Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 Sviðsljós Jóhannes Kristjánsson eftirherma, frá Brekku á Ingjaldssandi, skemmtir gömlum sveitungum sínum á sumar- hátíð í Aratungu. DV-mynd Reynir T raustason Vestfirðingar á sumarhátíð: Þúsund manns mættu í Aratungu Flateyringar, Súgfirðingar og Dýrflrðingar komu saman til ár- legrar sumarhátíðar í Aratungu um síöustu helgi. Tæplega 1000 manns mættu til hátiðarinnar sem stóð frá föstudegi til sunnudags. Blíðskaparveður var allan tímann og skemmti fólk sér hið besta. Það voru átthagafélög framan- greindra staða sem stóðu að sam- komunni og þess má geta að mann- fjöldinn á hátíðinni samsvarar því sem næst þeim fjölda sem á stöðun- um er búsettur. Fjölmargt var til skemmtunar, dansleikir voru haldnir, kvöld- vaka, þar sem Emil R. Hjartarson, fyrrverandi skólastjóri, kynnti atr- iði auk þess að skemmta sjálfur. íþróttir voru meginuppistaðan í hátíðinni og voru alls kyns kapp- leikir háðir milh byggðarlaganna. Veittur var bikar fyrir bestu frammistöðuna og Höfðu Flateyr- ingar sigur eftir harða baráttu. Að sögn Bjöms Inga Bjarnason- ar, helsta frumkvöðuls hátíðarinn- ar, vora mótshaldarar mjög ánægðir með hátíðina. Bjöm sagði megintilganginn vera þann að ná upp þeirri stemningu sem var á héraðsmótunum á Núpi sem þessir sömu staðir stóðu að. Michael Jackson: Hatturinn og sáraum- Tom Cruise: Breyttur maður Um þessar mundir er Tom Cruise að leika í nýrri kvikmynd um hinn illræmda greifa Drakúla. Vegna hlutverksins hefur Tom þurft að láta hár sitt vaxa svo og skegg þannig að leikarinn ungi lítur öðra- vísi út en aðdáendur hans hafa van- ist í gegnum árin. Nicole Kidman, unnusta Tom, hef- ur ekkert nema gott að segja um hið nýja útlit og finnst aö hann eigi að halda því eftir að myndatökum lýk- ur. „Hann lítur mjög vel út og þaö er engin þörf til að breyta neinu sama hvað aödáendur hans segja,“ sagði Nicole. Margir segja það einnig hollt fyrir Tom að fara svara kalii timans enda hafi mikið vatn rannið til sjávar síð- an Top Gun var og hét. Tom Cruise hefur lítið verið inn í umræðunni um sinn eigin stíl enda virðist Nicole Kidman vera ráðandi afl á þeim slóðum. búðimar gerðu útslagið Snemma beyg- ist krókurinn Raddir hafa heyrst um að Michael Jackson sé á höttunum eftir dóttur Elvis Presley, Lisu Mariu Presley. Síðastliðinn mánuð hafa þau sést víðs vegar um Bandaríkin og telja margir að eitthvað sé að gerjast þeirra í milli. Fyrir nokkra sáust þau á Disney- og Universal-safninu ásamt tveimur börnum Lisu af fyrra hjónabandi. Michael gerði tfiraun til að dulbú- ast, lét á sig sítt mjótt skegg en hins vegar tókst honum ekki að blekkja marga. „Þau voru eins og hverjir aðrir ferðamenn fyrir utan hið mis- heppnaða skegg sem Jackson var með. í fyrstu hélt ég að þetta væri gamall kínveiji en síðan þekkti ég hattinn og sáraumbúðirnar á nefinu og þá var ég ekki lengur í neinum vafa,“ sagði sjónarvottur. Dóttir Nataliu Wood, Natasha Greg- son Wagner, er komin á beinu braut- ina í kvikmyndaleik. Natasha, sem þykir ótrúlega lík móður sinni, hefur undanfariö verið að þreifa fyrir sér sem leikkona og fékk 'um daginn hlutverk í kvik- myndinni Dead Beat. Alveg frá unglingsárum hennar hefur henni verið líkt við Nataliu, bæði hvað varðar fas og útlit. „Eitt sinn var ég ásamt nokkram skólasystkinum mínum að horfa á kvikmynd sem móðir mín lék í. Skyndfiega byrjuðu allir að stara á mig því ég leit nákvæmlega út eins og hún, þetta var mjög skrýtið," sagði Jim Carrey: Nær dauða en lífi Það er margf gott hægt að segja um Michael Jackson en ekki að hann sé góður í þvi að dulbúast. Nýstimið í Hollywood, Jim Carrey, lenti um daginn í lífsreynslu sem hann á seint eftir að gleyma. Hinn ungi leikari var í miðri töku þegar hann hneig niður og byijaði að kasta upp. Ekið var með hann í flýti á næsta spítala þar sem hann undirgekkst uppskurð og gallblaðr- an var fjarlægð. „Verkirnir vora ólýsanlegir. Það er fyrst núna sem ég get skilið her- mennina sem biðja um að láta skjóta sig frekar en að þurfa að þola áfram- haldandi þjáningar," sagði Jim. Natasha. Natasha segist ekki vita af hveiju hún hafi hug á að gerast leikkona en telur líklegt að það sé eitthvað í eðli hennar sem stjómi því. Jim Carrey var heppinn því ekki skildu nema nokkrar minútur milli lífs og dauða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.