður við
borunina nemi tugum milljóna
króna en í vetur var prufuborað á
mörgum stöðum á Seltjamarnesi, í
gömlu kartöflugörðunum, við Suður-
ströndina og á fleiri stöðum, og voru
jarðfræðingar sammála um að
prufuholan í Ráðagerði gæfi lang-
bestu vísbendinguna um heitt vatn í
jöröu.
Flugleiðir á Indlandi:
Gæti skapað störf
fyrir 50 íslendinga
- samið við indverskan auðjöfur
Flugleiðir áforma í samstarfi við
indverska auðjöfurinn Ravi Tikkoo
að stofna flugfélag á Indlandi. Um er
að ræða áætlunarflug milli 11 staða
þar í landi. Félagið hefur hlotið nafn-
ið Indotik Airways og er umsókn um
flugrekstrarleyfi fyrirhggjandi hjá
indverskum stjómvöldum.
Að sögn Péturs J. Eiríkssonar hjá
Flugleiðum leggur Ravi til fjármagn-
ið og Flugleiðir mannskap og þekk-
ingu. Starfsemin krefst 50 manns í
vinnu til að byrja með og að sögn
Péturs verður leitað til íslendinga í
þau störf. Með tímanum veröa Ind-
verjar síðan þjálfaðir í flest störfin.
Um er að ræða flugvirkja, flugáhafn-
ir og starfsfólk og stjórnendur í flug-
afgreiöslum.
Beðið er eftir flugrekstrarleyfinu
og áformað að heíja starfsemi í okt-
óber nk. Pétur sagði í samtali við DV
að ekki væri búið að ákveða hvað
auglýst yrði eftir mörgum starfs-
mönnum vegna Indotik Airways en
eitthvað yrði leitað til núverandi
starfsmanna Flugleiða.
Reiknað er með að þrjár Boeing
þotur sinni áætlunarfluginu í Ind-
landi. Auk þess að leggja til starfs-
menn og þekkingu býðst Flugleiðum
að kaupa 25% hlut í Indotik Airwa-
ys. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
auðjöfurinn Ravi Tikkoo leitar til ís-
lenskra fyrirtækja því Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna á í samstarfi við
Tikkoo samsteypuna um undirbún-
ing túnfiskveiða og -vinnslu við Ind-
landshaf. Það var nefnilega Sölumið-
stööin sem benti Ravi á Flugleiðir en
auðjöfurinn er meö stór áform um
fjárfestingar í Indlandi.
Biskupstungur:
Helgi Jónsson, DV, ÓlaMrði:
Gamh Múlavegurinn var ruddur
lauslega í síðustu viku og er nú
fært út að Flagi sunnan frá, það er
Ólafsfjarðarmegin. Að sögn vega-
gerðarmanna var talsvert um gijót
á veginum en ekki verður um að
ræða formlegt eftirlit á veginum
af þeirra hálfu. Nokkuð er um að
gamhr Ólafsfirðingar aki veginn
og ferðamenn hafa skoðað hann í
sumar. Hann er þó ekki talinn ör-
uggur öllum bílum.
Fjögurra bfla árekstur
Fjögurra bíla árekstur varð við hvaðökumaðureinsbílsinsvarflutt- ekið aftan á tvo kyrrstæða bíla. Ör-
gatnamót Biskupstungnabrautar og ur til læknisskoðunar á Selfossi til skömmu síðar lenti íjóröi bílhnn aft-
Suðurlandsvegar síðdegis á sunnu- öryggis. an á hina þijá. Skemmdir urðu
dag. Meiðsl urðu ekki á fólki nema Ohappið varð þannig að bíl var nokkrar á bílunum.