Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLl 1994
11
i>v Fréttir
Rúmlega 73 þúsund útlendingar til íslands á hálfu ári:
Erlendum ferðamönnum
hef ur fjölgað verulega
- aukningfrásíðastaárier23%
„Núna er að skila sér mjög mikil
vinna einstaklinga, fyrirtækja og
hagsmunaaðila í markaðssetningu
og kynningarmálum. Samhliða hefur
náðst samvinna varðandi verðlagn-
ingu sem kemur fram í því að gisti-
staðir tóku á sig virðisaukaskattinn
sem skall á um áramótin í staðinn
fyrir að hella honum út í verðlagið.
Við höfum einnig verið með ákveðna
stórviðburði eins og lýðveldishátíð,
landsmót hestamanna, hstahátíð og
fleiri atburði," segir Magnús Odds-
son ferðamálastjóri.
Að sögn Magnúsar slógu margir
saman heimsókn sinni til íslands á
þessa stóru atburði. Ekki er mögu-
legt að telja hversu margir komu til
landsins vegna hvers atburðar.
Landsmótshaldarar reiknuðu samt
með að gestir þar hefðu verið á milli
eitt og tvö þúsund. Fjölmiðlaumræð-
an, sem varð í kringum lýðveldisaf-
mæhð, hafði sitt að segja. Erlendir
gestir í júní urðu alls 26.699 en í sama
mánuði í fyrra voru þeir 21.669.
Aukningin er um 23%. Ef litið er á
fjölda erlendra gesta fyrstu 6 mánuði
Ökuíþróttir:
Island með í
þáttum hjá BBC
Þáttagerðarmenn frá bresku sjón-
varps- og útvarpsstöðinni BBC koma
hingað til lands í lok júh til að gera
þátt um íslenska vetrarferða-
mennsku og jeppaferðir í þáttaröð
um helstu bílalönd heims en einn
maður frá BBC var hér á landi ný-
lega í fimm daga könnunartökum.
Gert ráð fyrir að þættimir verði
sýndir á BBC World Service í janúar
eða febrúar á næsta ári.
„Þeir voru með mann hér um dag-
inn í fimm daga og svo koma þeir í
tökur eftir hálfan mánuð. Þetta er
ný sería sem verður sýnd í janúar
eöa febrúar. í þáttunum verða öU
helstu bílalönd heims tekin fyrir,
byijað á Japan, svo ísland og þá
Bandaríkin. Þessir menn fengu efni
frá þættinum Mótorsport og sáu þar
ýmislegt áhugavert. Forseti lands-
sambandsins fór svo út á fund með
þeim og þeir komu hingað til að
skoða aðstæður og ákváðu að búa til
þátt því að nóg er efnið hérna,“ segir
Bragi Bragason, framkvæmdastjóri
fjölmiðladeildar Landssambands ís-
lenskra akstursíþróttafélaga.
NordiskForum:
Laust með f lugi iil
Stokkhólms og ferju yf ir
„Konur sem eru á biðUsta til Finn-
lands geta komist þangað með flugi
til Stokkhólms 28. júU og áfram með
feiju 29. eða 30. og svo heim með
beinu flugi að morgni 8. eða 9. ágúst.
Þetta er hægt að staðfesta eigi síðar
en strax í dag,“ segir Gréta Eiríks-
dóttir, starfsmaður hjá Flugleiðum.
Rösklega 50 konur eru á biðlista
eftir beinu flugi á kvennaráðstefn-
una í Turku í Finnlandi dagana 1.-6.
ágúst en tæplega 1.300 íslenskar kon-
ur hafa skráð sig á þessa 15.000
kvenna ráðstefnu. I auglýsingum um
helgina voru konur sem hættar eru
við að fara á ráðstefnuna hvattar til
að láta starfsmenn Flugleiða vita.
„Ef fólk er harðákveðið í að fara
utan með flugi dagana 29., 30 eöa 31.
er ég hrædd um að það verði að sýna
öllu meiri biðlund því þetta gengur
rosalega hægt. Þær sem eiga bókuð
sæti og hafa ekki látið vita að þær
væru hættar við þyrftu að láta okkur
vita strax til að liðka fyrir þeim sem
eru á biðlista," segir Gréta.
Skrifstof unum í Njarðvík og
Höfnum lokað innan tíðar
Starfsmönnum sameinaða sveitar-
félagsins í Keflavík, Njarðvik og
Höfnum hefur fækkað nokkuð að
undanfomu þar sem margir starfs-
menn hafa hætt störfum vegna ald-
urs eða flutt sig í ný störf. Ekki er
búist við að gripið verði til uppsagna
þegar bæjarskrifstofum Njarðvíkur
og Hafna verður lokað innan tíðar
en sveitarstjómarmenn nýja sveitar-
félagsins á Suðurnesjum hyggjast
semja við starfsmenn á aldrinum
67-69 ára um að þeir ljúki störfum
fyrr en áætlað var. Umræða um
starfsmannamál fer fram í næstu
viku.
„Ekki er búið að taka ákvörðun um
hvenær skrifstofunum í Höfnum og
Njarðvík verður lokað en það verður
gert innan tíðar. Ég er á bæjarskrif-
stofunum í Njarðvík þar til þeim
verður lokað en það stendur tíl að
gera það hægt og bítandi. Ákveðið
hefur verið að bæjarskrifstofur hins
nýja sveitarfélags verði á einum stað
að Tjamargötu 12 í Keflavík," segir
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri nýja
sveitarfélagsins.
Kosningar um nafn á hið samein-
aða sveitarfélag á Suðumesjum var
til umræðu á síðasta bæjarstjórnar-
fundi og var ákveðið að taka máhð á
dagskrá eftir sumarleyfi í haust.
„Við þurfum talsverðan undirbún-
ingstíma þannig að það verður ekki
fyrr en seint í haust eða í vetur sem
kosningar um nýtt nafn fara fram,“
segir Ellert.
Fjöldi erlendra ferðamanna til Islands
— fyrstu sex mánuöi ársins 1993/1994 •
Heildarfjöldi
Hlutfalisleg skipting
' ú 1994*
Bandarlkin
Danmörk
Svíþjóð
Bretland
Noregur
17%
l/l1%
1993 1994
* Prósentutölur sýna breytlngu milli ára
Holland U 39%
Frakkland 3130%
Finnlarid C1 45%
Sviss [J-15%
Japan (118%
EQ
ársins eru þeir alls orðnir 73.254 sem
er 14 þúsund fleiri en í fyrra.
„Við höfum sett ákveðið fjármagn
í markaðssetningu á ráðstefnum og
fundum. í fyrsta skiptí nú í vetur
vom settar 100 milljónir aukalega í
markaðssetnigu á íslandi í hreinar
auglýsingar á erlendum mörkuðum
á vegum samgönguráðherra og Flug-
leiða. Þegar öllu þessu er blandað
saman ætti ekki að koma manni á
óvart þótt árangur skih sér,“ segir
Magnús.
Magnús bendir hka á að bætt efna-
hagsstaða á okkar markaðssvæðum
hafi sitt að segja. Ekki er þó samræmi
á núlh magnaukningarinnar og
tekjuaukningar því að sögn Magnús-
ar hefur verð lækkaö.
„Það er engin spuming að við erum
að auka þær gjaldeyristekjur, sem
voru 15 milljaröar í fyrra, um ein-
hver prósent að raungildi þó það
verði ekki í þessum tugum prósenta
sem við erum að sjá magnið aukast
í. Ég vh alls ekki fara að slá á neinar
tölur, það er útílokað. Það eru áætl-
anir um að reyna að auka meira,
sérstaklega utan þessa háannatíma,
um áramót, vorferðir, haustferðir og
sérhæfðar ferðir."
Varpl H
Lausavegi 24, sími 624525
IJWájj'J J 3Jj'jJ#\ 934750
VERÐ KR. 39,90 MÍNÚTAN
Spáöu í úrslit heimsmeistarakeppninnar í fótbolta meö
lesendum DV. Þú hringir í síma 99-1750 og velur efnisflokk
1212. Þú getur spáð um úrslit Búlgaríu gegn Ítalíu,
Brasilíi gegn Svíþjóc eða valiö hver þú telur að veröi
heimsmeistari.
Úrslit spárinnar veröa síöan birt á íþróttasíðum DV þar sem
þú getur fylgst með hversu forspáir lesendur DV eru.
Verður þú sá heppni?! Þrítugasti hver þeirra sem hringir
inn vinnur 18" pitsu frá Hróa Hetti og 2ja lítra TAB X-TRA
frá Vífilfelli.
Þú getur sem vinningshafi hringt í Hróa Hött strax daginn
eftir og fengið pitsuna ásamt 2ja lítra TAB X-TRA sent heim.
Síminn er 44444.
VERTU MEÐ í HM-SPÁNNI í SÍMA 99-1750