Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 17 nna, lék vel gegn KR-ingum í gærkvöldi og hér sjáum við hann gefa sínum mönnum tilskipanir. DV-myndir GS idautt jaf ntef li kenndist af geysilegri baráttu þar sem boltinn gekk mótherja á milli en lítiö var um marktækifæri. Síöari hálíleik- urinn var mun fjörugri en sá fyrri en það var eins og bæði hö hugsuðu fyrst og fremst um það eitt að fá ekki á sig mark. Nokkur færi voru á báða bóga en góðir markverðir liðanna sáu svo um að leikurinn varö markalaus. KR-ingar gerðu nokkrar breytingar á liði sínu eftir skellinn gegn Þórsurum. Framherjamir Tryggvi og Tómas Ingi voru teknir út úr liðinu og í þeirra stað léku í fremstu víglínu Heimir Porca og Sigurður R. Eyjólfsson. Rúnar Kristins- son lék á hægri kantinum og í vörninni léku Sigurður B. Jónsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson. Ekki skilaði þessi uppstilling þremur stigum í safn KR- inga sem enn fjarlægjast efstu liðin og eru nú komnir í fjórða sæti Trópí-deild- arinnar. KR-ingar hafa valdið fjölmörg- um stuðningsmönnum sínum miklum vonbrigðum í sumar og taki leikmenn liðsins sig ekki verulega á í komandi leikjum fer titillinn endanlega að hverfa úr augsýn enn eitt árið. Kristján Finn- bogason stóð fyrir sínu í markinu og var besti maður liðsins. Valsmenn komu með allt öðru hugar- fari til þessa leiks en í leiknum gegn Blikunumi á dögunum enda að duga eða drepast fyrir þá. Lárus Sigurðsson átti mjög góðan leik í markinu og sýndi loks sitt rétta andlit. „Ég er búinn að vera óánægður með mína frammistöðu í sumar og ég held að flestir í liðmu geti tekiö undir það að þeir hafl verið óánægðir með sína frammistöðu. Núna liggur leiðin upp á viö hjá okkur öll- um,“ sagði Lárus eftir leikinn. Guðni Bergsson og Kristján Halldórsson mjög traustir í vörmnrn og Ágúst Gylfason átti ágæta spretti. Engin viðtöl hjá KR Guðjón Þórðarson, þjálfari KR-mga, var ekki hress eftir leikinn og meinaði hann blaðamönnum að eiga viötöl við leik- menn sína eftir leikinn. Guðjón sagði að blaðamenn gætu bara skrifað um hvað hafi gerst í leiknum og ekki þyrfti nánari útskýringa við hjá honum eða leikmönnunum. Kef lavík í 3. sætið Ægir Már Kársaon, DV, Suöumesjum: tfyrirHM’95: yggingu birgða nota íþróttahúss en þeim varð ekki að ósk sinni. Á fundi ráðsins í gær var komist að þeirri niðurstöðu að bygging hússins væri óframkvæm- anleg á þeim tíma sem framundan er þar til HM hefst í byrjun maí á næsta ári. Hvort hús til bráðabirgða verður reist yfir gervigrasið ætti að koma í ljós í þessari viku. „Mér fannst við spila vel. Við sköp- uðum okkur færi og áttum skilið að vinna leikinn. Ég er mjög ánægður með hvernig liðið hefur spilað þessa tvo síðustu leiki. Strákarnir gefa sig alla í leikina og það skiptir miklu máli,“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari ÍBK, eftir sigur sinna manna á Þór. Pétur hefur haft góð áhrif á leik- menn ÍBK sem eru farnir að spila og nýta þá hæflleika sem þeir hafa og liðið er komið upp í þriða sæti deildarinnar. Völlurinn í Keflavik var erflður fyrir leikmenn sem áttu erfltt með aö fóta sig á hálum vellinum. Leikur- mn bauö því upp á mikla hörku og mikið var um rennitækhngar. Kefl- víkingar fengu nokkur góð færi í fyrri hálfleik en Ólafur Pétursson sá við sínum gömlu félögum í markinu. Besta færi Þórs átti Vitorivic en skot hans lenti í markslánni. Síðari hálfleikur var íjörugur. Egill Már dæmdi tvær vítaspymur, eina á hvort lið, og eftir að hafa séð leikinn í sjónvarpi var ekki að sjá annað en að dómar Egils hafi verið réttir. Þórs- arar urðu fyrir áfalli þegar Ólafur Pétursson, markvörður þeirra, var rekinn af leikvelli en hann sparkaði knettinum í höfuð dómarans eftir að Keflvíkingar höfðu jafnað metin úr vítaspymu og síðar í leiknum fór Jóhann B. Magnússon sömu leiö. 50. mark Óla Þórs Það var varamaðurinn Sverrir Þór Sverrisson sem lagði upp sigurmark- ið á glæsilegan háttt fyrir Óla Þór sem skoraði sitt 50. mark í 1. deild. „Dómarinn eyðilagði leikinn. Þú hlýtur að hafa séð það en annars hef ég ekki meira að segja,“ sagði Sigurð- ur Lárusson, þjálfari Þórsara, eftir leikinn en hann var mjög ósáttur við dómgæsluna í leiknum. íþróttir Kristinn tilÞórs Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn: „Ég er mjög ánægður með að fá þennan sterka leikmann til liðs við okkur og þetta er rosalegur liðs- auki,“ sagði Hrannar Hólm, þjálf- ari úrvalsdeildariiðs Þórs í körfu- knattleik, en Keflvíkingurinn Kristinn Friðriksson er genginn til iiðs við Akureyrarfélagið. Kristinn verður Þórsurum mikill styrkur enda á ferö einn besti körfuknattleiksmaður landsins. Sandy Anderson leikur á ný með Þór á næsta tímabili. Keflvíkingar hafa misst tvo mjög sterka leik- menn frá síðasta tímabili en Guð- jón Skúlason fór sem kunnugt er til Grindvíkinga. Kristinn Friðriksson er genginn til liðs við Þór á Akureyri. Stuttar fréttir frá HM Grasið verður selt Eftir leik ítala og Búlgara annað kvöld í undanúrslitunum verður grasið á Giants Stadium vellinum bútað niður og selt til áhorfenda er kaupa vilja. Hæð yfir sjávarmáli Alþjóða knattspymusambandið, FIFA, kannar nú möguleika á því að setja reglur varðandi takmark- anir á hæð yfir sjávarmáli þar sem leikir í heimsmeistarakeppni fara fram. Tassotti fékk 8 leiki ítalski leikmaðurinn Mauro Tas- sotti, sem nefbraut andstæðing sinn í leiknum gegn Spáni á dögun- um, var í gærkvöldi úrskurðaður í átta leikja bann af aganefnd Al- þjóða knattspyrnusambandsins. Tassotti, sem braut á Spánverjan- um og verðskuldaði rautt spjald og vítaspymudóm, var að auki dæmd- ur í 15 þúsund dollara sekt. Illgner svarti sauðurinn Berti Vogts, þjálfari Þjóðverja, sagðist í gær hafa sett allt sitt traust á markvörðinn Bodo Illgner á HM en hann hefði bragðist. „Ég treysti honum vegna mikillar reynslu en ég varð mjög vonsvikinn," sagði Vogts í gær. Ekki benda á mig Þessi yflrlýsing Vogts kemur nokk- uð á óvart og óvenjulegt verður það að teljast að þjálfari skelli skuld svo harkalega á einn leikmann þegar illa gengur. Vogts sagðist í gær vilja halda áfram með þýska landsliðið og viðurkenndi engin mistök sjálf- ur fyrir utan það að hafa valið Illgner í markið í stað Andreas Köpke. Illgner segist hættur Bodo Illgner sagðist vera hættur í landsliðinu strax eftir leikinn gegn Búlgörum. Kannski sjálfhætt þegar þjálfarinn gagnrýndi hann einan leikmanna sinna harðlega eftir leikinn. Engin einbeiting? Lothar Mattháus gagnrýndi Illgner harðlega eftir leikinn fyrir það að ákveða svo snarlega að hætta með landsliðinu. „Þegar leikmaður til- kynnir hálftíma eftir leik að hann sé hættur í landsliðinu var þá ein- hvem tíma einhver einbeiting til staðar hjá þessum leikmanni?" spurði Mattháus. HM-SPAINISIMA ÍMIS® Sláðu inn efnisflokk 1212 VERD KR. 39,90 MÍNÚTAN Fyrirtækja- og hópakeppni knattspyrnudeildar FH verður haldin laugardaginn 16. júlí á hinu glæsilega grassvæði félagsins í Kaplakrika. Leiktími er 2x10 mínútur og er þátttökugjald kr. 10.000. Verðlaunapeningar verða veittir fyrir 3 fyrstu sætin og sigurliðið fær bikar og kvöldverðarboð á veitingahúsinu A. Hansen. Skráning og nánari upplýsingar eru veittar í síma 53834.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.