Dagur - 20.12.1979, Page 19

Dagur - 20.12.1979, Page 19
SAGA SVEITAR- STJÓRNAR síðara bindi eftir Lýð Björnsson ÚT ER komin hjá Almenna bóka- félaginu síðara bindið af Sögu sveitarstjórnar eftir Lýð Björnsson sagnfræðing. Fyrra bindi verksins kom út árið 1972 og var þar fjallað um tímabilið fyrir 1872. I þessu nýja bindi er gerð grein fyrir sveit- arfélögum i landinu og starfi þeirra síðustu hundrað árin. í bókinni er rakin saga amta og sýslna og gerð grein fyrir breyting- um á skiptingu landsins í sveitarfé- lög. Fjallað er um stjórn sveitarfé- laga og breytingar á sveitarstjórn- arlöggjöf, tekjustofna sveitarfélaga og verkefni, landshlutasamtök sveitarfélaga og samband íslenzkra sveitarfélaga. MADS OG MILALIK barnabók frá Græn- landi eftir Svend Otto ALMENNA bókafélagið hefur sent frá sér barnabókina Mads og Milalik eftir danska teiknarann og barnabókahöfundinn Svend Otto S. Þýðandi er Jóhannes Halldórs- son. Mads og Milalik er myndabók sem gerist á Grænlandi. Hún segir frá grænlenzkum börnum og hundinum þeirra. Þessi börn lenda í vandræðum því að vetrarríkið er mikið á Grænlandi, og þá er betra fyrir böm sem eru mikið úti að hafa trausta hunda til að hjálpa sér, eins og segir á kápukynningu bókar- innar. Mads og Milalik er 26 bls. í stóru broti. Hún er sett í Prentsmiðjunni Odda en prentuð og bundin úti í Værlöse í Danmörku. I ríki Vatnajökuls á hestbaki og skíðum eftir Hans Watson Ahlmann Þýðandi Hjörtur Pálsson í ríki Vatnajökuls, sem Almenna bókafélagið gefur út heitir á frum- málinu Pa skider och till hast í Vatnajökulls rike og segir frá Vatnajökulsleiðangri sem frægur varð hér á landi á sínum tíma, leið- angri þeirra prófessors Ahlmanns og Jóns Eyþórssonar vorið 1936. I HarisWson Ahlmunn í RlKI VA1NAJÖKULS á hestbaki og skíöum för með þeim voru íslendingarnir Sigurður Þórarinsson, sem þá var nemandi prófessors Ahlmanns, og ferðagarpurinn Jón Jónsson frá Laug. Auk þess tveir ungir Svíar, þeir Carl Mannerfelt, landfræði- stúdent, nú forstjóri Esselte í Sví- þjóð, og Mae Lilliehöök, skíða- kennari og tamningamaður sleða- hunda. Þeir höfðu meðferðis 4 Grænlandshunda, sem drógu sleða um jökulinn, og vöktu þeir meðal almennings enn þá meiri athygli en mennirnir, segir 1 eftirmála prófessors Sigurðar Þórarinssonar. Er þetta sennilega í eina skiptið eftir danska listmálarann Grete Lindk Grönbeck — konuna sem gift var Gunnlaugi Scheving list- málara. Bókin ber titilinn Árin okkar Gunnlaugs. Fyrstu kaflar bókarinnar eru lýsing á lífinu á listaakademíunni, en meginhluti hennar eru íslands- árin, „trúverðug lýsing á íslend- ingum á árum kreppunnar, lífi ÁRIN OKKAR GUNNLAUGS bókamarkaði sem hundasleði hefur verið notað- ur hér á landi. 1 ríki Vatnajökuls er 210 bls. að stærð auk 36 myndasíðna með fjölda mynda úr leiðangrinum. Bókin er unnin i Prentsmiðju ÁrnaValdemarssonar og bundin í bókbandsstofunni Örkinni. Árin okkar Gunn- laugs eftir Grete Linck Grönbech í þýðingu Jóhönnu Þráins- dóttur Almenna bókafélagið hefur sent frá sér minningabók frá íslandi GRETE LINCK GRÖNBECH þeirra og lifnaðarháttum eins og þetta kemur fyrir sjónir ungri út- legdri konu, sem alin var upp við formfestu danskrar millistéttar og kom hingað öllum ókunnug nema eiginmanni sínum.“ Grete Linck Grönbeck kom ekki aftur til íslands fyrr en sumarið 1977 og þá var Gunnlaugur látinn. Hafði hún þá með sér handrit þessara minninga. í lok bókarinnar er greinargerð um norræna lista- menn sem á er minnst í bókinni. Árin okkar Gunnlaugs er 200 bls. að stærð og unnin í Prentsmiðju Áma Valdemarssonar og Bók- bandsstofunni örkinni. Gjafir, áheit og aðrar tekjur er borist hafa í Byggingarsjóð Sjálfsbjargar, tímabilið frá l.júní til 5. nóvember 1979: Akureyrarbær kr. 3.300.000. Frímann Pálmason 10.000. Presthólahreppur, N- Þing. 100.000. Svalbarðshreppur, N-Þing. 100.000. Sigurbjörn Gunnarsson 10.000. Elínrós Sigmundsdóttir 25.000. Ólöf Þór- hallsdóttir 25.000. Björn Elíasson 5.000 Þverárhreppur V-Hún. 25.000. N.N. 5.000. Heimilisfólkið Hrísum, Eyjaf. 13.128 Hrafnagilshreppur, Eyjaf. 300.000. Seld gjafabréf í Grímsey, af Kiwaniskl. á staðn- um 43.000. Ágóði af auglýsinga- og kynn- ingarbækling 46.000. Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri 10.000.000. Hrefna Pétursdóttir 40.000. Skútustaðahreppur, Mývatnssveit 100.000. Ágóði af hlutaveltu haldin af Svanhildi og Sigurrós 17.600. Ágóði af hlutaveltu haldinni af Stefáni, Elvari og Jónönnu 10.700. Þ.D. 100.000. Magnús Benediktsson, Vöglum 5.000. öxnadals hreppur 80.000. Seld gjafabréf á Ólafsfirði, af Kiwaniskl. á staðnum 600.000. Þórólfur og Anna, Svalbarðsströnd 5.860. Valdimar Jónsson, Akureyri, áheit 5.000. Kristbjörg Sigurðardóttir 5.000. Borghildur og Jónas frá Brekknakoti 20.000. Samband norð lenskra kvenfélaga, safnað af aðildarfélög- um 1.435.379. Hugrún Harðardóttir 1.070. Trésmlðafélag Akureyrar 1.000.000 Sauðaneshreppur 25.000. Seld gjafabréf á Dalvík, af Jóhönnu Gunnlaugsdóttur 555.000. Sveinafélag járniðnaðarmanna 700.000. Bárðdælahreppur 75.000. Seylu- hreppur 250.000. Gjafir úr Svarfaðardal 16.600. Oddný Jónsdóttir, Akureyri 10.000. Seld gjafabréf í Svarfaðardal af Guðrúnu A. Kristinsdóttur 200.000. Ágóði af spila kvöldum 282.400. Ágóði af kökubazar 6. nóvember 95.400. Seld gjafabréf í Hrísey. af Lionsklúbbnum á staðnum 291.000. — Samtals kr. 19.933.137. Sjálfsbjörg þakkar fyrir veittan stuðning og hlýhug. FLYTUR FÉLAGSMÖNNUM SÍNUM, FJÖLSKYLDUM — - ÞEIRRA, SVO OG HINUM MÖRGU VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM UM LAND ALLT, beztu þakkic fyrir viðskiptin á liðna árinu, og óskar öllum DAGUR.19

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.