Dagur - 22.05.1987, Side 4

Dagur - 22.05.1987, Side 4
4-DAGUR-22. maí 1987 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SfMI 24222 ÁSKRIFT KR. 520 Á MÁNUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÓRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGILL BRAGASON, EGGERT TRYGGVASON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRfMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. JeiðarL Starfs- fræðsla og atvinnumál skólafólks Skólum er nú senn að ljúka og sá tími kominn þegar skólafólkið leitar sér starfa á vinnu- markaðinum. Það hefur ævinlega verið talið sjálf- sagt á íslandi að skóla- nemendur færu út á vinnumarkaðinn yfir sumartímann og hefur skólastarf jafnvel verið skipulagt að hluta með þetta í huga. Óvíða er- lendis tíðkast jafn langt sumarfrí í skólunum og hér á landi. Þar eru skóla- frí meira í líkingu við það sem gerist með sumarfrí á almennum vinnumarkaði. Á íslandi hefur svo verið um áratuga skeið, að sumarvinnan hefur verið mikilvægur þáttur í uppfræðslu ungmenna úti um allt land. Oft hefur gengið erfiðlega fyrir skólafólkið að fá vinnu, jafnvel jaðrað við atvinnu- leysi á vinnumarkaðinum. Þá hefur það sjónarmið gjarnan komið upp að skólafólk verði að láta í minni pokann fyrir þeim sem vantaði starf. Það sjónarmið er út af fyrir sig eðlilegt. Nú er atvinnu- ástand með þeim hætti að víðast hvar vantar sárlega starfsfólk og því ættu atvinnumál skólafólks að leysast með þokkalegum hætti þetta sumarið. Ef til vill vegna þess að skólafólk hefur í sumar- fríum sínum verið í nánum tengslum við atvinnulífið, hefur starfsfræðsla í skól- um setið á hakanum. Tengsl atvinnulífs og skóla hafa verið sáralítil og er það afleitt. Það er nefnilega svo, að unga fólkið fer í þau störf á sumrin sem nærtækust eru og þau þekkja best fyrir. Þannig fara nemend- ur sjávarplássa í fiskverk- un eða á sjó, en ungmenni á höfuðborgarsvæðinu eiga greiðari aðgang að hvers kyns þjónustustörf- um. Þetta er til þess fallið að auka á stéttaskiptingu í þjóðfélaginu. Hættan er sú að fólk „fæðist" inn í ákveðin störf og búseta ráði því hver þau verða. Ef ekki verður spornað við þessu með stóraukinni fræðslu er hætta á því að mikil gjá myndist meðal þegnanna. Þeir skilji ekki tilveru hver annars - skilji ekki mikilvægi hinna ýmsu atvinnugreina og samhengið í þjóðfélaginu. Menntakerfið verður að taka á þessu af miklum stórhug og í samstarfi við atvinnulífið í landinu. HS H-úr hugskotirtu. Ei hægt eða hljótt Pá er sennilega mesti Eurovision fiðringurinn farinn úr fólkinu. Við héldum hægt og hljótt til Bruxelles, sem eitt- hvert bandarískt ferðamála- tímarit mun í fyrra hafa útnefnt Ijótustu höfuðborg í Evrópu (Reykjavík var víst næstljót- ust), þar sem við töpuðum með reisn, enda með í farteskinu eitthvert alfallegasta dægurlag sem samið hefur verið af Islend- ingi, skreytt látlausum, trega- blöndnum stemmningartexta, sem stingur skemmtilega í stúf við þessa hvimleiðu blöndu sjálfsásökunar og sjálfsdýrkun- ar sem mjög einkennir íslenska dægurlagatexta um þessar mundir. En það er sitthvað gæði og gengi. Sextánda sætið varð staðreynd. En þjóðin beit á jaxlinn, og næsta ár er það Dublin, falleg borg hjá drykk- felldri frændþjóð. Umbúðir Menn hafa vitaskuld mikið um það rætt og ritað hvers vegna afraksturinn varð ekki meiri en raun bar vitni þegar tillit er tek- ið til þess hversu frábæru lagi við óumdeilanlega tefldum fram, að viðbættum stórgóðum flutningi. Einhverjir segja, að svotil alveg hafi skort það sem virðist svo lífsnauðsynlegt í þessari keppni, nefnilega glansandi umbúðir, hismi sent þarna að vísu hefði hulið kjarna, en hefði lík^ vel getað spillt honum. Svo var líka talað um klíkuskap, jafnvel verslun með atkvæði. Ásakanir um slíkt athæfi eru mjög alvarlegar, og þær mega ei fara hægt og hljótt sé einhver minnsti fótur fyrir þeim. í þessu sambandi vekur þáttur Norður- landanna nokkra athygli. Svo virðist sem þau hafi verið einkar iðin við að skiptast á stigum, nema hvað litla ísland var auðvitað ekki með. Það voru bara Norsaragreyin sem ekki fylgdu forskriftinni nákvæm- lega, og áttuðu sig á því að svanirnir eru fimm. Hvort sem hér hefur verið um einskæra tilviljun að ræða, eða fyrirfram skipulögð samtök, þá hlýtur sú spurning óneitanlega að vakna hvort við íslendingar eigum yfir höfuð eitthvert erindi í samvinnu þessara þjóða á sviði sjónvarpsmála, og í því sambandi hlýtur maður ósjálf- rátt að velta því fyrir sér hvort það sé virkilega tveggja og hálfrar milljónar virði að vera að kosta fréttamann úti í Köben, og sú spurning hlýtur að vakna hvort þessum peningum væri ekki betur varið í það að koma upp frétta- og dagskrár- gerðarþjónustu á Vestfjörðum og Austurlandi. Einhvern veg- inn hefði maður nú frekar viljað fá klukkutíma langan þátt frá Súðavík, skreyttan úrvals Vest- fjarðapoppi, heldur en þennan innihaldslitla auglýsingaþátt frá Vímulausri æsku, en samtök þau munu tæpast, hins smá- borgaralega eðlis síns vegna bjarga nokkrum einasta unglingi frá eiturvánni, en gætu í versta falli valdið stórskaða, ef dópheildsalar hefðu vit á því að dyljast sem virkir félagar. Pað er með þessa útsendingu eins og Eurovisionkeppnina, miklar umbúðir um lítið, ef frá er talið skynsamlegt framlag Jakobs Stuðmanns Magnússonar, og einhvers ráðuneytismanns, sem báðir gerðu heiðarlega tilraun til að sjá kjarnann innan um hismið. Bætt kjör gegn vímuefnum Það kom þó fram í þessarri útsendingu þar sem Jón Gústafsson fékk í annað sinn tækifæri til að auglýsa ókeypis eigin framleiðsluvöru, að stór hluti þeirra unglinga sem vímu- efnum ánetjast, eigi í raun ekkert sem heitir „heima“, svo að eitthvað verður líklega lítið um forvarnirnar þar. Stór hluti þeirra tilheyrir þeim undirmáls- hópum sem enn fyrirfinnast í öllu góðærinu, jafnvel í Reykja- vík. Þessum hópi hjálpa engir sjónvarpsþættir eða Bylgju- vökur, og talandi um Bylgju- spilverkið þá er ekki úr vegi að mótmæla harðlega þeirri notk- un á lottóinnkomunni sem þar fór fram. Hundrað og fimmtán þúsund eru ef til vill ekki stór upphæð, en gæti þó gagnast vel til að mynda fötluðu barni ein- stæðrar móður. Unglingar úr hinni upplýstu, gjarnan tölvu- væddu, en ekki endilega vel menntuðu millistétt sem að Reynir Antonsson skrifar foreldrasamtökunum stendur að stórum hluta eru ekki í svo mikilli hættu um þessar mundir, einfaldlega vegna þess að dóp er ekki í tísku heldur hollusta. Hvað svo gerist ef persónu- njósnir verða teknar upp á heimilum er annað mál. Sem betur fer erum við íslendingar að mörgu leyti vel í stakk búnir til þess að hindra það að eiturlyfjaneysla verði mikið meira vandamál en þegar er orðið. Við höfum hér ekki umtalsvert atvinnuleysi, hryðju- verk eða önnur þau skilyrði fyrir því að gróðrarstía eitur- lyfja myndist hér. Þó er rétt að vera á varðbergi. Pannig er rétt að fylgjast með þeim sem auðg- ast skyndilega án eðlilegrar skýringar, og einnig mætti draga stórlega úr þeirri peningadýrkun og því auglýs- ingaskrumi sem svo mjög tröll- ríður þjóðfélaginu. En samfara þessu þarf að bæta verulega kjör allrar alþýðu á íslandi svo við þurfum ekki að skammast okkar þegar við ferðumst erlendis og erum spurð um lífs- kjör í landinu. Það verður að aflétta þeirri hömlulausu vinnu- þrælkun sem hér viðgengsti og veldur oft á tíðum þeirri upp- lausn og spennu sem leiðir til vímuefnaneyslu. Bætt kjör gegn vímuefnum er kjörorð sem ekki er alveg út í bláinn.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.