Dagur - 23.12.1986, Page 7
23. desember 1986 - DAGUR - 7
kjöti frá Sambandinu. í kringum
jólatréð lágu látlausir jólapakkar
og þrjú bergnuminn börn sátu
andspænis trénu og horfðu með
lotningu á marglit ljósin. Hátíð-
leikinn bylgjaðist um íbúðina og
teygði sig fram í eldhús þar sem
tveir synir hjónanna önnuðust
matseld ásamt eiginkonum
sínum. Langlfnusímtal færði frið-
sælum hjónunum hugheilar
jólaóskir frá dætrum þeirra
þremur og börnum þeirra.
Fögnuður. Friður. Lotning.
Eftirvænting. Kirkjuklukkur
boðuðu hátíð frelsarans. Kær-
leikurinn hafði sigrað. Hið góða í
manninum stóðst átök firringar-
innar og helgileiki jólanna sam-
einaði fjölskyldur um allan heim
þar sem fólk blessaði fæðingu
frelsarans. „í allri veröld ljósið
skein.."
Draumurinn gliðnaði og veru-
leikinn braust fram. Sjónvarpið
öskraði með öllum sínum sann-
færingarmætti. Sigfinnur hrökk í
kút og myndirnar á skjánum
reyndu að jjröngva sér inn í stof-
una. Hann huldi andlitið í greip-
um sér og fortíðin dansaði takt-
laust við samtíðina í huga hans.
Með uppgjöf í hverjum andlits-
drætti leit hann upp og stundi:
„Af hverju. . .af hverju?"
Stefán Þór
Kveðja frá Aðaktemi Óskarssyni
í tifejm sjötíu ára afmcdis fmns si. suinar
Pid sem að senduð mér kveðjur, kort,
kassa fulla af ýmsum gjöfum
til mín hafa svo vmsir ort
eftir nútímans ströngum kröfum.
Blómin öll, sem ég fékk þeim frá
þau fylltu huga minn unaðsfriði,
ótalmargt fleira er að sjá
sem er frá vinum og skylduliði.
Ég sendi ykkur þennan ástaróð
öllum sem viljið mál mitt heyra,
gefi svo Drottinn gleðileg jól,
og gæfuríkt ár, með ýmsu fleira.
Framtíðin ykkur færi í skaut
frið og lækning á hverju meini.
Guð ykkur leiði á gæfuhraut,
með góðri kveðju frá Aðalsteini.
A þcssari mynd sést í átt til kirkj-
unnar, cn í forgrunni eru fornir
borgarmúrar utan um York mið-
aldariddaranna.
Þannig leit kirkjan út úr lofti, eftir
að búið var að slökkva eldana.
Brunna álman og miðturninn gætu
verið svipuð að flatarmáli og Akur-
eyrarkirkja.