Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ1994
9
Utlönd
Játvarði prinsi
Játvaröi
prinsi á Eng-
landi hefur
veriö boöið aö
setiast í hásæt-
; iö í Eistlandi og
gerast kóngur
þarlendra. Það
var flokkur
eistneskra konungssinna sem
bauð Játvarði starfið.
Eistland varð sjálfstætt riki ár-
ið 1991 og'þótt konungssinnar
hafl um tíu prósent þingsæta eru
ekki áform uppi um að breyta
stjórnarfarinu og stofna konung-
dæmi. Ekki eru miklar líkur á að
Játvarður þiggi gott boð.
Sjómannsfor-
maðurvarar
Norðurlönd við
Nýkjörinn formaður danska
sjómannasambandsins, Bent
Rulle, hvetur þau Norðurlönd
sem eru að sækja um aðild að
Evrópusambandinu til að halda
sér langt í burtu frá þvi. „Ef ég
hugsa um velferð norrænna
bræðraþjóða okkar þá hvet ég
þær til að halda sig í mörg hundr-
uð kílómetra fjarlægð frá ESB.
En ef ég tek eingöngu tillit til
hagsmuna danskra sjómanna þá
vona ég aö Norðmenn gangi í ESB
því þá verða aðstæður þeirra jafn
slæmar og okkar.“
Á síðustu árum hefur kvóti
Dana verið skorinn mikið niður.
Þorskveiðar hafa t.d. minnkað
um helming frá 1991.
Áannaðhundr-
aðSvíarlétust
afvöldumlyfja
í Svíþjóð voru í fyrra skráð
4.500 veikindatilfeUi sem grunur
lék á að stöfuðu af lyfiatöku. í 90
prósentum tilfellanna er sam-
bandið milli lyfiatöku og veikinda
talið líklegt. 110 dauðsfóll eru
einnig talin stafa af lyfjatöku. 68
af þessum 110 dauðsföllum voru
vegna blæðinga sem höfðu orsak-
ast af lyfium. 45 dauðsfallanna
eru talin hafa orsakast af blóð-
þynningarlyfinu Waren.
Asetýlsalísýlsýra, sem er í
venjulegum verkjatöflum eins og
magnýl og treo, var nefhd í sam-
bandi við 8 dauðsfoll. Talið er að
rekja megi 3 dauðsfóU til verkja-
lyísins paracetamols. . 1
Graham Greene
njðsnaðifyrirþá
breskuMlö
Breski rithöt-
undurinn Gra-
ham Greene
notfærði sér
frægð sína og
umgengni viö
leiðtoga komnv
únistaríkja til
þess að njósna
fyrir bresku leyniþjónustuna MI6
í áratugi, að sögn ævisöguritara
hans, Michaels Sheldens.
Shelden segir að væntanleg bók
hans um Greene byggist á upp-
lýsingum frá breskum embættis-
mönnum sem þekki til efnisins,
svo og upplýsingum úr heimi
njósnanna.
Þaö hefur alltaf verið á almanna
vitorðí að Greene gekk til liðs við
MI6 snemma í heimsstyijöldinni
síðari og þjónaði í gagnpjósna-
deildinni í Vestur-Aíríku til ársins
1944. Shelden segir að Greene hafi
einníg tekiö að sér stöku verkefni
langt fram eftir áttunda áratugn-
um. Reuter, Ritzau
Efasemdir um líkamsleifar í Niðarósdómkirkju:
Ólaf ur helgi er
ekki í kistunni
Það eru ekki bein Ólafs helga Nor-
egskonungs og verndardýrlings
Norðmanna sem hvíla í dómkirkj-
unni í Niðarósi, heldur bein einhvers
annars að áliti sagnfræðingsins
Grethe Authen Blom frá Þránd-
heimi. Yfirlýsing hennar hefur vakið
mikla athygli en hún heldur því fram
að beinum annars manns hafi verið
komið fyrir í kistunni einhvern tím-
ann á fjórtándu öld. Meint bein Ólafs
helga voru jarðsett í Niðarósdóm-
kirkju árið 1031 og dómkirkjan byggð
á árunum 1150-1300 yfir gröf hans.
Ólafur lögleiddi kristni sem einu
trú í Noregi og skipulagði kirkjuna
en var hrakinn frá völdum af Knúti
ríka Danakonungi árið 1028 og féll í
Stiklastaðaorrustu er hann reyndi
að endurheimta ríki sitt. Leifar Ólafs
helga hafa verið taldar eitt helsta
helgitákn kirkjunnar síðan.
Eftir að Ólafur var lýstur helgur
maður árið 1031 var Úkamsleifum
hans dreift í kirkjur og kapellur um
gjörvallt Noregsríki á næstu ár-
hundruðum að sögn Grethe Authen.
Fölsunin hafi hins vegar farið fram
til að tryggja sess Niðarósbæjar sem
eins af helgustu stöðum Norðmanna.
Þessar sögusagnir um meinta föls-
un hafa áður komið fram í dagsljós-
ið. Á sextándu öld komu fram efa-
semdir um aö líkamsleifamar sem
geymdar væru í Niðarósdómkirkju
væru af Ólafi helga Haraldssyni. Þá
voru munkar í kirkjunni bornir þeim
sökum að hafa komið fyrir líkams-
leifum annars manns. NTB
jrm
—
John Major,
herra
Kret-
arvaldi til að
sem Bretum væri
ekki að skapi settist í stól forseta
framkvæmdastjómar Evrópu-
sambandsins.
Major kom í veg fyrir að Deha-
ene, forsætisráðherra Belgíu,
fengi starfið og í viðtali við breska
útvarpið BBC sagði hann að enn
væri ekki einhugur innan ESB
um eftirmann Jacques Delors.
Helmut Kohl Þýskalandskansl-
ari gaf félögum sínum innan ESB
frest fram að helgi til aö koma sér
saman um nýjan forseta. Fundað
verður um málið 15. júlí. Reuter
Kim Jong-il, elsti sonur og arftaki hins ástsæla leiðtoga Norður-Kóreu-
manna, Kims lls-sungs. Símamynd Reuter
Kim Jong-11, væntanlegur leiðtogi Norður-Kóreu:
Hryðjuverkamað-
ur og glaumgosi
Lík Kims Ils-sungs, leiðtoga Norð-
ur-Kóreu, lá á viðhafnarbörum í for-
setahöllinni í miðborg höfuðstaðar-
ins Pyongyang í morgun. Á sama
tíma bárust af því fréttir að æðstu
valdamenn landsins sætu á fundi til
að tryggja að Kim Jong-il, elsti sonur
hins látna leiðtoga, tæki við af föður
sínum.
Sjónvarpið í Suður-Kóreu sýndi í
morgun myndir þar sem Kim Jong-il
tók grátbólginn á móti gestum í for-
setahöllinni þar sem lík föður hans
liggur í kristalskistu. Meöal þeirra
sem sáust við hlið sonarins voru
varnarmálaráðherrann, forsætis-
ráðherrann og aðrir háttsettir menn.
En maðurinn sem senn tekur við
valdataumunum í Norður-Kóreu
sagði ekki eitt einasta orð við sendi-
mennina sem vottuðu föður hans
virðingu sína.
Væntanlegur leiðtogi Norður-
Kóreu, Kim Jong-il, er 52 ára gamall,
þybbinn maður með gleraugu. í tutt-
ugu ár ól faðir hans hann upp í því
að taka við forustu landsins. Kim
yngri þykir leyndardómsfullur mað-
ur og Utt gefinn fyrir að vera í sviðs-
ljósinu. Á síðari árum tók hann sí-
fellt meiri þátt í daglegri stjórn lands-
ins og frá árinu 1991 hafði hann her-
inn á sinni könnu. Engu að síður
hafa menn verið með vangaveltur
um að andstaða væri við hann innan
hersins og kommúnistaflokksins.
Heimildarmenn innan erlendra
leyniþjónusta kölluðu hann duttl-
ungafullan, óstöðuglyndan glaum-
gosa og sögðu hann bera ábyrgð á
fjölda hryðjuverkaárása á suður-
kóresk skotmörk á níunda áratugn-
um.
Honum var almennt kennt um að
vera höfuðpaurinn á bak við
sprengjutilræði í Rangoon í Burma
árið 1983 sem varð suður-kóreskum
ráðherrum að bana. Þá hefur Kim
Jong-il verið sakaður um að bera
ábyrgð á sprengingu sem varð í far-
þegaflugvél árið 1987 og grandaði öll-
um sem um borð voru, 115 manns.
Reuter
A£G AEG AEG AEG A8G AEG AEG AEG MG ÁEG AEG AEG
Nýjar gerbir og litir - Hagstætt verb.
Vampyr 730
kraftmikil
1300 wött
dregur inn
snúruna,4 föld sía
2 fylgihlutur,Litur: Ijósgró.
verft kr. 13.678,-
Stgr. kr. 12.994,-
Vampyr 7100
1300 wött,
stiilanlegur sogkraftur,
dregur inn snúruna,
4 föld sía
innbyggS fylgihluta-
geymsla.
Litur: Jökulgrá.
Ver& kr.14.501,-
Stgr. 13.776,-
Vampyr 8200
1500 wött,
stillanlegur sogkraftur,
ó föld sía,
dregur inn snúruna,
nnbyggS fylgihlutageymsla.
Litur: Hvít.
Verft kr, 16.735,-,-
Stgr. kr. 15.899,-
B R Æ
Vampyr 7200
1300 wött, stillanlegur
sogkraftur, 4 föld sía,dregur
inn snúruna,
innbyggS fylgihlutageymsla.
Litur: RauS.
Ver& kr. 15.742,-,-
Stgr. kr. 14.955,-
DJQKMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
Umbobsmenn um land allt
A£G AEG A8G ASG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG <