Dagur - 20.12.1979, Page 36
Nýjar bækur ffrá
Bókaútgáfunni
Skjaldborg
Káta gerist skáti
Þá eru KÁTU-bækurnar orðnar
níu, og nú eru aðeins þrjár bækur
eftir í bókaflokknum um KÁTU og
vini hennar. Það gerist alltaf eitt-
hvað þegar Káta er annars vegar. í
þessari bók er sagt frá því er Káta
gerist skáti og tekur þátt í skátamóti
í fyrsta sinn. Þær eru alltaf jafn
skemmtilegar KÁTU-bækurnar.
— Lesið sjálf!
Kátu bækurnar eru fyrir yngstu
lesendurna.
Indriði Úlfsson:
Stroku-Palli
Ný íslensk barna- og ung-
lingabók
Nú sendir Bókaútgáfan Skjaldborg
á Akureyri frá sér tólftu barna- og
unglingabók Indriða Úlfssonar,
skólastjóra á Akureyri. Indriði er í
fremstu röð rithöfunda, sem skrifa
fyrir ungu kynslóðina hér á landi,
og einnig afkastamesti rithöfund-
urinn. Bækur hans njóta mikilla
vinsælda og hafa fengið lof gagn-
rýnenda blaðanna og eru fyrstu
bækur Indriða löngu uppseldar.
INDDIDI ÚLFSSON
Stroku-Palli er algjörlega sjálf-
stæð saga. Aðalsöguhetjan heitir
Páll og er hálfgerður óknyttastrák7
ur, sem oft hefur komist í kast við
lögregluna. Að lokum er hann
sendur til Gríms gamla vitavarðar í
Stormey, en oft áður hafði hann
verið sendur í sveit, en alltaf strokið
þaðan og því fékk hann viðurnefn-
ið Stroku-Palli. En Palli var ekki af
baki dottinn og reyndi að strjuka úr
eynni. En tókst honum það?
Til athugunar fyrir eldri sem
yngri. Þetta er ein af örfáum frum-
sömdum, íslenskum bókum, fyrir
börn og unglinga sem koma út hér
á landi á þessu ári (Barnaári).
Sagan gerist í íslensku umhverfi
og gæti raunar gerst í hvaða kaup-
stað sem er á íslandi.
Gunnar S. Sigurjónsson:
Kveldskin
Dulrænar frásagnir og Ijóð
Höfundur þessarar bókar, Gunnar
S. Sigurjónsson, húsvörður Iðn-
skólans á Akureyri, sendir nú frá
sér sína fyrstu bók. Hann er kom-
36 . DAGUR
Gunnar S. Sigurjónsson
Kveldskin
Dulrænar frásagrur,hugdeiturog ljóð
liðftindur sfigir m i ftl kynaum smum »f þiófcMklajo
D*v» ftrfhsfd úi Ea«ru*kóp - M tru friuwnir *f
ffilðibfuudufn tnet> Hsisteitu Bjnmssyni og Btör^o OUfsdórtut.
inn á efri ár er hann nú gefur fólki
kost á að skyggnast inn í hugar-
heima sína. Víst er þar forvitnilegt
um að litast og fylgjast með höf-
undi er hann bregður upp myndum
frá þessum heimi og þeim sem við
tekur að lífi loknu.
Gunnar hefur tekið mikinn þátt í
störfum Sálarrannsóknarfélags
Akureyrar og oft verið aðstoðar-
maður þeirra miðla, sem hingað
hafa komið á vegum félagsins.
Þetta er tilvalin bók fyrir þá, sem
áhuga hafa á dulrænum málefnum.
Fjallabæjafólk
Æviminningar Einars
Kristjánssonar frá Her-
mundarfelli
Bókaútgáfan Skjaldborg sendur nú
frá sér I. bindi í heildarútgáfu af
verkum Einars Kristjánssonar, rit-
höfundar, sem er vel kunnur af
smásagnagerð, skemmtiþáttum,
leikþáttum, ljóðagerð, og síðast en
ekki síst, af erindaflutningi í Ríkis-
útvarpinu, sem hlotið hefur al-
mennar og framúrskarandi vin-
FIALIABÆIAFÓLK
sældir. Áætlað er að útgáfan verði í
nokkrum bindum, og hafi að inni-
haldi minningar frá æskuárúm
höfundar á Hermundarfelli í Þist-
ilfirði, skólaminningar frá Lundi í
Öxarfirði, Reykholti og Hvanneyri
í Borgarfirði, og koma þar margir
við sögu.
Þá verður greint frá fullorðins-
árum við heimilisstofnun og bú-
skap í Þistilfirði, nágrönnum, vin-
um og fjölskyldulífi.
Að síðustu víkur sögunni til Ak-
ureyrar, og segir þar af margvísleg-
um kynnum höfundar við sam-
starfsfólk og aðra bæjarbúa um
meira en 30 ára tímabil.
Þá verða í þessu heildarsafni um
það bil 60 smásögur, 30 útvarps-
erindi, 20 önnur erindi og blaða-
greinar og viðtöl, nokkrir leikþætt-
ir, ljóð og kveðlingar.
í ritsafninu verður fjöldi mynda
af þeim er við sögu koma, og
myndskreytingar munu fylgja all-
mörgum smásagnanna.
Enginn þarf að efast um að þetta
ritsafn verður s'kemmtilegt til lestr-
ar fyrir fólk á öllum aldri og
ánægjuleg eign.
Dagurá
bókamarkaði
ástarmmr
fíogn uro ólgandi áítlr o* ójtnjjrunRÍn órióc
Guðbjörg Hermannsdóttir:
Krókaleiðir ástarinn-
ar
Þetta er önnur bók Guðbjargar
Hermannsdóttur, húsmóður á Ak-
ureyri.
Fyrsta bók hennar, Allir þrá að
elska, kom út á síðasta ári og hlaut
miklar vinsældir og hefur Guð-
björg þegar eignast stóran lesenda-
hóp.
Þessi nýja bók hennar, Króka-
leiðir ástarinnar, er spennandi og
bráðskemmtileg aflestrar. Þetta er
saga um ólgandi ástir og ógn-
þrungin örlög fólks á hernámsár-
unum á íslandi.
Eins og í öllum ástarsögum vefa
örlögin þráð sinn hratt og fimlega,
en sagan gerist bæði í borg og í
sveit.
Fylgist með bókum Guðbjargar
frá upphafi og tryggið ykkur eintak
af KRÓKALEIÐIR ÁSTARINN-
AR og ALLIR ÞRÁ AÐ ELSKA.
Haldíð til haga
Mlnningar Bjartmars
Guðmundssonar fyrrv.
bónda og alþingismanns á
Sandl
Nú sendir Bókaútgáfan Skjaldborg
frá sér síðara bindið af minninga-
þáttum Bjartmars Guðmundssonar
frá Sandi. í þessari bók eru 19
þættir. Fyrra bindið, Hér geta allir
verið sælir, hlaut miklar vinsældir
og varð metsölubók í Þingeyjar-
sýslu. Þá fékk Bjartmar viðurkenn-
ingu hjá Úthlutunarnefnd lista-
mannalauna fyrir bókina Hér geta
allir verið sælir.
Þessi bók Haldið til haga er lík
fyrri bókinni og koma margir við
sögu, bæði sveitungar Bjartmars og
fleiri. Allir þættirnir eru vel skrif-
aðir „ og þeir bestu með óvenju-
legum ágætum,“ svo vitnað sé til
Minningar
Bjartmars
irv.bónda og alþlngismanns á Sandi
orða Gísla Jónssonar mennta-
skólakennara í ritdómi um fyrra
bindið. Allmargar myndir prýða
bókina.
Þetta er vafalaust ein albesta ís-
lenska bókin, sem kemur nú á
bókamarkað, og eitt er víst, að allir,
bæði ungir og aldnir, hafa ánægju
af að lesa þessa bók.
Nýjar bækur frá
Bókaforlagi Odds
Björnssonar
Dyr dauðans
eftir Frank G. Slaughter
Þetta er sagan um Lynne Tall-
man, alræmda hryðjuverkakonu
og útsendara hins illa. Hún ferst í
flugslysi, en blaðakonan Janet
Burke, sem er að skrifa greina-
flokk um Lynne og myrkraverk
hennar, bjargast naumlega úr
slysinu. Frægur skurðlæknir,
Mike Kerns, sem er sérfræðingur
í líkamslýtum, tekst ekki ein-
göngu að bjarga lífi Janet —
honum tekst einnig með skurð-
aðgerðum að gera hana að stór-
glæsilegri konu sem allir karl-
menn sækjast eftir og sjálfur
... heitar ástríður - dulræn spenna
verður hann ástfanginn af henni.
En hinn illi andi sem bjó í Lynne
Tallman hefur nú skipt um að-
setur og búið um sig í Janet. Tekst
kunnáttumönnum að reka hinn
illa anda úr þessari glæsilegu
konu áður en það er um seinan?
Skáldsagnameistarinn Frank G.
Slaughter heldur lesandanum í
stórkostlegri spennu allt til sögu-
loka.
Kápuna hannaði Kristján
Kristjánsson.
Hofdala-
Jónas
Jónas Jónasson frá Hofdölum
fæddist 13. nóvember 1879. Hann
hefði þvíorðið 100 ára á þessu ári,
hefði hann lifað.
Jónas var um áratugi framar-
lega í flokki þeirra sem settu svip
á skagfirzkt menningarlíf. I
Skagafirði kannaðist hvert
mannsbarn við hann; á efri árum
var hann þjóðkunnur.
Sjálfsævisaga hans, sem hér
birtist, er frábærlega vel skráð, og
má hiklaust telja með því bezta af
JÖNAS JÓNASSON
Joiuts
Sjálfsœvisaga
Frásöguþœttir
Bundið mál
Hanncs Pctursson og
Kristmundur Bjamason
bjuggu undir prentun
því tagi sem ritað hefur verið á
íslenzka tungu til þessa. Þessi
glæsilega bók er hátt á fimmta
hundrað blaðsíður í stóru broti,
prýdd fjölda mynd og í bókarlok
er ítarleg mannanafnaskrá. Bókin
skiptist I þrjá meginþætti: Sjálfs-
ævisögu Jónasar, frásagnaþætti
og bundið mál. Hannes Pétursson
skáld og Kristmundur Bjamason
fræðimaður á Sjávarborg hafa
búið bókina undir prentun.
Hér er vissulega vegleg vinar-
gjöf. Kápuútlit hannaði Kristján
Kristjánsson.
Margslungið
mannlíf
— Þá kemur út hjá Bókaforlag-
inu „Margslungið mannlíf“
I þessari bók rekur Friðrik
Hallgrímsson frá Úlfsstaðakoti í
Blönduhlíð í Skagafirði ævi-
minningar sínar. Hann fæddist í
lítilli baðstofukytru að Úlfsstaða-
koti þann 14. janúar 1895 og er
því kominn á níræðisaldur þegar
hann skráir ævisögu sína og hefur
eignazt 80 afkomendur.
Friðrik er stálminnugur, frá-
sögn hans er leikandi létt og hann
fer aldrei dult með skoðanir sínar
á mönnum og málefnum sinnar
samtíðar. Hann er óvenjulega
bersögull og hispurslaus, segir frá
hverju atviki eins og það blasir
við af eigin sjónarhóli og lætur sér
hvergi bregða þótt skoðanir hans
kunni á stundum að stangast á við
skoðanir annarra. En gegnum
frásögnina skín ást bóndans á
landinu og gróðurmætti íslenzkr-
ar moldar.
Kápuútlit hannaði Guðbrand-
ur Magnússon.
Síðasta
baðstofan
— Síðasta baðstofan er ný
skáldsaga eftir Oddnýju Guð-
mundsdóttur.
í þessari raunsönnu sveitalífs-
frásögn fylgist lesandinn af
brennandi áhuga með þeim Dísu
og Eyvindi, söguhetjunum, með
ástum þeirra og tilhugalífi, með
fátækt þeirra og búhokri á af-
dalakoti, frá kreppuárum til alls-
nægta velferðaþjóðfélags eftir-
stríðsáranna. Hér kynnumst við
heilu héraði og íbúum þess um
hálfrar aldar skeið — og okkur fer
að þykja vænt um þetta fólk.