Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 25 Fréttir Axel K. Axelsson með tvo fyrstu flugulaxana sína i fyrrkvöld í Elliðaánum en áin var komin meö 180 laxa í gærkvöld. DV-mynd G.Bender Hvolsá og Staðarhólsá: Lax og bleikja hellast inn ána - góð byijun í Búðardalsá Laxveiðin er einkennileg þessa dagana; sumir ár hafa að geyma íjölda laxa en aðrar miklu minna af fiski. Þeir eru heppnir sem opna veiðiámar, þeir veiða vel og svo dettur botninn úr veiðinni. „Við fengum 6 laxa og 20 bleikj- ur. Stærsti laxinn var 13 pund og veiddist í Staðarhólsánni. Stærsta bleikjan var 3 pund,“ sagði Þor- valdur Ingi Jónsson, einn af þeim sem veiddu í fyrsta hollinu í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum. „Þetta var fiölskylduferð og allir fengu að veiða en í lóninu veiddum við 8 bleikjur," sagði Þorvaldur í lokin. „Laxinn og bleikjan eru að hell- ast inn árnar þessa dagana enda hefur veiðin byijað vel,“ sagði Sæ- mundur Kristjánsson þegar við spurðum um Hvolsá og Staðar- hólsá í gærkvöld. Hollið sem var við veiðar í gær- kvöld var komið með 8 laxa og eitt- hvað af vænum bleikjum. „Núpá á Snæfellsnesi hefur gefið 100 laxa og þeir tveir stærstu voru 20 pund. Síðan kemur svo einn 19 punda," sagði Eiríkur St. Eiríksson í gærkvöld, aðspurður um Núpá á Snæfellsnesi. „Veiðin gengur vel í Núpá enda höfum við sleppt hellingi af laxi. Það em líka komnar 30 bleikjur,“ sagði Eiríkur enn fremur. Góð byrjun í Búðardalsá „Það veiddust fimm laxar við í opnun og sá stærsti var 22 pund. Annars vom þetta 16, 15, 12 og 11 punda fiskar," sagði veiöimaöur á bökkum Búðardalsár á Skarðs- strönd i vikunni. „Það sást eitthvað af fiski en það er Olíufélagið sem hefur ána á leigu,“ sagði veiðimaöurinn enn fremur. Hvannadalsá hefurgefið 17 laxa „Það eru komnir 17 laxar á land í Hvannadalsá og hann er 15 pund sá stærsti, Trausti Ólafsson veiddi fiskinn," sagði Ingólfur Ólafsson í gærkvöld þegar við leituðum frétta af Hvannadalsá. „Við vomm um helgina og veidd- um 7 laxa. Sá stærsti hjá okkur var 14 pund. Allir laxarnir veiddust í Djúpafossi og þar vom 15 laxar þegar við hættum veiðum. Svo næstu veiðimenn ættu að fá eitt- hvað í ánni,“ sagði Ingólfur í lokin. Miðfjarðará hefurgefið130 laxa „Þetta var mjög erfitt en hollið var komið með 30 laxa eftir tvo daga og það þurfti að hafa verulega fyrir þessari veiði,“ sagði veiðimað- ur sem var að koma úr Miðfiarðará í fyrradag. „Áin hefur gefið 130 laxa en það er ekki mikið af fiski og það er erf- itt að fá laxana til að taka,“ sagði veiðimaðurinn. Opnun Hvolsár og Staðarhólsár var góð en á mynd- inni eru Sigrún Helga Björgvinsdóttir, Ingibjörg íris Ásgeirsdóttir, Halldór Jón Björgvinsson, Björg Áskelsdóttir, Áslaug Hallgrímsdóttir, Ingi Már Þor- valdsson og Sigrún Hallgrímsdóttir sem fékk sinn maríulax. DV-mynd Þorvaldur Kolbrún, Nanna og Guðrún Æsa á bökkum Hvanna- dalsár með góöa veiði. - Djúpifoss í baksýn. DV-mynd Ingólfur Sviðsljós Glæsilegt stökk hjá þeim Þóri Kristinssyni og Ævari Hilmarssynien þeir félagar kepptu í mótokrossi á Sandskeiði á sunnudag. DV-mynd SIS Hjólreiðakeppni Æskulýðs- ráðs Hafnarfjarðar Hjólreiðakeppni Æskulýðs- og tóm- stundaráðs Hafnarfiarðar fer fram fimmtudaginn 14. júlí á Víðistaöatúni. Keppnin er fyrir krakka á aldrinum 8-14 ára og felst í því að hjóla ákveðna vega- lengd á sem bestum tíma. Þátttakendur mæti kl. 13 á Víöistaðatúni og keppnin hefst síðan kl. 13.30. Allir keppendur eiga aö mæta með hjálma. Félag íslenskra hjúkrunar- fræðinga - eftirlaunadeild fer í skemmtiferð miðvikudaginn 20. júli nk. Farið verður til Nesjavalla og Þing- valla. Drukkið kaffi í Valhöll. Lagt af stað frá Suðurlandsbraut 22 kl. 13 og komið aftur í bæinn um kl. 19. Nánari upplýs- ingar á skrifstofu félagsins, s. 687575, og þar verða þátttakendur skráðir. S K Y Jjóö ofi kmt móí óo óto ofmftíí Ijtcoomsocðóölono Tilkyimingar Tímaritið Ský hættir að koma út Ellefta og jafnframt síðasta hefti af skáld- skapartímaritinu Skýi er er komið út. í stað tímaritaútgáfunnar verður bókaút- gáfa Skýs efld - einkum smábókaútgáfa og er komið á vegum forlagsins hæku- kverið Regnhlífar í New York eftir Óskar Áma Óskarsson. Fjallkonur í fimmtíu ár í tilefhi 50 ára afmælis íslenska lýðveldis- ins hefur Bókaútgáfan Blik tekið saman þóð ástsælustu skálda þjóðarinnar, sem flutt hafa verið 17. júní ár hvert frá lýð- veldisstofnun, og sett á bók. Bókin hefur hlotið nafnið Fjallkonur í fimmtiu ár og er prýdd fjölmörgum myndum af Usta- konunum og skáldunum sem ortu ljóðin. Sýningar Gísli Jósefsson sýnir á Selfossi Gísli Jósefsson, málari og listmálari, heldur um þessar mundir málverkasýn- ingu í Kaffi Krús, Austurvegi 7, Selfossi. Á sýningunni eru nokkur olíuverk og vatnslitamyndir sem eru málaðar á imd- anfórnum árum. Þetta er þriðja einka- sýning Gísla. Sýningin stendur til 16. júlí. nr. 11 • júní 1994 Afmælisrit Hressó Ljóð og laust mál, 60 ára afmæh Hressing- arskálans er heiti á nýrri bók sem Hress- ingarskálinn gefur nú út. í bókinni er fjöldi smásagna og Ijóða eftir hluta af þeim skáldum og rithöfúndum sem setið hafa staöinn. Ritstjóri er Benedikt Lafle- ur. í bókina skrifa á fimmta tug skálda og er hún tæpar 200 síður. Fjallahjólamót Fjallahjólamót verður haldiö dagana 15.-17. júlí viö Skátafell í Skorradal í landi Skátafélags Akraness. Að mótinu standa íslenski fjallahjólaklúbburinn og skáta- félagið á Akranesi. Öllum er heimil þátt- taka en þar sem aðeins takmarkaður fjöldi getur gist á mótsstað munu skátar og meðlimir íslenska fjallahjólaklúbbs- ins hafa forgang. Hafið því samband sem fyrst. Skráning og frekari upplýsingar hjá Fjallahjólaklúbbnum s. 620099 (helst á kvöldin).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.